Alþýðublaðið - 18.12.1987, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 18.12.1987, Qupperneq 5
Föstudagur 18. desember 1987 5 Umferðaráð: JOLAUMFERÐIN ALDREIMEIRI Ökumenn sérstaklega minntir á að sýna aðgát og tillitsemi. — Skynsamlegt að láta bílinn í friði ef dreypt er á jólaglögg. Umferðarráð vill minna ökumenn á að jólaumferðin i ár verður meiri en nokkru sinni fyrr. Því er nú, í svart- asta skammdeginu, nauðsyn- legt að aliir vegfarendur sýni sérstaka aðgát og tillitssemi í umferðinni. í fréttatilkynningu frá Um- feröarráöi eru nokkur holl ráð tii vegfarenda; sem aldrei eru of oft brýnd fyrir fólki: Gangandi vegfarendur geta aukið öryggi sitt verulega meö því aö bera endurskins- merki og nota þau á réttan hátt. Þörf fyrir þau er nú enn brýnni en endranær þar sem óvlöa slær birtu frá snævi þakinni jörö. í hálku ættu þeir sem ganga mikið skil- yröislaust aö heimsækja næsta skósmiö og fá sér búnaö til hálkuvarna svo sem mannbrodda eöa neglda sóla. í þessari miklu umferð er nauðsynlegt að fólk akandi og gangandi ætli sér meiri tímaen endranær. í þvl sam- bandi má hafa í huga mikla fjölgun bíla í ár sem eðlilega leiöirtil þyngri umferöar og því miður einnig til þess að margir ökumenn verði þungir á brún við stýrið. Þaö hæfir jólaumferð illa. Ljósabúnaður þarf aö vera í góðu lagi og ættu ökumenn að nota ökuljósin allan sólar- hringinn. Vert er að huga að hjólbörðum, oft duga gróf- mynstruð dekk, en víða eru skilyrði þannig að þau þurfa auk þess að vera negld. Þessa dagana er víða veitt „Jólaglögg". Ökumenn ættu að minnast þess að oftast er í því áfengi — stundum sterkt. Gildir sama um „Jóla- glögg“ sem neyslu annars áfengis að akstri og áfengi má alls ekki blanda saman. Benda má á að gott „Jóla- g!ögg“ má blanda án áfengra efna og eru til prýðisgóðar uppskriftir að slíkum öku- mannadrykkjum. ■ Yfir 40 aðilar hafa fyrir jólin tekið höndum saman og hafið herferð gegn ölvunarakstri. Atak gegn áfengi: HVAD MÁ BJÓDA ÞÉR? „Öll vínveitingahús eiga að hafa á boðstólum mikið úrval óáfengra drykkja. “ Rúmlega fjörutíu aðilar, þ.a.m. Áfengisvarnarráð, Um ferðarráð, Lögreglan og Fararheill, hafa hafið „Atak gegn áfengi.“ Af því tilefni hefur verið gefinn út bækl- ingur „Óáfengt. Já, takk.“ Bæklingurinn er prentaður í 20.000 eintökum og dreift m.a. í matvöruverslanir. Um- ferðarráð hefur einnig gefið út bækling „Hefurðu efni á þessu?“ sem dreift verður í áfengisverslanir, úr lögreglu bílum, á skrifstofum trygg- ingarfélaga og víðar. Er aðal inntak bæklingsins ölvunar- akstur og afleiðingar hans. í „Óáfengt. Já, takk“ er m.a. minnst á ástæður þess að fólk neytir ekki áfengis. Sumir vilja varðveita og tryggja heilsu sína, ná árangri í starfi eða í íþróttum, vernda börn sín fædd og ófædd eða halda hæfni sinni óskertri í flóknum heimi hraðans. Bent er sérstaklega á að öllum vínveitingahúsum með vínveitingaleyfi ber að hafa á boðstólum úrval óáfengra drykkja. Einnig eru í bæklingnum fjöldi upp- skrifta. Áfengisvarnarráð tekur undir þetta og segir að nú á jólum, hátíð Ijóss og friðar, skuli áfengis ekki neytt. Mörg börn kvíðajólunum vegna drykkju foreldra sinna og gleði umbreytist því oft I sorg. Umferðarráð bendir á neyslu „Jólaglöggs" sem oft hefur afdrifaríkar afleiðingar í för með sér. Fólk áttar sig ekki alltaf á því hve áfengis- magnið er mikið í „glögginu" og keyrir því bílinn eftir neyslu. Óáfengt jólaglögg er ekki verra, segir Umferðarráð, og væntir þvi þess af lands- mönnum að ef áfengt „Jóla- glögg" er haft um hönd, eða annað áfengi nú um jólin, verði bíllinn skilinn eftir heima. landsleiknum og láttu drauminn rætast

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.