Alþýðublaðið - 28.11.1987, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 28.11.1987, Qupperneq 6
6 Laugardagur 28. nóvember 1987 „Steingrímur er ekki mikill formaður, en samanburðurinn er hon- um hagstœður. Hinir eru litlir formenn í orðs- ins fyllstu merkingu. “ vegar stjórnarsáttmálann og hins vegar framkvæmdina, hvaö er þá ekki öfugt i fram- kvæmdinni miðað vió lof- orðin? — Hefur launamunur minnkað? Nei, hann hefur stórlega vaxið. — Hefur eitthvað verið gert til að jafna aðstöðumun úti á landsbyggðinni? Nei. Frekar hið gagnstæða. —Átti ekki að lækka vexti? Ríkisstjórnin hét því að lækka vexti og hamla gegn verðbólgu. Sannleikurinn er sá, að ríkið gengur á undan með að hækka vexti, sem hefur svo áhrif á hækkandi verðbólgu. Ég hygg, að á þessu ári hafi vextir tvöfaldast. Þessu veldur fyrst og fremst grái fjármagnsmarkaðurinn, sem hefur engar skyldur, hvorki bindiskyldur né aðrar, og sem ekki virðist mega hrófla við. Þá er það ríkið, sem sífellt hækkar vexti á skuldabréf- um, sem kórónaði svo vaxta- kapphlaupið i þessari viku með því að hækka enn vexti á ríkisvíxlum. Þeir eru núna í 41.3% miðað við ársávöxtun. Það er sagt, að bankar ráði vöxtum, en i reynd er það ríkisstjórnin. Lánastofnanir verða að binda 13% i Seðlabanka án vaxta en verðtryggt. Síðan gerist það i sumar, að bönk- um er gert skylt að eiga 10% af heildarinnstæðum i Seðla- banka. Um það bil þriðjungur af þessari upphæð er vaxta- laus. Vanti upp á tilskyldar upp- hæðir hjá Seðlabanka, falla refsivextir á það sem upp á vantar. Segjum að banka sé gert að eiga 600 milljónir - en síðan gerist það, að 200 mill- jónir vanti upp á vegna ríkis- víxlanna. Þá verður bankinn að borga í „refsivexti“ 4.1% á mánuði af þessum 200 mill- jónum. Þar af leiðir, að eftir þvl sem ríkið hækkar vextina, neyðast bankarnir til að hækka innlánsvexti slna til þess að foröast refsívexti. Afleiðingarnar eru þær, að fyrirtæki og einstaklingar horfa fram á gjaldþrot i stór- um stíl - ef þessari vaxtavit- leysu er ekki snúið við. Vandamálið er í raun stefna ríkistjórnarinnar i þessum málum. Menn tala um þetta víða í þjóðfélaginu. Þeir sem vit hafa á þessu eru alveg gátt- aðir. Ég hugsa að þetta sé veruleg skýring á þvi að úti á landsbyggðinni er Alþýðu- flokkurinn að dala. Úti á landsbyggðinni er þessi ríkis- stjórn kölluð „ríkisstjórn Alþýðuflokksins.“ Þeir halda um áhrifamestu ráðuneytin, fjármál og bankamál. Aðrir í stjórninni eru ekki nógu virkir. Og Steingrimur og Þorsteinn eru á öndverð- um meiði í veigamiklum mál- um eins og í samningamál- unum.“ Steingrímur er ekki mikill formaður „Steingrímur Hermanns- son hefur ýmsa kosti sem stjórnmálamaður og hann sló sér upp á stórveldafundinum hér í fyrra. En hann nýtur líka hagstæðs samanburðar. Hinir eru litlir formenn i orðs- ins fyllstu merkingu. Stein- grímur er ekki mikill for- maður en samanburðurinn er honum hagstæður. Annars er hver höndin er upp á móti annarri í þessari stjórnarsamvinnu. Við skul- um gera okkur grein fyrir því. Það byrjaði með kosningu forseta Sameinaðs þings, og eftir það hefur hver uppá- koman verið annarri verri: Eggert Haukdal neitaði að styðja Árna Gunnarsson sem formann landbúnaðarnefndar, Guðmundur G. vildi takmarka vald fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir held- ur þannig á húsnæðismálum að það eitt gæti komið í veg fyrir beinan stuðning við frumvarpið. Eftir því sem ríkisstjórnin situr lengur, verða fleiri og fleiri órólegir sem styðja hana. Og þar er enginn ríkis- stjórnarflokkur undanskilinn. Ef þessari vaxtastefnu er fylgt og þrengt að öðrum t.d. trillukörlum - og stefnt í eignaupptöku hjá þeim eins og I landbúnaði - þá held ég að þaö hljóti að hitna undir mönnum. Ráóherrar sitja „Ef öll verslun er svona er ekki undarlegt að rísi hér syðra miklar versl- unarhallir. En hvaðan hafa þeir það fé? Ætli þeir prenti seðlana? Þeir sjúga landsbyggðina. Það er skýringin. “ sjálfsagt eins lengi og sætt er, en spurning er hvort þing- menn sætta sig við framhald- ið.“ Ekki viss um að verði haldin jól... „Lltum á eitt dæmi um hina frjálsu verslun: Það er mikið af kartöflum í þessu landi. Kartöflubændur segja mér að þeir fái 13-15 krónur fyrir kílóið. En á hvaö heldurðu að kílóið sé selt út úr verslun? Það er upp í 49.60 kr. „Þvegnar og hreinar kart- öflur." Lægsta verð norður á Akureyri í búðum var 36 krón- ur. Ef öll verslun er svona er ekki undarlegt að rísi hér syðra miklar verslunarhallir. En hvaðan hafa þeir það fé? Ætli þeir prenti seðlana? Þeir sjúga landsbyggðina. Það er skýringin. Það þarf að halda pening- um eftir úti á landsbyggðinni. Ég er ekki hrifinn af mikilli yfirbyggingu, en ef ekki er hægt að jafna aðstöðumun- inn öðruvisi en með þriðja stjórnsýslustiginu til að auka sjálfstæði sveitarfélaganna, þá verður að gera það hvað sem það kostar. Við í mínum Samtökum höfum verið með vissar efasemdir um gildi fylkjaskipulags, sem Þjóðar- ílokkurinn hélt á lofti við síð- ustu kosningar. Við höfum viljað fara aðra leið meó sam- komulagi. Það mun hins vegar taka mörg ár að ná samkomulagi um fylkjaskip- an, ef það næst þá nokkurn tímann - og það er óvíst hve lengi verða haldin jól i strjál- býli, ef þarf að bíða eftir því samkomulagi.." Jón Baldvin mesti frjálshyggjupostulinn „Ég hef skömm á frjáls- hyggjunni. Álagningin hefur hækkað með frelsinu og með því hafa kjörin rýrnað. Það vantaði ekki að samkeppnin ætti að leysa málin, en annað hefur komið á daginn. Frjálshyggjan leysirekki vanda landsbyggðarinnar. Þar verða launin að vera sam- bærileg og í Reykjavík. Fólk- ið vinnur langan vinnudag úti á landsbyggðinni og hefur þannig kannski há laun,. en ungt fólk vill ekki búa við skilyrði sem eru lakari en á Reykjavikursvæðinu. í Reykjavík eru menn búnir að vinna klukkan fjögur á föstu- dögum og hafa yfirleitt hærri heildarlaun en þeir sem vinna heilu sólarhringana á landsbyggðinni. Frelsi vaxtastefnunnar leysir ekkert. Ég get ekki séð annað en að það verði ennþá erfiöara en áður að semja um kaup og kjör núna. Og við hverju er að búast. Fjármála- ráðherra landsins, Jón Baldvin er mesti frjálshyggju- postuli þingsins. Verslunar- ráðið fór til hans en ekki til sjálfstæðismanna til að fá stuðning við innflutningi á grænmeti. Hvers vegna fóru þeirekki til sjálfstæðis- manna? Ég víl biðja þig að svara því.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.