Alþýðublaðið - 06.10.1987, Page 8

Alþýðublaðið - 06.10.1987, Page 8
fmiiiiiíinini Þriðjudagur 6. október 1987 AIDS í Evrópu: Á sjötta þúsund manns smitaðir Verst herjar sjúkdómurinn í Frakklandi og Þýskalandi. AIDS — sjúkdómurlnn sem allir óttast, heldur áfram aö breiöast út yfir lands- byggðina. Samkvæmt nýjum upplýsingum frá landlæknis- embættinu er flesta AIDS- sjúklinga Evrópu aö finna I Frakklandi en þar eru 1632 tilfelli skráð í júní í ár og er þaö helmingsfjölgun frá sama tíma I fyrra. Þýskaland er númer tvö á listanum meö 1133 skráö tilfelli í júní s.l. og er þaö einnig helmingi fleiri sjúklingar en í fyrra. Italía og Stóra-Bretland skipta meö sér þriðja sætinu; bæði lönd- in með 870 AIDS-sjúklinga á skrá í júní í ár. Þar hefur sjúk- dómurinn hins vegar vaxiö hraöar; á sama tíma í fyrra voru 300 AIDS-sjúklingar skráðir á Ítalíu og 389 tilfelli voru skráð í Stóra— Bretlandi. 176 tilfelli í Danmörku Sömu sögu er að segja um alla Evrópu. Fjöldi AIDS sjúk- linga vex meö óhugnanlegum hraöa og yfirleitt virðist talan tvöfaldast á milli ára. Af Norðurlöndunum er ástandið verst í Danmörku, þar eru 176 skráöir AIDS sjúklingar í júní- mánuöi í ár en voru 93 á sama tíma í fyrra. Svíþjóð sem hefur mun fleiri inn- byggjendur en Danmörk eða 8 milljónir alls, fylgir á eftir meö 129 AIDS-tilfelli skráð í júní i ár en 57 á sama tíma i fyrra. Noregur fylgir á eftir meö 49 skráð tilfelli í júní- mánuöi en haföi 24 AIDS- sjúklinga á skrá á sama tíma i fyrra. Þá kemur Finnland meö 19 skráö AIDS-tilfelli en hafði 11 í fyrra. ísland rekur lestina meö 4 AIDS-sjúklinga en hafð i 2 á skrá í fyrra. AIDS nær óþekkt í A- Evrópu? Lönd Austur-Evrópu virðst áberandi lítiö hrjáð af AIDS. Ekki er vitað hvort að þetta stafi af heilbrigði í löndum Austur-Evrópu eða hvort að skýrslur þaðan séu miður fullkomnar. Þannig eru að- eins 3 AIDS-tilfelli skráð í Sovétríkjunum og í fyrra var enginn AIDS-sjúklingur þar á skrá. í Rúmeníu er að finna 2 AIDS-sjúklinga og einn i fyrra, Ungverjaland hefur 5 sjúklinga sem þjást af AIDS á skrá en enginn var skráður AIDS-sjúklingur í fyrra. í Tékkóslóvakíu eru 7 AIDS- sjúklingar skráðir og fjórir sama tíma í fyrra en Búlgaría hefur aðeins einn AIDS-sjúkl- ing á skrá sinni og enginn var skráður sem AIDS-sjúkl- ingur í fyrra. Heilbrigðið er þó mest ( Albaníu, þvi þar er enginn AIDS-sjúklingur sam- kvæmt heilbrigðisskýrslum yfirvalda og að sjálfsögðu var þá engan AIDS-sjúkling að finna í fyrra. Ástandið slæmt á Spáni í Vestur-Evrópu er sem sagt aðra sögu að segja. Þar skipta AIDS-sjúklingarnir tug- um og hundruðum í landi hverju. Hér á undan hafa ver- ið talin fjögur þjóðlönd auk Norðurlandanna. Litum á nokkur önnur. Belgia er mjög hrjáð af AIDS-veirunni. Þar er 255 sjúklingar skráðir i júní- mánuði í ár en 171 í fyrra. Ná- grannaríkið Holland er ekki heldur vel á vegi statt hvað varðar AIDS. 260 sjúklingar eru þar á skrá en voru 146 í fyrra. Og Spánn hefur nær fjórfaldaö tölu AIDS-sjúkl- inga. í fyrra voru 177 AIDS- sjúklingar á skrá en í ár eru þeir orðnir 508. Engar skýr- ingar fylgja þessum tölum en ekki er ósennilegt að hinn mikli ferðamannastraumur og frjálst ástarlíf á sólarströnd- um hafi sin áhrif. Portúgal er einnig túristaland en þar eru tölurnar mun lægri. Þannig voru 67 AIDS-sjúklingar skráðir í júnímánuði í ár en 28 á sama tíma í fyrra. Ferða- mannalandið Sviss er hins vegar með hærri tölur. 266 AIDS-sjúklingar eru nú skráð- ir í landinu en voru 138 í fyrra. Grikkland virðist hafa sloppið vel miðað við önnur Evrópulönd. Þar í landi eru aðeins skráð 60 AIDS-tilfelli en aukningin er þreföld milli ára, þvi í fyrra voru aðeins 22 AIDS-sjúklingar á skrá. Tón- listarlandið Austurriki er ekki heldur laust við AIDS. Þar eru nú skráðir 93 AIDS-sjúklingar en voru 36 í fyrra. Um 28 þúsund með mótefni Ef litið er yfir skrá AIDS- sjúklinga í Evrópu í heild sýna tölur okkur að alls eru 6516 manns skráðir sem AIDS-sjúklingar (og allmargir á lokastigi). A sama tima i fyrra (júnímánuði) var þessi tala hins vegar 3043. Mótefni hefur hins vegar mælst i 27 903 mönnum i Evrópu allri. Þetta eru Ijótar tölur og þær fara stighækkandi. Með- an enn hefur ekki fundist mótefni við AIDS-veirunni er þvi full ástæða að menn íhugi sinn gang og geri fyrir- byggjandi ráðstafanir til að hindra frekari útbreiðslu sjúk- dómsins. Að lokum ber að hyggja aö því að þessar tölur sýna aðeins toppinn á (sjak- anum, því mun fleiri eru sýkt- ir en koma inn til blóðrann- sókna og mælinga.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.