Tíminn - 22.10.1967, Side 7

Tíminn - 22.10.1967, Side 7
SUNNUDAGUR 23. október 1967. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriOi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson Aug- iýsingastjóri: Steingrímur Gfslason Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifsofur: Bankastræti 7 Af- greiðsiusími: 12323. Auglýsingasími: 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr. 105.00 á mán. innanlands. — í lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. I heimildarleysi Það er harla fróðlegt að heyra ráðherrana ,tæpa á játningum sínum um þessar mundir. Nú eru þeir famir að orða það svo, að verðhækkununum hafi aðeins verið „frestað“ fyrir kosningarnar. Ef til vill gera þeir ráð- herrar, sem þetta hrekkur upp úr núna, sér ekki fyllilega ljóst, hvað í þessum orðum felst, en það er ekkert minna en játning blekkinganna fyrir kosningar. Verðstöðvunin hét sannarlega ekki „frestun verðhækkana“ fyrir kosn- ingar. Hún hét þá farsæl lausn efnahagsvandans og ekkert dregið af. Nú er hækkunum skellt á barnafjöl- skyldurnar í landinu í 750—800 millj. kr. nýjum álögum til þess að borga með halann. sem ríkisstjórnarflokk- arnir brugðu ofan í buxumar fyrir kosningarnar. Á blekkingunum, sem kallaðar vom „farsæl lausn“ fyrir kosningar, en heita nú „frestun verðhækkana" hélt stjórnin meirihluta. Hún hét staðfastri verðstöðvun og kjarabótum en efndi loforðið með nýrri óðadýrtíð og hrikalegri kjaraskerðingu. Fátt er eins ljóst nú í ís- lenzkum stjórnmálum og það, að ráðstafanir þær, sem ríkisstjórnin hefur nú skellt á. em gerðar í algeru heim- ildar- og umboðsleysi og í þeim felast algerar brigðir á skýmm kosningaloforðum. Þetta viðurkennir ríkis- stjórnin raunar að nokkra í verki með málsmeðferð sinni síðustu daga. Það er að sjálfsögðu engin von til þess, að launa- fólk og bændur taki slíkum kökum þegjandi, enda sjást viðbrögðin gerla, bæði í samþykktum einstakra félaga um allt land og samþykktum aðalsamtaka. Sjónvarpið gerir töluvert að því að birta „endurtekið efni“. Nú ætti vel við að endurtaka samtalsþátt þeirra Ólafs Jóhannessonar og Gylfa Þ. Gíslasonar í vor, og þá þyrfti ekkert að fara milli mála um það, hvernig stjórnarsinnar túlkuðu verðstöðvunarráðstafanir sínar og efnahagsaðgerðir fyrir kosniagar né heldur hvert álit Framsóknarmanna var á þeim þá. „Byltkg^ Magnúsar Þjóðin hefur eignast sinu byltingarmann. Morgun- blaðið kann sér ekki læti fynr hrifningu á „hljóðlátu byltingunni“, sem orðið hafi t fjármálaráðuneytinu. Þar hafi allt gerbreytzt í fjármáiavinnpbrögðum, hagsýni, sparsemi og öðrum góðum dyggðum. Blaðið nefnir eitt dæmi um stórmerkin sem orðið hafi, en það er „fyrir- huguð endurskipulagning Landhelgisgæzlunnar". Og þegar nánar er að gætt í. fjármálaræðu Magnúsar, er öll „byltingin“ kynnt með því sem fyrirhugað er, í undir- búningi eða á döfinni. Þar er margs konar sparnaður „í undirbúningi“ enda segir Magnús menn megi ekki vera of bráðlátir, sparnaðurinn geti aðeins komið smátt og smátt — sem sagt aðeins smásparnaður enn og er víst orð að sönnu. Alþýðublaðið og Vísir eiga heldur varla nógu sterk orð um hagsvnina og sparnaðinn í fjár- lögunum. Þar er sagt frá „ýtrasta sparnaði“. Bein dæmi eru ekki nefnd, nema þetta sem Morgunblaðið segir frá, en það er auðvitað talandi. Þegar Gunnar Thoroddsen varð fjármálaráðherra stóð ekki lítið til. Byltingarloforð hans voru 59, öll um hag- ræðingu og sparnað. Sú bylting varð satt að segja afar hljóðlát, svo hljóðlát, að engmn hefur heyrt um efndir eins einasta loforðs síðan. Það kemur líka í ljós, að Magnús hefur komið á óplægðan akur og hefur nóg olnbogarými fyrir sína byltingu og getur nú fyrirhugað og undirbúið þetta sama og Gunnar fyrir átta árum. TÍMINN FRÉTTABRÉF FRÁ NEW YORK: Hindra landakröfur Israels samkomulag við Arabaríkin? Arabar telja sig öllu sáttfúsari en þeir hafa verið áður. New York, 16. okt. í DAG áttu að hefjast um- ræður á allsherjarþingi SJþ. um deilumál ísraels og Araiba níkjanna. Með samkomulagi beggja aðila hefur þeim verið frestað og hefur það komdð þeim orðrómi á kreik, að verið sé að vinna að einhverri lausn Dak við tjöldin. Þessi orðrómur byggist eink um á þvl, að forustumenn Egypta og Jórdaníumanna viiðast nú ödlu samningafúsari en áður. Ræður Araba á Ahs- herjarþinginu hafa lika verið mun hófsamari en við mátti tvúast samkvæmt venju. Þeir haia m.a. gefið í skyn, að ekki hsíi staðið á Aröbum að viður acnna Ísraelsríki, ef ísraels- menn hefðu falþzt á, að hinir iandflótta Arabar, sem áður bjuggu í ísrael, fengu að snúa heim aftur. Stjórn Ísraelsríkis hafi aldrei viljað fallast á þetta, þrátt fyrir endurteknar áskoran ír þmgs Samednuðu þjóðanna. Arabaríkin hafi eðlilega ekki getað viðurkennt ríki, sem neitaði Arötoum að snúa aftur tii heimkynna, sem hefðu verið þeirra um aldaraðir. Þannig hafi það strandað á ísraels- mönnum sjálfuan, en ekki Aróbum, að Arabaríkin hafa ekki viðurkennit ísrael. UR RÆÐUM fulltrúa Araba rikjanna hefur mátt lesa það, að þau væru ekki fjaxri því að beita fsrael einlhvers kon- ar viðurkenningu, ef ísraete- menn drægju her sinn til baka aí herteknu landsvæðunum og viðunanlegt samkomulag næðist um flóttamannamálið. Þeir hafa jafnframt gefið til kynna, að þá gæti einnig náðst samkomulag um opnun Suez- skurðarins sem fsraeismenn gætu sætt sig við. Þá hafa Arabaríkin lagt á- herzlu á, að samkomulag muni ekki nást nema fyrir forgöngu þriðja aðila og þá helzt Sam- einuðu þjóðanna. ísraelsmenn halda því hins vegar fram, að vænlegasta leiðin til samkomu lágs séu beinar viðræður milli ísxaels og Arabarikjanna, án íhiutunar þriðja aðila. fsraels menn vilja, að Sameinuðu þjóð írnar komi sem minnst nálægí pessum málum. Sú lausn, sem Arabar gefa til kynna, að þeirgeti fallizt á, er mjög í samræmá við það, sem flestir fulitrúanna, sem tóku þátt í yfirlitsræðunum á ailsherjarþinginu, létu í Ijós. Langflestir þeirra lögðu á það meginálherzlu, að lönd mætti ekki vinna með hernaði og því yrðu ísraelsmenn að flytja her sinn burtu af þeim landsvæð- um, sem þeir hernámu í sum- ar. Þeir lögðu einnig mikla áherzlu á, að tilvera ísraels sem sjálfstæðs ríkis yrðd við- urkennd. Flestir lögðu einnig aiherzlu á samkomulag um lausn flóttamannamálsins og frjáisar siglingar um alþjóðleg ar siglingaleiðir. ÝMSIR eru þeir, sem gruna NASSER Araba um græsku ií sambandi við þá sáttfýsi, sem virtist nú koma í ljós hjá þeim. Þessir menn telja umrædda sáttfýsi Aiaba stafa af því„ að þeim sé Ijóst, að fsraelsmenn vilja enga samninga að srvo stöddu, og því só hyggilegt fyrir Araba að tefla þannig, að það komi sem bezt í ljós, að samkomu- lag strandar á ísraelsmönnum. Óneitanlega styður margt þá skoðun að ísraelsmenn vilja ekki semja að svo stöddu. — ísraelsmenn setja fram skilyrði, sem þeir vita, að útilokað er fyrir Araba og margar aðrar þjóðir að fallast á. Þeir vilja 'oæð’ innlima Jerúsalem og oreyta landamærunum frá 1948 Þeir vilja heldur ekki taka við fleiri araháskum _ flóttamönn- um. Landakröfur ísraelsmanna valda því, að ólíklegt er að nokkurt meiriháttar samkomu iag náist í náinni framtíð. Á meðan ætla ísraelsmenn sér að halda öllu þvi landi, sem þeir tóku af Aröbum í júní- styrjöldinni. Afstöðu ísraelsmanna má m. a. ráða af því, að þeir hafa enn ekkert-gert til að fram- fylgja tveimur ályktunum, sem voru samþyktkar einróma á allsberjarþingi Sameinuðu þjóð- anna í sumar. Önnur þeirra ályktun var á þá leið, að fsrael mætti ekki aðhafast neitt til að breyta stöðu Jerúsalem. — HUSSEIN ísiaelsmenn hafa látið þetta sem vind um eyru þjóta og haldið áfram fyrirætlunum sín um um að innlima borgina. — Hin ályktunin var um Arab- ana, sem hröktust burtu af oeim landsvæðum, sem ísraels mer.n hertóku í júní-styrjöld- innL Aukaþingið samiþykkti ein róma að þetta fólk ætti að fá að hverfa aftur til fyrri heim- kynna ísraelsmenn hafa að- ems leyft litlum hluta þessa fólk að hverfa heim aftur. Þessi afstaða fsraelsmanna virðist á góðri leið að breyta viGhorfi margra til þeirra. ísrael á rétt til þess að fá sjáifstæði sitt og öryggi viður- kennt. Það á hins vegar eng- an rétt til hernaðarlegra land- vinninga og miskunnarlausrar meðferðar ' á flóttafólki, sem á allan rétt til að bverfa til heimkynna sinna. Varia er hægt að hugsa sér ömurlegri lýsingar en á kjörum þess fióttafólks, sem í sumar hrakt- ist af þeim landsvæðum, :l;m fsraelsmenn hertóku. ÞVÍ MIÐUR bendir sitt nvað til þess, að ísraelsmenn haíd ofmetnazt af sigrinum í jum-styrjöldinni. Fyrirætlun þeirra sé að tefla þannig, að þeir haldi um ófyrirsjáanlegan tima þeim landssvæðum, sem peii unnu af Aröbum í styrj- öidinni ,og treysta á, að þessi skipan verði síðan varanleg. Það staðfestir m.a. þetta, að ísraelsmenn eru byrjaðir að ílytja landnema til sumra þeirra landsvæða, sem þeir hertóku í sumar. Innlimun Jenisalem er annað slíkt dæmi. Margir beztu vinir ísraels óttast þessar fyrirætlanir ísraelsmanna. Þeir telja, að það - væri hyggilegast fyrir ísrael að semja nú, ef þeir íengju staðinn fulla viður- kenningu og alþjóðlega vernd á landamærum sínum. Þá gæti svo farið, að samtoúð ísraels og Arabarikjanna gæti batnað mcð tíð og tíma. Hitt sé hins vegar leiðin tii að magna fjand skap Araba að halda herteknu iandsvæðunum um ótiltekinn tíma. Slíkt muni reynast erfið- ara og kostnaðarsamara en Ísiaelsríki sé fært um. Slík landvinningastefna muni líka gera viðhorfið til fsraelisríkis allt annað en það var áður. SUMIR TELJA, að ísraeis- menn geri sér vonir um, að Nasser og fleiri forustumönn- urr Araba kunni að verða steypt af stóli innan tíðar. Það má vel vera, að Nasser og Hussein séu ótraustír í sessi. Hins vegar eru litlar lík-ur tii þess. ef Nasser og Husein verð ur vikið frá, að eftirmenn þeirra verði friðsamari Nasser og Hussein stafar vafalaust mest hætta frá ungum,’ öfga- fuiium þjóðemissinnum, sem væru enn ófúsari. en þeir til alira samninga við ísrael. Blaða mönnum, sem undanfarið hafa ferðazt um Arabalöndin, kem- Framhaid 6 bts. 11.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.