Alþýðublaðið - 10.11.1987, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 10. nóvember 1987
SMÁFRÉTTIR
Stefán Júiiusson.
Jólafrí í New
York
Út er komin skáldsaga eftir
Stefán Júlíusson, Jólafri í
New York. Bókin skiptist í
fimm sögur sem tengjast
allar saman.
Fimm ungmenni eru viö
háskólanám í Bandaríkjunum
og um jólin ákveöa þau öll aö
fara í jólafrí til New York.
Þetta eru fjórir karlmenn og
ein stúlka. Þau eru öll góöir
vinir en af ólíkum uppruna.
Kennari þeirra fær þeim þaö
verkefni aö skrifa smásögu
um dvöl þeirra í stórborginni.
Ævintýri, óvænt atvik, átök
og tilviljanir veröa á vegi
þeirra og hvert þeirra segir
söguna á sinn hátt.
Bókin er 197 bls. unnin í
prentsmiðju Hafnarfjaröar og
þaö er Bókaútgáfan Björk
sem er útgefandi.
Ómar Ragnarsson.
Ómar alstaðar
Ómar Ragnarsson er vel
þekktur hér á landi, bæði
sem fréttamaður, skemmti-
kraftur ofl. hann er oft meö
margt í gangi i einu og fer
víða um land. í síðasta tölu-
blaði BB, sem kemur út á ísa-
firði er frásögn er sýnir að
Ómar hefur svo sannarlega í
miklu að snúast.
Á miðvikudag kom Ómar á
frúnni sinni, TF—FRÚ, til ísa-
fjarðar og var kominn til
Reykjavikur aftur til að mæta
í kvöldfréttirnar. Á fimmtu-
daginn fór Ómar aftur til ísa-
fjarðar til að stjórna spurn-
ingaþætti. Þeirri uþptöku
lauk rétt fyrir miðnætti og þá
átti hann eftir að koma sér til
Keflavíkurflugvallar. Hann átti
að skemmta í Kaupmanna-
höfn á föstudagskvöldið og
vélin til Koben átti að fara frá
Keflavik kl. 7 um morguninn.
Vegna myrkurs mátti hann
ekki fljúga frá ísafirði á
frúnni og þvi lagði hann af
stað akandi. Samkvæmt
heimildum BB var hann tvo
tima til Hólmavíkur en þar
hitti hann rallökumann sem
kom honum til Keflavíkur.
Tveir ísfirðingar fóru með
Ómari til Hólmavíkur og þeim
varð svo mikið um keyrsluna
að á leiðinni heim óku þeir
útaf á Steingrímsfjarðarheiði
og sátu þar fastir í sjö
klukkutíma. Ómar náði hins
vegar vélinni til Kauþmanna-
hafnar, var kominn til íslands
aftur á laugardaginn, og segir
BB að hann hafi skemmt
Akureyringum þetta kvöld.
Launamál
kvenna í
Sóknarsalnum
Á vegum Framkvæmdar-
nefndar um launamál kvenna
verður haldinn opin fundur í
Sóknarsalnum Skipholti 50A,
hinn 11. nóvember n. k. mið-
vikudag. Fundurinn hefst kl.
20.15 og mun Ijúka um kl.
22.20.
Aðalefni fundarins verður:
„Nýjar leiðir í jafnréttisbar-
áttu kvenna á vinnumarkaði."
Fjallað verður um sérstakar
timabundnar aðgerðir til að
bæta stöðu kvenna á vinnu-
markaði, aðgerðir sem draga
eiga úr þvi misrétti sem nú
ríkir á milli kvenna og karla.
Ræðumenn og umræðu-
stjórnar verða: Vilborg Harð-
ardóttir, útgáfustjóri, Elsa S.
Þorkelsdóttir, framkvæmda-
stjóri Jafnréttisráðs, Guðrún
Ágústsdóttir, fulltrúi í Fram-
kvæmdanefnd um launamál
kvenna og Lára V. Júlíusdótt-
ir, aðstoðarmaður félags-
málaráðherra.
Handbækur er
henta
bókasöfnum
Samstarfsnefnd um upp-
lýsingamál hefur gefið út
tvær handbækur sem henta
bókasöfnum. Önnur bókin,
Flokkunarkerfi, er þýdd og
staðfærð fyrir íslensk bóka-
söfn eftir 11. útgáfu Dewey
decimal classification. Ritið
er nær 600 bls.
Hin bókin er skrá um is-
lensk bókasöfn. í henni er
greint frá heiti og aðsetri 167
rannsóknar- og sérfræðibóka-
safna, almenningssafna og
skólasafna. Skýrt er frá efnis-
sviði hvers safns, helstu
safngögnum, þjónustu o.fl.
Bæði ritin eru til sölu hjá
Þjónustumiðstöð bókasafna
og Bóksölustúdenta.
Lokaö veröur þriöjudaginn 10. nóvember kl.
13.00 til 15.00 vegna jarðarfarar Óskars Sig-
urgeirssonar.
Flugmálastjórn
Auglýsing
um norræna tungumálsamninginn
Norræni tungumálasamningurinn, sem er samning-
urNorðurlandannaum rétt norrænnaríkisborgaratil
að nota eigin tungu í öðru norrænu landi, tók gildi
hér á landi 25. júlí sl.
Samningurinn er gerður til að auðvelda Norður-
landabúum samskipti sín á milli og eru samningsrík-
in skuldbundin til að stuðla að því að ríkisborgari í
samningsríki geti eftir þörfum notað móðurmál sitt
í samskiptum við yfirvöld og aðrar opinberar stofn-
anir í öðru samningsríki.
Þau mál sem samningurinn tekur til eru danska,
finnska, íslenska, norska og sænska. Samningurinn
tekurbæði til skriflegraog munnlegrasamskiptaþó
ekki í síma.
Samkvæmt samningum ber opinberum aðilum að
leitast við að gera norrænum ríkisborgurum kleift að
nota móðurmál sitt í samskiptum sínum við opin-
bera aðila, sé þess nokkur kostur. Tekur þetta til
samskipta við dómstóla, félagsmálastofnanir, heil-
brigðisstofnanir, lögreglu, skóla og skattayfirvöld,
svo dæmi séu nefnd.
Dóms- og kirkjumálaráöuneytið, 6. nóvember 1987.
KRATAKOMPAN
Kratahelgi á Króknum
Árshátíð og aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðu-
flokksins á Norðurlandi-vestra.
Föstudagur 13. nóvember kl. 18.30.
Opnun félagsmiðstöðvar Alþýðuflokksins á Sauðár-
króki.
Kl. 19.30. Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna á Norður-
landi-vestra í Hótel Mælifelli Sauðárkróki.
Laugardagur 14. nóvember kl. 10.00.
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Safna-
húsinu á Sauðárkróki.
Kl. 17.00. Almennur stjórnmálafundur I Safnahús-
inu., Jón Baldvin Hannibalsson.
Alþýðuflokkurinn á Norðurlandi-vestra.
Kaffihús Reykjavíkurkrata
á þriðjudögum og fimmtudögum er kaffi á könnunni
og opið hús í félagsmiðstöð Jafnaðarmanna á
Hverfisgötu 8—10. Við hvetjum sem flesta til að líta
við til að ræða pólitíkina.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Afmælishátíð
kvenfélags Alþýðuflokksins i Hafnarfirði verður
haldin i Skútunni 21. nóvember n.k. kl. 20.00.
Dagskrá:
Einsöngur:
Hátíðarræða:
Gamanvísur:
Dans:
Húsið opnað kl. 19.00 með fordrykk
Hátíðin sett
Matur
Nokkrar góðkunnar Alþýðuflokkskonur
flytja sögu félagsins
Kristín Viggósdóttir, undirleikari
Sigurður Jónsson
Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráð-
herra.
Sérstaklega ortar um fimmtugar krata-
konur eftir Hörð Zophaníasson sungnar
af Guðmundi Einarssyni
Ávörp gesta
Hljómsveitin Kaskó, leikur til kl. 02.00.
Tryggið ykkur miða þeir eru til sölu hjá eftirtöldum
aðilum: Skrifstofu Alþýðuflokksins, sími 29244. Vala
sími 51920, Bára sími 651515, Maggý sími 651529,
Jonný sími 50967, María Ásgeirsdóttir, 51527. Miða-
verð kr. 2.300.00.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
Flokksstjórn
Alþýðuflokksins
Fundinum sem átti að vera 10. nóv. er frestað af
óviðráðanlegum ástæðum.
Næsti fundur verður boðaður í Alþýðublaðinu og
með bréfi.
Skrifstofa Alþýðuflokksins
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýðuflokksins
í Reykjavík hefur fastan viðtalstíma alla virka daga
frá kl. 10—11 árdegis á skrifstofu f lokksins á Hverf is-
götu 8—10. Síminn er 29244.
FramkvæmcJastjóri Alþýöuflokksins.
Munið að gera
skil í —
happdrættinu
Dregið verður 10. nóvember
Framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins