Alþýðublaðið - 06.10.1987, Page 5

Alþýðublaðið - 06.10.1987, Page 5
Þriðjudagur 6. október 1987 5 mrœða eftir Þráin Hallgrimsson Að rjúfa hin helgu vé Við Alþýðuflokksmenn viljum gjarn- an sjá söguna í samhengi. Við búum líka við þau forréttindi í íslenskri stjórnmálasögu að getaverið mestan part stolt af okkar sögu. Stjórnaraðild Alþýðuflokksins hefur jafnan verið samofin stórstígum framförum. Þegar við lítum yfir farinn veg, eru vegvísarn- ir víða í slóðinni, sem Alþýðuflokkur- inn átti þátt í að móta eða mótaði einn. Vökulögin léttu sárri vinnuþrælk- un af sjómönnum þess tíma. Al- mannatryggingarnar gerðu umkomu- laust fólk eftir kreppuárin að virðuleg- um borggrum. Aðildin að Atlantshafs- bandalaginu svipti þjóðinni út úr ör- yggisleysi eftirstríðsáranna og í við- reisnarstjórninni var lagður grunnur að þvi mikla viöskiptafrelsi, sem við búum við i dag. Þetta eru aðeins fáir bautasteinar á langri leið. Þeir eru miklu fleiri. Þeir sýna að Alþýðuflokkurinn hafði hug- sjónir og kjarkmikið fólk til að hrinda þeim í framkvæmd. Um áratugaskeið var barátta Alþýðuflokksins samofin rimmu hins vinnandi manns fyrir mannsæmandi lífi. Þegar við lítum yfir þessa sögu, þá verður okkur Ijóst, að jafnvel klofning- ur og persónulegar illdeilur í flokkn- um á fyrri tíð verða léttvægar fundnar, þegar að kemur að spjöldum sögunn- ar. Upp úr standa draumar og hug- sjónir manna og kvenna, sem fundu farveg í Alþýðuflokknum, sem var reiðubúinn til að berjast til þrautar i ríkisstjómum fyrir framgangi þeirra mála, sem skiptu fólkið i landinu öllu máli. Þetta er ekki rakið hér að tilefnis- lausu. Ég hef enga glýju í augum yfir sögu Alþýðuflokksins. Ég á hins vegar þá ósk heita, að sjá þessa sögu áfram í samhengi. Ég vil sjá nýja vegvísa i slóðinni, sem benda fram á við en ekki aftur á bak. Ég tel að Alþýðu- flokkurinn eigi mikla möguleika í stöðunni, ef hann þekkir rétt sinn vitj- unartima. Lið sem spilar saman Margt bendir til að Alþýðuflokknum geti farnast vel inn á við næstu miss- erin. Hann á samhenta og hæfileika- mikla forystu, lið sem spilar saman, eins og sagði í slagorðasafni kosn- ingabaráttunnar. Hann hefur byggt upp málefnagrundvöll sem á sam- hljóm með fólkinu í landinu. Um for- ystuna stendur enginn styr og flokkur- inn ræður yfir nokkrum lykilstöðum í ríkisstjórninni, þar sem hann getur haft úrslitaáhrif á gang mála. Og þá kem ég aftur að sögunni. Ég get alls ekki séð að fyrstu spor þess- arar ríkisstjórnar meö þátttöku Al- þýðuflokksins marki braut, sem teng- ist hugsjónum jafnaðarstefnunnar. Það samrýmist t.d. alls ekki hug- myndum okkar alþýðuflokksmanna að leggja aukna skatta á matvæli. Sölu- skatturinn, sem lagður var á matinn okkar á dögunum er ekki i neinu sam- ræmi við sósíaldemókratískar hefðir í stjórnsýslu. Og ég gef ekkert fyrir skýringar forystu Alþýðuflokksins í þessu máli! Það er sagt að það eigi að lækka skattprósentuna síðar. Ein- földun skattakerfisins, fækkun undan- þága þ.m.t. söluskatti eigi að færa okkur meiri jöfnuð. Ef dæmið liggur svona einfalt fyrir og stjórnvöld höfðu svo mikla trú á aðgerðunum, þá liggur beinast við að spyrja: Af hverju var skattprósentan ekki lækkuð strax? Það er líka sagt að hækkun barna- bóta og tryggingabóta eigi að bæta þeim tekjulægstu og barnmörgum fjölskyldum upp tapið. Ég hef ekki séð það reikningsdæmi. En fimmþús- und kall hækkun barnabóta á ári segir mér a.m.k. að það hrökkvi skammt til að mæta hækkun matvæla. Þá er ónefnt það tækifæri, sem gef- ið var óprúttnum kaupmönnum um all- ar jarðir til að spenna verðlag á ýmissi matvöru upp úr öllu valdi og kenna síðan aukinni skattlagningu um. Annað dæmi ætla ég að nefna. Það er söluskattur á mötuneyti fyrirtækja og skóla. Mér er það hulin ráðgáta hvaða hugsjónir liggja að baki þeirri ákvörðun að leggja skatta á mötuneyti fræðslustofnana. Má ég minna minn gamla skólameistara Jón Baldvin Hannibalsson á hve miklu það skipti nemendur í MÍ á sínum tima að eiga kost á mat við hóflegu verði. Man hann enn þá tíð, að skólafólk gekk úr mötuneyti síðla vetrar, þegar það var orðið félítið? Stefnumarkandi Kannski eru þetta lítil mál í sjálfu sér. Engu að síður tel ég þetta vera stórmál, því þau eru stefnumarkandi og gefa almenningi í landinu þá mynd að Alþýðuflokkurinn sé reiðubúinn að hækka verð á nauðsynjavörum al- mennings, þegar vantar tekjur í ríkis- kassann. Þetta var ekki það sem við bjuggumst við frá rikisstjórn með að- ild Alþýðuflokksins; Við biðum eftir því að sjá stóru málin koma fram i dagsljósið. Það er mikið talað um niðurskurð þessa dagana. Allt frá þvi að ríkis- stjórnin tók við völdum hefur söngur- inn um niðurskurð ríkisútgjalda og að- hald hljómað úr stjórnarráðinu. Og i allt sumar fylgdust fjölmiðlar spenntir með því hvernig hægt var að koma fjárlagatölum neðar og neðar með hverri vikunni sem leið. Það skal síst lasta þann vilja að taka á fjármálum rikisins af festu og eyða þar óráðsíu og sóun. Mér finnst hins vegar skipta miklu máli hvar niðurskurðurinn lendir. Þess vegna fékk ég áfall, þegar ég las það á síðum Alþýðublaðsins i sumar að á lista yfir niðurskurð væri Fram- kvæmdasjóður fatlaðra. Fleira í þeim dúr fylgdi með. Þá varð mér hugsað til sögunnar. Við alþýðuflokksmenn eig- um nefnilega okkar helgu vé. Til þeirra nær enginn niðurskurður, hvað sem á gengur. Við skerðum ekki fé til sjóða fatlaðra. Við stöndum vörð um hag sjúkra og gamalmenna. Hinn um- komulausi og fátæki á að geta fundið sér skjól í Alþýðuflokknum. Þetta ættu skurðarmeistarar fjár- málaráðherra að hugleiða, þegar þeir beita hnífnum á næstu vikum. Það gilda engar núll-lausnir á sjóði fatl- aðra eða aðra nauðsynlega félagslega þjónustu. Við rjúfum ekki hin helgu vé. Þá rjúfum við um leið friðinn og eyðum traustinu, sem byggt hefur verið upp af svo miklu kappi og dugnaði undan- farin misseri. Fyrstu hundrað dagar ríkisstjórnar- innar eru nú brátt á enda. Hveiti- brauðsdögunum er að Ijúka og alvaran tekin við. Við vitum að það verður að- eins spurt um eitt að leikslokum. Það verður spurt um árangur og aftur árangur. Þess vegna þarf Alþýðuflokkurinn að tefla fram sóknarmönnum á næstu mánuðum. Það þarf að standa við lof- orðin. Húsbyggjendur um allt land bíða eftir fullbúnum tillögum í hús- næðismálum. Það gerir húsnæðis- laust fólk líka. Við bíðum eftir tillög- um um réttlátara skattakerfi. Við bíð- um eftir aðgerðum í fjöiskyldu og skólamálum, Iffeyrismálum og byggða- málum svo nokkuð sé nefnt. Og allt kostar þetta peninga. Það er nefnilega svo hábölvað, að framfarir kosta peninga. Og ef við ætlum að byggja upp betra og réttlátara þjóðfé- lag, þá verður það ekki gert með enda- lausum niðurskurði og aukinni skatt- lagningu á nauðsynlega félagslega þjónustu og matvæli. Vonandi gerir Alþýðuflokkurinn sér þetta Ijóst. Einmitt þess vegna er hann kominn f ríkisstjórn. Til að marka sporin til aukins réttlætis i þjóðfélaginu, breyta tekjuskiptingunni og nota stófellt auknar tekjur þjóðar- innar til að bæta hagsæld allra launa- manna. Og hafiði þaö.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.