Alþýðublaðið - 23.12.1987, Side 1
Þinghald á milli jóla og nýárs:
AGREININGUR UM KVUTANN
GÆTI STÖÐVAD ÖNNUR MÁL
Árni Gunnarsson segist óttast miklar málalengingar um kvótafrumvarpið, verði ekki kom-
ist að samkomulagi um breytingu á 10. grein frumvarpsins, sem fjallar um smábáta. Arni
segist vona að menn noti frítímann til þess að finna ásœttanlega útgönguleið.
Síðustu dagafyrir jólaleyfi þingmanna hafa þingfundirog fundiri nefnd-
um staðið langt fram á nótt. Þreyta var lika farin aö segja til sin i gær,
siðasta daginn fyrir jóialeyfi. Þing kemur aftur saman á milli jóla og ný-
árs. A-mynd/Róbert.
Haffjarðará:
FORKAUPSRÉTTUR
SNIÐGENGINN?
„Eg get ekki betur séð, ef
stjórnarandstaðan greiðir öll
atkvæði gegn kvótafrumvarp-
inu, þá verði ekki meirihluti
fyrir því í neðri deild Alþing-
is,“ sagði Árni Gunnarsson
alþingismaður í samtali við
Alþýðublaðið í gær.
Kvótafrumvarpið var sam-
þykkt frá efri deild í gær með
12 atkvæðum stjórnarliða
gegn 9 atkvæðum stjórnar-
andstæðinga, Þorvaldar
Garðars Kristjánssonar og
Karvels Pálmasonar. Frum-
varpinu var vísað til neðri
deildar, þar sem það verður
til umfjöllunar á milli jóla og
nýárs.
Árni Gunnarsson hefur lýst
sig andvígan 10. grein kvóta-
frumvarpsins, sem fjallar um
smábáta. „Ég tek aldrei þátt I
slfkri andjafnaöarstefnu og
þar er boðuð,“ sagði Árni I
samtali við blaðiö. Hann
sagði nauðsynlegt að ná
samkomulagi um mildari
ákvæði, draga úr slæmum
áhrifum og gífurlegri kjara-
skerðingu fyrir fjölda heimila,
sem óbreyttri grein myndu
fylgja. „Þetta er geysiíega^
stórt landsbyggðarmál og
það er einkennilegt að íhald-
ið og aðrir vilji þurrka út
þann merkilega þátt sem
trilluútgerðin hefur verið í at-
vinnusögu okkar,“ sagði Árni.
Miklar umræður urðu um
kvótafrumvarpið í efri deild
og sagðist Árni óttast enn
frekar málalengingar um
frumvarpið á milli jóla og ný-
árs, yrði ekki gert samkomu-
lag um 10. greinina. Þá sagði
hann samkömulag ekki síst
mikilvægt vegna þess að
miklar umræður um málið
gætu tafið framgang ýmissa
„lífsnauðsynlegra" frumvarpa
sem ríkisstjórnin þyrfti að fá
samþykkt fyrir áramót. „Þvi
mælist ég til að menn noti
frídagana vel og reyni aö
finna ásættanlega útgöngu-
leið,“ sagði Árni.
Svanur Guðmundsson odd-
viti Eyjahrepps segir að mál
verði höfðað vegna kaupa
sem fram hafa farið á hluta
eignar erfingja Richards
Thors, án þess aö sveitarfé-
lögum sé gefinn kostur á að
nýta þann forkaupsrétt sem
þau hafa. Þær jarðir sem í
ábúð séu hafi ailar lækkað
við mat frá upphafiegu verði.
Einnig hafi seljendur og
kaupendur tekið sig saman
um að halda forkaupsréttar-
höfum frá kaupum með því
að leigja Haffjarðará til tíu
ára.
Eins og kunnugt er hafa
forkaupsaðilar eigna erfingja
Richards Thors i Kolbeins-
staða- og Eyjahreppi farið
fram á að eignirnar yrðu
metnar af sértilkvöddum
matsmönnum. Það mat ligg-
ur nú fyrir.
í samtali við Alþýðublaðið
sagði Svanur Guðmundsson
oddviti Eyjahrepps að þær
jarðir sem væru í ábúð hafi
allar lækkað og hafi ábúend-
ur þeirra jarða forkauþsrétt út
þessa viku. Haffjarðará var
metin sér. Heildarverð eign-
anna lækkaði ekki.
„Það er ekkert launungar-
mál að við teljum að kaup-
endur og seljendur hafi tekið
sig saman um að halda sveit-
arfélögunum frá forkaups-
rétti, það gera þeir með því
að kaupendur leigja ána til 10
ára.“ Sagði Svanur að þessi
samningur komi í veg fyrir að
sveitarfélögin fái nokkurn til
að fjármagna kaupin. Það
tæki 4—5 ára málaferli að
reyna að rifta samningum og
þá væri forkaupsréttur liðinn
og enginn værí fús til að fjár-
magna kaup upp á slíka
óvissu.
Leigan sem greidd yrði til
forkaupsréttarhafa væri um 4
milljónir og bundin vió
bandarikjadali, án nokkurrar
vísitölu. Sagði Svanur að
matsmenn teldu að þessi
leiga væri um 50% of lág.
Ekki er ákveðinn fjöldi stanga.
Sagði Svanur að þinglýstur
eigandi þeirra jarða sem að
sveitarfélagiö hafi mestan
áhuga á að eignast hafi selt
þær í september sl. og telur
hann að þar hafi verið gengió
freklega framhjá forkaups-
rétti sveitarfélagsins. Sagði
hann að mál yrði höfðað til
að rifta þeim kaupum.
Eru þær jarðir taldar vera
um fjórðungur heildareignar-
innar, og eru þær seldar á 19
milljónir. Þýðir þaö að heild-
areignirnar ættu að kosta um
80 milljónir, en ekki 118 eins
og boðið hefur verið.
INNREIÐ
SÁNKTA
KLÁS
SKATAR A LEIÐ TIL
ÁSTRALÍU
-------3--------
NÝR FORMAÐUR
HÚSNÆÐISSTJÓRNAR