Alþýðublaðið - 23.12.1987, Page 5

Alþýðublaðið - 23.12.1987, Page 5
Miðvikudagur 23. desember 1987 5 UMRÆÐA Dr. Valdimír Verbenko yfirmaöur APN á íslandi, skrifar „Ef fólk um heim allan ryður ekki brautina til friöar í sameiningu, bíöur dauöinn allra,“ skrifar yfirmaður sovésku fréttastofunnar APN m. a. i umræðugrein sinni. I SÁ SEM FER BRAUTINA RYDUR HANA Löng leið er venjulega lítið aðlað- andi — fólk verður þreytt á þvi að fara langa leið og svo er ekki vitað hvað biður þess á ferðaiaginu. Og ef vitað er að framundan eru erfiðleikar og það í rikum mæli, fást ekki allir til þess að leggja upp í ferðalag. Gegnum aldirnar hefur sú viska ver- ið við lýði hjá þjóðunum, að ferðalag sé ferðalag og allir verði að leggja upp i það, ef þeir vilja ekki standa í sömu sporum. Og til forna, orðuðu menn þetta enn betur: Vegurinn er lífið, þar sem haft er í huga, að kyrrstaða hefur engar framfarir i för með sér, en slíkt jafngildir hægum dauðdaga. Aðstæður mannkynsins á kjarn- orkuöld hafa gert óheillavænlega breytingu á þessu spakmæli: Hér er ekki lengur um að ræða að einhver deyi einhvern tíma einhvers staðar. Spurningin er vægðarlaus og ótvíræð: Ef fólk um heim allan ryður ekki braut- ina til friðar i sameiningu, bíður dauð- inn allra — allra án undantekningar, það hefur verið sannað af hæfum aðil- um — i stuttri kjarnorkustyrjöld, sem leggur allt i auðn. Líklega hafa leiðtogar Sovétríkjanna og Bandaríkjanna haft þetta í huga, sem bera í ríkum mæli ábyrgð á örlög- um friðarins, þegar þeir sögðu fyrir tveimur árum í Genf: Það má aldrei heyja kjarnorkustyrjöld, þar verður ekki um neinn sigurvegara að ræða — allir verða fyrir barðinu á geisladauða og „kjarnorkuvetri“. Allir, meira að segja þeir, sem hafa eytt stórum fjár- hæðum til að kaupa og útbúa „kjarn- orkuskýli" — sú eyðsla er óþörf, þar sem ekki er til nein trygg vörn gegn geislun og öðrum afleiðingum sprengjunnart Og það er ekki um það að ræða, að slíkt hafi „enn ekki verió fundið upp“. SKk vörn verður ekki fundin upp, og er þar haft í huga hið viðkvæma eðli mannsins og umhverf- is hans og hið taumlausa og eyði- leggjandi eðli kjarnorkusprengjunnar. Það virðist sem 40 ár hafi farið í að koma saman svo einfaldri sameigin- legri yfirlýsingu — þetta liggur senni- lega i eðli mannsins, en aðeins í versta tilfelli: Saman geta vantraust, ótti og tortryggni skyggt á heilbrigða skynsemi og staðreyndir. Þess vegna varð að viðurkenna að það má ekki heyja stríð. Það verður að búa svo um hnútana að ekki sé til neitt sem hægt er að nota í slíkri styrjöld. Þetta virðist ef til vill fjar- stæðukennt, en eftir einn mánuð verða liðin tvö ár frá því að M. S. Gorb- achjov, leiðtogi Sovétríkjanna, lagði til í hinni kunnu yfirlýsingu sinni frá því 15. janúar 1986 áætlun til 15 ára — leið til kjarnorkuvopnalauss heims ár- ið 2000. En þarna var aðeins annar aðilinn að verki. Og þá lagði Mikhail Gorbachjov til viö Ronald Reagan, for- seta Bandaríkjanna, að þeir hittust í Reykjavík til þess að móta sameigin- lega stórfelIdar aðgeröir á sviði afvopnunar. Staðarvalið var táknrænt — leiðtogarnir urðu að mæta hvor öðrum á miðri leið — skynsamlegt og réttlátt. Fundur þeirra var haldinn. Þrátt fyrir alla óheillaspádóma andstæðinga nánari samskipta og afvopnunar, var hann mjög árangursríkur. M. S. Gorb- achjov hefur nefnt það hvað eftir ann- að — í öllum sínum ræðum eftir fund- inn. Hann varð fyrstur til þess að segja að Reykjavíkur-fundurinn hefði verið timamótaviðburður, hefði markað söguleg þáttaskil og verið undanfari heims án kjarnorkuvopna. Og nú vita allir og segja að án Reykja- víkurfundarins hefði ekki verió neinn leiðtogafundur f Washington. En þaö er langt frá þvf að allir viti, hversu ótrúlega erfið þessi leið var og stund- um virtist hún alveg ófær. En það varð að komast alla leið: Boris Raushen- bakh, sovéskur geimeðlisfræðingur og félagi akademíunnar, sagði i fyrsta skipti frá því nýlega, að enn hefði komið beiskur sannleikur f Ijós. Vís- indamenn hafa reiknaö út að tvö ólíkt stillt tölvukerfi sem tengjast eld- flaugaskotpöllum, geta í krafti hinna andstæðu kerfa og vegna upplýsinga- skorts um hitt kerfið hafið aðgerðir og byrjað kjarnorkustyrjöld án þess að nokkur maður komi þar nálægt. Hinn kunni vísindamaður sagði í sjónvarpi við milljónir áhorfenda að leiðtoga- fundinum loknum: Það máekki lengur bíða með afvopnun, þar sem tölvu- styrjöld getur hafist af sjálfu sér, sem mun hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. Mennirnir einir geta komiö i veg fyr- ir slíka ógæfu. Til þess að svo megi verða, þurfa leiðtogar þeirra „bara“ að semja um upprætingu slíkra kerfa, þ.e. um að eyðileggja innihald kjarnorku- vopnabúranna í raun. Um það var rætt í Reykjavík — f fyrsta skipti i sögu mannkynsins var ekki aðeins rætt um afvopnun yfirleitt eða takmörkun vfg- búnaðar, heldur um að hefja raunveru- lega afvopnun, uppræta vígbúnað. Af ástæðum, sem öllum eru kunnar, tókst ekki að ná samkomulagi f Reykjavík — leiðin var afar ógreiðfær og geimskildirnir voru stór hindrun. Þá sögðu einhverjir: Fyrst málum er svona komið, verður að hætta við. Fólk er ekki tilbúið til að leggja upp f svona erfitt ferðalag. En til allrar hamingju sigraði hinn nýi pólitfski hugsunarháttur og ferð- inni var haldið áfram. Mikhail Gorb- achjov fór f heimsókn í Hvíta húsið, þar sem hann og Ronald Reagan und- irrituðu fyrsta samninginn um uppræt- ingu heillar tegundar kjarnorkuvopna, sem allir höfðu lengi beðið eftir. Þessi ferð tók sex löng ár — sex ár þar sem mikið var á sig lagt, þar sem fallist var á gagnkvæmar málamiðl- anir, leitað leiða, sem báðir gátu fall- ist á — það sem við köllum núna nýja afstööu. En I staðinn leiddi þessi ferð af sér frábæran árangur! Þar ber hæst skjalið, sem kveður á um aó mannkynið skuli afvopnast f fyrsta skipti í sögunni, sem er full af vfgbúnaði — frá steinkylfunni til kjarnorkuleysigeisla. En margir segja, að hér taki því ekki að hrósa sigri — alls hafi verið eyði- lögð um 5% af hergagnamagninu. í fyrsta lagi hljóta menn að vera sam- mála Steingrími Hermannssyni, utan- ríkisráðherra íslands, sem fór lofsam- legum orðum um samninginn og und- irritun hans og sagði i því sambandi: Hálfnað verk þá hafið er. Þetta kom Ifka fram hjá M. Gorbachjov og R. Reagan. í öðru lagi er eyðilagður vfgbúnaður, sem jafngildir eyðileggingarafli 200 styrjalda á borð við heimsstyrjöidina síðari — það hljómar sæmilega, er það ekki? Og ekki aðeins í sálfræði- legu tilliti, heldur einnig í raun. En hins vegar eru vopn f 5000 sllkar styrj- aldir eftir í vopnabúrunum og það hlýtur að vekja ugg. Þess vegna verð- ur að halda áfram á þessari erfiðu, en göfugu braut. Um þetta var samið í Washington og við skulum vona að fram undan sé fundur f Moskvu og nýir sáttmálar. Það ei einnig afar mik- ilvægt. Sá, sem fer brautina, ryður hana. Dr. Vladimír Verbenko, yfirmaður APN á íslandi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.