Alþýðublaðið - 28.11.1987, Page 12
12
Laugardagur 28. nóvember 1987
FJORÐUNGUR ÞJOÐARINNAR
I FLOTTAMANNARUÐUM
I fyrra mánuði voru stjórnendur margra fram-
haldsskólanna í kynnisferð um Israel. Slíkar heim-
sóknir eru oft gagnlegar og ísraelska skólakerfið er
athyglisvert fyrir ýmsar sakir. Þar háttar t.d. þann-
ig að meira en 10 sinnum fleiri gyðingar en Palest-
ínumenn njóta háskó/agöngu (og þetta eru hlut-
fallstölur); að palestínskir grunnskólanemendur eru
skólaðir í gyðingamenningu og hebresku en fá
ranghugmyndir eða engar um sína eigin arabísku
menningu; að á hernumdu svœðunum, þar sem
Palestínumenn eru hvað flestir, ritskoðar ísraelska
herstjórnin allt námsefni vandlega og rekur kenn-
ara og nemendur sem sýna þjóðernislega tilburði
eða vilja ekki sverja af sér alla hollustu við PLO.
En um þetta fengu is-
lensku skólamennirnir næsta
lítið að vita enda skipulagði
menntamálaráðuneytið í Is-
rael förina. Þessar upplýsing-
ar má hins vegar fá t.d. úr
fjölmörgum skýrslum frá
Sameinuðu þjóðunum eða
t.a.m. úr ágætu hefti sem
nefnist „A Profile of the Pal-
estinian People“ eftir Edward
W. Said og fleiri góða fræði-
menn.
ísrael er nefnilega ekkert
venjulegt ríki. Það er her-
námsveldi, ríki sem grund-
vallast á blóði og sverði, ríki
sem hefur hrakið frumbyggj-
ana burt af landi sínu eða
heldur þeim undir sverðinu.
En þessi hlið málanna er rík-
inu ekki annt um að haldið
sé á lofti. Þess vegna er gott
að fá fólk í heimsókn og mat-
reiða fyrir það aðra sögu.
... ekki flótta-
menn að
venjulegum
skilningi því
þeir voru
hraktir að
heiman og
híða lausnar
og heimferðar.
Hver á Palestínu?
Jahve gaf okkur landið,
segja ísraelsmenn, og hér
stóð riki okkar og menning
um aldir. Staðreynd er að Is-
raelsmenn (Hebrear) komu til
Palestínu upp úr 1500 f.Kr. og
að Rómverjar brutu niður riki
þeirra á 2. öld e.Kr. Palestínu-
arabar hafa hins vegar búið á
þessu landsvæði síðustu ald-
irnar og verið í miklum meiri-
hluta langt fram á þessa öld.
Fjöldi gyðinga í Palestínu var
þanmg tyrr á öldinni sam-
kvæmt manntali Breta sem
fóru með „umboðsstjórn" yfir
landinu.
svæðunum á vesturbakka
Jórdanar og á Gaza-svæðinu.
Sjálfstæö stjórnmálastarf-
semi frá þeirra hendi er víð-
1931 1936 1946
Gyðingar 174.606 384.078 608.225
Heildaríbúafjöldi 1.033.314 1.366.692 1.912.112
Tilkall gyðingatil Palestínu
var auðvitað byggt á heldur
haldlitlum rökum: 2000 ára
gömlum veruleika. Indíánar
ættu heimtingu á Norður-Am-
eríku meö meiri rétti. Þetta
gerðu forystumenn síonista
sér Ijóst og þvi lögðu þeir allt
kapp á að breyta veruleika
dagsins sér í hag. Þeir tóku
að skipuleggja fólksflutninga
til Palestínu um aldamótin
síðustu og ryðja aröbum úr
vegi, ýmist með fulltingi
bresku umboðsstjórnarinnar
eða í andstöðu við hana. Síð-
an stofnuðu þeir Ísraelsríki
og með fjórum landvinninga-
stríðum stökktu þeirenn
fleiri Palestínumönnum á
flótta eða gerðu þá að óæðri
þegnum í ríki sínu. Þannig
reyna þeir að skapa nýjan
veruleika með háþróaðri
hernaðartækni og gífurlegu
erlendu fjármagni. Þeireign-
uðust sitt ríki og um leið
sköpuðu þeir „þjóð án lands“
— Palestínumenn.
Palestínumenn
eru þjóö
Enginn vafi er á því að ísra-
elsmenn hafa eflt þjóðarvit-
und Palestínuaraba. Hernám,
útlegð og kúgun eru vopn
sem snúast í hendi kúgarans
og efla þjóðerni þess undir-
okaða; þá kennd sem er svo
öflug til góðra verka og illra.
Palestínumenn eru nú á
margan hátt „gyðingar" okkar
tíma. Þeir hafa i besta falli
ríkisfang þeirra landa sem
þeir búa i — ísraels, Jórdaniu
o.fl. Meira en milljón þeirra
eru án ríkisfangs í arabalönd-
um og nær hálf önnur milljón
réttindalaus undir yfirráðum
ísraelsmanna á hernumdu
ast illa séð eða bönnuð, eink-
um þar sem ísraelsmenn
ráða. ísraelsmenn brjóta flest
mannréttindi á Palestínu-
mönnum, svo sem rétt til
heimilis, sjálfsákvörðunar,
frjálsrar tjáningar o.fl. og þeir
láta sér fátt um finnast þó að
heimsbyggðin fordæmi þá
fyrir brotin — Amnesty Inter-
national, Sameinuðu þjóðirn-
ar og fjöldi ríkja.
Rúmlega 2 milljónir Palest-
ínumanna, nær helmingur
þeirra, eru skráðar hjá Palest-
(nuaðstoð Sameinuðu þjóð-
anna (UNRWA) og rúmlega
helmingur þessa hóps býr í
flóttamannabúðum. Þessir
Palestínumenn eru ekki
flóttamenn að venjulegum
skilningi því þeirvoru hraktir
að heiman og bíða lausnar
og heimferðar. Á meðan
þurfa þjóðir heims að hlaupa
undir bagga og hjálpa þeim
að eignast húsaskjól og
menntun fyrir börnin. Fram-
kvæmdastjóri UNRWA,
Giorgio Giacomelli, var hér á
dögunum og talaði um að
stofnunin berðist í bökkum.
Á alþjóðlegum samstöðudegi
með Palestínuþjóðinni, 29.
nóvemþer, væri vel til fundið
að ákveða að auka okkar
skerf. Þann dag verðureinnig
stofnað í Reykjavík félagið
Ísland-Palestína.
Palestínsku flóttamennirnir hafa
lagt mikla áherslu á menntun,
segir m.a. í nýlegri skýrslu Sam-
einuöu þjóöanna.
VERÖLD
Þorsteinn Helgason
skrifar