Alþýðublaðið - 18.12.1987, Blaðsíða 1
STOFNAÐ
1919
Það viröist, i orðsins fyllstu merkingu, að lagt hafi verið ofurkapp á að
Ijúka byggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar fyrir kosningar. Opnunar-
hátíðin þótti reyndar takast vel, enda ekkert vitað um alla „bakreikning-
anna“.
Húsnœðisfrumvarpið:
AFGREITT
FYRIR JÓL?
— Guðmundur H. Garðarsson segir að greiðlega eigi að ganga að
afgreiða frumvarpið í félagsmálanefnd efri deildar.
Guðmundur H. Garðarsson
formaður féiagsmálanefndar
efri deildar telur að greiðlega
eigi að ganga að afgreiða
húsnæðisfrumvarpið frá
nefndinni. Líkur til þess að
frumvarpið verði að lögum
fyrir jól eru því miklar. Frum-
varpið hefur' þegar farið i
gegnum fjórar umræður og
ætti því að mestu að hafa
lokið sinni pislagöngu.
„Ég á ekki von á öðru, en
það gangi greiðlega að af-
greiða þetta mál,“ sagði
Guðmundur í samtali við
Alþýðublaðið í gær. Ríkis-
stjórnin hafði samþykkt að
hraða málinu í gegnum þing-
ið svo sem kostur er. Að-
spurður sagðist Guðmundur
ekki verða var við mikinn
þrýsting frá ríkisstjórninni.
„Menn ráða náttúrlega ekki
öllu þótt þeir verði ráðherrar,"
sagði Guðmundur.
Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra hefur sett
stól sinn að veði fyrir því að
húsnæðisfrumvarpið verði að
lögum fyrir jól. Miðað við við-
brögð formanns félagsmála-
nefndar ætti fátt að tefja af-
greiðslu frumvarpsins þá
daga sem eftir eru til jóla.
Utgáfa lánsloforða var
hætt um miðjan mars sl.,
vegna fjárvöntunar í hús-
næðiskerfinu. Síðan þá hefur
biðfisti eftir loforðum sífellt
verið að lengjast og eru í dag
um 6000 manns sem bíða eft-
irafgreiðslu Húsnæðisstofn-
unar.
Byggingarkostnaður Flugstöðvar í Keflavík:
BYGGINGARNEFNDIN ORÐIN ÞRISAGA
— að mati Jóns Baldvins fjármálaráðherra
I umræðum á Alþingi í gær
um skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um byggingarkostnað
flugstöðvar í Keflavík kom
fram i máli Jóns Baldvins
Hannibalssonar fjármálaráð-
herra, að byggingarnefnd
flugstöðvarinnar hafi í raun
gefið þrjár umsagnir vegna
umframkostnaðar, frá því um-
ræða var fyrst vakin á málinu
í sumar eftir að fjármálaráð-
herra óskaði eftir skýrslu frá
Ríkisendurskoðun.
Fyrsta skýringin kom frá
nefndinni í sumar í fréttatil-
kynningu. Þar var upphafleg
áætlun, 42 milljónir banda-
ríkjadollara, framreiknuð til
verðlags í júlí ’87, en ekki tek-
ið tillit til þess aö í þeirri
upphæð fólust 8,5 milljónir
dollara i áætluðum hækkun-
um. Verðbætur voru sem
sagt verðbættar, sagði Jón
Baldvin, og niðurstaðan var
að verkið hefði aðeins farið
250 milljónum króna fram úr
áætlun, sem mætti rekja til
óhjákvæmilegra breytinga.
Næsta skýring kom í at-
hugasemdum við skýrslu
Ríkisendurskoðunar. Þar seg-
ir nefndin að rangt sé að
bera upphaflega áætlun sam-
an við endanlegar tölur,
vegna þeirra breytinga sem
ráðist var í. Þess í stað setur
byggingarnefndin breyting-
arnar inn í upphaflegu áætl-
unina og framreiknar. Með
þessari aðferð varð umfram-
kostnaður um 3%.
Þriðja skýringin birtist i
skýrslu utanríkisráðherra,
sem nefndarmenn skrifuðu.
Þar er upphaflega áætlunin
aftur borin saman við bók-
færðan kostnað. Bókfærði
kostnaðurinn er á verðlagi
hvers árs og því of lágur mið-
að við framreiknaða upphafs-
áætlun. Aö mati fjármálaráð-
herra er byggingarnefndin þá:
að tala um „kostnaöaráætl-
anir“ sem eru i raun fjárveit-
ingarbeiðnir nefndarinnar.
Þær leggur hún saman og
kallar heildaráætlun nefndar-
innar og er þá myndin farin
að l(ta býsna vel út. Það virð-
ist hins vegar sem nefndin
hafi gleymt að geta þess, að
fjárveitingabeiðnirnar eru á
verðlagi hvers árs og voru
auk þess skornar töluvert
niður, svo að skerðing eins
árs birtist væntanlega i
beiðni næsta árs. Þannig eru
sömu tölurnar taldar upp
tvisvar eða oftar.
Þá benti fjármálaráðherra á
að nefndin leggi mikla
áherslu á gengistap á bygg-
ingartíma í umsögnum sín-
um, en það varð um 240 millj-
ónir króna. Nefndin getur
þess hins vegar ekki að öll
lán til verksins voru erlend
og því var gengisþróun hag-
stæö að því er varðar nýtingu
þeirra fjármuna.
KV0TA-
FRUMVARPIÐ
HREYFIST
3
BUIÐ AÐ
LÁNA FYRIR
ÍBÚÐUM
NÆSTA ÁRS
ÁTAK
GEGN
ÁFENGI