Alþýðublaðið - 10.11.1987, Síða 1

Alþýðublaðið - 10.11.1987, Síða 1
MMDUBLMD STOFNAÐ Þriðjudagur 10. nóvember 1987 1919 215. tbl. 68. árg. KJÖTSTRHI UPPSIGLINGU? — Framkvœmdanefnd búvörusamnings fyrirskipaði á föstudaginn birgðataln- ingu á gömlu kjöti fyrirvaralaust. Framkvæmdanefnd bú- vörusamninga hefur óskaö eftir því viö sláturleyfishafa, sem eiga birgðir af gömlu kjöti, að birgðatalning verði gerð þegar í stað og að niðurstöður liggi fyrir á míð- vikudag. Skeyti þessa efnis voru send viðkomandi slátur- leyfishöfum s.l. föstudag. Umfangsmikil birgðatalning var geró í byrjun október s.l. Afuröadeildir Landsbankans, Búnaóarbankans og Sam- vinnubankans höföu umsjón með þeirri talningu, aö ósk framkvæmdanefndar búvöru- samnings. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum þeirrar talningar voru birgóir í lok verðlagsárs mun minni en gert var ráð fyrir í áætlun búvörusamn- ings og ennfremur minni en afurðadeild Landsbankans taldi. Búvörudeild Sambandsins leiðrétti síðan sínar birgða- tölur gagnvart Landsbankan- um og féllst bankinn á þær skýringar sem Sambands- menn gáfu. Samkvæmt leið- réttingunni vantaði um 150 tonn, i staö 700 tonna sem í fyrstu var talið. Það sem vantar samkvæmt „leiðrétt- ingunni" er, samkvæmt heim- ildum Alþýðublaðsins, um 150 tonn og þykir það magn innan eðlilegrar rýrnunartölu. Svo virðist hins vegar sem Framkvæmdanefnd búvöru- samnings sætti sig ekki við þær skýringar sem gefnar hafa verið og vilji fá á hreint hve magnið er mikið. í sam- tali við Alþýðublaðið á dög- unum sagöi Magnús Frið- geirsson framkvæmdastjóri búvörudeildar SÍS að þessar svokölluðu fyrstu tölur hefðu einungis verið frumgögn og skýringar lægju Ijósar fyrir af hálfu Sambandsins. í sama streng tóku starfsmenn Landsbankans sem Alþýðu- blaðið ræddi viö. HVER A TJÖRNINA? Magnús L. Sveinsson segir að ef borgin eigi hana ekki, þurfi að semja við þá er eigi hana. Borgin á Tjörnina, segir borgarlögmaður, „þetta er eins og hver önnur skrýtla. “ Spurningunni um það hver eigi Tjörnina er enn ósvarað. Hörður Erlingsson talsmaður samtaka um verndun Tjarnar- innar segir málið athyglisvert og vonar að það skýrist á næstunni. Magnús L. Sveins- son forseti borgarstjórnar tel- ur borgina eiga landið, en ef svo reynist ekki þurfi að ræða við þá er reynast eiga það. Magnús Óskarsson borgarlögmaður segir borg- ipa eiga Tjörnina, að minnsta kosti hornið þar sem ráðhús- ið á að rísa. Ef fleiri eigendur reyndust vera, þá kæmi þeim ekkert við hvaö byggt væri á því horni. Eins og Alþýðublaðið greindi frá á laugardaginn, hafa komið upp efasemdir um það að Reykjavíkurborg eigi Tjörnina. Hefur meðal annars verið bent á að engar eignarheimildir séu til hjá Borgarfógetaembættinu varð- andi Tjörnina. Blaðið sneri sér til Harðar Erlingssonar eins af tals- mönnum samtaka þeirra er starfa undir kjörorðinu „Lifi Tjörnin", og spurði hann hvað honum sýndist í þessu máli. „Þetta er mjög spennandi", sagði Hörður. Vonaðist hann til að málin skýrðust eitthvað á næstunni. Það þyrfti að at- huga þetta allt vandlega. Samtökin ætla að gangast fyrir útifundi um miðjan mán- uðinn, og yrði dagskrá fund- arins kynnt fljótlega. Alþýðublaðið leitaði til Magnúsar/L Sveinssonar for- seta borgarstjórnar og innti hann eftir hans áliti. Taldi Magnús að Tjörnin væri í eigu borgarinnar, hann hefði að vísu ekki heyrt á þetta minnst, en fannst það þó sennilegast. „En ef það kem- ur á daginn að Tjörnin er í eigu einhvers annars aðila en Reykjavíkurborgar, þá þarf auðvitað að ræða við þann sem áTjörnina. Ég tel það þó mjög fjarlægt". Minnti Magnús á að jafnan ef eitt- hvað færi aflaga í Tjörninni, þá gerði almenningur jafnan þá kröfu að borgin lagfærði það. „Ef borgin á ekki Tjörn- ina, hver á hana þá?“ í samtali við Alþýðublaðið sagði Magnús Óskarsson borgarlögmaður að það vefð- ist ekkert fyrir sér að borgin ætti Tjörnina. „Þetta er eins og hver önn- ur skrýtla. Borgin á allt land- ið í kring, göturnar og allt saman“. Taldi Magnús að ef menn væru að velta fyrir sér ráðhúsbyggingunni, þá skipti þetta engu máli þar sem ekki færi á milli mála að borgin ætti þá lóð. Varðandi það hvort borgin mætti raska Tjörninni ef hugsanlega ættu fleiri land að henni, og væru á móti röskuninni, taldi Magnús að þeir gætu ekki skipt sér af neinu nema því sem væri þá beint fyrir framan þær lóðir. „Það nennirenginn lögfræð- ingur að skoða þetta í alvöru. Ekki ætla ég að gera það“. Formannaskipti í Alþýðubandalaginu. Ólafur Ragnar Grimsson og Svavar Gestsson á landsfundi á laugar- daginn. ATAKAFUNDUR EN ENGINN KLOFNINGUR Landsfundur Alþýðubanda- lagsins um helgina varð tið- indasamur. Óiafur Ragnar Grímsson var kjörinn for- maður flokksins með meiri atkvæðamun en áður hafði verið reiknað með að gæti orðið milli hinna tveggja fylk- inga. Hlutföllin urðu u.þ.b. 60 á móti 40 Ólafi i vil. Urslit uröu hins vegar meö nokkru ööru móti, þegar kom að kjöri I framkvæmdastjórn flokksins á sunnudagsmorg- uninn. Þá höfðu Sigríðar- menn betur. Var talið að þetta hefði meðal annars or- sakast af því hversu margir Ólafsmenn sváfu yfir sig eftir landsfundargleðina kvöldið áður. Ólafsmenn höfðu svo aftur heldur betur í kjöri til mið- stjórnar siðdegis á sunnu- dag. Erfitt er þó að segja fyrir um endanleg valdahlutföll í miðstjórn, því eftir er að kjósa miðstjórnarmenn í kjör- dæmum. Þrátt fyrir hörð átök á landsfundinum var ekkert klofningshljóð í landsfundar- mönnum og Ólafur Ragnar Grimsson leggur á það áherslu að hann sé formaöur Alþýðubandalagsins alls og að flokkurinn sé nú „mættur aftur til leiks“. Um landsfund- inn er fjallað í fréttaskýringu á baksiðu Alþýðublaðsins í dag. STÖÐUG FJÖLGUN FERÐAMANNA Sífellt fjölgar feröamönn- um til landsins. í október komu rúmlega tuttugu þús- und manns, en á sama tima i fyrra voru þeir tæplega saut- ján þúsund. Fyrstu tíu mán- uðina i fyrra komu hingað tæplega tvöhundruð þúsund manns, en á sama tima á þessu ári hefur þeim fjölgað um rúmlega fjörtíu þúsund. Flestir útlendinganna i októ- ber komu frá Bandaríkjunum, en næstflestir frá Svíþjóð. í upplýsingum frá útlend- ingaeftirlitinu má sjá að í október komu 20.247 manns til landsins, þar af voru 8.464 útlendingar. í október '86 komu 16.688 ferðamenn og voru 7.749 útlendingar i þeim hópi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.