Alþýðublaðið - 05.02.1988, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 05.02.1988, Qupperneq 3
Föstudagur 5. febrúar 1988 3 FRETTIR Friðrik Ólafsson segir aö bjart- sýni ríki hjá íslendingunum i St. • John. Friðrik Olafsson: KORTSNOJ BEITIR BRÖGÐUM DUGI SKÁKGETAN EKKI Friörik Ólafsson segir aö íslendingarnir i St. John séu bjartsýnir fyrir siðustu skák- ina í einvigi þeirra Jóhanns Hjartarsonar og Viktors Kortsnojs og að Gligoric yfir- dómari hafi verið hræddur við að taka á kærunni vegna framkomu Kortsnojs. Lífs- skoðun Kortsnoja virðist vera sú að ef skákgetan dugar ekki, eigi að beita öðrum brögðum. Sagði Friðrik að þeir væru bjartsýnir og andinn góður fyrir síðustu skákina. „Það þýðir ekkert að leggjast í sút, það er engin ástæða til þess. Þetta er allt að vakna eftir áföllin í 5. og 6. skákinni. Þau voru fyrst og fremst út af truflunum sem Jóhann varð fyrir og ekki var hægt að stöðva f tæka tíð.“ — Var Gligoric yfirdómari tregur til að taka á málinu þegar þið kærðuð framkomu Kortsnojs? „Já, hann var dálitið hræddur við að taka á hon- um, það er líka svolítið erfitt að takmarka göngufrelsi manna.“ Sagði Friðrik að eftir að bannað hafði verið að ganga um á sviðinu, hafi aðeins borið á gönguferðum Kortsnojs beint fyrir framan sviðið, en hann vissi ekki til að það hafi verið truflandi. „Það er sennilega hans lífsskoðun að ef skákgeta dugar ekki, þá verður að finna einhver önnur ráð, þv( miður. Það er leiðinlegt og ódrengilegt." Sagði Friðrik að skipulagning á þessum einvígum hafi verið ágæt frá mótshaldaranna hálfu. í skákinni í kvöld hefur Kortsnoj hvítt og aö sögn Friðriks má búast við að Kortsnoj tefli af miklum krafti og þó Jóhann stýri svörtu mönnunum, „er þetta allt spurning um hvernig hlutirnir ganga upp“. HALLDOR RÆÐIR ENN UIH HVALI Halldór Asgrímsson sjavar- útvegsráðherra þarf enn að beina kröftum sínum i við- ræður um hvali eða ekki hvali. Ráðherrann hefur þegið boð bandariskra stjórnvalda um viðræður í Washington dagana 8.-9. febrúar n. k. um starfshætti visindanefnd- ar Alþjóðahvalveiðiráðsins. Hann mun hitta C. William Verity jr. viðskiptaráöherra Bandaríkjanna að máli 8. febrúar. HAFNFIRDINGAR Á BEINNI BRAUT Hafnfirðingar mega glaðir nú við una, bæjarfélag þeirra virðist ætla að koma út með hagstæða fjárhagsáætlun, þannig að fyrirhugaðar fram- kvæmdir leggjast ekki niður eins og í sumum öðrum sveitarfélögum. Einnig er bærinn sivaxandi og að sögn Tryggva Harðarssonar, bæjar- fulltrúa í Hafnarfirði, með einna mestu ibúaaukningu var Hafnafjörður á höfuð- borgarsvæðinu, í fyrra. Um þessar mundir er unn- ið aö fjárhagsáætlun í Hafnarfirði og að sögn Tryggva Harðarsonar. bæjar- fulltrúa er hún nokkuð hag- stæð. „Menn hafa reynt aö hrópa (sað upp að við séum með háar álögur, en þegar dæmið er skoðað kemur í Ijós að við erum þriðji lægsti bær í landinu hvað þetta varðar. Reyndar hækka nokk- uð vatnsskattur, holræsa- og fasteignagjöld en útsvarspró- sentan er miklu lægri en áður,“ sagði Tryggvi. Sagði hann ennfremur að hlutfall á milli reksturs og fram- kvæmda yrði mun hagstæð- ara þetta ár en búsit væri við í öðrum sveitarfélögum. Bærinn sagði Tryggvi vera vaxandi, og að mikil ásókn væri I lóöir, bæði undir fisk- verkunar- og íbúðahús. „Ég held að það hafi fjölgað mest í Hafnarfirði á síóasta ári, hér á höfuðborgarsvæðinu, enda er af nógu að taka, við eigum nóg land." Ráðhúsið: KOSTNAÐARAÆTLUN Á HULDU Frá þvi i október á síðasta ári hefur Bjarni P. Magnús- son, fulltrúi Alþýðuflokks í minnihluta borgarstjórnar, óskaö eftir því við meirihlut- ann aö lögð verði fram kostn- aðaráætlun vegna fyrirhug- aðrar byggingar ráðhúss. Meirihlutinn gaf loforð um að áætlunin yrði lögð fram um mánaðamótin janúar — febr- úar en stóð, þegar til þess kom, ekki við það. Bjarni P. Magnússon telur áætlaðan kostnað mun lægri en hann yrði i raun og segir það á ábyrgö meirihlutans að minnihlutinn skuli ekki hafa séð kostnaðaráætlunina þeg- ar atkvæði um fjárhagsáætl- un borgarinnar verða greidd. Bjarni P. Magnússon hefur nú í þrígang óskað eftir þvi, í bókun, að fá ítarlega kostn- aðaráætlun vegna ráöhúss- ins, sundurliðaða eftir verk- þáttum. „Okkur var lofað að hún kæmi í síðasta lagi nú um mánaðamótin, en hún hefur ekki sést enn“ sagði Bjarni í samtali við Alþýðu- FERDASKRIFSTOFA RÍKISINS SELD STARFSFÓLKI Frumvarp um sölu á Ferða- skrifstofu ríkisins er nú til meðferðar hjá þingflokkum stjórnarflokkanna. í þvi er gert ráð fyrir að starfsfólki fyrirtækisins verði boðinn forkaupsréttur. Kjartan Lárus- son forstjóri Ferðaskrifstof- unnar telur að of snemmt sé að ræða þetta áður en Ijóst sé hvort af sölu verður, en sé þetta það sem koma skal beri að lita jákvæðum augum á það. Starfsfólk hafi ekki rætt þetta formlega, en hann hélt að áhugi væri hjá því að kanna þá möguleika sem byðust. Kveðið er á um i starfs- áætlun rikisstjórnarinnar, að rikisfyrirtæki og hlutafé rikis- ins í fyrirtækjum sem stunda atvinnurekstur verði boðin almenningi til kaups, þar sem henta þykir. Matthías Á. Matthíesen samgöngumála- ráðherra skipaði nefnd I sept. sl. til að gera tillögur og ann- ast framkvæmd tiltekinna þátta varðandi þau fyrirtæki og stofnanir sem heyra undir samgönguráðuneytið. Samdi nefndin frumvarp um breytingar á lögum um skipulag ferðamála. Er gert ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fram fljótlega. I greinar- gerð sem fylgir frumvarpinu segir m.a. „að veigamikill hluti af upphaflegu hlutverk Ferðaskrifstofu ríkisins hafi verið faliö öörum aðila, auk þess sem flugfélögin og ferðaskrifstofur ástunda um- fangsmikla landkynningu. Ekki er heldur nein sjáanleg þröf á því, að ríkið haldi uppi rekstri, þar sem blómlegur atvinnurekstur hefur risið upp, sem er einfær um að veita þjónustu á þessu sviði.“ Þá er þess getið að áður en af sölu verði skuli fram- kvæmt mat á eignum, þ.m.t. viöskiptaviId, geti hún talist erlent heiti fyrirtækisins, en hinu íslenska verði breytt. Gert er ráð fyrir að starfs- fólk Ferðaskrifstofu ríkisins eigi forkaupsrétt að fyrirtæk- inu i 6 mánuði frá gildistöku laganna. „Það er langt frá því að Alþingi sé búið að samþykkja söluna, þannig að það er ekki tímabært að ræða þetta,“ sagði Kjartan Lárusson for- stjóri Ferðaskrifstofu ríkisins i samtali við Alþýðublaðið. Engin launung væri á að eðli- legt væri að bæði rikisfyrir- tæki og einkafyrirtæki færu í gegnum einhverja þróun með vissu millibili, og ef þetta væri það sem koma skal væri ekki ástæða til annars en að lita á það jákvæðum augum. Sagði Kjartan að sér þætti það vel til fundið að starfs- fólki væri gefinn forkaups- réttur, hins vegar væri ekki hægt að segja neitt á þessari stundu um það á hvaða nót- um yrði samið, en hann von- aðist til að samkomulag næðist. Starfsfólkið hafi ekki séö ástæöu til að koma sam- an og ræða þetta á meðan Alþingi hafi ekki samþykkt frumvarpið og ekki sé vitað til að verð liggi fyrir. „Það yrði okkar fyrsta verk eftir að við förum að ræða saman i okkar hópi að ræða við húsráðendur Eddu-hótel- anna.“ Taldi Kjartan að áhugi væri meðal starfsfólks að athuga þá möguleika sem bjóðast. Það væri flest búið að vinna hjá fyrirtækinu í allmörg ár og hafi sannað getu sína. blaðið í gær. „Ég hef það á tilfinningunni að kostnaður- inn eigi eftir að hækka veru- lega frá því sem áætlunin segir til um og fra því sem ætlað er í fjárhagsáætlun. Fjárhagsáætlunartölurnar eru að því leytinu ómarktækar og ég tel það á ábyrgð meirihlut- ans að gefa okkur ekki upp hina réttu tölu.“ Sagði Bjarni ennfremur að vitað hefði ver- ið hver tilkostnaðarupphæðin var í fyrsta áfanga byggingar- innar en að minnihlutinn hafi ekki fengið þá vitneskju i té. Sagði Bjarni ábyrgðina vera hjá meirihlutanum ef minni- hluti borgarstjórnar sér ekki þessa áætlun áður en um- ræður vegna fjárhagsáætlun- ar hefjast. Þær tölur sem hafa verið sýndar er að ráðhúsbygging- in muni kosta 500 milljónir og bílageymslur, þrír kjallarar niður, 250 milljónir. Nú hefur Kjonurunum verið fækkað um einn þannig að heildarkostn- aöur er áaetlaður 600—650 milljónir. Á þessu ári hyggst meirihluti borgarstjórnar verja 340—400 milljónum í bygginguna. „Það er vitað mál að þetta er einungis byrj- unin,“ sagöi Bjarni. „Þegar hafa komið fram yfirlýsingar um að haldið verði áfram á fullum hraða, enda er svæðið umhverfis tjörnina það við- kvæmt. En ég hef það á til- finningunni að kostnaður þessi sé á hraðri uppleið og að þegar allt verður búið, á þeim ógnarhraða sem fram- kvæmdir eiga að taka, sitjum við eftir í skuldasúpu."

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.