Alþýðublaðið - 04.11.1987, Side 8
MMBUBL0I9
Miðvikudagur 4. nóvember 1987
BEST AB BUA I EINBYUSHUSI
UG EIGA ÞAÐ SJÁLFUR
Sú skoðun virðist a.m.k. útbreidd meðal íbúanna í Árbæ og Breiðholti, samkvæmt niður-
stöðum könnunar á vegum Borgarskipulags Reykjavíkur. Meira en helmingur vill helst
búa í einbýli. Fólk er yfirleitt fremur ánœgt með íbúðir sínar og umhverfi en sumsstaðar
bullandi óánœgja með aðstöðu unglinga.
Draumur íslendingsins er
að komast i einbýlishús.
Þetta eru kannski ekki alveg
ný tíðindi, en þau staðfestast
í skýrslu sem Borgarskipulag
Reykjavíkur hefur nú gefiö út.
í skýrslunni er fjallað um mat
ibúa i Árbæ og Breiðholti á
húsnæði sínu og umhverfi og
þar eru birtar niðurstöður
könnunar sem reyndar er orð-
in tveggja ára, gerð sumarið
1985.
Meira en helmingur þeirra
sem svörðuð spurningunum
kváðust helst vilja búa í ein-
býlishúsi ef þess væri nokk-
ur kostur og það er áberandi
í svörunum, að þeir sem búa
I einbýlishúsum eru mun
ánægðari með húsnæði sitt
en aðrir. Þetta gildir líka um
þá sem búa í raðhúsum og
gæti bent til þess að rað-
húsabúar líti ekki á raðhúsið
sem endanlegt húsnæði,
heldur hugsi sér aö komast
yfir einbýlishús með tíman-
um.
Þeir sem búa í raðhúsum,
reyndust að vísu nokkru
ánægðari með húsnæði sitt
en íbúar fjölbýlishúsa, en
munurinn reyndist mun
minni á þessum hópum,
helduren milli íbúa einbýlis-
húsa og raðhúsa hins vegar.
íbúar fjölbýlishúsa reynd-
ust sem sagt í neðsta sæti
hvað varðar ánægju með nú-
verandi íbúðarhúsnæði. Það
kemur hins vegar kannski
nokkuð á óvart að ekki reynd-
ist verulegur munur á af-
stöðu fólks í þessu efni, eftir
því hvers konar fjölbýlishús
var um að ræða. Þannig mun-
ar ekki miklu á afstöðu fólks
eftir þvf hvort það býr f 3-4
hæða blokk, eða risablokk.
Eignarétturinn gleður
Þeir sem búa f eigin hús-
næði eru mun ánægðari með
húsnæði sitt en þeir sem
leigja. Það kom líka fram f
könnuninni að fólk sem telur
sig búa þröngt, er mun
óánægðara með húsnæðið
en aðrir. Hvorugt þarf
væntanlega að koma á óvart.
Niðurstöður könnunarinnar
virðast að þessu leyti staö-
festa I megindráttum hið
almenna viðhorf að fólk sé
smám saman að fikra sig
upp á við f stiganum, á hinni
algengu leið úr lítilli leigu-
íbúð í blokk um tvítugt upp í
eigið einbýlishús einhvern
tíma á fimmtugsaldrinum.
Árbaer og Selás betri en
Breiðholtið
íbúarnir f Árbæjarhverfi og
Seláshverfi reyndust til muna
ánægðari með húsnæði sitt
og umhverfi en fólkið sem
býr í Breiðholti. Seláshverfið
hefur raunar talsverða sér-
stöðu að því leyti að nærri
70% fbúanna þar kváðust
vera mjög ánægðir með hús-
ANÆGJA MEÐ HVERFI
%
70-
60-
50-
40-
30-
20-
10•
0-
-P
0 OVA
.0.0
Arbær
Selás
Breidholtl Breidholtll Breidholt HI
Eins og sést á þessu súluriti virðast ibúarnir í Árbæ og Breiðholti almennt ánægðir með hverfin sín, í Selás-
hverfi og Breiðholti I var enga beina óánægju að finna.
ÁNÆGJA MEÐ HUSNÆDI EFTIR HVERFUM
Hjög óánœgd(ur)
*
Oánœgd(ur)
H/utlaus
Anœgd(ur)
Hjög ánœgd(ur)
Árbær
Selás
Breidholt I BreidholtH BreidholtlH
Hér sést hvernig Seláshverfið sker sig úr að þvi er varðar ánægju íbúanna með húsnæði sitt. Þar er heldur
ekki að finna svo mikið sem einn einasta íbúa sem er óánægður að þessu leyti, a.m.k. ekki i úrtakinu.
næði sitt. Allir aðrir íbúar
hverfisins segjast vera
ánægðir meö húsnæðið. Ekki
fannst I könnuninni einn
einasti fbúi í Seláshverfi sem-
kvaðst vera óánægður með
íbúðarhúsnæði sitt.
Ekki má þó gera of mikið
úr þessum mun og i heildina
tekið virðist fólk í þessum
hverfum almennt vera ánægt
með umhverfið.
Ekki bara ánœgja
Ibúar „háhverfanna" eru þó
ekki bara himinhrópandi
glaðir og ánægðir með allt
og alla. I niðurstöðum könn-
unarinnar kemur fram tals-
verð óánægja með ýmis
atriði. Einkum gætir óánægju
með unglingaaðstöðu, skipu-
lag umferðar og í allmörgum
tilvikum reyndist fólk þeirrar
skoðunar að ákveðna þjón-
ustu vantaði f hverfin.
Hátt í 60% þeirra sem
svöruðu spurningu um að-
stöðu fyrir unglinga, voru
þeirrar skoðunar að ekki væri
nóg við að vera fyrir unglinga
á aldrinum 13-17 ára í hverf-
inu.
Vantar íþróttaaðstöðu
og félagsmiðstöð
Mest var óánægja í Breið-
holti II og III. í Breiðholti II
kvörtuðu margir yfir þvf að
félagsmiðstöð vantaði í
hveríið, en allmargir voru
einnig þeirrar skoðunar að
bæta þyrfti íþróttaaðstöðuna.
Ekki kemur fram í skýrsl-
unni hversu hátt hlutfall hús-
ráðenda í Breiðholti II var
óánægt með aðstöðu fyrir
unglinga, en af töflum sem
birtareru í skýrslunni virðist
mega ráða að um 80% þeirra
fbúa í Breiðholti II sem
svöruðu spurningunni um að-
stöðu unglinga í hverfinu,
hafi talið hana aðfinnslu
verða.
Svipaða sögu var að segja
f Breiðholti III, þótt svo virð-
ist sem þar kvarti hlutfalls-
lega heldur-færri. Þar kvarta
foreldrar helst yfir því að að-
stöðu vanti fyrir eldri ungl-
inga (á aldrinum 15-17 ára),
þvf að þessi aldurshópur sé
hættur að hafa áhuga fyrir að
sækja Fellahelli.
Heilsugœslu og brenni-
vínsbúð í Mjóddina
Breiðholtsbúar eru sam-
kvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar áhugasamir um að
aukavið þjónustukjarnann í
Mjóddinni. Af einstökum teg-
undum þjónustu nefndu
flestir að þeir vildu fá þangað
heilsugæslu og áfengisversl-
un. íþróttaaðstaða og líkams-
rækt var líka ofarlega á blaði
hjá mörgum og þó nokkrir
vildu fá lögreglustöð í Mjódd-
ina svo nokkuð sé nefnt.
Hér hefur ekki verið rúm til
að rekja nema fáein atriði úr
niðurstöðum könnunarinnar,
enda er hún býsna viðamikil.
Að þvf er fram kemur í loka-
orðum skýrslunnar hefur þó
enn ekki verið unnið að fullu
úr niðurstöðunum en hjá
Borgarskipulaginu vonast
menn til að geta unnið frekar
úr gögnunum með tíð og
tíma.