Tíminn - 29.10.1967, Blaðsíða 10
22
SUNNUDAGUR 29. október 1967
Fltttjáðflanir
FLUGFÉUAG ÍSLANDS h/f
GaQfaxl fer tH Kanpmaimahafnar
kL 07.00 í dag. Væntanlegur aftur
til Keflavíkur kl. 21.00 í dag Ský-
faxi fer tfl Glasg. og Kaupmanna-
hafnar kl. 07.30 í dag. Væntanlegur
tí! Beykjavfkur kl. 22.30 í kvöld.
Snarfaxi er væntanlegur til Reykja
vikur frá Glasg. kl. 15.4S í dag.
GuHfaxi fer til Glasg. og Kaup-
mannahafnar kl 07.00 á morgun.
Væntanlegur til Keflavikur ki. 16.30
á morgttn.
Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til: Akur
eyrar (2 ferðir) Vestmannaeyja, ísa
fjarðar og Egilsstaða (2 ferðir).
Á morgun er áætlað að fljúga til.
Vestmannaeyja (2 ferðir) Akureyrar
(2 ferðir) Hornafjarðar, ísafjarðar,
Egilsstaða, Sauðárfcróks, Rauf-
arhafnar og Þórshafnar.
Siglingar
Ríkissklp:
sja fer frá Reyfcjavíik annað kvöld
austur um land i hringferð. Herjólf
ur fer frá Reykjaivík kl. 21.00 annað
kvöld til Vestmannaeyja. Blikur er
á Austurlandshöfnum á norðurleiö.
Herðubreið er á Kópaskeri. Baldur
fer tfl Snæfellsness- og Breiðafjarð
arhafna á fimmtudaginn.
BRÚIN
Framhald af bls. 24.
upp af hestbaki. Fór hesturinn
á sund í ánni og sem þeir eiu
komnir nokkurn spöl út í ána
flýtur konan þar af í straumn
um. Nær Guðmundur að
krækja til hennar með svip
unni ,en losnar við það af hest
inum. Greip hann þó í fax
hestsins með annarri hendi.
Sneri Skjóni þá til lands og
dró með sér Guðmund, sem
hélt föstu taki í fax hans með
annarri hendi, en dró konuna;
sem svipan hafði kræks' fast
í, með hinni hendinni. Bjarg-
aði Móskjóni þeim þannig á
land.
Útræði var við Jökulsá á
19. og 20. öld og áttu sjómenn
leið yfir ána, lentu þeir þá oft
í hrakningum. Eitt sinn mátti
ung stúlka, Ragnhildur að
nafni horfa á bróður sinn
drukkna í ánni og fengu menn
ekkert að gert og urða 'að
aftra henni að brjótast út, i
ána. Það var dapurleg /ylking,
sem kom heim úr slíkum ferð
um. Venjulega voru siómenn
glaðir og reifir er þe:r komu
ur róðri, hvernig sem gengið
hafði. En nú komu þeir einn
og einn og fóru sér svo hægt
að þeir varla hreyfðust.
1 Oft tepptust ferðamenn um
lestatimann á vorin við Jökuls
á, stundum í marga daga. Var
þá áin reynd oft á dag og
fór það mjög eftir áræði hve
nær menn lögðu í ána. En ýms
ir hröktu vörur sínar í ánni
eða jafnvel töpuðu klyfjum sín
um algerlega. Var það hart fyr
ir fátæklinga, sem farið höfðu
langa leið úr austursveitum til
Eyrarbakka og heimleiðis aft-
ur að missa sumarforða sinn í
ána og koma með berbakaða
hesta til bæjar.
Yfirleitt fór einhver hrakn
ingsför í ánni hvert ár. Sjald
an fórust hestar í Jökulsá, én
þó kom það fyrir.
Ekki voru erfiðleikar fjár-
rekstrarmanna minnstir í við
skiptum við Jökulsá. Voru
fjárrekstrar 1 ánni mesta vos
og þrekraun. Lágu rekstrar
menn stundum lengi við ána.
Siga þurfti hundum á féð og
berja það áfram til að fá bað
út í vatnið. Stóð reksturinn ef
til vill fastur í miðri ánni og
TÍMINN
fór ekki lengr® hvað, sem að
var gert. Var þá gjarnan grip
ið til þess ráðs að reiða nokkra
gemlinga yfir. Þegar þeir jöm
uðu á eyrinni hinum meginn
lögðu nokkrar kindur í ána.
Algengt var að kindur töpuð-
ust í ána. Ef önnur ráð dugðu
ekki var hafizt handa um að
reiða reksturinn yfir. En hest
arnir dofnuðu á fótum og urðu
hrösulir og dettnir, einníg
urðu mennirnir úrvinda. Féð
varð illa haldið og krapað af
öllum þessum hrakningum.
Svona voru þau ævintýrin
hennar JökuMr, sem nú muna
að mestu gleymd. Gamla bmiin,
sem niú hefur verið leyst af
hólmi batt endi á þau.
Athugasemd
„Poiringdnn snjafli í fráffia daln-
um“.
Ein lítil orffisending að gefnu
tilefni.
Vel uni ég því, að mönnum
komi í hug fyrsta stefið í ljóði
því, sem Þorskabítur orti um föð-
ur minn látinn, þegar þeir minn-
ast ágætra manna. En fyrir alla
muni, kæru Borgfirðingar, reynið
ekki að yrkja það upp. Þess gerist
ekki þörf.
Með mikilli vinsemd,
Guðrún Árnadóttir frá Oddsstöðum
16 ára piltur
óskar eftir að koraast að
sern nemi í rafvirkjun. —
Upplýsingar í síma 10549
TIL
SÖLU
mjög góð eldhúsinnrétting
með tvöföldum stálvaski.
Tækifærisverð. Upplýsing-
ar í sírria 81049.
D0GUN
SirH.RiderHaggard
52
— Já, yðar hátign, hinir sjúku
gleyma ekki fremur en ástvinir
þeirra. Mér var falið að segja
þér að þú verður ekki látin vera
einn hérna, því að ef þú værir einn
yrðir þú ef til vil.1 vitskertur, eins
og margir hafa orðið hér á undan
þér.
— Hvað, á að semda hingað
annan ógæfumainTi mér til sam-
lætis?
— Já, en það er talið, að þér
muni geðjast félagskapuir hans.
En mi verð ég að fara. Og maður-
inn var á brott áður en Khian
gat spurt hann hvenær von væri
á hinum manninum. Khian át og
drakk af beztu lyst, þar sem hamn
hafði ekkert etið síðan um borð
í skipinu, sem hann kom með til
Tanis kvöldið áður.
Þegar Khian hafði lokið mál-
tíð sinni, fór hann að hugsa, og
það voru dapurlegar hugsanir, því
það var greinilegt að faðir hans
hugðist gjöreyða öllum félögum
Dögun,arregluinnar, og neyða
Nefru til að giftast sér, Þar sem
hann hafði illu heilli séð fegurð
hennar, mundi ekkert fá hann
ofan af því að hún yrði hans. En
Khian vissi að það yrði ald,rei, því
fyrr mundi Nefva deyja. Það leit
því úl fyrir, að þau væru bæði
dæmd til að deyja. Ó, aðeins ef
hann gæti aðvarað þau, ef hann
gæti sent sál sína til þeirra, eins
og sagt var að Roy og hinir há-
þroskuðu félagar Reglunnar gætu
gerit. Ilafði hann ekki sjálfur-
fundið hugsanir Roys flæða yifir
sig nú í morgun, þar sem hann
stóð frammi fyrir Faraó í mót-
tökusalnum? ITann ætlaði að
reyna, honum hafði verið kennt
að senda sál sína í fjarlægð,
eins og það var nefnt, en hann
hafði aldrei áður reynt það.
Khian hóf hina andiegu tilraun
á tilskilinn hátt, hann hafði yfir
allar þær bænir, sem athöfn þess-
ari voru helgaðar, að svo miklu
leyti er hann mundi þær. —: Heil-
agi faði, hætta vofir yfir drottn-
ingunni og ykkur öllum. Felið
ykkur þvi eða flýjið, ég er sjálfur
í vargaklóm og get því ekki
hjálpað ykkur. — Þessi voru þau
orð sem Khian hafði upp aftur
og aftur í huga sér, þegar hann
hafði lokið hinum tiuskildu frum
atriðum. Klhian festi hug sinn við
Nefru og Roy, þar til hann var
orðinn máttvana vegna innri á-
taka, og svitinn bogiaði af hon-
um, þó eins kalt væri í klefanum
og raun bar vitni. Allt í einu
færðist Uindarlag ró yifir hann, og
honum fannst sem viðvörun hans
væri nú heyrð og skilin eins og
þegar ör er skotið og hæfir mark,
og svo varð þreyta hans algjör
og Khian sofnaði.
Þegar Khian vaknaði, sá hann
að dimmt var af nótitu, því vissi
hann að hann var búinn að sofa
lengi.
Enn opnuðust klefadyrnar, og
fangarvörðurinn gekk inn, hann
færði h-onum mikinn mat, í fyigd
með fangaverðinum var maður, er
klæddur var hettukápu eins og
þeirri, sem Khian bar. Hinn ó-
kunni hneigði sig, án þess að
mæla orð, hann gekk út í eitt
horn klefans og stóð þar. Fanga-
vörðurinn tók til máls, h.ann
sagði: — Konungssonur, hér sérð
þú þjón þinn, hann er góður
maður og sannur. Að svo mæltu
safnaði vörðurinn saman matar-
leyfunum frá fyrri máltíð og fór,
áður hafði hann kveikt á lömpum,
sem hann skildi eftir, logandi.
Khian leit á kjötið og vínið,
því næst leit hann til mannsins
í horninu og sagði: — Vilt þú
éta? Þú sem ert nú orðinn bróðir
minn á ógæfustund.
Maðurinn kastaði hettu sinni
aftur á bak sér. Þá sagði Khian:
— Vissulega hef ég séð þig áð-
ur. Maðurinn gerði nú ýmis merki
sem Khian svaraði öllum, því
næst mælti þessi maður duilmiáls-
setningu. sem Khian svaraði með
annarri enn leynilegri.
— Vilt þú ekki eta prestur?
sp-urði Khian, en m,aðurinn svar-
aði: — Ég et brauð í von um
Tóbak hinna vandlátu í
c/lmcuciú JinrtJ c/ipe do/ltrtr
hina eillfu nærinigu og vín drekik
ég í von um lifsins svaladrykk.
ÚTVARPIÐ
Sunnudagur 29. október
8.30 Létt morgunlög. 8.55 Fréttir
9.10 Veðurfregnlr. 9,25 Morgun-
tónleikar. 11.00 Hátíðarmessa í
Dómfcirfcj-
unni Biskup
íslands, herra _____
Sigurbjörn Einarsson, messar os.
minnist siðbótarinnar. Organleik
ari: Ragnar Björnsson. 12.15 Há-
degisútvarp 13.15 Uppruni Is
lendingasagna. Dr. Bjarni Guðna
son prófessor flytur fyrsta hádeg
iserindi sitt, 14.00 Miðdegistón-
leikar. 15.30 Kaffitíminn Þýzk
lúðrasveit leikur lög eftir Suppé
Lehár, Alford o. fl. 16.00 Veður
fregnir. Á bókamarkaðinum Vil-
hjálmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri kynnir nýjar bækur. 17.00
Barnatími. 18.05 Stundarkorn
með Borodin. 18,20 Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir 19 00 Fróttir
19.20 Tilk. 19.30 Þýdd ’jóð
Andrés Björnsson iektor les
ljóðaþýöingar eftir ,Ión Þoriáks
son. 19.45 Allegro Appasionato
op. 70 eftir Saint-Sagns. 19.55
Lít ég um öxl til Kritar. Þáttur
í samantekt Jökuls íakobssonar
20.25 Einsöngui f útvarpssal: Sig
urður Bjþrnson óperusöngvari
syngur fjórar ballötur eftir Carl
Loewe. 20.45 Á förnum vegi i
Skaftafellssýslu Jón R. Hjálmars
son sfcólastjóri talar við Einar
Erlendsson Verzlunarfulltrúa í
Vík. 21.00 Utan sviðsljósar.na
Jónas Jónasson spjallar við Æv-
ar R. Kvaran leifcara. 21.50 Þætt-
ir úr „Meyjarskemmunni eftir
Sehubert 22.00 Fréttir og veður
fregnir. 22.15 Danslög 23.25
Fréttir í stuttu máli. Dagskrár-
Iok .
Mánudagur 30. o&tóber
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádeg
isútvarp 13.15 Búnaðarþáttur:
Um kalrannsófcnir 13.30 Við vimi
una. Tónleikar. 14.40 Við, sem
heima sitj-
um. 15.00
Miðdegis-
útvarp 16.00 Veðurfregnir. Síð-
degistónleikar 17.00 Fréttir. Dag
bók úr umferðinni Endurtekið
efni. 17.40 Börnin skrifa Guð-
mundur M. Þoriáksson talar við
bömin um bréfaskriftir og les
einnig fáein bréf. 18.00 Tónleikar
Tilfcynningar 18.45 Veðurfregnir
Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir
19.20 Tilkynningar 19.30 Um
daginn og veginn Aðalbjörg Sig
urðardóttir talar. 19.50 „Ég vil
elsfca mitt land“ Gömlu lögin.
20.15 fslenzkt mál Dr. Jakob
Benediktsson flytur þáttinn. 20.
35 Divertimento í B-dúr nr. 4
(K439) eftir Mozart. 20.50 Stefán
Ólafsson skáld í Vallanesi. Séra
Ágúst Sigurðsson flytur erindJ.
21.15 Suppé og RossinL 21.60
íþróttir Sig. Sigurðsson stj. 22.
00 Fréttir og veðurfregnir. 22.
15 Kvöldsagan: „Dóttir Rappazz
inis" Þýðandi: Málfriður Einars
dóttir. Sigrún Guðjónsdóttir les
(1) 22.35 Hljómplötusafnið i um-
sjá Gunnars Guðmundssonar. 23.
30 Fréttir i stuttu máil. Dagskrár
lok.
morgun