Alþýðublaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 14
14 Laugardagur 26. september 1987 S.U.J. Fundarboö Sambandsstjórnarfundur verður haldinn laugar- daginn 3. október ( Alþýðuhúsinu í Hafnarfiröi kl. 13.00. Dagskrá: 1) Kosning 2) Rædd starfsemi sambandsins 3) Endurskoðun sambandsins 4) Önnur mál. Sambandsstjórn. Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnarfirði Fundur verður haldinn í Alþýðuhúsinu Strand- götu 32 fimmtudaginn 1. október kl. 20.30. Gestur fundarins verður Guðmundur Einarsson framkvæmdatjóri Alþýðuflokksins. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. OPNUNARTILBOÐ 4 20 TOMMU SAMSUNG UTSJONVARRSTÆKI MEÐ ÞRAÐLAUSRI FJARSTYRINGU FYRIR AÐEINS KR. 33.900 Monitorútlit Tvöfalt hátalarakerfi Sjálfvirkur stöðvarleitari 48 rásir 16 stöðva minni Heyrnartólsútgangur Bein vídeótenging (monitor eiginleikar) Hlífðargler fyrir skermi JAPISS BRAUTARHOLT 2 KRINGLAN SiMI 27133 Útflutnings- handbók Búnaðarbanki íslands hefur um nokkurt skeið unnið að því að þróa nýjan þátt í starfsemi sinni, sem miðar að því að greiða fyrir og efla vaxandi útflutningsviðskipti í land- inu bæði í nýjum og eldri greinum útflutnings. Bankinn telur eðlilegt og skylt að verja tíma og fjármagni til þessa verkefnis ef það mætti verða til þess að auka umsvif, fjöi- breytni og árangur í þeirri grein ís- lensks efnahagslífs, sem hvað mestu máli skiptir. Starfsemi þessi, sem hófst síðari hluta árs 1985, hefur m.a. verið fólgin í því að bankinn hefur í sam- starfi við erlenda viðskiptabanka og fyrirtæki á þeirra vegum kynnt sér nýjar leiðir í útflutningsmálum og kannað stöðu á ýmsum mörkuð- um. Þessum upplýsingum hefur síðan verið miðlað til íslenskra út- flytjenda. Markaðsstarfsemi þessi hefur bæði beinst að hefðbundnum mörkuðum á Vesturlönum svo og mörkuðum í A-Evrópu auk ýmissa athugana á fjarlægari mörkuðum. Leitast hefur verið að afla upplýs- inga um nýja viðskiptahætti á þess- um mörkuðum eins og að framan segir og koma á sambandi milli áhugasamra erlendra kaupenda og íslenskra útflytjenda. Eins hefur bankinn í mörgum tilvikum tekið að sér að meta viðskiptatraust hugsanlegra kaupenda m.a. í sam- vinnu við viðskiptabanka sína er- lendis og aðra aðila. Bankinn hefur átt aðild að við- skiptaviðræðum með útflytjend- um, sem ýmist hafa leitt til við- skipta eða eru enn í athugun og vinnslu. Bankinn hefur sérstaklega kynnt sér nýja viðskiptahætti í A- Evrópuríkjum, þar sem miklar breytingar eru á ferðinni og fylgst náið með framvindu mála á þeim markaði. Þessi starfsemi bankans á við allar íslenskar útflutnignsvörur auk þess sem sérstaklega hafa verið kannaðir möguleikar á áhuga og hugsanlegum möguleikum varð- andi útflutning ýniiss konar þjón- ustu svo sem tækniþekkingar á ýmsu sviði. Það er ennfremur sér- stakt áhugamál bankans að stuðla að sölu á Iandbúnaðarafurðum í samstarfi við þá aðila er með þau mál fara. Stuðningar við nýjar og vaxandi atvinnugreinar svo sem fiskeldi og ferðaþjónustu er'hluti af framan- greindri starfsemi bankans, m.a. í samstarfi við ýmsa erlenda aðila. Það var strax mikilvægur þáttur í þessari starfsemi bankans, að upp- lýsingastarfsemi um útflutnings- mál, bæði gagnvart íslenskum út- flytjendum og öðrum þeim aðilum hérlendis, er annast útflutning svo og til þeirra aðila erlendis, er kynnu að hafa vaxandi áhuga á viðskipt- um við íslenska útflytjendur. Þátt- ur í þessari viðleitni bankans er út- gáfa sérstakrar útflutningshand- bókar, sem hef ur að geyma í máli og myndum fjölmargar leiðbeiningar „fyrir stór og smá fyrirtæki um vinnuaðferðir, reglur og aðstoð í út- flutningsstarfinu“ eins og segir í formála þessarar bókar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.