Alþýðublaðið - 11.12.1987, Page 5
Föstudagur 11. desember 1987
5
„HEIMILDIN BRÁST“
Fréttastofa útvarps sendir frá sér greinargerð vegna frétta um Stefán Jóhann Stefánsson
sem Norðmaðurinn Dag Tangen var heimild að.
%
Stefán Jóhann Stefánsson
Alþýðublaðinu hefur borist
eftirfarandi greinargerð frá
fréttamönnum Ríkisútvarps-
ins vegna umræðunnar um
mál Stefáns Jóhanns
Stefánssonar:
„Mánudaginn 9. nóvember
1987 skýrðu blöð í Noregi frá
því að Dag Tangen sagnfræð-
ingur hefði undir höndum
gögn, áður óbirt skjöl, sem
sönnuðu m.a. að Hakon Lie,
aðalritari norska Verka-
mannaflokksins 1945—1969,
hefði haft náið samband við
menn í bandarísku leyniþjón-
ustunni OSS (síöar CIA).
Þessar upplýsingar vöktu
mikla athygli í Noregi og var
mikið fjallað um málið í blöð-
um, útvarpi og sjónvarpi
þann dag og næstu daga. í
hádegisfréttum norska út-
varpsins þennan sama mánu-
dag var rætt við Tangen og
þar heyrði fréttaritari FÚ í
Noregi hann segja frá því að
hann hefði einnig önnur
gögn, m.a. um ísland.
Erfitt var fyrir fréttaritarann
að ná í Tangen en tókst fyrir
milligöngu norsks blaða-
manns síðdegis þennan
mánudag i síma. Tangen seg-
ist hafa komist yfir bréf sem
sýni náið samband banda-
risku leyniþjónustunnar við
forsætisráðherra íslands
1947/48 sem heiti Stefansson
og bréfið hafi verið sent
Truman forseta. Tangen bauð
svo féttaritara FÚ að koma
daginn eftir, þriðjudag, og sjá
þetta skjal og önnur gögn
um ísland.
Þriðjudag 10. nóvember
sýndi Tangen svo fréttaritara
FÚ skjöl varðandi ísland en i
þeim var ekkert um Stefán
Jóhann Stefánsson. Hann var
spurður um það skjal, fyrr-
nefnt bréf, og fór að leita í
skjölum sínum og sagðist
svo ekki finna það. Hann
væri með mikið af óflokkuð-
um skjölum. Þetta tiltekna
skjal, bréfið um SJS, skipti
auðvitað höfuðmáli, og var
eftir því gengið. Þar kom að
Tangen sagðist ekki vera viss
um að vera meö það. Hann
kynni að hafa sent islenskum
kunningja sírium það og önn-
ur skjöl um ísland. Þessi ís-
lenski kunningi, sem Tangen
nafngreindi, var erlendis þeg-
ar þetta gerðist en vinafólk
hans í sama húsi tók að sér
að beiðni fréttastofunnar að
fylgjast með póstkassanum
og bærist bréf frá Noregi yrði
fengið leyfi i sfma til þess að
opna það. Það var svo ekki
fyrr en föstudaginn 13.
nóvember að Ijóst þótti að
sagan um póstsendinguna
stæðist ekki.
í millitíðinni hafði frétta-
ritari DV í Osló sagt að
ekkert væri um SJS i skjali
sem Tangen hefði sýnt hon-
um. En fréttaritari DV nefndi
skjal, en ekki skjöl, og frétta-
ritara FÚ hafði verið sagt að
skjölin væru þrjú.
Tangen hafði í viðtali við
fréttaritara FÚ í Noregi sem
birt var í kvöldfréttum 12.
nóvember bent á skjal (doku-
ment) sem væri i safni
Trumans forseta í Missouri.
Haft var samband við frétta-
ritara FÚ í Bandaríkjunum og
honum falið að grennslast
fyrir um þetta skjal í Truman-
safninu og hugsanlega önnur
skjöl sem snertu ísland.
Fréttaritarinn hringdi til
safnsins og bókavörður þar
skoðaði eina skýrslu banda-
risku leyniþjónustunnar CIA
frá því f júní 1948 og send
hafði verið Truman forseta.
Bókavörðurinn tilkynnti
fréttaritaranum svo símleiðis
sama dag að í skýrslunni
sem væri 30—40 siður væri
minnst á SJS og fleiri for-
ystumenn islenska en hvergi
væri minnst á náið samband
bandarisku leyniþjónustunn-
ar við SJS á þessum árum
1947/48. Fréttaritari FÚ í
Bandarikjunum greindi frá
þessari niðurstöðu þegar i
fréttum klukkan 16, 17 og 18
föstudaginn 13. nóvember og
þetta var einnig aðalfrétt
fremst bæði í fréttayfirliti og
í fréttum klukkan 19.
Til þess að eyða öllum efa
var fréttaritari FÚ í Bandrikj-
unum beðinn um að útvega
eintak af skýrslu leyniþjón-
ustunnar í Trumansafninu og
fékk hann sent Ijósrit af
þessari tilteknu skýrslu.
Hann var þá á leiö til íslands
í einkaerindum og var beðinn
um að koma með skýrsluna
og til landsins barst hún mið-
vikudagsmorgun 18. nóvem-
ber. Honum var síðan falið að
skoða skýrsluna vandlega og
hlusta á alla pistla um málið
frá mánudeginum 9. nóvem-
ber. Síðan var hringt frá FÚ í
Tangen og hann beðinn um
yfirlýsingu. Yfirlýsingin kom
slðdegis fimmtudaginn 19.
nóvember. Hún var birt
fremst i kvöldfréttum og jafn-
framt sagt að fréttaritari FÚ í
Noregi héldi fast við það sem
hann hefði upphaflega haft
eftirTangen. Þannig stæði
staðhæfing á móti staðhæf-
ingu. FÚ harmaði jafnframt
að heimild sem hún hefði
ekki talið ástæðu til að
vefengja hefði reynst ótraust.
FÚ hafði þá tvívegis og ræki-
lega borið upphaflegu frétt-
ina til baka. Daginn eftir,
föstudaginn 20. nóvembervar
samþykkt útvarpsráðs birt í
kvöldfréttum klukkan 19.
Mánudaginn 9. nóvernber
þegar málið byrjaði var fjall-
að um þaö á FÚ í samráði við
fréttaritara í Noregi hvort
heimildin væri traust. Ástæð-
ur þess að Tangen var talin
traust heimild eru eftirfar-
andi:
1.
Mánudaginn 9. nóvember
þegar málið byrjaði var fjall-
að um það á FÚ í samráði við
fréttaritara i Noregi áður
óbirt skjöl um náið samband
norskra forystumanna og
bandarisku leyniþjónustunn-
ar og mesta athygli vekja
gögn um samband Hákonar
Lies og bandrísku leyniþjón-
ustunnar OSS.
2.
Dag Tangen nefnir að fyrra
bragði í viðtali við norska
útvarpið að hann hafi komist
yfir islensk skjöl.
3.
Dag Tangen segir sama dag
við fréttaritara FÚ í Noregi að
hann hafi þessi íslensku
gögn undir höndum, þ. á m.
bréf sem sýni náið samband
bandarísku leyniþjónustunn-
ar við SJS.
4.
Dag Tangen hefur varið þrem-
ur árum í rannsóknir, m. a.
dvalist í Bandaríkjunum, á
samskiptum bandarísku
leyniþjónuustunnar og
norskra forystumanna.
5
Dag Tangen er fræðimaður
og fræðimannsheiður hann
er í veði fari hann ekki rétt
með heimildir.
6.
Fréttaritari FÚ í Noregi er
menntaður blaðamaður með
reynslu og á FÚ er boriö til
hans fullt traust.
Þannig var heimildin í upp-
hafi talin traust. Hún brást.
Þegar það varð Ijóst var frétt-
in borin rækilega til baka og
málið harmað.“
sem ekki gengu út
síðasta laugardag, leggjast við
1. vinninginn núna.