Alþýðublaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 11
Laugardagur 26. september 1987
11
Happdrætti
Styrktarfélags
vangefinna.
Þessa dagana stendur yfir út-
sending á happdrættismiðum í ár-
legu happdrætti Styrktarfélags van-
gefinna, en miðarnir eru sendir
heim til kvenna á aldrinum 18—64
ára. Vinningar verða 10 talsins og
heildarverðmæti þeirra um
4.200.000. Aðalvinningurinn að
þessu sinni er Audi 100 CC, árgerð
1988 að verðmæti um 1 milljón,
annar vinningur er bifreið að eigin
vali að upphæð kr. 600 þús. Þá eru
átta vinningar, bifreiðar að eigin
vali, hver að upphæð kr. 325 þús-
und.
Miðaverð er kr. 250 og vinningar
skattfrjálsir. Dregið verður 24. des.
n.k.
Félagið stendur nú sem fyrr í
miklum og fjárfrekum fram-
kvæmdum. M.a. hefur það á þessu
ári fest kaup á 4 íbúðum, sem leigð-
ar hafa verið vangefnu fólki, sem
flest hefur áður dvalið á sambýlum
félagsins. Auk þessara íbúða annast
félagið nú rekstur 6 sambýla í borg-
inni, skammtímaheimilis, þriggja
dagvistarstofnana og verndaðs
vinnustaðar. Alls dvelja nú um 150
—160 einstaklingar á þessuni heim-
ilum og stofnunum. Þrátt fyrir það
að allvel hafi miðað á síðustu árum
að koma upp sambýlum fyrir van-
gefna eru enn tugir einstaklinga á
biðlistum eftir sambýlisplássum.
Um leið og félagið þakkar al-
menningi mikilsverðan stuðning á
liðnum árum treystir það enn á
skilning fólks á nauðsyn þess að
búa vangefnu fólki sem best skil-
yrði.
Fyrirlestur:
Stjórnun
fiskveiða
Fimmtudaginn 1. október n.k. flyt-
ur prófessor RÖGNVALDUR
HANNESSON opinberan fyrirlest-
ur við Háskóla Islands á vegum
Viðskiptadeildar. Heiti fyrirlestrar-
ins er STJÓRNUN FISKVEIÐA:
MARKMIÐ OG LEIÐIR. Fyrir-
lesturinn fer fram í stofu 101 í Odda
og hefst kl. 17:15
Um fyrirlesara og efni fyrirlestrar-
ins
Prófessor Rögnvaldur Hannes-
son stundaði framhaldsnám í fiski-
hagfræði við Háskólann í Lundi,
Svíþjóð, og Háskólann í Bresku
Kólumbíu í Kanada. Doktorsprófi
lauk hann frá Lundi árið 1974. Að
námi loknu hefur prófessor Rögn-
valdur gegnt stöðum háskólakenn-
ara við Háskólana í Tromsö, Bergen
og Verslunarháskólann í Bergen.
Frá 1983 hefur hann verið prófessor
í fiskihagfræði við Verslunarhá-
skólann í Bergen.
Prófessor Rögnvaldur Hannes-
son er í hópi virtustu vísindamanna
heims á sviði fiskihagfræði. Á því
sviði hefur hann gefið út tvær bæk-
ur, doktorsritgerðina „Economics
of Fisheries: Some Problems in
Efficiency,“ sem út kom 1974, og
kennslubókina „Economics of
Fisheries: An Introduction," sem
kom út 1978. Auk þess hefur hann
ritað fjölda greina um fiskihag-
fræðileg og önnur efni í hagfræði-
tímarit.
í umræddum fyrirlestri mun
prófessor Rögnvaldur fjalla um
markmið fiskveiðistjórnunar og
þær aðferðir við fiskveiðistjórn,
sem líklegastar eru til að ná þeim
markmiðum. í Ijósi þess, að stjórn-
völd beita sér nú fyrir endurmati og
endurskoðun á stjórnkerfi fisk-
veiða hér á landi, er þess að vænta
að efni þessa fyrirlesturs eigi sér-
stakt erindi til landsmanna.
Styrkir til háskólanáms
í Sviss
Svissnesk stjórnvöld bjóða fram í löndum sem aðild
eiga aö Evrópuráðinu 15-19 styrki til háskólanáms í
Sviss háskólaáriö 1988-1989. Ekki er vitað fyrirfram
hvort einhver þessara styrkja muni koma í hlut íslend-
inga. Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir til framhalds-
náms við háskóla og eru veittir til 9 mánaða námsdval-
ar. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi nægilega
þekkingu á frönsku eða þýsku og þurfa þeir að vera
undir það búnir, að á það verði reynt með prófi. Um-
sækjendur skulu eigi vera eldri en 35 ára og hafa lokið
háskólaprófi áður en styrktímabil hefst. — Umsóknir
um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 1. desember n.k.
á tilskildum eyðublöðum, sem þar fást.
Menntamálaráðuneytið,
23. september 1987.
Styrkir til háskóianáms
í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa er-
lendum námsmönnum til að stunda nám í Svíþjóð
námsárið 1988-89. Styrkir þessireru boðnirfram i mörg-
um löndum og eru öðru fremur ætlaðir til náms sem
eingöngu er unnt að leggja stund á i Svíþjóð. Styrkfjár-
hæðin er 3.880 s.kr. á mánuði námsárið, þ.e. 9 mánuði.
Til greina kemur að styrkur verði veittur í allt að þrjú ár.
Nánari upplýsingarum styrki þessafást í menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, en umsóknir
skulu sendar til Svenska Institutet, box 7434, S-103 91
Stockholm, og lætursú stofnun í té tilskilin umsóknar-
eyðublöð fram til 1. desember n.k., en frestur til að skila
umsóknum er til 15. janúar 1988.
Menntamálaráðuneytiö,
23. september 1987.
FIVI 10Z,Z
Þessa dagana er verið að dreifa bæklingi um jStji
Én hlustunarsvæði stöðvarinnar. Á baksíðu bæklingsi
léttur og einfaldur leikur fyrir alla. Taktu þátt í leikn
að eignast glænýjan Suzuki Swift GL 1000.< - t É|
una í öll hús á p
r Stjörnuleikurinn,
og þá áttu kost á að
5tjörnuleikurinn er einfaldur. Þú hlustar á Stjörnuna og færð vísbendingar
um bókstafi sem þú fyllir í reit á þaksíðu bæklingsins. Þegar leiknum er
lokið geturðu séð orð í reitnum sem er lausnarorðið. Þú sendir lausnina
inri til Stjörnunnar og við drögum úr réttum lausnum þann eða þá sem
hreppir glæsilegan Suzuki Swift í verðlaun.
f m.\T 4\ '
Fyrsta vísbending verður gefin í morgunþætti Gunnlaugs Helgasonar
á morgun 25. októþer 1987. Helgi Rúnar Óskaæson gefur vísbendingar
eftir hádegi. Hver vísbending verður endurtekin nokkrum sinnum.
.
W mm *' l
Æ
m
1 2 3 4 5
6 7 8 9 10
11 12 13 14 15
16 17 18 19 20
21 22 23 24 25
Þessi glæsilegi Suzuki Swift GL 1000
fellur í hendur einhvers hlustanda Stjörnunnar.
Bíllinn er til sýnis í Kringlunni á meðan á Stjörnuleiknum
stendur.