Alþýðublaðið - 05.02.1988, Qupperneq 7
Föstudagur 5. febrúar 1988
7
UTLOND
Umsjón:
Ingibjörg
Árnadóttir
Eitt ár er liðið síðan hann hvarf
HVAR ER TERRY WAITE?
Kannski aö sá möguieiki
sé fyrir hendi, aö Waite yrði
sleppt úr haldi þegar Ronald
Reagan er ekki lengur forseti
Bandaríkjanna. Þaö viröist
nefnilega að ein skýringin á
mannránum sé sjúklegt hatur
á vestrænum leiötogum og
aö ekkert gleöji mannræn-
ingjana meira en aö leiötogar
eins og Thatcher og Reagan
séu auðmýkt í ráðaleysi sinu.
Sorgleg ársminning
Þann 20. janúar var ná- •
kvæmlega eitt ár, frá hvarfi
Terry Waite og ekkert öruggt
lífsmark hefur komið frá hon-
um. Waite er þekktastur af
þeim 30 gíslum sem eru í
haldi i Libanon.
Hann er sendifulltrúi erki-
biskupsins af Canterbury og
fórtil Beirut í þeim tilgangi
að semja um lausn annarra
gísla. Honum hafði tekist það
áður og var vongóður um, að
honum tækist að ná árangri.
Þann 20. janúar 1987 var
honum ekið til sjúkrahúss
Adnan Mroues læknis, sem
átti að vera milligöngumaður
í viðræðunum vegna þess að
hann var kunnugur trúarleiö-
toga Hizballah (flokks guðs).
Læknirinn þurfti að sinna
beiðni um áriðandi sjúkra-
heimsókn og þurfti því að
yfirgefa Waite um stund.
Þrátt fyrir að hann hefði verið
aðvaraður gegn því, yfirgaf
Waite sjúkrahúsið.
Hvað skeöi eftir það veit
enginn með vissu. það eina
sem vitað er, er það að þegar
Terry Waite kom ekki til baka
á hótel Riviera þar sem hann
hafði sínar bækistöðvar, var
farið að grennslast fyrir um
hann. Þegar hann ekki
hringdi í konu sina, sem
hann gerði á hverjum degi,
var farið að óttast um örlög
hans. Mönnum fannst ótrú-
legt að maðurinn, sem virtist
njóta trausts hinna ýmsu
öfgahópa í Libanon hefði
sjálfur orðið fórnarlamb
mannræningjanna.
Orðrómur
Ekki hefur tekist að fá
staðfestan orðróm um að
þetta eða hitt hafi komið fyrir
hann, t. d. að hann hafi særst
þegar honum var rænt, að
hann hafi verið sendur með
bílalest í áttina að Bekaa-
dalnum. Orðrómur hefur
gengið um að hann búi við
niðurlægjandi fangavist. Enn-
fremur er sterkur orðrómur
um, að hann hafi verið dreg-
inn fyrir dómstól og dæmdur
til dauða fyrir njósnir.
Ekki vantar heldur orðróm
um að Waite hafi það ágætt
og að mannræningjarnir fari
vel með hann að öllu leyti en
að hann sakni mannlegra
samskipta. Ekkert af þessu
hefur fengist staðfest.
Sir David Roberts, sem var
sendiherra Bretlands í
Hvarf Terry Waiteer rakið til mann-
ræningjanna sem hann stóð í
samningum við i Beirút.
Þeir hafa alltaf meðhöndlað mig með virðingu. Hafi þeir lofað ein-
hverju, þá standa þeir við það, sagði Terry Waite skömmu áður en
honum var rœnt fyrir ári síðan. — Hvorki Terry Waite eða nokkr-
um öðrum gíslum verður sleppt úr haldi meðan Ronald Reagan er
forseti Bandaríkjanna. Þetta eru orð Múhammed Fadlallah sheiks,
andlegs leiðtoga islamskra strangtrúaðra í Líbanon.
Libanon til ársins 1983, gefur
þessa, ekki svo ótrúlega
skýringu um hvarf Waite:
„Terry Waite hefur orðið eins-
konar fórnarlamb þeirrar at-
hygli sem beindist að honum
um allan heim. Takmark allra
mannræningja er, að athygli
beinist að þeim og þeirra
málstað. Augum alheimsins
var beint að Beirut vegna
Terry Waite og því ekki ótrú-
legt að mannræningjarnir
hugsuðu sem svo — Nú hvila
augu alheimsins á okkur, svo
nú skulum við sýna þeim í
tvo heimana. — Þekktur og
virtur maður eins og Terry
Waite er freisting fyrir mann-
ræningja."
Það er álit margra frétta-
skýrenda að ofstækisfullum
Shiamuslimum sé það keppi-
kefli að vestrænir leiðtogar
séu auðmýktirog ráðalausir.
Þetta hlýtur að vera mar-
tröð fyrir Reagan forseta og
kaldhæðni örlaganna, að eitt
af því sem kom honum í
Hvíta húsið var einmitt ráða-
leysi og auðmýking Carter
forseta í sambandi við gísla-
harmleikinn i Teheran. Það
hefur berlega komið í Ijós að
forsetarnir tveir stóðuiupp jafn
ráðalausir og jafn auðmýktir.
Það hlýtur að hlakka í öfga-
hópunum i Libanon. Og ekki
batnar útlitið fyrir Reagan,
þegar Sheikinn Fadlallah
segir nú: „Það er ætlun
þeirra sem hafa Waite í haldi,
að auðmýkja Reagan jafn
mikið og Jimmy Carter var
auðmýktur.“
Níu líf
Meðan áöllu þessu geng-
ur, bíður eiginkona Terry
Waite og fjögur börn þeirra
eftir einhverju lífsmarki frá
honum, ekki aðeins þau,
heldur allur heimurinn.
Það er erfitt að trúa því að
þessi 48 ára gamli, skeggjaði
hugprúði maður hafi verið
drepinn. Þessi góði maður
sem hefur „verið rekinn
áfram af trú og samúö með
meðbræðrum sínum“, eins og
sagt hefur verið um hann.
Hann er sonur lögreglu-
þjóns í sveitaþorpi. Terry
Waite byrjaði að starfa sem
leikmaður við ensku biskupa-
kirkjuna eftir að hafa tekið
gráðu i guðfræði.
Fyrsta verkefni hans utan
Bretlands var sem ráðgjafi
erkibiskupsins af Uganda,
Ruanda og Burundi, árið
1968. Ráðningatími Waite var
á sama tíma og harðræðis-
stjórn Idi Amin var við vöid í
Uganda. Waite og eiginkona
hans, sem var barnshafandi
— á áttunda mánuði, var um
tíma haldið í gíslingu af her-
mönnum Idi Amin.
Fljótlega eftir að ríkis-
stjórn Khomeini tók við völd-
um í Iran, komst Terry Waite
fyrst i kynni við gíslatöku-
vandamálið. Þá kom hann því
til leiðar að þrír Bretar voru
látnir lausir, en byltingarverð-
ir í Iran höfðu hneppt þá í
varðhald. Honum tókst einnig
að fá fjóra Breta látna lausa
úr gíslingu f Libyu eftir að
hafa setið á fundi með Gadd-
afi i bedúinatjaldi hans. Bret-
arnir voru sendir heim og
voru í góðu formi.
Þessi stóri maður birtist í
Osló árið 1984, hann var þá í
fylgd með Tutu biskupi sem
fékk friðarverðlaun Nobels
árið 1984. Hann kom sem
einskonar verndari eða líf-
vöröur Tutu. Árið 1986 tókst
honum að fá lausa úr gisl-
ingu fjóra menn í Beirut.
Nú er það hann sjálfur
sem heimurinn bíður eftir að
verði látinn laus úr gíslingu.
(Arbeiderbiadet.)