Alþýðublaðið - 04.02.1988, Síða 1
Samninga viðrœður
VSÍ ÞVERTEKUR FYRIR
SKAMMTÍMASAMNING
„Það er alfarið búið að
ræða skammtimasamning,
— eyða þeirri óvissu" sagði
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands i
samtali við Alþýðublaðið eftir
að slitnaði upp úr viðræðum
vinnuveitenda og Verka-
mannasambandsins í gær.
„Þetta er búið í bili og eng-
inn veit um framhaldið,“
sagði Karvel Pálmason, vara-
formaður Verkamannasam-
bandsins. í dag veröur tekin
afstaða tii þess hvort haldið
verði áfram á vettvangi Verka-
mannasambandsins.
Á fundi samningsaðila í
fyrradag lagði Verkmanna-
sambandið fram tillögur um
viðræðugrundvöll. Höfundur
tillagnanna er Karvel Pálma-
son: „Ég taldi þessar tillögur
á skikkanlegum nótum með
9% hækkun,sérstökum
greiðslum til þeirra sem eru á
lægstu launum og starfsald-
urshækkunum. Þeir svöruðu
því með því að bjóða 5% og
samning fram í miðjan júní
og miklu minni starfsaldurs-
hækkunum en áður.“
„Við erum búnir að hafna
frestun á samningi. Þeirra
hugmynd var nánast um
frestun í 88 daga og verðlist-
inn hljóðaði upp á 20% til
fiskvinnslufólks. Við metum
svo að Verkamannasamband-
ið hafi nálgast okkur af fullu
ábyrgðarleysi og óraunsæi,"
sagði Þórarinn V. Þórarins-
son.
Kvarvel vísar þessum full-
yrðingum Þórarins á bug.
„Þessi 20% sem þeir eru að
tala um, er starfsaldurshækk
un í fiski eftir 15 ára starf,
sem er hækkun sem flestar
aðrar stéttir hafa.“
„Boltinn liggur hjá Verka-
mannasambandinu," sagði
Þórarinn. „Við lýstum okkur
reiðubúna á nótum Vest-
fjarðasamningsins, en þeir
hafa hafnað."
Erfiðleikar frystihúsanna:
BÚIST VIÐ
ONGÞVEITI
HJÁ BYGGÐASTOFNUN
Fjöldi frystihúsa fylgir í kjölfar Hraðfrystihúss Patreksfjarðar.
„Það hefur verið erilsamt
hjá okkur en lítið borist af
greinargerðum," sagði Bjarni
Einarsson aðstoðarforstjóri
Byggðastofnunar í samtali
við Alþýðublaðið í gær.
Stjórn Byggðastofnunar tók á
þriðjudag ákvörðun um fyrir-
greiðslu til handa Hraðfrysti-
húsi Patreksfjarðar og er
reiknað með að heil skriða
fyrirtækja fylgi nú á eftir með
óskir um úrlausnir sinna
vandamála.
Á heildina litið hefur að
sögn Bjarna litið borið á van-
skilum hjá Byggöastofnun og
er helsta skýring sú að hagur
útgerðar, sem er aðalskuldari
stofnunarinnar, hefurverið
með ágætum síðustu
misseri. Eins hefur ýmislegt
verið gert hjá Byggöastofnun
upp á síðkastið til þess að
lengja lán og létta greiðslu-
byrði.
Vandamálin eru því fyrst
og fremst bundin við frysti-
húsin, sem að sögn Bjarna
eiga nú erindi við Byggða-
stofnun til þess að gera grein
fyrir sínum vandamálum.
Vanskil hafa hins vegar ekki
orðið veruleg ennþá, þvi
stærstur hluti lánanna er
ekki á gjalddaga fyrr en í
ágúst í sumar.
Ekki er búist við að
Byggðastofnun berist form-
lega erindi um fyrirgreiðslur
fyrr en ársskýrslur fyrirtækj-
anna liggja fyrir.
Það erskautasvell i Hafnrfiröi eins og viða annars staðarog bömin virð-
ast una vel við það. Eitthvað virðist drengurinn fremst á myndinni þó
vera súr á svip, kannski ástæðan sé sú að hann klæðist stígvélum i stað
skauta. A-mynd/Róbert.
MYNDIN
MÁ EKKI
TAKA ENDA
ÞRENGT AÐ
ÖLDRUNAR-
ÞJÓNUSTU?