Alþýðublaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 15

Alþýðublaðið - 26.09.1987, Blaðsíða 15
Laugardagur 26. september 1987 15 Samkvæmisdansarnir w i sókn Taliö er að um 18—20 þúsund manns sæki tíma hjá dansskólunum í vetur. — Unglingarnir vilja nú læra sígildu samkvæmisdansana og þeir hörðustu æfa þrisvar til fjórum sinnum í viku. Esther Inga Söring og Jón Þór Antonsson taka í fyrsta sinn þátt í árlegri dans- keppni fyrir íslands hönd í Blackpool I Englandi 1987. Prátt fyrir jassball- ett, diskófrístœl, eró- bikk og ýmsar hreyfi- listir hefur þjóðin alltaf áhuga fyrir samkvœmisdönsum. Ahuginn virðist fara vaxandi og danskenn- arar segja að í dag vilji unglingarnir iðka samkvœmisdansana eins og hverja íþrótt, œfa jafnvel þrisvar til fjórum sinnum í viku þeir hörðustu. Dansskólarnir virðast því ætla að njóta góðs af heilsubylgjunni svo- kölluðu, því miðað við könnun sem Dansráð íslands lét gera í fyrra er talið að 18-20 þúsund manns sæki námskeið eða tíma hjá dansskólun- urn víða um land í vetur. Þrátt fyrir harðnandi samkeppni um frítíma fólks virðist dansinn alltaf laða og hefur almennur áhugi líkast til aldrei verið meiri en nú, að mati danskennara. Ahuginn virðist sér- staklega hafa aukist fyrir sam- kvæmisdönsunum og virðist unga fólkið jafn áhugasamt og þeir eldri. Um 60 danskennarar í samræmi við dansáhugann hafa dansskólar sprottið upp og danskennarar innan Dansráðs Is- lands eru nú um 60 talsins og skól- arnir 17. lnnan Dansráðs eru ein- göngu kennarar með fullgild rétt- indi. Nokkrir kennarar og skólar standa utan Dansráðs og hafa ekki viðurkennd réttindi. Dansskólarnir eru ekki eingöngu með starfsemi sína á Reykjavíkur- svæðinu því um árabil hafa nokkrir skólar verið með námskeið víða um land og eru nú nokkrir danskennar- ar búsettir á landsbyggðinni, m.a. á Snæfellsnesi, Austfjörðum og í Grindavík. Síðastliðin 3 ár hefur verið hald- inn íslandsmeistarakeppni i sam- kvæmisdönsum og í fyrra var henni sjónvarpað. Dansskólarnir fundu fyrir miklum og vaxandi áhuga eftir sjónvarpsútsendinguna en undan- farin ár hafa þeir nokkuð kvartað yfir því hve lítið hefur verið sýnt af slíku sjónvarpsefni. íslandsmeist- arakeppnin í fyrra þótti einstaklega velheppnuð og er talið að nú sé tímabil keppnisdansara fyrst að hefjast fyrir alvöru á íslandi. Takt, tilfinningu og reisn En hvers vegna dans? Því er ekki auðsvarað en kannski best svarað með því að manninum sé eðlilegt að dansa, eða hreyfa sig eftir takti og tónum. Undir þetta sjónarmið tek- ur Sigurður Hákonarson danskenn- ari. Hann segir að auðveidlega megi sjá að dansinn sé mönnum í blóð borinn, og bendir á að flestir hafi eflaust einhvern tímann séð korna- börn hreyfa sig eftir tónlist úr út- varpi eða sjónvarpi. Það er ekki þar með sagt að allir verði góðir dansarar, þótt flestir hafi eitthvað í sér til að geta dansað og geti með æfingunni náð miklum árangri. Um eiginleika sem góður dansari þarf að hafa segir Sigurður Hákonarson: „Hann þarf að hafa takt og tilfinningu fyrir tónlist og góðar hreyfingar. Svo þarf hann að hafa reisn svo eitthvað sé nefnt.“ Sigurður segir ennfremur að það sé nauðsynlegt fyrir byrjendur að þeir gera sér grein fyrir mikilvægi undir- stöðuatriða. Hann segir að fólk þurfi að gera sér grein fyrir því að alh taki tíma og æfingu. „Þegar menn hafa góðan grunn, má enda- laust bæta við og dansinn verður enn skemmtilegri eftir því sem kunnáttan verður meiri. “ „Diskóstjákl“ En hvers vegna eru menn að leggja það á sig að iæra dans? „Það er engin skemmtun auglýst án þess að það sé dans. Það heyrir til hverri einustu almennu siðvenju og kur- teisi að kunna dans. Menn eru hreint út sagt ekki hæfir á manna- mótum öðruvísi og það gilda reglur á dansgólfinu alveg eins og í um- ferðinni," segir Hermann Ragnar Stefánsson danskennari, formaður Dansráðs íslands. Hann segir enn- fremur að menn þurfi síður en svo að verða einhverjir keppnisdansar- ar. „Maður á að fara í dans- skola til að læra að hreyfa sig og slappa af, kunna að nota ákveðið spor við ákveðið hljómfall og kunna að hlusta á tónlistina.“ Sigurður og Hermann eru ekki hrifnir af skemmtistaðadiskó: „Það er ekki dans,“ segir Her- mann, „diskóið hefur raunar trufl- að dansinn, því það er svo auðmelt og auðvelt að fara út á gólfið að tjá sig. Ég hef ekkert á móti tjáningar- forminu sem slíku, en það er ekki dans.“ Sigurður vill helst ekkert tala um diskóið: „Ég held þess þurfi ekki. Fólk er orðið Ieitt á þessu diskóstjákli. “ í dansskólunum eru þó kennd grunnspor í diskódönsum og góðir diskódansarar þurfa að sjálfsögðu að kunna ýmislegt fyrir sér. Skól- arnir eru því flestir með diskó-free- style, bæði fyrir einstaklinga og hópa. Það er heldur ekki beint „hið lærða diskó“ sem Sigurður og Her- mann tala um. Rumba, samba tja tja tja Samkvæmisdansarnir skiptast í tvær greinar, suður-anteríska og ballroom. Þeir suður-amerísku eru rumba, samba, tja tja tja, jive og paso-doble. Ballroom dansar eru enskur vals, tangó, kvikk stepp, hægt foxtrot og vínarvals. Á ls- landsmeistarakeppnum er keppt í báðum greinum. Islenskir keppnis- dansarar þykja mjög sambærilegir við dansara á hinum Norðurlönd- unum, í þessum greinum, en stand- ast ekki eins vel annan samanburð. Helsta ástæðan er talin sú að þeir íslensku tileinka sér aðeins 2-3 dansa úr hvorri grein og eru því ekki „samkeppnishæfir" í hinum. Eftir íslandsmeistarakeppnina í fyrra má hins vegar búast við að breiddin verði meiri og menn leggi jafnari áherslu á dansana fimm í hvorri grein. Þó verðlaunapeningar og árang- ur í íslandsmeistarakeppninni eigi ekki að skipta öllu máli má gera ráð fyrir að eftir keppnina í fyrra verði metnaður skólanna mikill í vetur og miklar æfingar framundan hjá betri dönsurum. í fyrra skar einn skóli sig úr á verðlaunapöllunum, Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar, og verður að teljast líklegt að aðrir dansskólar vilji reyna að breyta því. Keppnisandinn Af 210 verðlaunapeningum sem veittir voru á mótinu í fyrra fengu nemendur Dansskóla Sigurðar Há- konarsonar 124 verðlaunapeninga. Nemendur Sigurðar fengu og 12 ís- landsmeistaratitla af 18 sem keppt var um á mótinu og skiptust verð- laun jafnt eftir keppnisgreinunum tveimur. Sigurður segist að vonum vera ánægður með þennan árangur, en aðspurður segist ekki vera farinn að stressa sig neitt fyrir næstu keppni, enda gangi skólahaldið ekki út á það að vinna til verðlauna, heldur kenna dans. í svipaðan streng tekur Hermann Ragnar: „Mér finnst keppnisand- inn af hinu góða, en það er aðalatr- iðið að sem flestir fái að vera með og skólarnir hafi það á sinni skrá að æfa fólk fyrir íslandsmeistara- keppni, þannig að allir hafi mögu- leika." Næsta íslandsmeistarakeppni verður haldin í íþróttahúsinu Digranesi fyrstu helgina í mars, og verður keppt bæði laugardag og sunnudag. Þeir sem enn eru ekki komnir í dansskóna ættu því að fara að huga að því hvað af hverju og ennþá er tími til að s krá sig í skólana, a.rn.k. á vorönnina.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.