Alþýðublaðið - 10.11.1987, Page 7

Alþýðublaðið - 10.11.1987, Page 7
Þriójudagur 10. nóvember 1987 7 UTLOND Umsjón: Ingibjörg Árnadóttir HÚN FLflUG í VESTURÁTT Beryl Markham var mörgum kynslóðum á undan sínum tíma, bókin sem hún skrifaði um búgarð sinn í Afríku og sólóflugið yfir Atlantshafið, var einnig á undan sínum tíma, bókin var fyrst gefin út árið 1942. Beryl Markham i blóma lífsins. Það væri synd að segja að Beryl Markham væri ein af þeim sem eldast meö yndis- þokka! Þessi kona, sem afrekaði svo margt í lífinu, þótti ákaf- lega fögur og aðlaðandi. Hún var sterk og ákveðin, lagði að velli Ijón og menn, flaug ein yfir Atlantshafið, skrifaði bók sem Hemingway öfundaðist yfir og tamdi bestu veð- hlaupahesta í Afríku. Það má því kallast kaldhæðni örlag- anna að þessi kona létist af völdum beinbrots 84 ára gömul, eftir að hafa dottið um éinn af hundum sínum. „Hér sit ég eins og hver annar gamall bavían," hnuss- aði ( henni þegar blaðamaður Det Fri Aktuelt hitti hana í Nairobi, ári áður en hún dó. Beryl vildi ógjarnan tala við blaðamenn, en hún vildi gjarnan tala um hesta og hafa einhvern til að drekka vodka með. Hún var einmana, bitur gömul koma, og ekki laust við að hún væri dulítið „alkoholiseruð". Þetta var sumarið 1985 nokkrum árum eftir að hún var uppgötvuð á ný. Banda- rikjamaður, var að vinna að bók byggðri á bréfum til Ern- est Hemingway og bréfum sem hann hafði skrifað öðr- um. Þegar hann var að rann- saka bréfasafnið, fann hann bréf sem Hemingway hafði skrifað öðrum, þar sem hann talar um bók Beryl Markham „West with the Night“. „Hún skrifar okkur, sem þykjumst vera rithöfundar, sundur og saman... hún skrif- ar svo vel, að ég skammast mín... mér finnst ég vera hreinn fúskari i samanburði við hana...“ Bandaríkjamaðurinn, sem hét George P. Gutenkunst fór á stundinni á næsta bóka- safn I San Francico og fékk bókina að láni. Þá hafði bók- in ekki verið í útláni í 15 ár, og þannig atvikaðist það, að Beryl Markham var uppgötv- uð á ný. Bókin hennar frá 1942 var endurprentuð og til- boðin fóru að streyma inn. Ein yfir Atlantshafið „Þeir vilja fá mig til Banda- ríkjanna, þeir vilja fá mig í hinum og þessum löndum. Áður en ég leggst í ferðalög verð ég að koma skipulagi á sjálfa mig“, sagði Beryl Mark- ham við viðbælanda sinn, sem undir því yfirskini að vera hestaræktunarmaður hafði fengið að heimsækja hana. Beryl Markham er tág- grönn, föl húð hennar er þak- in lifrarblettum og líkist pergamentpappír. Hárið er lit- laust og slitið. Enn er þó stíll og fegurð í andliti hennar, og bláu augun skjóta gneistum, þegar hún ræðir u.m bestu hestana og bestu mennina í Iffi sínu. Maður fer að trúa því að Ijósmyndirnar frá blómaskeiðinu, séu af henni. Ljósmyndir af henni eru upp um allaveggi í ömurlegri stofunni. Ljósmyndir, sem teknar voru þegar hún kom úr frægðarfluginu til Bandaríkj- anna, með plástur á enninu sem rakst i framrúðuna, þeg- ar flugvélin skall niður. Svo er líka Ijósmynd tekin af at- vinnuljósmyndara og þar kemur fegurð hennar vel í Ijós... hún er eins og kvenleg- • ur Leslie Howard! Beryl Markham flaug fyrst allra sólóflug yfir Atlantshafið i í vesturátt — „Öfugu leiðiná'. Hún hreppti hið versta veð- ur — þoku og mótvind og hafði engin senditæki. Þrátt fyrir það leit hún svo vel út eftir lendinguna, að henni var líkt við Gretu Garbo, há, herðabreið, grönn, drengjaleg en „elegant“. Þegar bókin „West with the Night“ kom út árið 1942, hlaut hún mikið lof gagnrýn- enda. Bókin fjallaði um æsku hennar í Kenya og flugferðina yfir Atlantshafið. Beryl Mark- ham þáði skipulagða sigurför um þver og endilöng Banda- ríkin, en í byrjun þeirrar sig- urfarar vörpuðu japanir sprengju á Pearl Harbour, og bandaríkjamenn fengu þá öðrum hnöppum að hneppa. Beryl gleymdist. Það varð hörð lending. Ber- yl hélt aftur til Afríku og vann við tamningu veðhlaupa- hesta. í byrjun gekk þetta vel, en svo fór að síga á ógæfu- hliðina á sjöunda áratugnum. Hestarnir veiktust og hún varð gömul. Síðustu árin bjó hún ( húsi, sem var staðsett á svæöi veðhlaupabrautarinnar í Nair- obi, bitur og óánægð gömul kona. „Þú skalt ekki láta þér detta í hug aö trúa því sem fólk segir, að maður sætti sig viö ellina ef maður hefur lifað spennandi lífi“, hvæsir Beryl og kveikir i enn einni „Sport- man“ sígarettunni. „Því við- burðaríkarasem líf manns hef- ur verið, því verra er að verða gamall." Hún hefur búið ein í mörg ár en hefur gigtveika svarta húshjálp. Berfætt Lif Beryl Markham hefur alltaf veriö viöburðaríkt. Þeg- ar hún var barn fór hún á villi- svínaveióar, vopnuð spjóti og berfætt. Þegar hún var ung stúlka hljóp hún um, (ber- fætt) i höll hertogans af Gloucester í London. Þegar hún kynntist honum var hún flugmaður og þau hittust á „Safari" í Kenya árið 1928, hertoginn varð yfir sig ást- fanginn af henni. Hann bauð henni til London, þar bjó hún á Royal Air Force klúbbnum á Piccadilly og hertoginn sendi heilu hestvagnana af hvítum rósum upp á herberg- ið hennar. Beryl segist þakka föður sinum það, að hún hafði þor til að gera ýmislegt, sem „ungar dömur“ gerðu ekki á þessum tíma. Karen Blixen Þegar Beryl var kornung stúlka, fór hún f gönguferðir með hunda Karen Blixen. Hún vill annars sem minnst tala um barónessuna, var auðsýnilega ekkert alltof hrif- in af henni. Hún var aftur á móti reiöubúin að tala um Denys (Finch Hatton) sem hún var hrifin af. „Hann bað mig oft að nudda á sér bakið. Þá gekk Karen burt, hún var afbrýðisöm en ég var svo ung að ég skyldi það ekki. Ég var ekki keppinautur hennar þá. En það varð hún. Það var Beryl en ekki Karen Blixen sem Denys hafði boðið i flug- ferðina, sem endaði með hrapi flugvélarinnar og dauða Denys. Beryl fór ekki með, vegna þess að vin hennar hafði dreymt, að illa mundi fara. Beryl var að lunderni meira afríkönsk en ensk, og í bók hennar kemur greinilega fram, að viðhorf hennar til sambands hvítra og svartra var minnst tveimur kynslóð- um á undan sínum tíma. Hún giftist og skildi þrisv- ar sinnum, hafði engan áhuga á börnum, ekki heldur sínum eigin syni. Gervase sonur hennar ólst upp hjá ættingjum, en fórst í bilslysi árið 1971. Talið er að hertog- inn af Gloucester hafi veriö faðir hans. Árið 1929, hótaði Markham þáverandi eigin- maður Beryl, að draga nafn hertogans inn í skilnað sinn frá Beryl, en málið var þagg- að niður. Beryl voru þó send 500 pund árlega, frá Bucking- ham Palace. Á sjöunda ára- tugnum, áður en Beryl og bók hennar voru uppgötvaðar á ný, má segja að þessi 500 pund, hafi verið einu tekjur hennar. Nýlega kom út ævi- saga Beryl Markham i Eng- landi, skrifuð af Mary Lowell. - (Det fri Aktuelt.) Beryl Markham var fyrst allra til að fIjúga yfir Atlan tishafið í vesíurátt. Þetta var árið 1936 og henni tókst þrátt fyrir þoku og mótvind að ienda á bandariskri strönd — þar sem lit'u munaöi að illa færi. En Beryl slapp með skrámur.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.