Alþýðublaðið - 04.11.1987, Side 2

Alþýðublaðið - 04.11.1987, Side 2
2 Miðvikudagur 4. nóvember 1987 MmilBUII! Sími: 681866 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Blaðamenn: Umsjónarmaður helgarblaðs: Ingólfur Margeirsson. Jón Daníelsson. Ingibjörg Árnadóttir, Kristján Þorvaldsson og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Þorlákur Helgason. Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson. Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir, Eva Guðmundsdóttir, Þórdís Þórisdóttir, Olöf Heiður Þorsteinsdóttir og Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Setning og umbrot: Prentun: Filmur og prent, Ármúla 38. Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 6R186R Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. I lausasölu 50 kr. eintakið virka daga, 60 kr. um helgar. EINDREGINN STUÐNINGUR r rumvarp Jóhönnu Siguröardóttur til laga um breytingar á lögum Húsnæðisstofnunar hefur hlotið geysilegar undirtektirmeðal á...,emiing^. Stuðningsyfirlýsingar hafa streymt í skeytafc.. mi á skrifslofu ráðherrans eins og kom- ið hefur fram i fréttum og eins hafa menn lýst yfir fullri samstöðu með frumvarpi ráðherrans með öðrum hætti. Um helgina bættust tveir mikilvægir hópar í hinn breiða stuðningshóp sem styður frumvarp Jóhönnu. Á almenn- um fundi sem Jóhanna Sigurðardóttir hélt í Múlakaffi s.l. laugardag var lesin upp stuðningsyfirlýsing átta samtaka. í yfirlýsingunni var lýst yfir heilshugar stuðningi við baráttu ráðherrans fyrirhagsmunum þeirrasem lakasteru settir að verða sér út um þak yfir höfuðið, „og væntum þess að augu almennings opnist fyrir því að núverandii ástand verði ekki umborið lengur,“ eins og orðrétt sagði í yfirlýsingunni. Undir yfirlýsinguna skrifuðu Öryrkja- bandalag íslands, Sjálfsbjörg, Landssamband fatlaðra, Landssamtökin Þroskahjálp, Samtök aldraðra, Stúdenta- ráð Háskóla íslands, Bandalag íslenskra sérskólanema, Leigjendasamtökin og Búseti Landssamband. Þá kom fram á þingi Verkamannasambandsins sem lauk á Akureyri um helgina, eindreginn stuðningur þingfulltrúa við húsnæðisfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur. Af 138 fulltrúum skrifuðu 114 undir sérstaka stuðningsyfirlýs- ingu. Félagsmálaráðherra ávarpaði reyndar þingið og gerði m.a. grein fyrir meginefni húsnæðisfrumvarpsins sem hefur sætt gagnrýni ýmissa þingmanna og sumra innan stjórnarflokkanna. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins orðaði stuðninginn við Jóhönnu Sigurðardóttur á þingi Verkamannasam- bandsins á alþýðulegan hátt í samtali við Alþýðublaðið í gær: „Þettaerhelvíti mikill sigur hjá henni og móttökurn- ar óvenjulegar. Þarn.avarþví hvorki andstöðu né illindum fyrirað faraeins og á Alþingi.“ í þessum orðum Guðmund- ar liggja mikil sannindi. Þær gagnrýnisraddir sem heyrst hafa á Alþingi eru einmitt raddir illindis sem ekki byggja á málefnalegri umfjöllum eða rökhyggju. Alþýðublaðið hefur áður lýst yfir áhyggjum vegna málfars og framkomu þingmanna á Alþingi vegna þessa máls þar sem klúryrði og kynjafordómar eru látnir ráða ferðinni. Mlþýðublaðið hefur ennfremur kallað frumvarp Jóhönnu Sigurðardótturfrumvarp réttlætis ogjöfnuðar. Það tryggir forgang þeirra til lána sem í brýnni þörf eru fyrir lánafyrir- greiðslu vegna húsnæðiskaupa. Það dregur úr þenslu á fasteignamarkaði og kemur í veg fyrir óeðlilega hækkun áverði íbúðarhúsnæðis. Það takmarkarsjálfvirkni í útlán- um og dregur úr fjárþörf húsnæðiskerfisins. Og síðast en ekki síst gerir frumvarpið Ráðgjafaþjónustu Húsnæðis- stofunar kleift að gegna beturen hingað til því veigamikla hlutverki að láta umsækjendum í té leiðbeiningar og fara yfir kostnaðar- og greiðsluáætlanir til að forða greiðslu- erfiðleikum. Undirtektirnar hjá þessum átta samtökum og Verkamannasambandinu sýna og sanna að frumvarp Jóhönnu hefurfylgi tugþúsunda. Þærsýnaennfremurog sanna hve sumir þingmenn eru á skakk og skjön við ís- lenskan veruleik er þeir standa í ræðustól á því háa Al- þingi mælandi gegn jafn sjálfsögðum kröfum eins og felast í frumvarpi félagsmálaráðherra. Þessir menn hrækja niður á við. ONNUR SJONARMIÐ eild. Þeir sem fara með frar væmdavaldið í flokknum veri Ragnar. Þarf nokkurn formann yfirleitt? LANDSFUNDURai þýðubandalagsins hefst á morgun og það er því ekki seinna vænna fyrir þá flokks- menn ( Alþýðubandalaginu sem á annaö borð hafa skoð- anir á hlutunum að koma sjónarmiðum slnum á fram- færi. Þjóðviljinn er að vonum fullur af innsendum greinum um formannskjörið þessa dagana, þar sem ýmsir höf- undar velta því fyrir sér hvort betra sé að kjósa konu eða friðarhöfðingja I formanns- sæti flokksins. Sjónarmið manna eru að vonum misjöfn að þessu leyti. i gær birtist hins vegar í Þjóðviljanum grein eftir Ragnar Stefánsson, jarð- skjálftafræðing, og gamal- þekktan baráttujálk innan vinstri hreyfingarinnar, þar sem hann setur fram býsna nýstárlegt sjónarmið í þessu sambandi. Hann veltir sem sé upp spurningunni hvort flokkurinn þurfi yfir höfuð nokkurn formann. Við skul- um gefa honum orðið. „I sambandi við þessar deilur hafa komið í Ijós stór- felldir skipulagsgallar í Al- þýðubandalaginu. Það er vax- andi tilhneiging til þess i seinni tið að leysa deilurnar í flokkstoppunum með þvi að kjósa foringja beint á lands- fundi. Framkvæmdastjórn hefur verið kosin beint á landsfundum og svo vaxandi fjöldi formanna og varafor- manna. Miðstjórn flokksins er líka kosin af landsfundi og reyndar að nokkru af kjör- dæmisráðum og fleiri eining- um flokksins. Miðstjórnin á að heita æðsta stjórn flokks- ins milli þinga. Reyndin er hins vegar sú að miðstjórnin hefur verið sett úr leik af öðr- um valdastofnunum flokks- ins. Formenn og varaformenn og framkvæmdastjórn, sem bara eru ábyrg gagnvart landsfundi eiga svo í stöð- ugri togstreitu. Sú tillaga til lagabreytinga mun koma til álita á lands- fundinum, að þar sé einungis kosin miðstjórn. Hún kýs sér svo framkvæmdastjórn og væntanlega formann. Sum- um finnst þetta minna lýð- ræði, en svo er þó alls ekki. Miðstjórnin er afar fjölmenn og til hennar er kosið að nokkru beint úr héraði eins og fyrr segir.“ RAGNAR rökstyöur þessa tillögu sína með ýmsu móti. Hann telur greinilega að mið- stjórn flokksins þurfi að styrkja stöðu sína gagnvart ýmsum aðilum í flokknum. Hann segir m.a. „Við þetta mundi mið- stjórn lika styrkjast gagnvart öðrum valdamiðstöðvum flokksins, svo sem þing- flokknum, Þjóðviljanum og verkalýðsforingjunum. En stundum virðist það nú vera , einhver þessara aðila, sem ráða ferðinni, þrátt fyrir allar formlegar stjórnir. Fjölgun yf- irmanna, varaformanna o.s.frv, felur bara í sér vald- dreifingu meðal forystu- mannanna. Okkar tillaga felur í sér að hinn almenni flokks- félagi nálgast það eitthvað að fá völdin. Ég veit að fjölmiðlarnir verða lítt hrifnir ef svona hug- myndir næðu i gegn. Þeir vilja fylgjast með hinu hnif- jafna hanaati, þangað til ann- ar liggur í valnum. En fyrir þá sem vilja gera þennan flokk róttækari og sterkari væri þessi lagabreyting í áttina.“ Svavar. Hefur hann þá verið for- maður að óþörfu og allir hinir lika? AÐ lokum fer Ragnar hinum háðulelgustu orðum um allt formannastandið í flokknum og vinstri hreyfingum vfir- leitt. Um þetta seqir hann: „Það er augljóst að flokks- formaður, sem kosinn er af miðstjórn eins og hér er lagt til, verður ekki eins hátignar- legur og sá sem kosinn er beint af landsfundi. Ég held bara að þessir hátignarlegu formenn séu ekki lengur í takt við tíðarandann. Viku- blöðin nærast að vísu nokk- uð á formönnum, á sama hátt og kóngafólki og leikurum og mökum þeirra. Eg held hins- vegar að hátignarmenn passi ekki í vinstri flokkum og flokkum sem berjast fyrir jafnrétti og félagslegum lausnum. Kvennalistinn virð- ist dafna ágætlega, a.m.k. hvað fylgi snertir, þótt hann hafi alís engan formann. Græningjafiokkarnir, sem virðast i sókn nú þessi árin víða í Evrópu, gera afskap- lega lítið með formenn.“ RAGNAR er þó ekki einn um að birta afstöðu sína til formanna og formannsefna í Þjóðviljanum í gær. Það sama gerir Sigrún Svein- björnsdóttir, sálfræðingur á Akureyri. Hún styður að sjálf- sögðu Sigrfði Stefánsdóttur og rökstyður það m.a. á þennan hátt: „Nú ber svo við að tveir menn bjóða sig fram til for- manns á næsta landsfundi okkar, einn af hvoru kyni. Annarsvegar er það Ólafur Ragnar Grímsson, dugmikill og þekktur stjórnmálafræð- ingur, hins vegar er það Sigríður Stefánsdóttir, einnig dugmikill stjórnmálamaður, fulltrúi AB í bæjarstjórn Akureyrar. AB hefur það nú i hendi sér að verða fyrstur flokka á íslandi til að kjósa sér konu sem formann. Án þess að halla á nokkurn mann held ég að Sigriður sé sá kven- kostur sem bestan má finna. Það er eðlilegt að ég hafi þá skoðun þar sem ég hef unnið við hlið hennar í nokkur ár, en fleiri eru sama sinnis og það er alkunna í bæjarfélagi okkar að Sigríður er virt hvort heldur sem er af pólitískum samherjum eða andstæðing- um.“ Sigrún. Skyjdi vera jafnerfitt fyrir svartan mann að verða forseti Bandarikjanna og fyrir konu að verða formaður AB? SIGRÚN seilist ekki skammt til að finna samjöfn- uð við þá erfiðleika sem því séu samfara að koma konu í formannsembætti Alþýðu- bandalagsins. Hún segir nefnilega: „Það var erfitt fyrir konu að verða forseti íslands, það er erfitt fyrir svartan mann að verða forseti Bandaríkjanna — og það er erfitt fyrir Sigr- íði að verða formaöur AB.“ Sigriður. Sá kvenkostur sem best- an má finna. AD lokum snýr Sigrún sér beint að Ólafi Ragnari og ávarpar hann: „Ólafur Ragnar, þú ert maður að meiri ef þú vikur til hliðar og auðveldar Sigríði leiðina í þetta embætti fyrir flokkinn okkar. Einmitt núna er tími konunnar og Sigríður er sú sem hefur það tvennt sem tii þarf, — hún hefur hæfileikann — og hún er til- búin til starfsins." Ólafur Ragnar. Maður að meiri ef hann vikur til hliðar.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.