Alþýðublaðið - 15.10.1987, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 15.10.1987, Qupperneq 3
Fimmtudagur 15. október 1987 3 Deilurnar hjá Landhelgisgæslunni: Skorað á dómsmálaráðherra FRETTIR að leysa deiluna Jón Sigurðsson segir að málið sé alvarlegt, en hann hefur reynt að liðka fyrir sáttum „Ég dreg ekki úr því, að þetta er mjög alvarlegt mál, en ég og mínir samstarfs- menn munum leggja okkur fram um að leysa þetta,“ sagði Jón Sigurðsson dóms- málaráðherra i samtali við Al- þýöublaðið. Samtök sjó- manna, Sjómannasambandið og Farmanna- og fiskimanna- sambandið, sendu ráðherra bréf þar sem þau skora á hann að hlutast til og leysa deilur milli forsvarsmanna Landhelgisgæslunnar og starfsmanna. Málefni Gæslunnar hafa komiö upp á yfirborðið, eftir það óhapp sem henti á sunnudagskvöld þegar lítil þota með sex manns innan- borðs nauðlenti á sjónum 40 mílur vestur af Reykjanesi. Enginn flugmanna þyrlu Landhelgisgæslunnar var á bakvakt þetta kvöld og tók um hálftíma að ná til flug- manna svo hægt væri að undirbúa flug á slysstað. Ástæða þessa voru kjaradeil- ur milli flugmannanna og yf- irstjórnar Landhelgisgæsl- unnar. Dómsmálaráðherra hitti þyrluflugmennina að máli fyr- ir nokkrum dögum og sfðan hefur verið reynt að liðka fyrir sáttum I málinu. „Þetta er fyrst og fremst mál á milli starfsmannanna og yfir- stjórnar Landhelgisgæslunn- ar og eftir að hafa rætt við þessa menn er ég vongóður um að málin leysist," sagði Jón Sigurðsson. Atvinnuástandið í september: Fæstu atvinnu- leysisdagar í áratug Þrátt fyrir gífurlega þenslu á vinnumarkaði voru skráðir 4400 atvinnuleysisdagar á landinu öllu í septembermán- uði. Þetta eru reyndar fæstu atvinnuleysisdagar sem skráðir hafa verið í septem- bermánuði í áratug, næst komst árið 1981 með 4900 daga, en meðaltal septem- bermánaða árin 1981 — 1986 er 8200 dagar. Það er Vinnu- málaskrifstofa Félagsmála- ráðuneytisins sem heldur yfirlit um atvinnuástandið. Skráðir atvinnuleysisdagar í septembermánuði s.l. svara til þess að 200 manns hafi að meðaltali verið á skrá á land- inu öllu en það jafngildir 0.2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði i mánuðinum samkvæmt spá Þjóðhags- stofnunar. Skráðum atvinnuleysidög- um hefur fækkað frá mánuð- inum á undan um 40% sem mesta hlutfallsleg breyting á milli mánaða á árinu, þegar undan er skilin sú árstlða- bundna breyting er jafnan á sér stað milli janúar og febrúarmánaða. í lok septembermánaðar voru gild atvinnuleyfi til út- lendinga 700 talsins og má gera ráð fyrir a.m.k. 300 af þessum fjölda starfi við fisk- vinnslu. í þessum tölum eru ekki taldir Norðurlandabúar, sem yfirleitt þurfa ekki at- vinnuleyfi hér á landi. Þessa dagana stendur yfir árleg haustkönnun Þjóðhags- stofnunar og Vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytis- ins á atvinnuástandi og horf- um á næstunni. Þetta er I sjötta sinn sem sllk könnun fer fram og tekur hún til rúm- lega 1100 fyrirtækja. Með könnuninni er talið að fáist raunhæf mynd af eftirspurn- arástandinu á vinnumarkaðin- um nú og f næstu framtlð. Fyrsti snjór haustsins er misjafnlega velkominn. Ökumenn geta vel hugsað sér aö vera án hans enn um hríö. Börnin hafa hins vegar allt aöra afstöðu. Feitara nautakjöt Öfugt við tiðarandann sem krefst sifellt megurra lambakjöts, lýsir kjötvinnsla Jónasar Þórs á Hellu eftir feitara nautakjöti. Það er þó ekki beinlinis fitan sjálf sem þykir svona eftirsókn- arverð, heldur verður kjötið betra ef skepnan er í góðu ásigkomulagi. Að undanförnu hafa verið gerðar tilraunir með að ala nautkálfa á sérstakri vlta- mlnbættri maísblöndu sem talin er gefa rétta fitu og mikla vöðvabyggingu. Það eráðurgreind kjötvinnsla Jónasar Þórs, Kaupfélagið Þór og Fóöurblandan hf. sem I sameiningu standa að þessum tilraunum. Fallþungi nautgripa sem aldir hafa verið á þessari blöndu hefur reynst talsvert meiri en venja er til um jafn gamla gripi og á næstunni verður hafin sala á maís- blöndu þessari hjá Kaupfé- laginu Þór. Jafnframt hyggst kaupfélagið verð- launa þá bændur sem ala gripi slna á blöndunni með 3000 krónum á hvern grip og Kjötvinnsla Jónasar Þórs skuldbindur sig til aö kaupa allt kjöt af þeim naut- gripum sem ræktaðireru á þennan hátt. Fáskrúösfjöröur: FISKVERÐIÐ ÚR SAMBANDI VIÐ HAFNARFJÖRÐ — Deilur vegna fiskverðs halda áfram að blossa upp og skip við bryggju í lengri eða skemmri tíma. Samkomulag tókst á Fá- skrúðsfirði á þriðjudag í deilu sjómanna á togaranum Ljósafelli og eigenda. Kaup- félagsins á staðnum. í nýju samningunum er ekki tekið mið af fiskverði á markaðn- um í Hafnarfirði, eins og gert hefur verið frá því í sumar. Ljósafellið hafði verið bundið við bryggju í viku vegna fisk- verðsdeilunnar. Vlðar á Austfjörðum hafa deilur sprottið upp vegna fiskverðsins aö undanförnu, og hafa skip ekki farið til veiða I lengri eða skemmri tíma. Togarinn Barði f Neskaup- stað hafði legið við bryggju I tæpa þrjá sólarhringa I gær vegna þess að samkomulag hafði ekki tekist á milli sjó- manna og Sildarvinnslunnar. Áhöfnin haföi hafnað tilboði sem sjómenn á öðrum togara fyrirtækisins, Bjarti, höfðu gengið að og fól I sér 11% hækkun á þorski, tveggja kllóa. í gær var útlit fyrir að samningar tækjust, en þrefað var um gæðaeftirlit. Á dögunum tókst sam- komulag á Eskifirði eftir að sjómenn á togaranum liggja víöa bundin Hólmanesi höfðu neitað að fara út I tæpan hálfan mánuð. Samkvæmt samkomuTag- inu sem gert var á Fáskrúös- firöi er kllóverðið á þorski rétt rúmar 33 krónur, fyrir tveggja kllóa fisk. Tilbóð Síldarvinnslunnar á Neskaup- stað til sjómanna er á svip- uðum nótum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.