Alþýðublaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 23.12.1987, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 23. desember 1987 MMBUBLMÐ Útgefandi: Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Fréttastjóri: Umsjónarmaóur helgarblaðs: Blaöamenn: Dreifingarstjóri: Setning og umbrot: Prentun: Blaö hf. Valdimar Jóhannesson Ingólfur Margeirsson Kristján Þorvaldsson Þorlákur Helgason Haukur Hólm, Ingibjörg Árnadóttir og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Þórdís Þórisdóttir Filmur og prent, Ármúla 38. Blaöaprent hf., Siðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi. í lausasölu 50 kr. eintakiö virka daga, 60 kr. um helgar. INNREID SÁNKTA KLÁS XVlþýðublaðið birti í gær athyglisvert viðtal við séra Sigurð Hauk Guðjónsson. Séra Sigurður Haukur greindi hispurslaust frá skoðunum sínum og fór víða. Meðal ann- ars ræddi hann við Alþýðublaðið um jólahald í dag og sagði: „Ég held að jólahald sé að breytast í það, sem það var áður en kristnin kom til. Rómverjar notuðu jólin til að fagna upprisu sólar og var mikið svall. Einnig var þetta uppskeruhátíð. Núnaer þetta uppskeruhátíð hjá mörgum. Við erum búnir að lengja jólin. Þau byrja í nóvember. Mönnum hefur þótt ákaflega vænt um jólin, öllum hlýnar um hjartaræturnar þegar talað er um barnið og jólin. Og eftir því sem ég eldist, því meira hugsa ég um það að fyrst mönnunum finnst svona óhemju vænt um Krist á jólun- um, að þá skuli þeir gleyma honum á öórum tímum. Þeir muna eftir honum sem barni í vöggu, en ekki þegar hann er orðinn fullorðinn." Og áfram segir séra Sigurður Haukur um jólin: „Ég held að þau séu orðin svallhátíð. í mörgum fyrirtækjum í dag er talið bráðnauðsynlegt að hafa að minnsta kosti eina eða tvær jólaglöggsamkomur til að fagna jólunum. Fjöldi heimila hefur hreinlega ekki efni á því að lifa jólin. Þegar maður er farinn að geta gengið inn í verslanir og séð bifreiðir innpakkaðar í jóla- borða sem jólagjafir, þá fer maður að hugsa hvar þetta endi.“ Islenskt jólahald erekki aðeins að færast nærsvallhátíð- um, heldur er það að taka miklum stakkaskiptum sem eru í takt við þær þjóðlífsbreytingar sem eiga sér stað hér á landi. Það er til að mynda talandi dæmi um þjóðernis- kennd og þjóðleg einkenni á undanhaldi, þegar jólahátíð- in tekur ásig æ erlendari blæ. Jólaglöggið er til að mynda skandinaviskur siður sem nú er orðinn iandlægur í fyrir- tækjum og heimahúsum. Helsta jólaafþreying lands- manna er að horfa á sjónvarp og fara í kvikmyndahús. Hvað er þar á boðstólum? Bandarískar kvikmyndir nær eingöngu og þá í léttum dúr eóa ofbeldis- og spennu- myndir sem ekki eru beinlínis í takt við friðarboðskap jól- anna og kristninnar. Nú eru meira að segja jólasveinar einn og átta, hinir sérkennilegu íslensku jólasveinar og synir Grýlu og Leppalúða, komnir í lífshættu. Stærsta verslunarmiðstöð landsins, Kringlan, sem er eins konar verslunarhof jólanna, býður upp á Sánkta Klás að amer- ískri fyrirmynd, sem tekur börn á hné sér meðan foreldrar taka poleroid-myndir af afkvæmunum gegn gjaldi. Horf- inn er Kertasníkir og Giljagaur. Jólin eru samkvæmt hefðinni tími friðarog Ijóss. Þau eru tími samveru fjölskyldnaog ástvina, þegargjafireru gefn- ar og almenningur hvílist í nokkra daga í lengsta skamm- deginu. Þau eru líkatími hugleiðingaog trúar. Þaðerþess vegna umhugsunarefni ef þessi hefðbundni tími er að breytast í svallhátíðir að erlendri fyrirmynd og þau um- skipti segjasínasögu hvert menning okkarog þjóðleg arf- leifð stefnir. Þessi tímanna tákn eru ennfremur vísbend- ing um þjóðfélag í ánauð vinnuþrælkunar og skuldafang- elsis þar sem þverrandi andleg mótstaða opnar greiðar götur fyrir erlenda lágmenningu og firringu kaupæðis. ONNUR SJONARMIÐ JOLIN eru tími smælingj- anna og jólin í ár ætla ekki að verða neitt öðruvísi í því tilliti. Pólitísku smælingjarnir á Alþingi hafa notið sín vel i pontu og reyndar í fjölmiðl- um llka. Smælinginn Albert Guðmundsson hefur til að mynda lýst því yfir að hann ætli að lesa úr íslendinga- sögunum ef þörf krefur til að stöðva framrás stjórnarfrum- varpa. Steingrímur J. Sigfús- son, pólitiskur smælingi að norðan hefur einnig átt góða daga á þingi sem í sjónvarps- sal og þess á milli sent miða til flokksbræðra sinna í pontu á Alþingi um að tala ennþá meira svo þjóðin fái engin lög í veigamiklum málaflokkum. Þjóðviljinn, málgagn Alþýðubandalags- ins, birti mikið viðtal við Steingrím J. þar sem hann ussar og sveiar eins og jóla- sveinn að norðan og skekur sig allan. Lesum sjónarmið Steingríms um ástandið á Al- þingi: „Þaö er athyglisvert að rik- isstjórn með svona sterkan þingmeirihluta skuli setja málin í þann hnút og klúðra þeim þannig að hún þurfi að koma skríðandi til stjórnar- andstöðunnar rétt fyrir jól og biðja um gott veöur. Það er geysilegt veikleikamerki, það er einsog viðurkenning og stimpill yfir vandræðagang- inn hjá þeim. Ástæðurnar eru fyrst og fremst tvær. í fyrsta lagi hrúgar ríkisstjórnin inn miklum kerfisbreytingamál- um, tugum stórra mála á allra síðustu dögum þinghaldsins, sem er hrein litilsvirðing við þingið og afgjörlega óviðun- andi vinnubrögð. I öðru lagi gengur þetta ekki neitt vegna ágreinings stjórnarliða sjálfra. Það tefur fyrir í hverju málinu á fætur öðru. Það er að einhverju leytinu ástæðan fyrir því að málin eru svona seint fram komin. Þeim hefur gengið illa að ná samkomu- lagi um þau áður en þau eru lögð fram. Það hefur gerst hvað eftir annað á þessu hausti að stjórnarfrumvörp eru lögð fram með allskonar fyrir- vörpum annarra stjórnarliða. Þau hafa verið lögð fram sem hálfgerð þingmannafrumvörp. Þetta hefur því allt verið mjög losaralegt og upplausn- arkennt, verkstjórn virðist vera algjörlega í molum og greinilegt að andrúmsloftið er lævi blandið i rikisstjórn- inni. Þeir eru allir að hugsa um það að komast sem best frá þessu ef það skyldi slitna upp úr þessu einhvern- tímann. Það er átakanlega áberandi hvernig Framsókn reynir að hvítþvo sig af öllu sem miður fer einsog venju- lega.“ Þá er að sjá hvort Stein- grímur reynist sannspár á nýju ári og komi til nýrra kosninga. Spurningin er, ef svo verður, hvort aö Komma- Grýla nái að safna saman öll- um jólasveinunum sinum í Alþýðubandalaginu í tæka tfð. HELGI Hálfdánarson, þýð- andinn góði, skrifar enn eina ádeiluna í Morgunblaðið á fyrirhugað ráðhús Davíðs. Greinin birtist í gær og þar ítrekar Helgi að Davíð ætli sér að demba ráðhúsinu í Tjörnina hvað sem hver segir og jafnvel þótt að meirihlut- inn sé staðsetningu ráðhúss- ins mótfallinn. Helgi skrifar: „Það sem oft ræður úrslit- um, þegar tiltekinn hlutur er metinn til fegurðar, er sam- ræmi hans við umhverfi sitt, ef ekki hefðir einar saman. Og þaó á ekki sízt við um hús í þéttbýli. Meðal annars vegna ósamræmis við það sem fyrir var, fer Þjóðleik- húsið illa á sinum fordæmda stað við Hverfisgötuna, og steinbáknin miklu við Lækj- argötu. Nema ætlunin sé að útrýma smám saman öllu sem áður setti svip á þessa staði, og aðra þar sem farið hefur á líkan veg. Það má vel vera, að ráðhúsið góða færi þokkalega í grennd við Akró- pólis, eða í flæðarmálinu á Siglufirði; og áreiðanlega mætti finna því stað í Reykja- vík, þar sem það yrði snoturt. En í Tjörninni er það óskyldur aðskotahlutur og ömurlegt stílbrot á þeim stað. Þó að gosbunan í Syðri- Tjörn sé hlægilegt stílbrot i nokkurnveginn náttúrlegu umhverfi sinu, er hún tiltölu- lega meinlaus, því alltaf er hægt að skrúfa fyrir hana og koma á þeim friði sem þar rikti áður. Öðru máli gegnir um ráðhús. Og hvort sem það er ein- staklingsbundinn smekkur eða fleira, sem ræður af- Pólitískir smælingjar hafa átt góða jólatíö á Alþingi eins og best hefur komið fram í ræðu Stein- gríms J. Davið hefur fengið enn eina dús- una frá Helga Hálfdánarsyni þýðanda. stöðu Reykvíkinga til ráð- hússins í Tjörninni, þá er meirihluti þeirra sá eini dóm- stóll sem leyfilegt er að taka mark á i því máli. Nú liggja fyrir rökstuddar líkur til þess, að mikill meirihluti Reykvik- inga sé mótfallinn þessu uppátæki. Einhverjum kynni að þykja ástæða til að leita staðfestingar á niðurstöðu þeirrar skoðanakönnunar, sem fram hefur farið, og efna til allsherjar atkvæðagreiðslu um málið. Sé það hins vegar ekki gert, ber að taka á henni fullt mark. Hvers konar velsæmi væri þá að berja í borðið og hrópa: Ráðhúsið skal í Tjörn- ina! Hvernig væri sjálfum ráðamönnum bæjarins trú- andi til slíks? Hvers konar lýðræöi væri það, sem þeir menn aðhylltust, ef þeir teidu sig til þess kjörna af almenningi að gera það sem þeir vita að þessi sami al- menningur vill að þeir geri ekki! Ég er hræddur um að þeir kæmust ekki hjá því að dæma sjálfa sig seka um grófasta stjórnarfarshneyksli í sögu hins íslenzka lýð- veldis. Við Reykvíkingar trúum því ekki fyrr en við tökum á, að þeir, sem fara með málefni okkar í krafti lýðræðis, sýni okkur, umbjóðendum sínum, og þá sjálfu lýöræðinu, svo blygðunarlausa fyrirlitningu.“ Þetta skrifar Helgi Hálf- dánarson og talar fyrir munn þúsunda Reykvíkinga. það væri Davíð Oddssyni dálítið hollt að hugleiða yfir hátíð irnar. Einn með kðffinu Um daginn kom roskin sveitakona í bæinn og ákvað að láta gamlan draum rætast, nefnilega að fara niður á Alþingi og hlusta á þingmennina tala. Gamla konan eyddi heilum degi á áheyrendaþöllunum og hlustaði á alla stjórnarandstöðuna í endalausu málþófi þæfa fram- göngu stjórnarfrumvarpa. Að loknum degi gekk hún út úr húsinu og hitti kunningja sinn fyrir framan Alþingi. Kunninginn spurði hvernig henni hefði líkað ræður þingmannanna. Gamla kona svaraði að bragði: „Bara vel. Og það besta við ræður þeirra var það, að þeir blönduðu ekkert pólitík í málflutninginn."

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.