Alþýðublaðið - 15.04.1988, Blaðsíða 4
Kynningarþjónustan/SÍA
4
Laugardagur 16. apríl 1988
BÓKAFRÉTTIR
Vegleg gjöf
Gigtarfélagi íslands barst
nýlega höfðingleg gjöf frá
fimm konum, velunnurum fé-
lagsins, sem undanfarin ár
hafa dyggilega stutt upp-
byggingu Gigtlækninga-
stöðvarinnar. Þær færðu nú
félaginu kr. 500.000,- í
minningu Þorbjargar Björns-
dóttur, og er gjöfin stofnfé
að styrktarsjóði
gigtarsjúklinga.
Stjórn Gigtarfélags íslands
þakkar slíka rausn og
ómetanlegan stuðning við
gigtsjúka fyrr og síðar.
Stjórn sjóðsins skipa einn
af stofnendum Gigtarfélags-
ins Jóhanna Magnúsdóttir,
formaður Gigtsjúkdóma-
félags íslenskra lækna Kári
Sigurbersson og formaður
Gigtarfélags íslands Jón
Þorsteinsson.
Breyttur af-
greiðslutími
Itjá Pósti og
síma
Athygli er vakin á því að af-
greiðslutími póst- og sím-
stöðva á höfuðborgarsvæði
breyttist 15. febrúar sl.
Könnun var gerð meðal
viðskiptavina á óskum um af-
greiðslutíma og miðast breyt-
ingin við niðurstöður hennar.
Póstútibúin í Reykjavík og
póst- og símstöðvarnar i
Kópavogi, Hafnarfirði, Garða-
bæ, Mosfellsbæ og á Sel-
tjarnarnesi hafa opið mánu-
daga, þriöjudaga, miðviku-
daga og föstudaga frá kl.
08.30 — 16.30, en á fimmtu-
dögum frá kl. 08.30 — 18.00.
Afgreiðslutími póstútibús-
ins í Umferðarmiðstöðinni,
R-6, er virka daga frá kl. 08.30
— 19.30 og laugardaga frá kl.
08.30 — 15.00.
Póstútibúið R-3 í Kringl-
unni er opið eins og áður
vlrka daga kl. 08.30 — 18.00.
Fyrirlestur um
myndgreiningu
og nýjar
aðferðir
Fyrirlestur á vegum
Læknadeildar Háskóla ís-
lands og læknaráðs Land-
spítalans:
Á föstudag 15. apríl, heldur
prófessor Auguste Wacken-
heim frá háskólasjúkrahúsinu
í Strasbourg í Frakklandi,
fyrirlestur, er hann nefnir
„Semiology of the Cervical
Spine in Conventional Radio-
logy, CT and MRI“. I fyrirlestri
þessum lýsir prófessor
Wackenheim þróun mynd-
greiningatækni og notkun
nýrra aðferða svo sem tölvu-
sneiðmyndun og segulómun
við greiningar og ákvarðanir
á sjúkdómum í hálshrygg.
Prófessor Wackenheim er
heimskunnur fyrir rannsóknir
sínar og þróunarstörf í
geislagreiningu, einkum á
sviði taugasjúkdóma. Hann
er forstöðumaður myndgrein-
ingarsviðs háskólasjúkra-
hússins í Strasbourg og m.a.
einn af aðalritstjórum tima-
ritsins „Neuroradiology".
Fyrirlestur verður haldinn í
Eirbergi, Landspítalalóð og
hefst kl. 13.00
Leikurinn er óbreyttur, en nú eru 10 raðir á sama miðanum til hagræðingar fyrir alla Lottóleikendur.
Eftir sem áður er þér í sjálfsvald sett hve margar raðir þú notar hverju sinni.
Hærri vinningar!
Meö leiðréttingu í samræmi viö
verölagsþróun munu vinningar
hækka að meöaltali um 20% og er
þaö fyrsta verðbreyting frá því
Lottóið hóf göngu sína í nóvember
Hver leikröð kostar nú 30 krónur!
Nældu þér í nýjan miöa á næsta sölustað!
* ’
,;/.V ■'