Alþýðublaðið - 15.07.1987, Síða 3
Miðvikudagur 15. júll 1987
3
Gosverksmiðjan hjá Sól h.f. er samsett úr einingum frá 11 löndum.
Nýjung frá Sól h.f.:
Gosdrykkir í plastdósum
Bindindishátíð
í Galtalæk
Bindindismótið í Galtalækjar-
skógi verður haldið um Verslunar-
mannahelgina 31. júlí til 3. ágúst
n.k. í 20. sinn. Að venju verður mik-
ið um dýrðir í Galtalaek um þessa
helgi og dagskráin Iátin höfða til
allra aldurshópa. ÖLL aðstaða til
útivistar er með besta móti og má
þar sérstaklega taka til hreinlætis-
aðstöðuna sem batnar með hverju
ári. í vor var veiturafmagni veitt í
Galtalækjarskóg, en með tilkomu
þess stórbatnar aðstaða til tónleika-
halds og annars reksturs á svæðinu.
Auk þessa hefur veitingaskálinn
Merkihvoll verið fullkláraður, en
þar geta 150 matargestir verið í
einu.
Á þessum tímamótum verður
dagskráin með hátíðarsniði. Auk
landskunnra skemmtikrafta koma
fram 7 þekktar hljómsveitir, þar af
4 sem unnu til verðlauna á Músíktil-
raunum ’87. Og að venju fá börn og
unglingar margt við sitt hæfi s.s.
tívoli, UNDRALAND (Ieiktæki),
Ökuleikni, Ieiki, söngvakeppni,
unglingahljómsveitir og grín.
200 merktir starfsmenn mótsins
munu sjá um að veita mótsgestum
sem besta þjónustu. Þeir sem
standa að bindindismótinu eru
Umdæmisstúkan no. 1 (IOGT) og
íslenskir ungtemplarar (IUT).
Jónína
aðstoðar
Þorstein
Jónína Michaelsdóttir hefur verið
ráðin aðstoðarmaður Þorsteins
Pálssonar forsætisráðherra, frá 1.
ágúst n.k.
Jónína starfaði sem blaðamaður
á Visi 1977—1980, var fram-
kvæmdastjóri samtakanna Við-
skipti og verslun 1980—1983, starf-
aði að markaðsráðgjöf við Iðnað-
arbankann 1984—1986 og hefur
síðan unnið sjálfstætt að verkefn-
um á sviði markaðsmála og að rit-
störfum.
Jónína hefur gegnt marghátt-
uðum trúnaðarstörfum fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Var meðal annars
formaður útbreiðslunefndar, sat
um skeið í framkvæmdastjórn
flokksins og í miðstjórn.
Jónína er gift Sigþóri Sigurðs-
syni, kerfisfræðingi, og eiga þau
þrjú börn.
Globus:
Frá rakvéla-
blöðum til SAAB
Globus hefur nú starfað í full 40
ár. Á þessum árum hefur fyrirtækið
vaxið jafnt og þétt og er nú orðið
stórfyrirtæki á íslenskan mælik-
varða. Sem dæmi má nefna að velt-
an árið 1956 var kr. 9.300r en nú
stefnir heildarveltan í tæpar 700
milljónir króna án söluskatts.
í upphafi snérist reksturinn svo
til eingöngu um innflutning og sölu
á Gillette rakvélum og rakvélablöð-
um en í dag hefur Globus haslað sér
völl í fjölmörgum greinum atvinnu-
lífsins, nú síðast bættist Saab-um-
boðið við. Markvisst hefur verið
unnið að því að dreifa rekstrar-
áhættu fyrirtækisins.
Starfsemin skiptist nú í 5 megin-
deildir auk fjármála- og rekstrar-
deildar. Þessi mikla fjölbreytni í
rekstrinum hefur tryggt starfsem-
inni stöðugleika og öryggi þrátt fyr-
ir sveiflur í einstökum greinum.
Globus er rekið í eigin húsnæði
að Lágmúla 5 og starfa þar nú 60
manns.
Gosdrykkir frá Sól hf. koma nú á
markaðinn undir vöruheitinu Sól-
gos, en það eru gosdrykkir fram-
leiddir eftir alíslenskum uppskrift-
um. Um leið verða teknar i notkun
umbúðavélar, sem eru þær fyrstu
sinnar tegundar í heiminum. Hér er
um að ræða plastdósa-, skurðar- og
miðavélar frá Japan. Ásamt vélun-
um er tekin í notkun framleiðslu-
keðja með vélbúnaði frá samtals
tólf löndum og býr íslenskt hugvit
að baki samsetningar og vali bún-
aðar. Verksmiðjan er í nýju hús-
næði Sólar hf. við Þverholt í
Reykjavík, en það er samtals 8.400
fermetrar að stærð. Til að byrja
með verða framleiddar fimm
bragðtegundir af nýja gosinu með
og án sykurs en búnaðurinn veitir
möguleika til framleiðslu hvers
konar drykkjarvöru þar með talið
vatn til útflutnings. 1 verksmiðj-
unni eru 100 tölvur þar af 18 forrit-
anlegar og starfsmenn við gos-
drykkjaframleiðsluna verða aðeins
fimm.
Löndin sem vélarnar koma frá
eru eftirtalin: Japan, Frakkland,
England, Þýskaland, Bandaríkin,
Venezuela, Holland, Spánn, Sviss,
Danmörk og Svíþjóð, auk íslands.
Plastdósavélin er hin fyrsta sinnar
tegundar í heiminum og hefur vak-
ið mikla athygli. Hafa komið hing-
að menn víðs vegar að úr heiminum
til að skoða hana og verður Sól hf.
sýningarverksmiðja fyrir hina
japönsku framleiðendur. Vélarnar
framleiða plastdósir úr tveimur lög-
um af PET (terelyne) með millilagi
úr MX-nyloni. Fyrst eru búnar til
flöskur, sem síðan er breytt i dósir
með því að flöskuhálsinn er skorinn
af í vél frá Hitachi Zosen í Japan, en
það er einnig fyrsta vél sinnar teg-
undar í heiminum og slær 500 högg
á mínútu, en tvö högg þarf við
hverja flösku. Þá tekur við önnur
ný japönsk vél, sem smeygir miða-
hólki á dósirnar, 250 hólkum á mín-
‘útu. Enn ein ný vél festir miðahólk-
ana á dósir með hitablæstri, en þær
eru báðar frá Fuji-Seal í Japan.
Auk þess að fylla i dósir getur véla-
samstæðan fyllt í 1.5 lítra plast-
flöskur.
Þá tekur við áfyllingin. Fyrst eru
dósir og flöskur þvegnar og þurrk-
aðar í vél frá Japan. Blöndun syk-
urs er sjálfvirk og blöndun bragð-
efna: sykurs, vatns, þykknis og kol-
sýru er tölvustýrð. Blöndunarkerfið
er íslensk hönnun, uppskriftir al-
íslenskar og því engin erlend stór-
fyrirtæki sem hagnast á uppskrift-
um eða einkaleyfum.
Eftir að gosið er komið í umbúð-
irnar eru dósalok völsuð á í vél frá
Ferrum í Sviss, en lokin sjálf koma
alla leið frá Venezuela. Þá hefst vél-
rænt eftirlit, þar sem fylgst er með
að allt sé i lagi og dósum sjálfvirkt
hafnað, ef eitthvað hefur brugðið
út af, dósirnar þurrkaðar og festar
saman sex og sex í pakkningu í vél-
um frá Hicone á Englandi. Síðan
raðast 24 dósir eða sex flöskur sjálf-
virkt í kassabotn í vél frá Þýska-
landi og plastfilma er sett utan um
kassana í vél frá sama landi.
Á hverri mínútu fara 10 kassar úr
pökkunarsal niður á neðri hæð
hússins með beygjufæribandi og
lyftu frá Ropack í Svíþjóð. Sjálf-
virk röðun kassa á vörubretti fer
fram í vél frá sama aðila. Síðan
kemur litli Golíat, sem er sjálfvirkt
sporvélmenni frá Þýskalandi, sækir
full vörubretti og afhendir Ropack
vélinni tóm börubretti í staðinn.
Þar næst sendir litli Golíat hlöðnu
vörubrettin til stóra Golíats, sem
kemur þeim fyrir í vörugeymslu.
Hún rúmar um 2.000 full bretti, en
stóri Golíat annast afgreiðslu eftir
því sem pantanir berast.
Auk ofantaldra nýjunga og vél-
búnaðar fylgir nýja framleiðslu-
kerfinu sjálfvirkt tölvustýrt þvotta-
kerfi, sem þvær alla framleiðslu-
brautina kvölds og morgna.
Bragðtegundir Sól-gossins nýja
verða: Cola, Límó, Appelsín,
Súkkó og Grape. Allar verða þær
framleiddar bæði með og án syk-
urs.
Cola er þegar komið á markað-
inn, en hinar bragðtegundirnar
koma á næstu dögum. Þá hafa er-
lendir aðilar sýnt mikinn áhuga á
að kaupa íslenskt drykkjarvatn í
plastdósum og hafa verið send sýn-
ishorn til útlanda til frekari athug-
ana.
Náttúru-
verndar-
ráðstefna
f Lissabon
Hinn 11. og 12. júní sl. var haldin
í Lissabon í Portúgal 5. ráðstefna
náttúruverndar- og umhverfismála-
ráðherra Evrópuráðsrikja. Af ís-
lands hálfu sóttu fundinn þeir
Knútur Hallsson, ráðuneytisstjóri
menntamálaráðuneytis, og Eyþór
Einarsson, formaður Náttúru-
verndarráðs. Aðalviðfangsefni ráð-
stefnunnar voru tvö: Verndun og
viðhald náttúruarfleifðar strjálbýi-
is Evrópuráðsríkja og Náttúru-
verndarstefnuskrá Evrópuráðsins.
Ályktunartillögur í mörgum liðum
um bæði þessi viðfangsefni voru
lagðar fyrir ráðstefnuna og sam-
þykktar. Þær fólu í sér tilmæli og
ábendingar til ríkisstjórna Evrópu-
ráðsríkja um hvað væri mest áríð-
andi að gera til verndar náttúru-
arfleifð Evrópu og fyrirmæli um að
samin yrði náttúruverndarstefnu-
skrá Evrópuráðsins í anda þeirra
draga sem fyrir ráðstefnunni lágu
og með því markmiði að viðhalda
sem mestu af þeirri fjölbreytni sem
náttúrufar Evrópu býr yfir.
Síðari dag ráðstefnunnar hófst
formlega fræðslu- og útbreiðslu-
átak Evrópuráðsins til að vekja al-
hliða athygli á vandamálum strjál-
býlisins í Evrópuráðsríkjum undir
kjörorðinu: „gerum veg strjálbýlis-
ins sem mestan," sem standa mun
yfir til ársloka 1988. Sú athöfn fór
fram í bænum Santarem, nokkuð
norðan Lissabon, og stjórnaði
henni forseti Portúgals, Mr. Soares.
Dagana fyrir ráðstefnuna, þ. e. 9.
og 10. júní, voru haldnir í Lissabon
fundir um viðfangsefni fræðslu-
átaksins og sótti Eyþór Einarsson
þá einnig.
Bjarkarlundur 40 ára
Um þessar mundir eru 40 ár liðin
frá því að Hótel Bjarkarlundur í
Reykhólasveit tók til starfa. Húsið
var vígt með athöfn 29. júní 1947.
Það var Barðstrendingafélagið í
Reykjavík, sem byggði hótelið á ár-
unum 1945 til 1947.
Tildrög þess að átthagafélag
tókst þetta verkefni á hendur voru
tilmæli frá mönnum tengdum sam-
göngumálum um að félagið leysti
þarna úr vanda, er skapast hafði í
samgöngumálum A-Barðastrand-
arsýslu. Endastöð sérleyfisferða
hafði um nokkurra ára skeið verið
Kinnarstaðir við Þorskafjörð og
þar hafði verið rekin greiðasal, en
ábúendur jarðarinnar vildu nú
losna frá þeirri kvöð.
Barðstrendingafélagið var þá
ungt að árum, en í því þróttmikið
félagsstarf. Stjórn félagsins tók þá
ákvörðun að verða við þessum til-
mælum og undir forystu formanns-
ins, Helga H. Eiríkssonar var hafist
handa vorið 1945.
Stór hópur félagsmanna lagði á
sig ómælda fyrirhöfn til að vinna
að þessu máli og margir utan félags
urðu til að leggja félaginu lið með
gjöfum og fyrirgreiðslu. í því sam-
bandi má nefna að Jón Brandsson,
bóndi á Kambi, gaf félaginu góðan
landskika úr Berufjarðarlandi, þar
sem skálinn var reistur.
Húsið teiknaði Sigurður Guð-
mundsson, arkitekt. Y firsmiður var
Halldór Víglundsson, en aðalum-
sjón og eftirlit af féiagsins hálfu
hafði Jón Hákonarson, frá Reyk-
hólum, sem fáum árum síðar varð
formaður Baiðstrendingafélagsins.
Húsið var upprunalega um
300 m2 stórt og í því 10 gistiherbergi
ásamt veitingasal og tilheyrandi að-
stöðu. Árið 1962 var reist ný gisti-
álma og í henni 10 gistiherbergi, en
nokkur af eldri herbergjum voru þá
tekin tii afnota fyrir starfslið.
Barðstrendingafélagið leigði
hótelið til rekstrar fyrstu árin og
lengst af þeim hjónum Hjálmfríði
Eyjólfsdóttur og Jóni Hákonar-
syni.
1957 tók félagið sjálft við rekstr-
inum og hafði hann á hendi til árs-
ins 1972, en það ár gengu fleiri aðil-
ar til liðs við félagið. Þann 16. júlí
1972 var hlutafélagið Gestur stofn-
að af Barðstrendingafélaginu,
Ferðaskrifstofu ríkisins og sýslu- og
hreppsfélögum á Vestfjörðum. Síð-
ar gerðist Kaupfélag Króksfjarðar
stór hluthafi.
Það leikur ekki á tveim tungum,
að Bjarkarlundur hefur á þessum
40 árum verið snar þáttur í sam-
göngumálum Barðastrandarsýslu
og raunar allra Vestfjarða. Þar hef-
ur margur ferðlúinn maður fengið
húsaskjól og annan beina. Og fjöl-
margir munu minnast með ánægju
sumarhátíðanna, sem haldnar voru
í Bjarkariundi um margra ára skeið.
Enda þótt margt hafi breyst á
þessum 40 árum, sérstaklega í sam-
göngumálum, er Bjarkarlundur
enn á sínum stað í hlýlegum
hvammi við Berufjarðarvatn og
reiðubúinn að veita ferðamönnum
skjól og næringu.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stööur hjúkrunarfræöinga i heilsugæslu-
stöövum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staðahjúkrunarforstjóraviö Heilsugæslustöðina I
Ólafsvfk.
2. Staða hjúkrunarfræöings við Heilsugæslustöðina
á Þórshöfn.
3. Staöa hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustööina
( Fossvogi, Reykjavík.
4. Staða Hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
( Reykjahlfð, Mývatnssveit.
5. Hálf staöa hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöðina á ísafiröi.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustööina
á Þingeyri.
7. Staða hjúkrunarfræöings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja I Keflavik.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Hllöasvæðis ( Reykjavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við
hjúkrun sendist heilbrigöis- og tryggingamálaráðu-
neytinu, Laugavegi 116, Reykjavfk.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
13. júlí 1987.
PÓST- OG
SlMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
Loftskeytamann /Símritara/Ritsímaritara til
starfa ( Vestmannaeyium.
Nánari upplýsingarverðaveittarhjástöðvarstjóra
Pósts og síma í Vestmannaeyjum.
Frá menntamálaráðuneytinu
Staða konrektors við Menntaskólann við Sund er
laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá 1. ágúst
næstkomandi og verður um að ræða setningu í
eitt ár.
Umsækjendur þurfaað hafa full kennsluréttindi á
framhaldsskólastigi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf skal senda til menntamálaráðuneytis-
ins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 1. ágúst
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið