Alþýðublaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 8
ÍIMBUBIIDIB
Miövikudagur 6. janúar 1988
H9HB9HHBBBHHBH
■■■■■ ■
SOLUSKATTSFRUMVARPID SAM-
ÞYKKT SEM LÖG FRÁ ALÞINGI
í gær var söluskattsfrumvarpið samþykkt sem lög frá Alþingi.
Það felur í sér að söluskattur leggst á ný á öll matvæli og að
undanþágum verður stórlega fækkað, en í framsöguræðu sinni
sagði fjármálaráðherra m. a. að engin aðgerð hafi grafið jafn mik-
ið undan framkvæmd og eftirliti með skilum á söluskatti og
undanþágur söluskatts gerðu á sínum tíma.
Ýmsar hliðarráðstafanir hafa verið gerðar samfara þeim hækk-
unum sem verða á matvælum, t. d. hækkuðu lífeyrisbætur um
6—8% 1. jan. og barnabætur hækka sérstaklega um 9—10% og
verðaþærgreiddarútársfjórðungslega, ífyrstasinn íjan. ’88. Eru
það um 2200 milljónir sem varið verður í lífeyris- og barnabætur,
ásamt auknum niðurgreiðslum.
Styrr hefur staðið um þessar aðgerðir og leitað Alþýðublaðið
álits formanns Neytendasamtakanna og formanris Kaupmanna-
samtakanna auk hins almenna borgara.
Gunnar Ágústsson.
„ÍÞYNGIR
MÉR EKKI“
„Hann Iþyngir mér ekki, við
erum það fá í heimili núna.
Það á eftir að koma í Ijós
hvernig hann reynist, ég býst
við að hann reynist mörgum
þungur. Þetta kemur verst
niður á barnmörgum fjöl-
skyldum," sagði Gunnar
Ágústsson.
— Hefurðu kynnt þér
bætur sem koma á móti?
„Ég held að þar sé bara
um millifærslu á peningum
að ræða. Þetta er bara tekið
af sköttunum."
Dagbjört Ólafsdóttir.
„ALLIR SKATTAR
SLÆMIR"
„Það eru allir skattar
slæmir. Þessi er kannski
verri en aðrir, það er illa gert
að vera að skattleggja mat,
með því er verið að ráðast á
þá lægst launuðu.“
„Ég hef ekki kynnt mér
bæturnar eða niðurgreiðsl-
urnar sem á móti koma,“
sagði Dagbjört Ólafsdóttir.
„HRIKALEGUR*
„Ég held að öllum þyki
matarskatturinn hrikalegur.
Það á eftir að koma i Ijós
hvernig hann reynist," sagði
Jóna Guðmundsdóttir.
Jóna Guðmundsdóttir.
Unnur Magnúsdóttir.
„ÓHRESS“
„Það er enginn hress með
matarskattinn," sagði Unnur
Magnúsdóttir. „Þetta getur
orðið afskaplega erfitt fyrir
marga og bitnar á stærstu
fjölskyldunum."
Varðandi hækkun bóta og
fleira sem á móti kæmi sagði
hún að það væri auðvitað til
bóta fyrir barnafjölskyldur.
Friðgeir Hjaltalin.
„EKKERT
VOÐALEGT MÁL“
„Þetta er ekkert voðalegt
mál. Það er verið að breyta
skattakerfinu, og ef heildar-
skattar hækka ekki þá er
þetta í lagi. Það er alveg eins
hægt að borga af ýsunni eins
og hverju öðru.“
„Ég hef ekki kynnt mér
hvernig bótum og niður-
greiðslum verður háttað,"
sagði Friðgeir Hjaltalín.
Formaður Kaupmannasamtaka Isl:
SÖLUSKTTSPRÓSENTAN
OF HÁ
r Formaður Neytendasamtakanna:
STRIDIR GEGN MANN-
ELDISSJÓNARMIÐUM
„Ég vil að söluskattur sé á
matvöru og að sama sölu-
skattsprósenta sé lögð á all-
ar vörur sem fólk kaupir, en
mér finnst hún alltof há. Þvi
færri undanþágur þvi betra,“
sagði Guðjón Oddsson for-
maður Kaupmannasamtaka
íslands.
Sagði hann að það hafi
valdið sér vonbrigðum að
söluskattsprósenta skyldi
ekki verða lækkuð þegar
ákveðið var að setja á matar-
skatt. Hann verði bæði erfið-
ur í innheimtu og einnig
muni hann skekkja verðskyn
fólks.
„Ég hefði viljað að sölu-
skattur væri ekki hærri en
15%, en ég geri mér grein
fyrir að hann gat ekki lækkaö
svo mikið við að setja sölu-
skatt á matvæli. En þvi færri
undanþágur því betra.“
„Það er skoðun okkar hjá
Neytendasamtökunum aö
meö þessu sé verið að gera
þá nauðsynjavöru sem mat-
væli eru enn dýrari en þau
eru í dag, og að okkar mati
hefur verð matvæla verið
nægjanlega hátt. Þetta stríðir
gegn menneldissjónarmiðum
og mun koma illa við buddu
landsmanna, sérstaklega
hinna lægst launuðu“ sagði
Jóhannes Gunnarsson for-
maður Neytendasamtakanna.
Sagði hann, að þeirra mati
væri engin glóra í þessum
aðgerðum. Þarna væri um
grófa neyslustýringu að
ræða. Verið væri að hækka
verð á vöru sem full ástæða
væri til að auka neyslu á s. s.
grænmeti, ávöxtum og
brauði, en á móti væri verið
að greiða niður óholla fitu
eins og smjörið er.
„Þetta er ekki I neinu sam-
ræmi við þá manneldisstefnu
sem mótuð hefur verið hér á
landi, henni er algjörlega ýtt
til hliðar. Þarna er að okkur
sýnist fyrst og fremst verið
að koma út kindakjötinu."
BHnMBMBBBBBBMS
□ 1 2 3 r 4
5 □ V
6 □ 7
§~~ 9
10 n 11
□ 12
13 u
Krossgátan
Lárétt: 1 vont, 5 borðir, 6 kropp, 7
samt, 8 atorku, 10 umstand, 11
reiðihljóð, 12 útlimi, 13 gjöld.
Lóðrétt: 1 stagl, 2 hvíli, 3 kind, 4
binda, 5 duga, 7 garnir, 9 niska,
12 sýl.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 grobb, 5 frek, 6 leg, 7 el,
8einnig, 10 nn, 11 agi, 12burð, 14
afæta.
Lóðrétt: 1 grein, 2 regn, 3 ok, 4
bólgið, 7 eigra, 9 naut, 12 bæ.
6engið
Gengisskráning 30. desember 1987
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 35,810 35,930
Sterlingspund 66,535 66,758
Kanadadollar 27,446 27,538
Dönsk króna 5,8124 5,8318
Norsk króna 5,7081 5,7273
Sænsk króna 6,1292 6,1498
Finnskt mark 8,9952 9,0254
Franskur franki 6,6235 6,6457
Belgiskur franki 1,0708 1,0744
Svissn. franki 27,7006 27,7935
Holl. gyllini 19,9277 19,9944
Vesturþýskt mark 22,4163 22,4914
ítölsk tira 0,03040 0,03050
Austurr. sch. 3,1838 3,1945
Portúg. escudo 0,2724 0,2733
Spanskur peseti 0,3289 0,3300
Japanskt yen 0,28984 0,29081
• Ljósvakapunktar
•RUV
20.35 Stiklur Ómars
Ragnarssonar. í þessum
þætti er stiklað austur frá
Hafnarfirði í átt að Reykja-
nesfjallgarðinum.
• Stöí 2
20.25 „Nú er hún Snorrabúð
stekkur... Þáttur um Þing-
velli i umsjón Péturs Gunn-
arssonar og i dagskrárgerð
Hilmars Oddssonar.
• Rás 1
18.03 Torgið — Þáttur um
efnahagsmál í umsjón Þor-
láks Helgasonar.
• Rás 2
19.30 íþróttarásin i umsjón
Arnars Björnssonar.