Alþýðublaðið - 11.02.1988, Side 1
GJALDSKRÁR ÁKVARÐANIR HAFNA
í HÖNDUM SVEITAR- OG SÝSLUFÉLAGA
Gjaldskrárákvarðanir hafna
munu verða í framtiðinni í
höndum eigenda þeirra, þ.e.
sveitar- og sýslufélaga, ef
nýtt frumvarp til laga um
breytingu á hafnarlögum nær
fram að ganga. Frumvarpið
sem nú er i skoðun hjá þing-
flokkum stjórnarflokkanna,
verður lagt fram af sam-
gönguráðherra, Matthíasi Á.
Mathiesen.
Aðalefni frumvarpsins er
það, að lögfest verði að gjald-
skrárákvarðanir hafna skuli
verða í höna'um eigenda
þeirra, sveitar- og sýslufélaga
í framtíðinni.
í núverandi hafnarlögum er
— ef nýtt frumvarp samgöngumálaráðherra nœr fram að ganga
skýrt kveðið á um það að eig-
endur hafnanna séu sveitar-
og sýslufélög, annað hvort
ein sér eða sem sameigend-
ur. Rekstur hafnanna og við-
hald er því algjörlega í þeirra
höndum. Það sama gildir um
ákvarðanir um framkvæmdir
nema að því leyti sem ríkið
hefur áhrif á þær gegnum
fjárveitingar.
Frumvarp samgöngumála-
ráðherra um að gjaldskrár-
ákvarðanir skuli vera í hönd-
um eigenda hafnanna er til-
komið vegna frumvarps tii
laga um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga þar sem ým-
is verkefni eru færð til sveita-
félaganna.
Frumvarp samgöngumálaráðherra er tilkomið vegna nýrrar verkskiptingar rikis og sveitafélaga og gerir ráð fyr-
ir að sveitar- og sýslufélögin ákveði sjálf gjaldskrá hafnanna.
Stefán Valgeirsson: Steingrímur Hermannsson á að segja af sér vegna
yfirlýsinga sinna í vaxtamálum.
Stefán Valgeirsson:
UTANRIKISRADHERRA
ÆTTI AÐ SEGJA AF SÉR
Segist ekki œtla að segja sig úr bankaráði Búnaðarbankans, hins
vegar œtti Steingrímur Hermannsson að sýna siðferðisstyrk og
segja af sér vegna yfirlýsinga sinna.
Stefán Valgeirsson segir
aö það hvarfli ekki að sér að
segja sig úr bankaráði Bún-
aðarbankans, þrátt fyrir að
Steingrímur Hermannsson
segi hann sýna meö því sið-
ferðisstyrk. Segir Stefán að
Steingrimur ætti sjálfur að
sýna siðferðisstyrk og segja
sig úr ríkisstjórninni i kjölfar
yfirlýsinga um vaxtamálin og
fjármagnsmarkaðinn.
„Það hefur ekki hvarflaö að
mér að segja mig úr banka-
ráðinu, það er engin ástæða
til þess. Það þarf að meta
hvernig þetta gerðist allt
saman", sagir Stefán í sam-
tali við Alþýðublaðið. Stefán
sagði að þaö hafi ekki veriö
hann sem fór úr Framsóknar-
flokknum, heldur hafi honum
verið vísað úr flokknum með
því að neita honum um að
nota bókstafina BB þegar
stór hópur kjósenda í Norður-
landi—eystra skoraði á hann
að bjóða fram þrátt fyrir það
sem á undan hafði gengið.
„Ég held að utanríkisráð-
herra ætti að sýna þann sið-
ferðisstyrk að segja sig úr
ríkisstjórninni, miðað við þær
yfirlýsingar sem hann hefur
gefið." Sagðist Stefán eiga
þar við þær yfirlýsingar
Steingríms Hermannssonar
þegar hann lýsir stefnu ríkis-
stjórnarinnar í vaxtamálum
við það þegar Róm brann, og
að vaxtamálin og fjármagns-
markaðurinn væri óskapnað-
ur.
„Ber hann ekki ábyrgð á
því eins og aðrir sem sitja í
þessari ríkisstjórn? Hann
ætti að sýna þroska og sýna
í verki að hann meinti eitt-
hvað með þessum orðum,“
segirStefán Valgeirsson.
BUNAÐAR- MYNDBÖND
BANKINN ÍÆ\ ALA UPP
ÞÉNAR 16D 'OBC BÖRN
MILLJÓNIR 3 OPNA
FLUGDEILAN
í VR