Alþýðublaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 8
MMBWBIIÐIB
Föstudagur 5. febrúar 1988
Fjárhagsáœtlun Reykjavíkurborgar
HORFT FRAM HJA BRYNUM
FÉLAGSLEGUM VERKEFNUM
1500 milljónir í ráðhús og veitingahús í Öskjuhlíð. Fyrir 800 milljónir vœri hœgt að tœma
alla biðlista eftir dagvistun barna, segir Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi
A Iþýðuflokksins.
I gærkvöldi lagði stjórnar-
andstaðan i Reykjavik fram
sína eigin fjárhagsáætlun.
Stjórnarandstaðan setti sig á
móti ýmsum atriðum áætl-
unar Ihaldsins. Reis þar
hæst sú ákvörðun meirihlut-
ans að verja 1.500 milljónum
i byggingu ráðhúss og veit-
ingahúss á Öskuhlíöartönk-
unum, á næstu þremur árum.
„Fyrir þessa upphæð væri
hægt að leysa flest þau
vandamáf sem blasa við, s.s.
dagvistun barna, sagði Bjarni
P. Magnússon fulltrúi Al-
þýðuflokks í borgarstjórn, er
Alþýðublaðið ræddi við hann
í gær.
Fjárhagsáætlun þessa árs
er sú umfangsmesta í sögu
borgarinnar. Velta borgar-
sjóös, er 7.700 milljónir og
fyrirtæki borgarinnar, raf-
magnsveita, hitaveita og
vatnsveita velta svo til jafn
miklu. Hér er því um að ræða
15 milljarða, eða um 200 þús-
und á hvern Reykviking.
Langstærsti hlutinn fer í
rekstur fyrirtækja en þegar
það er frádregið eru um 2000
milljónir eftir. Sú upphæð
mun ætluð í rekstur skóla,
sjúkrahúsa, dagvistunar-
heimila og þess háttar.
Borgarstjórn hefur löngum
greint á um hvernig nota beri
þessa peninga og í gær lagði
stjórnarandstaðan farm álykt-
unartillögu, þar sem farið var
m.a. fram á að á þessu ári
yrðu fengnir sérfræðingar í
hagræðismálum til þess að
gera heildarúttekt á rekstri
Reykjavíkurborgar. Stjórnar-
andstaðan mótmælti enn
fremur lántökum er meirihlut-
inn hyggst nota til byggingu
bílageymslu í ráðhúsinu. „Við
í minnuhlutanum erum ekki á
móti lántökum, ef þær á að
nota í verkefni sem eru brýn.
En við erum á móti því að
fara að taka 167 milljón króna
lán til byggingu bílageymslu
á meðan að tekjur borgarinn-
ar hafa aukist um 500 millj-
ónir sagði Bjarni P. Magnús-
son.
Hluti af þeim 2000 milljón-
Bjarni P. Magnússon.
um sem eftir verða til ráð-
stöfunar hyggst meirihlutinn
nota til byggingar ráðhúss og
veitingastaðar í Öskjuhlíð.
Minnihlutinn hefur hins vegar
lagt áherslu á að betur færi
að nota þessa peninga til að
tæma biðlista sem eru eftir
ýmissi þjónustu, dagvistun
barna, þjónustuíbúðum aldr-
aðra og svipaðra verkefna.
Fyrirhugað er að 124,5 millj-
ónir fari í Öskjuhlíðina á
þessu ári og 340—400 millj-
ónir í ráðhús.
„Hér er um að ræða að
minnsta kosti 1.500 milljónir
króna. Væri ekki betur að
þessu fjármagni yrði varið í
eitthvað annað en gæluverk-
efni borgarstjóra á næstu
þremur árum“ sagði Bjanri.
Tók hann m.a. dæmi, að fyrir
800 milljónir væri hægt að
tæma alla biðlista eftir dag-
vistun barna, fyrir 350 millj-
ónir væri hægt að klára
Borgarspitalann og fyrir af-
ganginn væri síðan hægt að
byggja allan fjöldan af þjón-
ustuíbúðum og hjúkrunar-
heimilum. „Það er einn mað-
ur á biðlista eftir þessum
tveimur húsum og það er
borgarstjórinn. En á biðlist-
um eftir þjónustu hjá dagvist-
un og þjonustuíbúðum aldr-
aðra eru mörg hundruð,"
sagði Bjarni.
ÞÚSUND
Félagsstofnun stúdenta:
M M
I STAÐ MILUONA
Borgin hefur alltaf stutt við bakið á stúdentum þar til núna, segir
Bjarni P. Magnússon, þetta á auðsjáanlega allt að fara í hringleika-
og ráðhús.
Undanfarin ár hefur borgar-
stjórn Reykjavíkur stutt við
bakið á stúdentum, þegar
þeir hafa veriö að byggja yfir
sig húsnæði. í fjárhagsáætl-
un fyrir árið 1988 er hins veg-
ar ekki gert ráð fyrir hærri
fjárveitingu en 500 þúsund til
Félagsstofunar stúdenta
vegna byggingar Hjónagarða.
Bjarni P. *Magnússon, full-
trúi Alþýðuflokks í minni-
hluta borgarstjórnar sagði í
samtali við Alþýðublaðið i
gær að fyrri borgarstjórnir
hefðu alltaf stutt við bakið á
stúdentum þegar þeir hefðu
verið að byggja Gamla garð,
Nýja garö og nú Hjónagaröa.
Nú hefði Félagsstofnun stúd-
enta sent inn beiðni um styrk
til að geta lokið byggingu á
þeim áfanga Hjónagarða,
sem þörf væri á að Ijúka og
ekki fengið nema 500 þúsund
krónur. Nokkrir fulltrúar
minnihlutans lögðu hins veg-
ar fram tillögu þar sem upp-
hæðin nam fimm milljónum
króna.
„Reykjavík er háskólaborg
og dregur til sín fjölda stúd-
enta á hverju ári. Fyrirtæki
og borgin sjálf hafa af þessu
miklar tekjur og borgin hefur
alltaf stutt stúdentana,“
sagði Bjarni. „Það er bara
undir forystu Davíðs Odds-
sonar sem farið er að sveigja
af leið. Þessir peningar eiga
auðsjáanlega allir að fara í
ráðhús og hringleikahús"
sagði Bjarni að lokum.
EIN MILLJÓN TIL
HVÍTASUNNUMANNA
700 þús. til SÁÁ
SÁÁ fær, á þessu ári, 700
þúsund króna styrk úr
borgarsjóði en Hvitasunnu-
söfnuðurinn fær 1 milljón.
SÁÁ sendi upphaflega inn
beiðni um fimm milljón
króna styrk en aö sögn
Bjarna P. Magnússonar, full-
trúa Alþýðuflokks í minni-
hluta borgarstjórnar sá meiri-
hlutinn frekar ástæðu til
þess að styrkja Hvítasunnu-
söfnuðinn um eina milljón og
þá SÁÁ um aðeins 700 þús-
und.
Bjarni P. Magnússon, full-
trúi Alþýðuflokks í minni-
hluta borgarstjórnar flutti
ályktun, 6. október sl. þess
efnis að veita SÁÁ fimm
milljón króna styrk, í tilefni af
tíu ára afmæli samtakanna.
Forsendur tillögurnnar voru
m.a. þær að félagið ætti við
erfiðleika að stríða vegna
byggingarframkvæmda og að
brýnt væri að létta þessum
skuldum af þeim. „Meirihlut-
inn hafnaði þessari tillögu
Bjarna og þar með beiðni fé-
lagsins og ákveður að það fái
700 þúsund krónur og Hvíta-
sunnusöfnuður 1 milljón.
□ 1 2 3 r 4
5 □
6 □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12
13 □ □
• Krossgátan
Lárétt: 1 gangur, 5 íþrótt, 6 léreft,
7 hvaö, 8 ella, 10 átt, 11 lausung,
12 hnifa, 13 hrella.
Lóörétt: 1 stara, 2 hljóp, 3 klafi, 4
krota, 5 fljót, 7 hrina, 9 sýll, 12
þyngdareining.
Lausn á siðustu krossgátu
Lárétt: 1 menja, 5 keim, 6 úir, 7
og, 8 þratti, 10 ei, 11 árs, 12 hrat,
13 nægir.
Lóðrétt: 1 meiri, 2 eira, 3 nm, 4
angist, 5 kúbein, 7otrar, 8 tári, 12
hg.
• 6engið
Gengisskráning 23. — 4. febrúar 1988
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 37,170 37,290
Sterlingspund 65,389 65,601
Kanadadollar 29,246 29,340
Dónsk króna 5,7383 5,7569
Norsk króna 5,8019 5,8207
Sænsk Króna 6,1286 6,1484
Finnskt mark 9,0460 9,0752
Franskur franki 6,4954 6,5164
Belgiskur franki 1,0448 1,0482
Svissn. franki 26,82779 26,9145
Holl. gyllini 19,5133 19,5763
Vesturþýskt mark 21,9195 21,9903
ítölsk líra 0,02977 0,02987
Austurr. sch. 3,1183 3,1284
Portúg. escudo 0,2683 0,2691
Spanskur peseti 0,3257 0,3268
Japanskt yen 0,28842 0,28935
• Ljósvakapunktar
• RUV 20.35 Helgi E. Helgason • Rás 1 13.35 „Fyrsta ballið hennar", smásaga eftir Kathrine
stjórnar Þingsjá. Mansf ield. Anna Maria Þóris-
• sm 2 dóttir þýddi. Sigríður Péturs- dóttir les.
22.10 Englaryk. Kvikmynd • Rás 2
sem segir frá eiturlyfja- 22.07 Snorri Már Skúlason
vandamálinu. fær sér snúning.