Tíminn - 29.10.1967, Blaðsíða 12
niífíf iiffíiíi'-'-'^' M MM. W.
KLUKKUNNI SEINKAÐ jÆ
í NÓTT VAR KLUKKUNNI SEINKAD UM EINA 1
KLUKKUSTUND EINS OG VENJA ER. ÞANNIG, AÐ K
ÞEGAR KLUKKAN VAR TVÖ í NÓTT VAR HÚN FÆRÐ
AFTUR OG SETT Á EITT. ■
Jökulsárbrúin eins og hún leit út eftir eitt jökulhlaupið.
BRUIN yfir jökulsa á
SÓLHEIMASANDIVÍGD
Útför Sigurðar
Benediktssonar
Sigurður Benediktsson, forstóri
Osta- og smjörsölunnar, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík á morgun, mánudag, kl.
10,30. Greinar um hann munu
birtast hér í blaðinu á þriðjudag
SIÐASKIPTAHÁTÍÐ
í SKÁLHOLTI
Siðaskiptahátíð verður haldin í
Skálholti í tilefni af 450 ára af-
mæli siðbótarinnar. Hátíðahöldin
hefiast með samkomu í Skál’.iolts
kirkju n. k. þriðjudagskvöld 31.
okt, kl. 9,15. Þá verður hátíða
messa í Skálholtskirkju sunnudag
inn 5. nóv. kl. 14. Áformað er að
Siðar í nóvember verði svo 2—3
samkomur í kirkjunni.
Samkoman á þriðjudaginn kem
u. hefst með klukknahringingu og
lúðrablæstri. Þá mun Skálhohs
korinn syngja, en aðalerindi
kvöldsins flytur Eiríkur J. Eiríks
son, þjóðgarðsvörður á Þingvöll-
um.
Á samkomunum sem síðar verða
haldnar mun-u fleiri kunnir menn
flytja erindi varðandi siðaskiptin
m.a. dr. Róbert A. Ottósson, er
fjallar um tónlist frá siðaskiptatím
anum.
FRAM GEGN
DÖNUM í DAG
í dag fer fram í Laugardalshöll
inni léikur á milli íslandsmeistara
Fram í handknattleik og danska
liðsins Stadion. Hefst hann kl.
4. Þetta er annar leikur danska
liðsins hér, en á þriðjudagskvöld
leiukr það þriðja og síðasta leik-
mn gegn FH.
ÚRSLIT í 2. FLOKKI
Úrslitaleikurinn í bikarkeppni
2. flokks í knattspyrnu verður háð
ur í dag á Melavellinum og hefst
kl. 2. Til úrslita leika Akranes
og Keflavík.
SÝNING ÞORVALDS
Sýningu Listafélags Menntaskól
ahs á verkum Þorvaldar Skúlason
ar í Casa Nova fer senn að ljúka.
Aðsókn hefur verið mjög góð sem
vonlégt er því að hér er um ein
stakt tækifæri að ræða til að
kynnast list Þorvaldar. Á sýning
unni eru gamlar myndir og nýjar
og er leitast við að sýna listferil
Þorvaldar allt frá stríðsbyrjun til
þessa dags.
Sýningunni lýkur 31. þ. m.
SJ—Reykjavík, laugardag.
í dag klukkan hálf fjögur
verður ný brú á Jökulsá á
Sólhciniasandi opnuð umferð.
Sýslumenn og oddvitar nær-
liggjandi sveita verða viðstadd-
ir athöfnina. Ennfremur munu
þeir fara austur, Ingólfur Jóns
son á Hcllu, samgöngumálaráð-
herra, þingmenn Suðurlands-
kjördæmis, Sigurður Jóhanns
son, vegainálasljóri og Arni
Pálsson, yfirverkfræðingur og
fleiri.
Nýja brúin er stálbitabrú
með steyptu góKi og hvíla bit-
ar á steyptum stöplum. Heildar
lengd brúar er 159 m, og skipt
ist sú lengd í 5 höf, 3 miðhöf
35 m að lengd og tvö endahöf
27 m^að lengd. Brúin er 4,8
m á breidd að utanmáli og 4
m milli bríka. Reynt var að
reka staura undir stöpla til að
Iryggj a undirstöðu. Það tókst
ekki, og voru þá stöplar grafn
ir niður eins og unnt var eða
allt að 5 m niður fyrir vátn.
f brúna hefur farið eftirfar
andi magn af byggingarefni:
Steypa 1000 rúmm. Sement
360 tonn. Steypustyrktarjárn
30 tonn. Stálbitar o.þ.h 150 t.
Brúarsmíðm hófst um miðj
an maí s. 1. og hefur staðið
yfir síðan. Starfsmenn hafa að
jafnaði verið um 25.
Verkfræðilegan undirbúning
og yfirstjórn hafa annast verk
fræðingar Vegamálaskrifstof-
iðmar undir stjórn Árna Páfe
sonar yfirverkfræðings. Verk-
stjóri hefur verið Ilaukur
Karisson brúarsmiður, og verk
stjóri við g-erð vegar og varr.ar
garða Brandur Stefánsson.
Heildarkostnaður við brúna
er áætlaður 12 millj. kr.
Til gamans má geta þess að
gamla bnúin, sem byggð var á
árunum 1920 og 1921, og vígð
var 4. sept 1921 kostaði 250
þús. kr. og þótti dýr á sínum
tíma. Hún var 204 m að lengd,
og næstlengsta brú iandsins á
l>eim tíma. Höf voru 9, hvert
rúmir 22 m að lengd. Breidd
brúar var 2,6 m milli stál-
grinda. Brúin var byggð sem
stálbitabrú með timburgóifi á
steyptum stöplum. Bygging
brúarinnar fór fram við hinar
erfiðustu aðstæður. ATlt efni
til hennar var flutt með bátum
og skipað upp á sandinn. Vinna
fór öll fram með handverkfær
um og hjálpartæki engin nema
hestar. Miðað við þær aðstæð-
ur hefur brúin staðið furðan-
lega af sér tímans tönn. Þó
hefur brúin orðið fyrir nokkr
um áföllum einkum hin síð-
ustu ár.
Tilkomu Jökulsárbrúarinnar
gömlu var ákaft fagnað á sfn
um tíma og ekki að ástæðu-
lausu. Áin var eitt mesta mann
skaðafljót hér á lándi, straum
hörð, kolmórauð, farvegurinn
stórgrýttur og af henni lagði
megna brennisteinsfýlu. Af
jökulfýlunni hlaut hún
sitt annað nafn, Fúlilækur.
Þorvaldur llhoroddsen segir í
íslandslýsingu sinni að áin sé
„vátnsffiikil, ströng og stór-
grýtt og farvegurinn alldjúp
ur“. Hann segir hana rúma
mílu á lengd og 3—400 faðma
á breidd.
Eyjólfur hre-ppstjóri Guð-
mundsson á Hvoli segir um
Jökulsá á Sólheimasandi í rit-
gerð sinni Yfir Jökulsá í þók-
inni Vestur-Skaftafellssýsla og
íbúar hennar, Reykjavík 1930:
„Hún yar brúuð 1921, og er
hennar síðan til einskis getið.
Áður var hennar aldrei að
góðu getið, svo eftirsjón ex
engin í því, að ævintýri hennar
séu á enda sögð.“
Áin hefur alla tíð verið erfið
yfirferðar. Veldur því einkum
hvað hún er strið og svo það,
að áður fyrr komu í hana mik
il jökulhlaup. Jökulhlaupin
stöfuðu af því að afrennsli frá
SóJheimajöbli stíflaðist, vatn
safnaðist fyrir en tæmdist sfð
an skyndilega.
Þessi jökulhlaup urðu mjög
stór áður íyrr, en minnkuðu
eftir því sem jökulli-nn minnk
aði og hopaði, og hætiu að
mestu leyti um 1930.
Sagt er að stundum hafi jak
ar komlð á hesta á leið yfir
ána, þeir farið flatir eða á kaf,
og reiðmennirnir losnað af
baki. Var þá ekki heiglum
hent að komast lifandi til
lands. Menn álitu að tseplega
mœtti takast að bjarga manni,
sem flyti af hesti í Jökulsá,
þegar vöxtur væri , henni.
Sagt er að 24 menn hafi
drukknað í Jöku-lsá í manna
minnum og margar voru svaðil
farirnar yfir hana.
Beggja vegna Jökulsár
bjuiggu jafnan duglegir vatna
menn, sem voru þaulvanir ámri
og fylgdu ferðamönnum yfir
hana á víxl. „Áttn þeir góða
hesta, sem stóðu eins og sker
í straumnum, þegar óvana
hesta hrakti og misstu fót-
anna.“ Nefna má Jón Hjörleifs
son hreppstjóra í Eystri-Skóg
um, sem jafnan hafði hest til
taks heima við, vissi hann af
ánni mikilli. Ennfremur voru
Sólheimabændur og fleiri al-
þekktir fylgdarmenn yfir ána
á seinni hluta 19. aldar. Þessir
menn voru þaulvanir vatna-
menn og áttu dugnaðarhesta.
Eyjólfur Guðmundsson á
Hvoli kveðst aðeins vita tvö
dæmi þess að menn, sem farið
höfðu í Jökulsá hefðu bjarg-
ast.
í annað skiplið var það fað
ir hans, Guðmundur Ólafsson,
sem bjargaði konu, sem straum
urinn hafði hrifsað. Var hann
á hesti sínum Móskjóna, þ ,ul
vönum vatnahesti, og hafði í
hendi svipu með járnkrók á
skaftinu. Voru þær traustleg
ar og hentugar að bregða fyrir I
sig, ef einhverju þurfti að ná
Frambald á Ws. 22.
Satafsér ferö til Færeyja
GÞE-Reykjavik, laugardag.
Færeysku barnarverndar-
nefndarfulltrúarnir, sem koniu
hingað til lands vegna máls
Marjun Gray, ætluðu utan í
dag. Höfðu þeir reynt að fá
stúlkuna til að hverfa með
heim til Færeyja, en hún tók
það ekki í mál, og varð við
svo búið að standa.
Fæ-ðÍTigarviottorð stúlkunnar
hefur enn ekki borizt til brezka
sendiráðsins, og hefur þess
vegna ekki tekizt að sanna
þjóðerni hennar. Á hinn bóg-
inn þykir það Ijóst vera, að
stúlkan sé brezkur þegn, og
fáist vottorðið ekki með góðu,
mun verða leitað aðstoðar utan
ríkisráðuneytisins sagði Brian
Holt í viðtali við Tímann í dag.
Svo sem Tíminn skýrði frá
í dag, hefur rannsókn málsins
að mestu legið niðri síðustu
daga, en að því er rannsóicnar
lögreglan tjáði Tímanum í dag
verða gffizlukonurnar á Bjargi
sennilega yfirheyrðar þegar
eftir helgina.
Framsóknarvist að
Hótel Sögu
Framsóknarfélag Reykjavíkur
gengst fyrir framsóknarvist að
Hótci Sögn fimmtudaginn 2. nóv.
n. k. aðgönguniiða þarf að panta
í síma 2-44-80.
Framsóknarvist í
Kópavogi
Framsóknarfélögin í Kópavogi
hafa spilakvöld í Félagsheimili
Kúpavogs næsta þriðjudae kl. 8,
30 siðdegis. Er þetta upphaf
þriggja kvöld' ' ppni og eru
vinningar góðir Verður nánar
sagt frá þeim síðar.
Framsóknarmenn
Tálknafirði
Stofnfundur- Framsóknarfélags
Tálknafjarðar sam halda átti í da-g
verður frestað til næsta sunnudags
Á fundinum mæta Steingrímur
Ilermannsson, verkfræðingur og
Bjarni Guðbjörnsson, alþm
Framsóknarmenn
Rílftudal <w nágr.
Aðalfundur Framsóknarfélags
Bílddæ-linga se-m hald-a átti í da-g
verður frestað til næsta sunnudags
Á fundinum mæta Steingrímur
Ilermannsson verkfræðingur og
Bjarni Guðbjörnsson alþm.
Fundur fulltrúaráðs
Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík
Fulltrúaráð
Framsóbnarfélag
anna í Reykjav
lieldur fund f
Framsóknarhús-
inu við Fríkirkju
veg miðvikudag-
inn 1. nóv. n. k.
og hefst hs»nn
bl. 8,30.
Einar Ágústsson alþingisinaður
hefur framsögu um viðhorfin í
stjórnmálunum.