Alþýðublaðið - 11.02.1988, Page 8
AUGLÝSINGAR nniYinniTiiiini AUGLÝSINGAR
SÍMI f\ I.MI fVII tll.fAtllfl SÍMI
681866 J-IJjJl Jl Jj U Jf JjÆ1JJ JLmj Fimmtudagur 11. febrúar 1988 681866
Flugdeilan í VR
HVAB SEGJA FELAGSMENN?
Luxemburska flugfélagiö, sem er aö mestu í
eigu luxemburska félagsins Luxer, Lion Air,
gerði BSRB tilboð nú fyrir skömmu um orlofs-
ferðir félagsmanna þeirra til Luxemborgar.
BSRB bauð Verslunarfélagi Reykjavíkur, VR,
þátttöku í þessu tilboði.
Tilboðið samanstendur af flugi fram og til
baka fyrir 7.000 krónur og síðan kost á bíla-
leigu bíl í þrjár vikur fyrir 15.000 krónur. Það er
því um að ræða 22.000 króna ferð fyrir ein-
stakling. Til samanburðar má geta þess að
Birgir Þorgilsson
ferðamálastjórí:
EKKERT
SEM BANNAR
LEIGUFLUG
ERLENDRA
AÐILA
„Mér finnst nú æskilegt að
samgöngur við ísland séu
sem mest í höndum íslend-
inganna sjálfra, en vitaskuld
þurfa menn að hafa sambæri-
legt verð miðað við aðra og
geta' staðið i samkeppni við
m.a. erlenda aðila“ sagði
Birgir Þorgilsson, ferðamála-
stjóri er Alþýðublaðið spurði
hann um væntanlegan samn-
ing flugfélagsins Lion Air og
félaga i VR og BSRB.
Birgir sagði jafnframt að
fara þyrfti ákaflega varlega i
hluti af þessu tagi þar sem
þetta gæti haft afdrifaríkar
afleiöingar fyrir samskipti ís-
lands viö umheiminn. „Ann-
ars vegar eru það hagsmunir
neytandans, sem hugsa þarf
um og hins vegar að íslensk
flugfélög þurfa að sinna
áætlunarflugi á þeim timum
ársins sem lítið er um að
vera og sú þjónusta er allri
þjóðinni ákaflega mikilvæg.
Það er hugsanlegt að erlend
samkeppni yfir háannatím-
ann gæti orðið til þess að
veikja íslensk flugfélög með
þeim afleiðingum að þau eigi
erfitt með að halda þessari
þjónustu á ársgrundvelli,
sem við landsmenn viljum
hafa. En hvort það sé rétt hjá
starfsmönnum Flugleiða, að
ganga úr VR, veit ég ekki,
það verður að vera mat hvers
starfsmannafélags á hverjum
tíma.
Birgir sagði að málið væri
til umfjöllunar hjá Ferðamála
flug fram og til baka til Húsavíkur kostar tæp-
ar 8.000 kr. Tilboð Lion Air er því nokkru lægra
en flugleiðin Reykjavík — Húsavík — Reykja-
vík.
Stjórn Starfsmannafélags Flugleiða lýsti því
síðan yfir á þriðjudag að ef VR gengi að þess-
um samningi væri það gróf aðför að hagsmun-
um þeirra rúmlega 500 félagsmanna sem
vinna hjá Flugleiðum. Starfsmenn Flugleiða
sjá því ekki ástæðu til þess að taka þátt í
áðurnefndu tilboði og hóta að segja sig úr VR.
Forsvarsmenn flug- og ferðaþjónustu og fé-
lagar í VR, sem Alþýðublaðið ræddi við í gær
hafði misjafnar skoðanir á þessu máii. Töldu
sumir aðgerðir Flugleiðamanna alveg réttar en
aðrir sögóu hér fljótfærnislega að staðið. Þeir
aðilar sögðu m.a. að þar sem starfsmenn
Flugleiða búi við þau hlunnindi að fá frí far-
gjöld, væri sniðið alvarlega að öllum öðrum
félagsmönnum í VR sem án þessara tilboða
kæmust kannski ekki erlendis.
ráði þessa dagana og niður-
stöðu yrði síðan skilað til
samgönguráðherra.
Hins vegar væri ekkert
sem bannaði erlendum aðil-
um að vera með leiguflug til
íslands, heldur ættu þeir í
rauninni rétt á því. „íslend-
ingar sjálfir vilja fá að fljúga
hvert sem er,“ sagði Birgir,
„og t.d. fara 90% þeirra er
fara til sólarlanda í leiguflugi
og það þykir öllum sjálfsagt.
Við fljúgum út um allt en
hingað fljúga nánast engin
erlend flugfélög. Það má því
segja að við njótum geysi-
legra flugréttinda út um öll
lönd án þess að útlendingar,
sem eiga i rauninni sama rétt
hér; hafi notfært sér það.“
Astæðu þess taldi Birgir
þó fyrst og fremst hata verið
áhugaleysi erlendra aðila á
íslandi en nú væri svo komið
að u.þ.b. 500 þúsund farþegar
ferðast á milli íslands og
annarra landa, og þess vegna
séu margir í flugheiminum
farnir að renna hýru auga til
þessa hóps. „Og við verðum,"
sagði Birgir, „að vera við því
búnir að veita útlendingum
þau réttindi sem við fáum hjá
þeim. Við höfum notið gifur-
legra flugréttinda i Luxem-
borg um áratuga skeiö en
þeir hafa aldrei reynt að not-
færa sér þau réttindi sem
þeir hafa hér, þangað til
núna,“ sagði Birgir Þorgils-
son ferðamálastjóri.
□ 1 .... 2“1 3 r 4
5 □
6 □ 7
8 9
10 □ 11
□ 12 V
13 □ □
Krossgátan
Lárétt: 1 deila, 5 sjóöa, 6 þæg, 7
til, 8 kúptur, 10 skóli, 11 spýja, 12
ans, 13 rennur.
Lódrétt: 1 deyfa, 2 fornsaga,
3 átt, 4 tómrar, 5 illmenni, 7 kján-
ar, 9 svikum, 12 eins.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 frómt, 5 kröm, 6 ris,
7 ám, 9 óskýra, 10 kk, 11 læt, 12
miða, 13 rýmri.
Lóðrétt: 1 frísk, 2 rösk, 3 óm,
4 tómata, 5 krókur, 7 áræði, 9 ýlir,
12 mm.
Hrafnhildur
Hansdóttir:
„FINNST
ÞETTA
ALVEG
FÁRÁNLEGT“
„Mér finnst þetta alveg fár-
ánlegt“ sagöi Hrafnhildur
Hansdóttir, yfirgjaldkeri hjá
Aimennum tryggingum, er
Alþýðublaðið spurði hana út
í yfirlýsingar Flugleiða-
manna. „Eg held aö þeirra
afstaða sé ekki rétt og að
þessi ákvörðun hafi verið tek-
in í fljótfærni.“ Stjórnin á
heldur ekki að geta tekið
ákvörðun sem þessa ein og
sér, og varla er búið að
leggja málið fyrir félagsfund
á svo stuttum tíma sem
þessum.“
„Vissulega er það rétt af
félögum eins og VR að bjóða
sínu fólki upp á ferðir sem
þessar. Það vilja náttúrlega
allir komast í frí, og allir vilja
ferðast ódýrt. En samt finnst
mér, að þeir séu í rauninni að
fara inn á svið sem er i raun-
inni ekki þeirra."
— Myndir þú nýta þér
þessar ferðir?
„Já, auðvitað myndi maður
Gengfö
Gengisskráning 26. — 9. febrúar 1988
Kaup Sala
Bandaríkjadollar 37,290 37,410
Sterlingspund 65,118 65.327
Kanadadollar 29,443 29,538
Dönsk króna 5,7294 5,7479
Norsk króna 5,8016 5,8203
Sænsk króna 6,1368 6,1565
Finnskt mark 9,0378 9,0669
Franskur franki 6,4875 6,5084
Belgiskur franki 1,0464 1,0498
Svissn. franki 26.7465 26,8326
Holl. gyllini 19,4985 19,5613
Vesturþýskt mark 21,8954 21,9658
ítölsk líra 0,02976 0,02986
Austurr. sch. 3,1165 3,1265
Portúg. escudo 0,2684 0,2692
Spanskur peseti 0,3273 0,3283
Japanskt yen 0,28851 0,28944
notfæra sér svona tilboð. Það
reyna allir að komast út og
fyrir mína parta skiptir það
ekki máli hvort flugfélagiö er
erlent eða innlent," sagði
Hrafnhildur Hansdóttir.
Sigurlaug
Guðmundsdóttir:
„SETJA
STÓLINN
FYRIR
DYRNAR“
„Mér finnst alveg sjálfsagt
að bjóða svona ferðiH sagði
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
starfsmaður hjá Rekstrar-
tækni hf. „Hvað Flugleiða-
fólk gerir kemur bara í Ijós.
Þeir fá hvort sem er ódýr far-
gjöld á sínum vinnustað og
þeir eru þvi í rauninni að
setja öðrum félögum innan
VR stólinn fyrir dyrnar, með
að komast erlendis."
— Finnst þér að félög
eins og VR eigi að bjóða fé-
lagsmönnum sínum ferðir
eins og þessar?
„Já, mér finnst það alveg
sjálfsagt, þeir gera hvort sem
er ekki svo mikið fyrir slna
félagsmenn. Maður les það
m.a. i blöðum að skrifstofu-
fólk njóti minnst launaskriðs
miðað við t.d. fiskverkunar-
fólk. Þannig að það er alveg
sjálfsagt að VR bjóöi starfs-
mönnum sínum einhver
hlunnindi.”
— Myndir þú nýta þér
ferðir sem þessar?
„Ég myndi ekki hika við
það ef ég ætlaði erlendis á
annað borð, enda sé. ég ekki
ástæðu til annars. Enda eru
ferðaskrifstofurnar búnar að
skapa sér þetta sjálfar t.d.
með þvl að setja 5% álagn-
ingu á notkun greiðslukorta.
Með álagningu sem þessari
eru ferðaskrifstofurnar í raun
inni að hækka verðið," sagði
Sigurlaug Guðmundsdóttir.
it
Sóley
Hallgrímsdóttir:
„VERIÐ AÐ
TROÐA Á
ÞEIRRA
HAGSMUNUM
„Mér finnst þetta allt i lagi,
þaö er vissulega verið að
troða á þeirra hagsmunum.
En samt sem áður myndu all-
ir aörir félagar í VR nýta sér
þessar ferðir og starfsmanna-
félag Flugleiða á þá bara að
bjóða sínu fólki eitthvað
álíka,“ sagði Sóley Hallgríms-
dóttir afgreiðslustúlka í rit-
fangaversluninni Griffii.
• Ljósvakapunktar •RUV • Rás 1 22.30 Dagskrá um rússneska listamanninn Vysotskij.
21.15 Matlock. • Bylgjan 21.00 Júlíus Brjánsson — Fyrir neðan nefið.
• Stöð 2 • RÓT
21.30 Bítlar og blómabörn.
Bílskúrsmenning. 23.00 Draugasögur.