Alþýðublaðið - 07.04.1988, Page 8

Alþýðublaðið - 07.04.1988, Page 8
MHBUBLOIB Fimmtudagur 7. apríl 1988 ÍSLAND GEGN APARTHEID íslensk stjórnvöld styðja víðtækar áœtlanir Norðurlandanna gegn kynþáttaaðskilnaðarstefnu S-Afríkustjórnar. Framlag okkar er þó sáralítið og viðskiptin við S-Afríku hafa farið vaxandi. Kvikmyndin Cry Freedom lýsir berlega harðstjórn hvítra í S;Afríku. Mun hún vekja islendinga til vitundar um alvöru apartheid? íslandsdeild Amnesty International safnar nú undirskriftum meðal landsmanna gegn harðstjórn Botha forseta. Kvikmyndin Cry Freedom sem Laugarásbió sýnir þessa dagana stuöar islenska bió- gesti illilega. Hún sýnir jafn- réttisbaráttu svertingja og miskunnarlausa harðstjóra hvíta minnihlutans. Á öðrum Norðurlöndum er apartheid stefna Suöur Afríkustjórnar brennheitt mál. Hér á landi er vandamálið litið í umræðu enda segja menn að sam- skipti okkar við landið séu sára lítil sem engin. ísland hefur ekki stjórnmálasam- band við S-Afríku en þar situr þó ræðismaður fyrir Islands hönd, Hilmar Kristjánsson, sem annast fyrirgreiðslu við íslendinga og islenska hags- muni s.s. vegna viðskipta eða ef slys ber að höndum. ísland á enn viðskipti við S- Afríku og ef eitthvað er, þá hafa þau viðskipti frekar auk- ist heldur en hitt. Á siöasta ári voru flutt inn 470 tonn af vörum frá S Afriku (aðalleg ávextir og grænmeti) og heildarverðmæti innflutn- ingsins (cif) var kr. 32.948 milljónir. Árið áður voru flutt- ar inn vörur þaðan fyrir um 20 milfjónir króna. Á fundi utanríkisráöherra Norðurlandanna í Tromsö 23. og 24. mars samþykktu ráö- herrarnir endurskoðaða áætl- un um baráttu gegn kyn- þáttastefnu S-Afrikustjórnar. Þetta er í þriðja sinn sem ráðherrar Norðurlandanna samþykkja slíka áætlun og aðgerðir. Fyrri samþykktir voru gerðar 1978 og 1985. Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa sett almennt viðskiptabann á Suður-Afríku ásamt því að grípa til annarra efnahagslegra aðgerða. Mark- miðið er: að berjast gegn kynþáttaaðskilnaðarstefn- unni, gera grannríkin óháðari S-Afríku og stuðla að efna- hagslegri þróun á svæðinu. I fréttatilkynningu f_rá fundi ráðherranna segir að ísland hafi ekki talið nauðsynlegt að grípa til slíkráefnahags- legra aðgerða gegn S-Afríku þar sem slíkar aðgerðir eigi ekki viö um ísland og við- skipti landsins við S-Afríku séu afar litil. Hins vegar hafa íslensk stjórnvöld beint þeim tilmælum til atvinnurekenda, verkalýðsfélaga og íslensku þjóðarinnar að þau minnki inn- og útflutning til S-Afriku. Innflutningur varnings frá S- Afríku árið 1986 nam 0.05% af heildarinnflutningi Islands það ár. Útflutningur til S- Afríku var aðeins um 0.01% af heildarútflutningi. Keyptum vörur fyrir 33 milljónir 1987 Þrátt fyrir tilmæli stjórn- valda er Ijóst að inn- og út- flutningur til S-Afriku hefur ekki minnkað heldur aukist. Sem fyrr segir voru fluttar inn vörur frá S-Afríku á síð- asta ári fyrir tæplega 33 milljónir og mun þar nær ein- göngu vera um vínber og aðra ávexti auk grænmetis að ræða. í skrá Félags ís- lenskra störkaupmanna yfir heildverslanir í landinu á síðasta ári finnst aðeins eitt innflutningsfyrirtæki sem hefur S-Afríku á lista sínum yfir viðskiptalönd en það er Pólstjarnan sf. í Reykjavík. Stjórnendur þess eru Davíð Sch. Thorsteinsson og Kristján Gunnlaugsson. Útflutningur til S-Afríku er sára lítill en hefur þó heldur aukist á síðasta ári. Þá voru fluttar út vörur fyrir 4.5 milljónir króna en fyrir 2.7 milljónir árið á undan. Um er að ræða netakúlur frá Plast- einangrun sf. og svo kald- hreinsað meðalalýsi frá Lýsi hf. Mannúðleg aðstoð Þrátt fyrir að íslensk stjórnvöld hafi litið aðhafst í beinum aðgerðum gegn stjórn S-Afríku hafa fulltrúar íslands hjá Sameinuðu þjóð- unum „stutt tugi tillagna og ályktana gegn aðskilnaðar- stefnunni í S-Afriku,“ eins og Haukur Ólafsson, sendiráðu- nautur, komst að orði í samtali við Alþýðublaðið. Eftir fund norrænu utanrík- isráðherranna í síöasta mán- uði var greint frá aðgerðum sem rikin hafa gripið til í baráttunni gegn apartheid stefnu S-Afríkustjórnar. Bann- aðar hafa verið allar fjárfest- ingar í S-Afríku, takmarkanir hafa veriö settar á samskipti á sviði íþrótta og menningar, lánveitingar hafa verið bann- aðar til landsins. Er og greint frá því að Norðurlöndin öll hafi veitt fórnarlömbum aðskilnaðarstefnunnar mannúðlega aðstoð og veitt öðrum ríkjum í sunnanverðri Afríku efnahagslega aðstoð til að gera þau óháðari S- Afríku. Björn Dagbjartsson for- stöðumaður Þróunarsam- vinnustofnunar Islands segir að íslendingar hafi lengi ver- ið þátttakendur f þróunar- verkefnum í nágrannaríkjum S-Afríku. Til landbúnaðarverk- efnis í Mosambique er t.d. veitt 4-5 milljónum króna. „Á svæðinu ríkir nú hálfgert hernaðarástand og heima- varðliðar standa þar vörð. Því verður ekki neitað að stjórn- arherinn nýtir sér þá aðstoð sem þarna er veitt þó hún eigi ekki að ganga til hernað- arnota," segir hann. Aðstoð Norðurlandanna við önnur riki í sunnanverðri Afríku nemur nú um einum milljarði dollara á ári. Hafa ís- lendingar tekið að sér ákveð- in verkefni í því samstarf! þó peningaframlag okkar sé Ift- ið. Heildarfé það sem Þróun- arsamvinnustofnunin hefur til allra sinna verkefna á þessu ári er 40 milljónir. Samtals veittu íslendingar 10 milljón- um til þessara landa á síð- asta ári. Þjálfa Afríkubúa í handbolta Þannig er Ijóst að þrátt fyr- ir að íslendingar hafi lítiö að- hafst í beinum aðgeröum FRETTASKYRING Omar Friöriksson skrifar vegna ástandsins í S-Afríku, utan að standa að ályktunum sem fordæma aðskilnað svartra og hvitra, er nokkur óbein aðstoð fólgin í fram- lagi okkar til verkefna í öðr- um ríkjum Afríku, sem eins- og segir i ályktun norrænu utanríkisráðherranna, miðar að þvf að styðja þau og gera þau óháðari S-Afríku. í norrænu áætluninni seg- ir: „Norðurlöndin telja að auka verði aðstoð við grann- ríki Suður-Afríku til að draga úráhrifum sundrungarstefnu S-Afríku, jafnframt því sem þau verða styrkt til sjálfsvarn- ar og verði þannig óháðari S- Afríku. Einnig verður að auka aðstoð við andstæðinga og fórnarlömb kynþáttaaðskiln- aðarstefnunnar. Norðurlöndin álíta slíka aðstoð viðbót við refsiaðgerðir, en komi ekki í stað þeirra." Meðal margháttaðra verk- efna Norðurlandanna er sam- vinna við ríki Afríku á íþrótta- sviði. Steinar J. Lúðvíksson, varaforseti Handknattleiks- sambands íslands staðfesti í samtali, að unnið væri að aðstoð sambandsins við áhugaaðila um handknattleik í nokkrum rikjum Afriku. „Það er Norræna menningar- málastofnunin sem styður þetta verkefni auk þess sem Þróunarsamvinnustofnun ís- lands leggur einnig fram fé,“ segir hann. „Það hefur vakn- að mikill áhugi á handbolta í þessum ríkjum Afríku og er mikill uppgangur í íþróttinni. Stendur til að senda bæði kennslugögn og þjálfara frá Handknattleikssambandinu i stuttan tíma til þess að halda þjálfaranámskeið. Ekki er ákveðið til hvaða landa verð- ur farið en það er Ijóst að Suður-Afrika verður ekki í þeim hópi.“ □ 1 2 3 4 ■ 6 □ 7 8 ' 9 10 □ 11 □ 12 13 ■ Krossgátan Lárétt: 1 gremjast, 5 skortur, 6 lærði, 7 lindi, 8 úrgangi, 10 hreyf- ing, 11 lesandi, 12 veiki, 13 gegn- sæi. Lóörétt: 1 geil, 2 kvísl, 3 guð, 4 veiðist, 5 þol, 7 hamagangur, 9 hangs, 12 haf. Lausn á siðustu krossgátu. Lárétt: 1 skaup, 5 sælu, 6 krá, 7 SA, 8 eirinn, 10 rr, 11 lög, 12 elri, 13 réttu. Lódrétt: 1 særir, 2 klár, 3 au, 4 prangi, 5 skerir, 7 snöru, 9 illt, 12 et. Gengií Gengisskráning 64 - 5. apríl 1988 Kaup Sala Bandarikjadollar 38,610 38.730 Sterlingspund 72,840 73,066 Kanadadollar 31,098 31,195 Dönsk króna 6,0779 6,0968 Norsk króna 6,1920 6,2112 Sænsk króna 6,5697 6,5901 Finnskt mark 9,6670- 9,6970 Franskur franki 6,8683 6,8896 Belgiskur franki 1,1127 1,1161 Svissn. franki 28,2723 28,3601 Holl. gyllini 20,7475 20.8120 Vesturþýskt mark 23,2822 23,3545 ítölsk lira 0,03140 0,03150 Austurr. soh. 3,3120 3,3221 Portúg. escudo 0.2840 0,2849 Spanskur peseti 0,3486 0.3497 Japanskt yen 0,31012 0,31108 • Ljósvakapunktar • RUV • Rás 1 22.10 Úr norðri. Finnland, yngst Norðurlanda. Fyrri hluti. 15.20 Landspósturinn — Frá Norðurlandi. Umsjón: Sigurður Tómas Björgvins- son. • Stöð 2 • RÓT 21.30 Þyrnirósarþáttur ungra jafnaðarmanna. 20.30 Panorama. Frétta- þáttur um ástandið á írlandi. Umsjónarmaður Þórir Guð- mundsson.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.