Alþýðublaðið - 20.10.1987, Blaðsíða 8
MHBUBUÐII)
Alþýðublaðið spyr Sigríði Stefánsdóttur:
Hvað verður
um Alþýðu-
bandalagið
ef þú tapar?
Ég þori ekki aö spá fyrir
um það hvaö verður um Al-
þýðubandalagiö, en ég held
að það væri mjög holll að all-
ir þeir sem nú eru að hugsa
um hvað þeir eigi að gera,
hugsi um Alþýðubandalagið.
Ef fólk gerir það þá kvíði ég
ekki niðurstöðunni.
— En hvað myndi sigur
þinn í formannskjöri þýða fyr-
ir Alþýðubandalagið?
Ég vona sannarlega að það
myndi þýða nýtt og gott
skeið fyrir Aljáýðubandalagið.
Þar sem fólk myndi vilja
vinna saman, að sinum hug-
sjónum fyrst og fremst og
koma þeim á framfæri í þjóð-
félaginu.
— Þið kalliö Ólaf Ragnar
hershöfðingja. Er þaö ekki
einmitt hershöfðingi sem þið
þurfið núna til þess að binda
þennan flokk saman, sem
hefur verið í sárum um nokk-
urt skeið?
Nei. Ég tel að það eigi ekki
að gerast á þann hátt, að það
sé kallað á einhvern einn
sterkan foringja sem allir eigi
að lúta. Ég tel að það geti
ekki samrýmst vinnubrögð-
um í sósíalískum flokki. Þar
á fólk fyrst og fremst að
vinna saman og koma fram
sem ein heild.
— Hverjir eru þínir helstu
stuðningsmenn?
Ég get ekki nafngreint
neina aðalstuðningsmenn.
Það er fjöldi fólks út um allt
land sem hefur lýst yfir
stuðningi við mig og vill
vinna að því að Alþýðubanda-
lagið nái aftur þeirri reisn
sem það hafði.
— Þú hefur sagt, eftir
landsfundarkjör um helgina,
að þú eigir meiri möguleika
en Ólafur Ragnar. Hvernig
veistu það?
Ég hef ekki sagt þetta
neitt sérstaklega eftir kosn-
ingu um helgina. Ég tel að
stuðningur við mig á lands-
byggðinni yfirleitt sé meiri en
við Olaf Ragnar, ég tel algjör-
lega fráleitt að stimpla þorr-
ann af því fólki sem fór inn í
Reykjávíkurfélaginu sem
Ólafsfólk.
— Um hvaö snýst ágrein-
ingurinn?
Ég hef ekki alltaf áttað mig
á því hver væri málefna-
ágreiningur í þessum flokki.
Alþýðubandalagið á Norður-
landi-eystra sat t.d. á kjör-
dæmisráðstefnu um helgina,
þar sem enginn málefna-
ágreiningur kom fram. Því tel
ég ágreininginn, eins og
hann hefur birst að undan-
förnu, fyrst og fremst snúast
um persónu Oafs Ragnars.
Því miður.
— Geturðu skilgreint
þann hóp sem kallaður er
lýðræðiskynslóð?
Nei. Það er sjálfgefið nafn
fyrir ákveðinn hóp af fólki,
sem telur sig á einhvern hátt
lýðræðissinnaðra en aðra. Ég
hef hins vegar aldrei getað
fallist á þá skilgreiningu.
— Formaður flokksins og
fleiri hafa opjnberlega sagt,
að þeir telji Ólaf Ragnar hafa
unnið skemmdarstarf í
flokknurn um árabil. Ertu
sammála þessu?
Þriöjudagur 20. október 1987
Við verðum að forðast öll
stóryrði í lengstu lög. Afturá
móti hefur sú mynd sem gef-
in hefur verið af flokknum út
á við, skemmt mjög mikið fyr-
ir flokknum. Sú mynd hefur
ansi oft kpmið frá hópi í
kringum Ólaf Ragnar Gríms-
son. Það hefur t.d. lítið verið
talað um það góða starf sem
fjöldi fólks er að vinna, en
haldið á lofti mynd óeiningar
og sundrungar. Það er ef til
vill ekkert of stórt að kalla
það skemmdarvargastarf-
semi.
— Er flokkurinn þá ekki
glataður ef Ólafur Ragnar ber
sigur úr býtum?
Ég vil ekki taka svo djúpt í
árinni, en ég tel að það væri
mjög alvarlegt fyrir þennan
flokk vegna þess að það er
greinilegt að Ólafur Ragnar
kærir sig ekki um samstarf
við margt af því fólki sem
unnið hefur mest og best fyr-
ir þennan flokk. Því tel ég
engum stjórnmálaflokki hollt
að vanvirða þannig sína fé-
laga.
— Verður þú áfram í Al-
þýðubandalaginu ef Ólafur
sigrar í formannskjörinu?
Ég hef tekið að mér ákveð-
in störf fyrir Alþýðubandalag-
ið og mun að sjálfsögðu
sinna þeim áfram.
— Veröur það ekki erfitt,
eftir það sem á undan hefur
gengiö?
Það verður í sjálfu sér ekk-
ert erfitt að vera bæjarfulltrúi
á Akureyri. Ég mun siðan
skoöa þaö á hverjum tíma
hvort ég tek önnur störf að
mér. Þvf mun ég halda áfram
að berjast hér fyrir flokkinn,
— í sama anda.
— Þannig að þú munt ekki
fallast í faðma með Ólafi ef
þú tapar?
Ég sé ekki að hann hafi
neinn sérstakan áhuga á að
faðma mig. Þannig að ég
býst ekki við neinum faðm-
lögum.
— Svavar Gestsson vill
ekki svara þvi afdráttariaust
hvort hann verði í flokknum
undir forystu Ólafs Ragnars
Grimssonar. Hann segir að
það sé mörgum spurningum
ósvaraö og þaö séu fleiri en
hann sem þurfi að taka
ákvörðun. Verður ekki að
skilja að þessi möguleiki sé
fyrir hendi?
Svavar er og hefur verið
fullfær um að svara fyrir sig,
ég læt það því ógert.
— Hvað er það nákvæm-
lega i pólitiskum málflutningi
Ólafs Ragnars sem þú og
þínir stuðningsmenn sættið
ykkur ekki við?
Þetta snýst um það, að
vinnubrögð Ólafs Ragnars í
gegnum árin hafa verið slík,
að mjög margt fólk getur
ekki séð í honum fulltrúa
sameiningar. Málefnaágrein-
ingur er því ekki mikill, en
það er auðvitað meiningar-
munur í einstökum málum
eins og hlýtur að gerast í öll-
um flokkum. Að mínu viti er
það því ekki málefnaágrein-
ingur sem skaðað hefur Al-
þýðubandalagið að undan-
förnu.
— Hvenær og hvers.vegna
tókst þú ákvörðun um að
Sigríður Stefánsdóttir
bæjarfulltrúi á Akur-
eyri er þekkt og svo
vel kynnt í sínu hér-
aði, að sagt er að
framboð hennar í síð-
ustu bæjarstjórnar-
kosningum hafi átt
stærstan þátt í því að
Kvennalistinn ákvað
að bjóða ekki fram í
höfuðstað Norður-
lands. Sigriður berst
nú fyrir formannskjöri
í Alþýðubandalaginu
og etur þar kappi við
Ólaf Ragnar Gríms-
son, þann þjóðkunna
mann.
gefa kost á þér i formanns-
kjöri?
Það hefur líklega verið í
ágústmánuði, eftir aö ég
hafði verið hvött til þess af
fjölda fólks, sem vildi fyrst
og fremst hugsa um hag Al-
þýðubandalagsins og fá nýtt
fólk til forystu.
— Hvatti Svavar Gests-
son, og aðrir í forystunni þig
til að fara í framboð?
Eftir að Svavar Gestsson
vissi að fólk var farið að
ræða viö mig, lét hann mig
vita að honum þætti þetta
álitlegur kostur.
— Þú ert betur þekkt á
landsbyggðinni en á Reykja-
víkursvæðinu. Ertu kannski
fyrst og fremst fulltrúi lands-
byggðarinnar?
Eg hef starfað í Alþýðu-
bandalaginu bæöi í Reykjavík
og Akureyri. Ég vil gjarnan
vera fulltrúi landsbyggðarinn-
ar, en tel mig vel geta verið
fulltrúi alls Alþýðubandalags-
fólks.
— Er útilokað að þriðji
frambjóðandi komi fram, sem
einhvers konar málamiðlun?
Ég veit ekki hvaö ég á að
segja um það. Ég hef t.d.
aldrei taliö þetta mál snúast
um mína persónu. En það er
alveg Ijóst að hópur flokks-
manna muni aldrei fallast á
Ólaf Ragnar sem málamiðl-
un. Því get ég ekki séö að
hann eða fólk í kringum hann
muni fallast á nokkra aðra
persónu í flokknum sem
málamiðlun. Því tel ég að
þessi kosning muni fara fram
á milli okkar á landsfundin-
um.