Alþýðublaðið - 22.09.1987, Blaðsíða 1
Verdlagsrád kærir Sól hf.
Harkan sex gegn
auglýsingaskrumi
Verðlagsráð lagði í gærmorgun
fram kæru vegna auglýsingar Sólar
h.f., þar sem 100 þúsund krónum er
heitið þeim sem „finnur" milljón-
ustu dósina af Sól-gosi. Að mati
verðlagsráðs er auglýsingin brot á
ákvæðum laga um verðlag, sam-
keppnishömlum og óréttmæta við-
skiptahætti. Þetta er í fyrsta sinn
sem Verðlagsráð leggur fram kæru
í slíku máli á grundvelli laganna
sem tóku gildi í nóvember 1979. Má
búast við að málið fari alla leið og
því Ijúki með dómi, vegna þess að
áður hefur Davíð gerst brotlegur,
að mati Verölagsráðs, og hætt er við
að fleiri taki upp þessa viðskipta-
aðferð ef ekki verður látið reyna á
ákvæði laganna.
Að mati Verðlagsráðs er auglýs-
ingin óhæfileg viðskiptaaðferð
gagnvart samkeppnisaðilum. Aður
hafa Davíð Scheving Thorsteinsson
og aðstandendur Sólar brotið sömu
ákvæði verðlagslaganna en fallist
var á sættir vegna þess að Davíð lof-
aði að halda sig á mottunni. í því
sambandi er skemmst að minnast
auglýsingar þar sem Sól bauð Fiat-
bíl i verðlaun þeim sem keypfi 20
þúsundustu Soda-stream vélina.
Davíð lét hins vegar ekki segjast og
„gaf“ bílinn og'hefur nú, að mati
verðlagsráðs enn á ný virt lögin að
vettugi.
Auglýsingin hefur birst í dag-
blöðum útvarpi og sjónvarpi.
Hvernig sem rnálinu lyktar má bú-
ast við að Davíð fái ágætis auglýs-
ingu út úr því. Að mati lögfræðinga
sem Alþýðublaðið talaði við kann
hins vegar að vera að dpmstólar líti
málið enn alvarlegri augum ef sann-
ast að fyrirtækið er að brjóta lög tij
þess eins að fá út úr því auglýsingu.
Brotið er því mjög alvarlegt gagn-
vart samkeppnisaðilum sem virða
lögin og nota viðurkenndar við-
skiptaaðferðir.
Samkvæmt lögunum er sem sagt
bannað að veita verðlaun þeim sem
kaupir, og byggist það sjónarmið á
þeirri almennu reglu að gæði vör-
unnar eigi fyrst og fremst að vera
söluhvetjandi, það eigi því ekki að
þurfa að borga fólki fyrir að drekka
Sól-gos.
Davið Scheving kallar þetta hins
vegar ekki verðlaun, heldur fundar-
laun og segist hafa týnt þessari
milljónustu dós. Verðlagsráð tekur
þeirri staðhæfingu mátulega og nú
er að sjá hvort saksóknari og dóm-
stólar komist að sömu niðurstöðu.
Bankar hækkuðu langt
umfram verðlagsþróun
Þjónustugjöld peningastofnana afar misjöfn. Iðnaðarbankinn
dýrastur. Landsbankinn kemur skást út. Föst gjöld vegna
vanskila hafa hækkad um 160—170% milli ára.
Samkvæint nýrri könnun Verð-
lagsstofnunar er dýrast að skipta
við Iðnaöarbankann, að því er
varðar ýmis gjöld scm bankarnir
taka af viðskiptavinum sinum fyrir
veitta þjónustu. Landsbankinn
kemur á hinn bóginn best út úr
þessari könnun. Verulegur munur
reyndist á ýmsum þessara gjalda
milli bankastofnana. Þannig tekur
Iðnaðarbankinn 90 kr. í tilkynning-
ar- og greiðslugjald, vegna afborg-
ana af skuldabréfum, en Lands-
bankinn tekur aðeins 39 kr. Iðnað-
arbankinn er sem sagt 130% dýrari.
í byrjun septembermánaðar
kannaði Verðlagsstofnun þjónustu-
gjöld banka og sparisjóða vegna
innlendra viðskipta. Eru það gjöld
sem bankar og sparisjóðir inn-
heimta af viðskiptamönnum sínum
vegna útlána, innheimtu, tékka-
reikninga, vanskila o.fl. Eins og
fram kom í könnun sem Verðlags-
stofnun birti fyrir tæplega ári sið-
an, skömmu áður en útlánsvextir
voru gefnir frjálsir, eru þjónustu-
gjöld bankastofnana mishá eftir
stofnunum.
Hin nýja könnun leiðir m.a. eftir-
farandi í ljós:
Þjónustugjöld vegna inn-
lendra viðskipta voru í flest-
um tilvikum hæst hjá Iðriað-
arbankanum en oftast lægst
hjá Landsbankanum. Sem
dæmi má nefna að tilkynn-
inga- og greiðslugjald vegna
skuldabréfa var kr. 90 í Iðn-
aðarbankanum en kr. 39 í
Landsbankanum. Gjald Iðn-
aðarbankans er því 130%
hærra en gjald Landsbank-
ans. Hefti með 25 tékka-
eyðublöðum kostaði kr. 120 í
Landsbankanum en kr. 175 í
Iðnaðarbankanum sem er
tæplega 46% hærra verð.
Hlutfallsleg þóknun vegna
útlána sem Seðlabankinn
ákvað áður samhliða útláns-
vöxtum hefur í mörgum til-
vikum hækkað um allt að
50—60% á einu ári. Sem
dæmi má nefna að algengt er
að þóknun fyrir keypta víxla
hafi hækkað úr 0,4% í
0,65% og þóknun fyrir
skuldabréf til skemmri tíma
hækkað um úr 0,8% í 1.0—
1.2%. Hækkun á þessum
gjöldum hefur hins vegar
ekki átt sér stað hjá Lands-
bankanum.
Hækkun á föstum gjaldalið-
um hafa almennt orðið tals-
vert meiri en almennar verð-
hækkanir. Algengt er að
gjaldaliðir hafi hækkað al-
mennt um 50% á einu ári en
föst gjöld vegna vanskila
hafa hækkað að jafnaði um
160—170%. Hækkun gjald-
anna er hins vegar mismun-
andi mikil eftir bönkum m.a.
vegna þess að gildistími
gjaldskránna er breytilegur.
Til að auðvelda viðskiptamönn-
um stofnana að afla sér upplýsinga
um þjónustugjöld hefur Verðlags-
stofnun ákveðið að frá og með 1.
október n.k. verði bönkum og
sparisjóðum skylt að láta gjald-
skrár liggja frammi á áberandi stað
á öllum afgreiðslustöðum.
Haustið er komið og síðustu forvöð fyrir hjólreiðafólk að liðka hjólhestana
sína. Þessi strákur lét haustrigninguna ekki aftra sér í gær, en fór að sjálf-
sögðu að öllu með gát eins og vitibornir menn gera í umferðinni. A-mynd/
Róbert.
Húsnæðisstofnun:
Lánsloforö eftir mánaðamót
— Enn á eftir að undirrita samninga við um 80 lífeyrissjóði og ríkis-
stjórnin hefur ekki tekið ákvörðun um breytingu á útlánsreglum.
Sigurður E. Guðmundssun,
forstjóri Húsnæðisstofnunur rík-
isins, telur að útgáfa lánsloforða
hefjist í fyrsta lagi á ný eftir 2-3
vikur.
Stjórnvöld og lífeyrissjóðasam-
böndin undirrituðu samninga sl.
föstudag og í gær sendi Húsnæð-
isstofnun hverjum og einum líf-
eyrissjóði, um 80 talsins, samn-
inga til undirritunar. Miðað við
reynslu síðustu ára, getur tekið
2-3 vikur að safna þeim samning-
um saman og auk þess á eftir að
skýrast hvort stjórnvöld taka
ákvörðun um breytingu á útlána-
reglunum áður en lánveitingar
hefjast.
Húsnæðisstofnun hefur ekki
getað gefið út lánsloforð síðan í
mars sl. vegna þess að ósamið hef-
ur verið við sjóðina. Talið er að
umsóknir sem bíða afgreiðslu séu
um 3500 talsins. Sem kunnugt er
vill félagsmálaráðherra að breyt-
ingar verði gerðar á útlánareglun-
um áður en lánsloforð verða af-
greidd, svo nýta megi sem best
það fé sem til ráðstöfunar er. Talið
er að þessar 3500 umsóknir kosti
um 5,6 milljarða. Auk þess hefur
ríkisstjórnin til umfjöllunar
hvernig hækkun á útlánsvöxtum
verði háttað, en félagsmálaráð-
herra hefur lagt til að hækkun'
komi ekki niður á forgangshóp-
um.
Það má því búast við að dragist
fram í október að hægt verði að.
hefja útgáfu lánsloforða, bæði
vegna samninganna við sjóðina
80 og umfjöllunarinnar i ríkis-
stjórninni.