Alþýðublaðið - 15.04.1988, Side 2

Alþýðublaðið - 15.04.1988, Side 2
2 Föstudagur 15. apríl 1988 tiw»inii.m» Útgefandi: Blaö hf. Framkvæmdastjóri Valdimar Jóhannesson Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson Fréttastjóri: Kristján Þorvaldsson Umsjónarmaður helgadDlaðs: Þorlákur Helgason Blaðamenn: Haukur Holm, Ingibjörg Árnadóttir, Omar Friðriksson, og Sigríður Þrúður Stefánsdóttir. Dreifingarstjóri: Þórdís Þórisdóttir Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. ' Dreifingarsimi um helgar: 18490 Áskriftargjald 700 kr. ámánuði. í lausasölu 50 kr. eintakið virkadaga, 60 kr. um helgar. TRUVERÐUGULEIKI FRÉTTASTOFANNA Fréttastofur Ríkisútvarpsins, hljóövarps og sjónvarps liggja undir miklu ámæli þessa dagana. Útvarpsráö hefur nýlega samþykkt meö nær samhljóða ályktun þess efnis aö fréttastjóri Ríkissjónvarpsins njóti ekki traust útvarps- ráðs. Þessi ályktun var samþykkt í kjölfar ummæla sem fréttastjóri sjónvarpsins lét eftir sér hafa í einu tímarit- anna um aðstoðarframkvæmdastjóra Sjónvarpsins. Fréttastofa Ríkissjónvarpsins hefur fengið þungan áfellisdóm og sömuleiðis dægurmáladeild Rásar 2 fyrir fréttaflutning af svonefndu Dag Tangen-máli. Þennan alvarlega dóm yfir fréttamönnum og dagskrárgerðar- mönnum sem fjölluðu um málið hefur dr. Þór Whitehead sagnfræðingur kveðið upp í skýrslu sem hann vann að beiðni menntamálaráðherra. Sjálfur segir dr. Þór White- head í skýrlsu sinni, að umfjöllun Ríkisútvarpsins um Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrum forsætisráðherra og meint tengsl hans við CIA, að hafi ekki aðeins verið rangur fréttaflutningur vegna mistaka, heldur hafi vísvitandi fréttafölsun farið fram og stjórnmálaafstaða dagskrár- gerðarmanna ráðið þar ferðinni. í niðurlagi greinargerðar sinnar segir dr. Þór Whitehead: „Líti menn svo á, að víti eigi að vera til varnaðar, virðist ýmislegt mega læra af þessu leiðindamáli: að gengið sé rækilega úr skugga um feril og málflutning manna, sem segja vilja fréttir og skírskota til fræðimennsku og há- skólatitla; að munnlegur vitnisburður slíkra manna um heimildir verði ekki talinn sönnun á efni þeirra, hvað þá jafngildi frumheimildar; að þeir útvarpsmenn sem hér eiga hlut að máli, reyni framvegis að líta á umdeild sagn- fræðileg viðfangsefni fráfleiri en einni hliðog finni stjórn- málaskoðunum sínum vettvang utan fréttatíma." Birgir ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra segir um álitsgerð dr. Þórs Whitehead í inngangi að skýrslu sagnfræðingsins: „Þeir fréttamenn og starfsmenn Ríkis- sjónvarpsins sem um málið fjölluðu (þ.e. Dag Tangen-mál- ið) störfuðu ekki í samræmi við þær kröfur sem útvarpslög og reglugerð um Ríkisútvarpið gera til þeirra." Útvarps- stjóri óskaði á sínum tíma eftir útskurði siðanefndar Blaðamannafélags íslands um vinnubrögð fréttamanna og dagskrárgerðarmanna Ríkisútvarpsins í Dag Tangen- málinu. Siðanefnd úrskurðaði vinnubrögðin brot á siða- reglum blaðamanna, endafréttin um meint tengsl Stefáns Jóhanns og CIA röng og heimildir hvergi finnanlegar í fórum „sagnfræðingsins" Dag Tangen sem aldrei hefur tekið háskólapróf í sagnfræði þegar betur er að gáð. Al- þýðublaðið fjallaði um málið á sínum tíma í leiðara og benti á, að endanlegurdómur siðanefndar blaðamannafé- lagsins væri nógur í sjálfu sér, og óþarfi af menntamála- ráðherra að fara að beiðni alþingismanna um að sagn- fræöingur væri fenginn til að gera álitsgerð um málið. Blaðið stendur við þá skoðun sína, enda kemur fátt í Ijós í skýrslu dr. Þórs Whitehead sem ekki er getið í niðurstöð- um siðanefndar þótt umfjöllun dr. Þórs sé öll viðameiri og nákvæmari og að mörgu leyti harðari áfellisdómur yfir Ríkisútvarpinu. Eftir stendur sú staðreynd að fréttastofur Ríkisútvarps- ins; hljóðvarps og sjónvarps hafa með stuttu millibili verið véfengdar um trúverðugleik. Þetta er mikið áfall fyrir Ríkisútvarpið sem fréttastofnun. Allt frá stofnun Ríkis- útvarpsins hefur stofnunin notið óskoraðs trausts lands- manna. Fréttastofurnar hjá útvarpi og sjónvarpi hafa verið tákn fyrir áreiðanleika og sannleika. Það er Ijóst að skýr- inganna á minnkandi trausti almennings á fréttastofum Ríkisútvarpsins er að finna innan stofnunarinnar sjálfrar. Hvort sem endanlegaskýringu er að finna í vinnubrögðum stjórnanda fréttastofanna eða að hin mikla samkeppni fjölmiðlaorsaki slæglegri vinnubrögð fréttastofu Ríkisút- varpsins, skal ósagt. En það er skylda útvarpsráðs og út- varpsstjóra að stuðla að vönduðum vinnubrögðum frétta- manna Ríkisútvarpsins, svo stofnunin megi á ný njóta óskoraðs trausts og álits allra landsmanna. ÖNNUR SJÓNARMIÐ MENNINGARMAFÍUR hafa verið margar á íslandi. Kristján Kristjánsson, blaða- maður menningarmála Helg- arpóstsins, hefur nú, fundið nýjustu menningarmafíuna. Hún samanstendur af „vinstri-intellektúölum“ í Máli og menningu, Svart á hvítu og rithöfundum þeirra. Eitt eiga þessir menn allir sam- eiginlegt að mati blaða- manns HP, nefnilega að hafa verið saman í menntó. Krist- ján setur fram athyglisverð sjónarmið í samtryggingar- kenningu menningarmafíós- anna. Hann skrifar i nýjasta tölublaö af HP: „Ein af bókmenntaklíkum landsins er einmitt upprunn- in úr menntó en hefur svo litillega víkkað eftir þvi sem árin hafa liðið. Þetta er það sem kalla mætti hina nýju ráðandi kynslóð innan bók- menntanna og raunverulega er það uppakynslóðin sem verið er að tala um. Nema hvað þessir menn koma af vinstri kantinum en hafa skellt skollaeyrum við hinni gömlu klisju aö vinstri menn megi ekki og geti ekki verið í fyrirtækjarekstri. Þessi klíka hefur á sér orð fyrir íhalds- semi, samtryggingu og kven- hatur (í bókmenntalegum skilningi orðsins). Hún er lík- legast sú sterkasta í íslensk- um bókmenntaheimi í dag, teygir anga sina í allar áttir, markaðsiega, fræðilega og útgáfulega. í henni eru eftir- taldir: Haildór Guðmunds- son, mag. art. og útgáfustjóri Máls og menningar; Örnólfur Thorsson, háttsettur hjá Svörtu á hvítu; yngri bróðir hans, Guðmundur Andri, rit- stjóri eina islenska bókmenn- tatímaritsins, þ.e. Timarits Máls og menningar; Sigurður Valgeirsson, útgáfustjóri AB; Björn Jónasson, forstjóri Svarts á hvítu; Arni Sigur- jónsson, doktor og ritstjóri Kiljuklúbbs Máls og menn- ingar. Svo eru það skáldin, allar bókmenntaklíkur verða að hafa skáld innanborðs. Hér eru það Einar Kárason, Einar Már og Sigfús Bjart- marsson. Allt gamlir vinir úr menntó og raunar miklu fyrr og þar að auki og ekki siður úr bókmenntanámi í háskól- anum.“ Og menningarklíkan fær eftirfarandi vitnisburð: „Þeir félagar hafa lagt undir sig Mál og menningu, stjórna útgáfu Almenna bókafélagsins, eiga og stjórna Svörtu á hvítu og hafa að auki innanborðs þau skáld af yngri kynslóðinni (sem var yngst en er það kannski ekki lengur, svona ca. næstyngst kannski) sem einna athyglis- verðust þykja og helst er hlustað á af almenningi. Einar Kára. Kvikk i kjaftinum, temmilega röff til að passa við bækurnar sem hann hefur skrifað. Einar Már. Nokkurs konar óskabarn endurnýjunar i íslenskri skáldsagnagerð, a.m.k. á tímabili. Ef þetta væru alvöru krimmar og myndu vilja gera einhverjum óleik þá væru hæg heimatökin. Þræðir hópsins liggja víða og vegir Einar Kárason: Meðal meölima i nýju menningarmafiunni. hans órannsakanlegir eins og einhvers staðar var skrifað um einhvern. Innstu koppar í búri í þremur stærstu for- lögunum og geta því haft á það veruleg áhrif hvað kemur út af bókum og eftir hverja." Og áfram: „Arni Sigurjónsson hefur á undanförnum árum skrifað tvær bækur um Halldór Lax- ness, líklega ítarlegustu fræðibækur sem íslendingur hefur skrifað um Laxness. Halldór Guðmundsson hefur gefið út bók um Laxness, kom út fyrir síðustu jól og heitir Loksins loksins. Ekki þarf að fara mörgum orðum um stefnu Mals og menning- ar undir útgáfustjórn Hail- dórs, hún er sú metnaðar- fyllsta i forlagi hér á landi, sérstaklega á sviði nútima- bókmennta. Á meðan sjá Björn Jónasson og Örnlólfur Thorsson um metnaðinn á sviði fornbókmenntanna, ís- lendingasögurnar og nú sið- ast Sturlunga. Á meðan aka- demían hefur verið mörg ár að velkjast með þessar bækur milli handanna drífur Svart á hvítu þær út á fáum árum af fullkomnum fræði-, legurn metnaði, auk þess að gera þær aðgengilegar fyrir almenning. Það er nefnilega líka munurinn á þessum hópi og eldri mönnum að þeir skilja eðli og þarfir markaðar- ins og skammast sín ekkert fyrir að viðurkenna það og láta standa sig að verki við að mata markaðinn. Ekki frekar en þeir skammast sín fyrir að viðurkenna að þeir séu reyfaraaðdáendur og tala hispurslaust um að islenskir höfundar ættu margir hverjir að leggja það fyrir sig að skrifa afþreyingarbókmenntir af metnaði frekar en að sperra sig við listaverk sem þeir hafa ekki tök á að skapa. Þannig að þó að háskólinn hafi hafnað fulltrúum hóps- ins þá hafa þeir einfaldlega farið aðrar leiðir til að koma sér á framfæri.Drifið þetta út sjálfir i forlögum sem þeir sjálfir stjórna. En það verður heldur ekki af þeim skafið að í þessum hópi eru efni- legustu fræðimenn okkar og einn viðmælandi HP, sem fylgst hefur með þeim lengi, segir þessa stöðu þeirra í ís- lensku bókmenntalífi ekkert undarlega. Þeir eigi hana skilið vegna þess að þeir séu andlegir atgervismenn og það hafi verið Ijóst í menntó að þetta væru framtíðar- menningarvitar þjóöarinnar. I samræmi við það hafa þeir tekið þátt í klúbbi sem kall- aður var fílabeinsturninn, reyndar var hann stofnaður af öðrum og þar voru fleiri en þeir sem tilheyra margnefnd- um hópi. En þessi hópur hefur samt orðið tákngerv- ingur fílabeinsturnsins." Og fílabeinsturninn verður niðurstaðan í grein Kristjáns: „Þeir vilja sjálfir tæpast kannast við að vera klika eða hópur, öðruvisi en aðrir kunningjahópar í þjóðfélag- inu. Samt nefndu næstum allir viðmælendur HP um- svifalaust þennan hóp þegar þeir voru spurðir hvort þeir þekktu einhvern hóp sem væri áberandi í bókmenntalíf- inu. Þeir eru því í fílabeins- turni, hvort sem þeim líkar það betur eða verr — jafnvel þó nafnið hafi sjálfsagt orðið til í gríni í upphafi." GETUR Framsókn verið stikkfrí? spyr Þjóðviljinn í leiðara í gær. Það er greini- legt að blaðinu ofbýður hjá- seta Framsóknarflokksins í vorverkum stjórnarinnar (og reyndar vetrarverkum einnig). Þjóðviljinn segir í forystu- grein sinni: „í Þjóðviljanum í gær birt- ist viðtal við Pál Pétursson þingflokksformann Fram- sóknarflokksins. Þar mátti sjá að Framsóknarmenn gera sér enn þá fullvel grein fyrir þvi að eldur er enn laus. En það er eins og áhuginn fyrir slökkvistarfinu hafi eitthvað dofnað frá þvi að Steingrimur fékk að vera einn í sviðsljós- inu og hrópa að Róm væri að brenna. Nú virðist á þeim bæ lögð áhersla á að sýna fram á að eldsvoðinn komi Fram- sóknarmönnum ósköp litið við. Þeir fengu ekki að taka að sér yfirstjórn efnahags- mála, og stóð þó ekki á þeim að taka að sér embætti fjár- málaráðherra en samstarfs- flokkarnir skömmtuðu þeim hins vegar bara utanríkis- ráðuneytið. Það ber nokkuð nýrra viðað einum flokki i sam- steypustjórn sé nánast óvið- komandi allt það sem ekki heyrir undir þau fagráðuneyti sem ráðherrar hans stjórna. Auðvitað gengur það ekki upp að Framsókn sé í stjórn þegar landbúnaðarmálin eru á dagskrá af því að Jón í Seglbúðum er Framsóknar- maður, en i stjórnarandstöðu þegar rætt er um ríkisfjár- málin af því að Jón Baldvin er krati. Almenningur veit að Fram- sókn ber fulla ábyrgð á stefnu rikisstjórnarinnar í öllum málum. Það er líka vitað að stefna núverandi rikisstjórnar í efnahagsmál- um er rökrétt framhald af stefnu ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar. Framsókn getur ekki verið stikkfrí. Bragð er aö þá barnið finnur. Einn með kaffinu Brandari dagsins er frá Frakklandi: Við réttarhöld í flóknu ástríðuglæpamáli sagði dómarinn við réttinn: — Nú kemur að mjög persónulegum vitnaleiðslum, svo ég bið allar heiðvirðar konur að ganga úr réttarsaln- um. Engin kona í fullum réttarsalnum hreyfði sig. Dómar- inn tók aftur til máls og sagði: — Nú þegar allar heiðvirðar konur eru farnar úr salnum, vil ég biðja þær sem eftir eru vinsamlegast að ganga út!

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.