Alþýðublaðið - 06.10.1987, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 06.10.1987, Qupperneq 3
3 FRÉTTIR Félag íslenskra iðnrekenda: Víglundur boðar óðaverðbólgu „Stefnir í 10—15% gengislækkun“ Víglundur Þorsteinsson, formaöur Félags íslenskra iönrekenda, segir í nýju Vigdís á Ítalíu Vigdís Finnbogadóttir, for- seti Islands, hélt í gær til Ítalíu í opinbera heimsókn í boði Francesco Cossega for- seta Ítalíu./Flogið var beint til Rómar en Ítalíuforseti tók á móti forseta íslands i Quirinale-höll, en þar mun forsetinn búa meðan á dvöl- inni í Róm stendur. Á morgun verður flogið til Sikileyjar, en þar verður dvalið i tvo daga. Hinni opinberu heimsókn lýk- ur á föstudag. fréttabréfi félagsins, að nú stefni í óöaveröbólgu og 10—15% gengislækkun strax eftir áramót. Víglundur segist líta svo á, að eftir 7,23% launahækkun 1. október séu efnahagsmálin endanlega farin úr böndun- um og ekki annað að sjá en slíku fylgi óðaverðbólga og gengislækkun. Fleiri úr röð- um vinnuveitenda hafa lýst svipuðum skoðunum, eftir launahækkunina 1. október. Að mati Víglundar er kaup- hækkunin 1. október fráleit, „þegar öllum má vera Ijóst að slík aðgerð færir láglauna- manninum með 30 þúsund krónur á mánuði tæplega 1.700 króna kauphækkun en 150 þúsund kr. manninum tæplega 8.500 króna kaup- hækkun. Það er allavega Ijóst I mínum huga að 150 þúsund kr. maðurinn á ekki bágt og þarfnast ekki forsjár og verndar verkalýðshreyfingar- innar með sama hætti og sá sem hefur 30 þúsund krónur á mánuði." 15 milljónir í afmælisgjöf Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið áttu tiu ára afmæli um helgina og afmælisgjöfin frá ríkisstjórninni var ekki af verri endanum. 15 milljónum króna verður variö árlega til þess að styðja við starfsemi samtakanna. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra tilkynnti þetta i ræðu sinni á hátiðafundinum i Háskólabió á laugardaginn. Hann sagði þá m.a.: „SÁÁ hefur lagt í miklar byggingarframkvæmdir á sl. áratug og notið til þess óverulegra ríkisframlaga. Greiðslubyrðin af skuldum vegna þessara byggingaframkvæmda er þvi orðin helst til þung og hamlar starfsemi samtakanna. Ríkisstjórn Islands vill af þessum sökum koma til móts við samtökin. Þess vegna hefur verið ákveöið aö leggja til við Alþingi íslendinga í fjárlögum næsta árs að á árinu 1988 og næstu árum verði varið til samtakanna 15 millj. króna á ári svo að samtökunum auðnist að halda áfram þeirri baráttu sem þau hafa hafið og heyja enn með góðum árangri.“ VERÐGÆSLA ALÞYÐUBLAÐSINS Vesturland: Hæst vöruverð lengst frá Reykjavík Vöruverð hækkar eftir þvi sem lengra dregur frá Reykja- vikursvæðinu. Þetta eru landsbyggðarfólki sjálfsagt ekki ný tíðindi, en þau stað- festast eina ferðina enn af verðkönnun sem Verðlags- stofnun birti í gær. Verslun Einars Ólafssonar á Akranesi reyndist að jafnaði hafa ódýr- asta vöru en óhagkvæmast mun aö versla við Kaupfélag Króksfjarðarness. Þar á milli virðist nánast mega raða verslunum eftir landafræð- inni, eins og glöggiega sést á töflunni hér til hliðar. í septembermánuði kann- aöi Verðlagsstofnun verð á fjölmörgum vörutegundum í 23 matvöruverslunum á Vest- urlandi. í 14. tbl. Verðkönnun- ar Verðlagsstofnunar eru birt- ar niðurstöður úr könnuninni. Þar sést verð á 76 vöruteg- undum í þessum verslunum. Á sama tíma og þessi könn- un var gerð, var til saman- burðar gerð verðkönnun i matvöruverslunum á höfuð- borgarsvæðinu. í öllum tilvik- um er i könnuninni borið saman verð á sömu vöru- merkjum, að sykri og eggjum undanskildum. Meðal annars kom í Ijós að vöruverð í verslunum á Akra- nesi var að jafnaði lægra en i öðrum verslunum sem könn- unin náði til. Verslun Einars Ólafssonar Akranesi var lang- oftast með lægsta verð. Hæst reyndist vöruverð að jafnaði vera hjá Kauþfélagi Króksfjarðar, Króksfjarðar- nesi og útibúi þess á Reyk- hólum. Vöruverð í matvöruverslun- um á Vesturlandi er að jafn- aði hærra en í Reykjavík og því hærra sem fjær dregur frá Reykjavík. Ef gerður er samanburður á vöruverði kemur m.a. eftirfarandi i Ijós: 1) meðalverð á vörum í verslunum á Vesturlandi var hærra en meðalverð á höfuð- borgarsvæðinu í 73 tilviki af 76. 2) meðalverð á Vesturlandi var í öllum tilvikum hærra en meðalverð í stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. 3) meðalverð á Vesturlandi var í 66 tilvikum af 76 hærra en meðalverð i stórum hverfaverslunum á höfuð- borgarsvæðinu. 4) meðalverð á Vesturlandi var f 31 tilviki af 75 hærra en í litlum hverfaverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Verðlagsstofnun kvaðst vænta þess að könnun sú sem hér er fjallað um örvi verðskyn neytenda á Vestur- landi og efli samkegni milli Þessi tafla, sem tekin er úr Verðkönnun Verðlagsstofnunar, sýnir glögglega útkomu ein- stakra verslana á Vesturlandi. Verslun Einars Ólafssonar á Skaganum, sem fær langbestu útkomuna, er i 69 tilvikum undir meðalverði en aðeins tvær vöru- tegundir eru þar dýrari en að meðaltali. Neðst i töflunni er hins vegar að finna Kaupfélag Króksfjarðarness og þar hefur dæmið algerlega snúist við. Mun fleiri vörutegundir eru þar fyrir ofan meðalverð en neðan. seljenda. Verðkönnun Verð- lagsstofnunar liggur frammi á skrifstofu stofnunarinnar og hjá fulltrúum hennar utan Reykjavikur. Símanúmer Verð- lagsstofnunar er 91-27422. Verð fyrir neðan og ofan meðalverð (í þessari töflu sést hve oft verð í hverri verslun var fyrir ofan og neðan meðalverð hverrar vöru). Hve oft Hve oft Fjöldi fyrirneðan fyrirofan vörutegunda meðalverð meðalverð í könnun Einar Ólafsson Akranesi 69 2 71 Grundarbúð Akranesi 46 11 57 SS Akranesi 47 18 65 Skagaver Akranesi 67 7 74 Traðarbakki, Akranesi 47 18 65 Essóstöðin Borgarnesi 26 34 60 Kaupf. Borgfirðinga kjörbúð, Borgarnesi ... 34 41 75 Kaupfélag Borgfirðinga útibú, Borgarnesi .. 31 38 69 Versl. Jóns Eggertssonar, Borgarnesi 22 11 33 Versl. Jóns og Stefáns, Borgarnesi 27 43 70 Baula Stafholtstungum 13 45 58 Kaupf. Borgfirðinga, Vegamótum 22 45 67 Kaupf. Borgfirðinga, Hellissandi 9 47 56 Hvammur, Ólafsvík 22 51 73 Kaupf. Ólafsvíkur 20 46 66 Grund, Grundarfirði 15 40 56 Kaupf. Grundfirðinga 14 43 57 Kaupfélagið í Stykkishólmi 23 44 67 Vöruhúsið Hólmkjör, Stykkishólmi 40 28 69 Kaupf. Hvammsfjarðar, Búðardal 28 35 64 Kaupf. Saurbæinga, Skriðulandi 22 35 57 Kaupf. Króksfjarðar, Króksfjarðarnesi 4 53 57 Kaupf. Króksfjarðar, Reykhólum 7 45 52

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.