Alþýðublaðið - 10.11.1987, Side 3
Þriðjudagur 10. nóvember 1987
3
FRÉTTIR
MIKIL
Hreinn hagnaður af sildar-
söltun var um 2% af tekjum
á siðasta ári, miðað við árs-
reikninga og skattauppgjör.
Nokkur óvissa virðist hins
vegar ríkja um afkomu síldar-
söltunarinnar i ár, vegna
ótryggrar stöðu dollarans og
kostnaðarhækkana innan-
lands.
j Síldarsöltun:
OVISSA UM AFKOMUNA
— Hagnaður var 2% í fyrra miðað við skattuppgjör.
Samkvæmt upplýsingum
sem Alþýðublaðið aflaði sér
hjá Þjóðhagsstofnun gaf
reksturinn af sér um 11%
vergan hagnað af tekjum alls,
til að mæta vöxtum og fasta-
kostnaði. Hreinn hagnaðuraf
tekjum var sem áður sagði
2%.
Úrtak Þjóðhagsstofnunar
náði til 17 söltunarstöðva,
sem söltuðu um helming
heildarmagns á síðasta ári.
Samkvæmt sölusamning-
um er svipað verð og í fyrra
fyrir þá saltsíld sem fer til
Sviþjóðar og Finnlands. Síld-
arútvegsnefnd náði hins
vegar fram 11% hækkun i
dollurum í samningum um
sölu saltsíldar til Sovétríkj-
anna. Það veltur hins vegar á
þróun dollars á næstunni
hvort sú hækkun skilar sér
jafn vel og vonast hefur verið
til.
Þeir aðilar sem Alþýðu-
blaöið ræddi við sögðu því
erfitt að fullyrða nokkuð um
afkomu i greininni fyrr en um
áramót þegar gerð verða
gjaldeyrisskil. Miðað við
kostnaðarhækkanir innan-
lands og svartsýnustu horfur
um stöðu dollarans, væri
hins vegar auðvelt að leiða
getum að því, að um tap væri
að ræða.
Frá síðustu vertíð hefur
hráefnisverð hækkað um
16.7% og laun hækkað um
20—30%. Þessir tveir liðir
hafa síðustu ár verið um 50%
af heildarkostnaði.
Deilt um Mosfell í Grímsnesi:
PRESTAFÉLAGIÐ
SNÝST TIL UARNAR
Vöntun íbúðarhúss ástœðan fyrir því að presturinn
býr ekki á jörðinni. Óvandaður fréttaflutningur,
segja prestarnir.
Prestafélag íslands furðar
sig á „óvönduðum" vinnu-
brögðum fréttamanna um
mál prestsetursins á Mosfelli
í Grímsnesi. Félagið telur
fréttaflutning hafa verið vill-
andi og byggðan á ófull-
nægjandi upplýsingum.
Prestafélagið boðaði því til
blaðamannafundar í gær.
Eins og fram hefur komið í
fréttum vill Skógrækt rlkisins
fá afnot af 600 ha landsins
Mosfell í Grímsnesi. Presta-
félagið telur að allur frétta-
flutningur um þetta mál hafi
verið villandi og byggður á
ófullnægjandi upplýsingum. í
kvöldfréttum 6. nóvember sl.
telur prestafélagið að sóknar-
prestinum í Grímsnesi, sr.
Ftúnari Þór Egilssyni hafi
verið stillt upp sem kröfu-
gérðarmanni sem ætlar jafn-
vel að hagnast persónulega á
þessu máli. í fréttunum kom
fram að presturinn sæti ekki
jörðina og ábúðarréttur hans
þvi dreginn i efa. Prestafélag-
ið áréttar það og segir að sr.
Rúnar eigi samkv. lögum að
sitja þar sem prestur í Mos-
fellsprestakalli. Hann hefur
hinsvegar ekki getað það
vegna þess að ríkið hefur
ekki byggt þar íbúðarhús
eins og því ber. Presturinn
hefur því verið á hrakhólum
Frá blaðamannafundi sem Prestafélagið hélt i gær vegna fréttaflutnings af málefnum prestsetursins á Mos-
felli í Grimsnesi: Séra Vigfús Árnason Siglufirði, Fióki Kristinsson Stóranúpsprestakalli, Sigurður Sigurðs-
son Selfossi, Valgeir Ástráðsson Seljasókn og Geir Waage Reykholti.
og búið í ófullnægjandi og
heilsuspillandi húsnæði.
Prestafélagið vill einnig láta
það koma fram að fundur
sem haldinn var nú nýlega
snerist um húsnæðismál sr.
Rúnars en ekki skógræktar-
málin eins og kom fram í
kvöldfréttum.
FUJ í Reykjavík 60 ára
FJÓRIR HEIÐURS-
FÉLAGAR ÚTNEFNDIR
Félag ungra jafnaðar-
manna i Reykjavik varð 60
ára á sunnudag. í tilefni
dagsins var sérstök afmælis-
dagskrá á Hótel Holiday-lnn.
Þar voru fjórir heiöursfélagar
útnefndir, Björgvin Guö-
mundsson, Guðný Árnadótt-
ir, Sigurður E. Guðmundsson
og Vilhelm Ingimundarson.
Félag ungra jafnaðar-
manna er elsta starfandi
stjórnmálahreyfing ungs
fólks hér á landi. Á afmælis-
kaffinu í Holiday-lnn flutti
Sigurður E. Guðmundsson
ávarp og rifjaði upp brot úr
sögu þessa merka félags.
Valgerður Halldórsdóttir,
félagi ( FUJ i dag, ræddi hins
vegar starf og stefnu félags-
ins í næstu framtíð. Valgerð-
ur sagði m.a. að framundan
væri mikið starf við uppbygg-
ingu félagsins. Erlingur Krist-
ensson formaður Sambands
ungra jafnaðarmanna flutti
ennfremur ávarp og sagði að
framkvæmdastjórn SUJ
myndi leggja FUJ lið í því
uppbyggingastarfi sem fram-
undan væri.
Veislustjóri var Bjarni P.
Magnússon borgarfulltrúi.
Jóhanna Linnet söng og I lok
afmælisdagskrárinnar stjórn-
aði Guðlaugur Tryggvi Karls-
son fjöldasöng.
Örn Karlsson útnefnir Guðnýju Árnadóttur heiðursfélags FUJ i Reykja-
vik á 60 ára afmæli félagsins. Ljósmynd/G.T.K.
SMÁFRÉTTIR
ATHUGASEMD
í laugardagsblaðinu
gleymdist að geta þess að
grein Árna Þórarinssonar um
fjölmiðla var nokkuð stytt.
Vegna mikils plássleysis var
gripið til þess að slðustu
stundu að stytta greinina
nokkuð, en hins vegar fórst
fyrir að láta þess getið. Við
biðjum hlutaðeigandi velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Eölur leika
lausum hala
Flugstöð Leifs Eirikssonar
er nú orðin að laufskreyttum
dýragarði. í Vfkurblaðinu 5.
nóvember sl. segir frá því að
nýverið voru fluttar inn tvær
stórar trjáplöntur til staðsetn
ingar á efri hæð flugstöðvar-
innar. Plönturnar. sem kost-
uðu um 500 þúsund hvor,
þykja ekki vera mjög góð
kaup. í fyrsta lagi fella þær
lauf sín i gríö og erg og í
öðru lagi fylgdu þeim
óskemmtilegir gestir. Það eru
litlar, Ijósgrænar eðlur. Ein
hefur náðst en hinar leika
iausum hala einhversstaðar i
byggingunni.. Trjáplönturnar
eru fluttar inn frá Florida og
er talið að eðlurnar hafi legið
í dvala á leiðinni yfir hafið en
vaknað til Iffsins við komuna
í Leifsstöð.
Annað trjánna er staðsett
við hliðina á afgreiðslu
Landsbankans i norðurenda
hússins. Að sögn starfs-
manna þar falla laufin svo
skarpt af trénu að á timabili
voru þeir íarnir að telja laufin
í stað soó anna.
Stanley Pálsson, sem hefur
með byggingareftirlit i stöð-
inni að gera, sagði eölurnar
alls ekki Ijót dýr „eðlur þykja
meira að segja vinsæl húsdýr
í Florida. Þær gera sitt gagn
með því að éta skordýr"
sagði Stanley ennfremur.
Starfsmönnum Leifsstöðvar
þykir hinsvegar nóg komið.
„Þetta er sannkallaö bruðl á
bruðl ofan I þessu húsi —
allt svo yfirþyrmandi" sagði
einn og annar sagði húsið
vera orðiö einn allsherjar
dýra- og blómagarð. „Það
þarf þó ekki að hafa áhyggjur
af því að vökva, vatniö kemur
sjálfkrafa í stórrigningum í
gegnum þakið.“ Fyrir utan
þessa óskemmtilegu gesti
hefur Víkurblaðið aflað sér
þeirra upplýsinga að allur
innflutningur á pottaplöntum
sé bannaður frá Bandaríkjun-
um. Bannið ætti þá að ná yfir
trjáplöntur Ifka og hafði Vik-
urblaðið ekki fengið það
staðfest hvort undanþága