Alþýðublaðið - 15.07.1987, Side 4
Miðvikudagur 15. iúlí 1Q«7
DENG DREGUR SIG
55
A mínum aldri þ'urfa
menn að fara að minnka
við sig“ segir Deng Xiao
ping sem er að verða 83
ára.
A 13. flokksþingi kommúnista-
flokksins í Kína, sem haldið
verður í Peking, í október, mun
Deng Xiaoping leiðtogi Kínverja
um langan aldur, draga sig í hlé
og ekki gefa kost á sér til endur-
kjörs í miðstjórn flokksins. Hann
lét svo ummælt nýlega að hann
myndi aðeins halda eftir einu
starfi af fjölmörgum sem hann
gegnir.
— Maður á mínum aldri á
ekki að vinna svona mikið, segir
hann. Helmingurinn af núverandi
vinnuálagi vœri meira en nóg,
bætir hann við og fær sér stóran
reyk úr vindlinum sem hann skil-
ur aldrei við sig.
Ef Deng gerir alvöru úr því að
draga sig í hlé, sem ekki er ólíklegt,.
þá leiðir það að líkindum til gagn-
gerðra breytinga í flokksráðinu. Ef
Deng hættir þá munu aðrir flokks-
ráðsmeðlimir sem einnig eru komn-
ir til ára sinna, neyðast til að fara að
dæmi hans. í þessu valdamikla ráði
sem telur 20 fulltrúa, eru þó nokkr-
ir menn á aldrinum 80-85 ára og
þeir verða varla sakaðir um að hafa
mjög róttækar umbótatillögur á
dagskrá. Þvert á móti. Á undan-
förnum mánuðum hafa þeir verið
með herferð gegn þeirri borgara-
legu frjálslyndisstefnu sem Deng
hefur beitt sér fyrir og reynt að
kveða niður allt sem kennt verður
við vestræn áhrif, þar með taldar
umbótaáætlanir Dengs og efna-
hagsáætlanir.
Sá sem er einna harðastur í and-
stöðunni af öllum öldungunum, er
Peng Zhen 85 ára sem auk þess að
vera í miðstjórninni á einnig for-
mannssæti í þinginu. Tveir helstu
bandamenn hans, þeir Chen Yun og
Li Xiannian eru báðir orðnir 82 ára.
Allir hafa þeir verið virkir þátttak-
endur í kínversku kommúnista-
hreyfingunni síðan fyrir 1930. Nú
hafa þeir að likindum runnið sitt
skeið á enda, hvort sem þeir vilja
það sjálfir eða ekki.
Detig og herinn
Enn liggur það ekki ljóst fyrir
hvaða staða það er sem Deng hefur
hugsað sér að gegna áfram. Auk
þess að vera leiðandi hugmynda-
smiður í miðstjórninni, er Deng
formaður í herráði bæði stjórnar-
innar og flokksins. Meðal frétta-
skýrenda í Peking er það almennt
álitið að hann muni gegna áfram
annarri hvorri stöðunni, að líkind-
um formannsstöðunni í herráði
flokksins þar eð flokkurinn er ofar
ríkisstjórninni í valdakerfi lands-
ins.
Að Deng skuli ekki vilja sleppa
hendi af hernum, er skiljanlegt, því
að umbótatillögur hans hafa ein-
mitt mætt talsverðri andstöðu þar.
Þrátt fyrir það að skipt hafi verið
um í æðstu embættum innan hers-
ins, ríkir þar nokkurt óvissuástand
og í Dagblaði fólksins mátti nýverið
lesa um nauðsyn þess að koma þar
á traustari skipan en verið hefur um
hríð.
Öldungaráðið
Ef Deng afsalar sér formanns-
embætti í báðum herráðunum á
hann aðeins eftir formannsembætt-
ið í öldungaráðinu, sem er ráðgef-
andi ráð innan flokksins. Hlutverk
þessa ráðs, sem mestmegnis er skip-
að hátt settum embættismönnum á
eftirlaunum, er að veita ráð og leið-
beiningar, án þess að hafa ákvörð-
unarvald. Skiptar skoðanir eru um
mikilvægi þessa ráðs, en almennt
má telja að í landi eins og Kína séu
ráð þeirra gömlu mikils metin og
ráð þetta sé því engan veginn áhrifa-
laust. Ráðið er að miklum hluta
skipað íhaldssömum herforingjum
og vera má að Deng telji það nokk-
urs virði að halda formannssætinu
þar.
Hver sem niðurstaðan verður,
mun Deng óefað koma því svo fyrir
að hann geti beitt áhrifum sínum
enn um hríð og haft hönd í bagga
með þróuninni. Jafnframt munu
Peng, Chen og Li hverfa af sjónar-
sviðinu og það mun greiða fyrir því
umbótastarfi sem hefur lítið þokast
áfram síðan í fyrrahaust vegna and-
stöðu þeirra.
Umbœtur —
De Hu Yaobang, hinn umbóta-
sinnaði aðalritari flokksins, varð að
taka saman pjönkur sínar og fara í
janúar s.l. og varð það mikið áfall
fyrir Deng. Áratugum saman
höfðu þeir staðið saman gegnum
þykkt og þunnt, bæði opinberlega
og í einkalífinu. Brottför Hus varð
til þess að hinir íhaldssömu fóru að
láta til sín taka innan flokksins og
einnig með blaðaskrifum. í apríl-
byrjun var svo komið að sum dag-
blöðin voru farin að draga í efa
ágæti fyrirhugaðra umbóta í land-
búnaði.
En síðan lítur helst út fyrir að
Deng og bandamenn hans hafi aft-
ur náð yfirhöndinni og nú, þremur
mánuðum fyrir flokksþingið, hefur
orðið „umbætur" aftur náð sínum
fyrri vinsældum í Peking. „Helstu
óvinir umbótaáætlunarinnar koma
úr röðum vinstrimanna“ (þ.e. hinna
íhaldssömu) sagði Deng fyrir
skemmstu.
„Á flokksþinginu munum við
halda áfram með skipulagningu
efnahagsumbótanna", ságði Zhao
Ziyang hvar sem hann kom á ferð
sinni um Austur-Evrópu í júní.
Hann er tekinn við sem aðalritari
flokksins eftir Hu, svo að honum
ætti að vera kunnugra um það en
flestum öðrum hvaða stefnu flokk-
urinn hyggst taka.
En nokkur óvissa ríkir einnig um
framtíðarstöðu Zhao Ziyang, sem
er 71 árs. Þessi vinnusami öldungur
er bæði forsætisráðherra og aðal-
ritari flokksins og verður því að öll-
um líkindum að afsala sér öðru
hvoru embættinu á flokksþingu.
Flestir telja að hann gegni áfram
starfi aðalritara, þar eð hann nýtur
allrar þeirra virðingar sem það
embætti krefst.
Ef sú verður raunin þarf Deng
ekki að kvíða í ellinni. Þá munu
umbótatillögur hans hljóta dyggan
stuðning og þar sem Deng hefur
engan veginn í hyggju að setjast al-
veg í helgan stein, þá má búast við
enn frekari slökun og auknu frjáls-
ræði í Kína á komandi tímum.
Hongkong-blaðið South China
Morning Post segir að með Zhao
Ziyang sem leiðtoga og Deng Xiao
ping sem ráðgjafa, muni Kina
brátt ná sér á strik efnahagslega.
Og svo er bara að bíða og sjá.