Alþýðublaðið - 15.04.1988, Side 6
6
Föstudagur 15. apríl 1988
SMÁFRÉTTIR
Fyrsta skóflustunga tekin aö þjónustumiöstöö viö Úlfljótsvatn: Taliö frá vinstri: Haukur Pálmason, Davíö
Oddsson og Haraldur Hannesson.
Þjónustumið-
stöð við Úlf-
Ijótsvatn
í byrjun apríl hefst bygging
sameiginlegrar þjónustumið-
stöðvar Reykjavíkurborgar,
Starfsmannafélags Reykjavik-
urborgarog Rafmagnsveitu
Reykjavíkurborgar við sumar-
hús Starfsmannafélagsins
við Úlfljótsvatn.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
Davíð Oddsson, Haraldur
Hannesson formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkur-
borgar og Haukur Pálmason
aðstoðarrafmagnsstjóri tóku
fyrstu skóflustunguna sam-
eiginlega I lok mars s.l.
Ákvörðun um byggingu
hússins var tekin af borgar-
ráði I tilefni af 60 ára afmæli
Starfsmannafélags Reykjavik-
urborgar þ. 17. janúar 1986,
en borgarstjórn Reykjavíkur
afhenti Starfsmannafélaginu
land undir sumarhús á Ulf-
Ijótsvatni I tilefni 40 ára af-
mælis félagsins árið 1966.
Úlfljótsskáli verðureinnar
hæðar timburhús á steyptum
kjallara með svalalofti I risi
að hluta og er flatarmál húss-
ins 578 m2.
Bygging hússins var fyrst
boðin út í júní 1987, en vegna
aðstæðna þá var öllum til-
boðum hafnað.
Verkið var síðan aftur
boðið út I janúar sl. og var
samið við lægstbjóðanda
Iðnverktaka s/f en tilboðs-
upphæð þeirra er kr. 27.919.
236.
Til framkvæmda á þessu
ári verður varið kr. 17.000.000
en verkáætlun gerir ráð fyrir
að húsið verði fullbúið að
utan n.k. haust, en tilbúið til
notkunar 20. mal 1989.
í bygginganefnd Úlfljóts-
skála eru: Haraldur Hannes-
son formaður Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar,
Haukur Pálmason aðstoðar-
rafmangsstjóri og Þorvaldur
S. Þorvaldsson forstöðumað-
ur borgarskipulags.
Hönnuðir hússins eru:
Arkitektarnir Þorvaldur S.
Þorvaldsson, Jón Þ. Þorvalds-
sbn og Kristján Ásgeirsson
ásamt Verkfræðistofu Sigurð-
ar Thoroddsen.
SÁÁ-blaðið
komið út
SÁÁ-blaðið 1. tölublað 5.
árgangs er komið út. Aðalefni
blaðsins er umfjöllun um
fjölskyldusjúkdóminn
Alkóhólisma. Ekki er ýkja
langt síðan menn fóru að
veita því eftirtekt að aðstand-
endur alkóhólisma sýndu ým-
is sameiginleg einkenni. Nú
er boðið upp á öfluga fjöl-
skyldufræðslu á vegum SÁÁ
og þá hjálp sem ýmsum
aðstandendum alkóhólista
hefur reynst ákaflega
dýrmæt. Þaðan liggur leiðin
oft í samtök aðstandenda
alkóhólista Al-anon. Um
þessi málefni er fjallað frá
ýmsum hliðum í blaðinu.
„Að vaxa upp við alkóhól-
isma hefur verið líkt við að
sigla eftir kompás sem er
aðeins örlítið misvísandi.
Það skiptir ekki máli á stystu
leiðum en geturskipt sköp-
um á lengri leið og ráðið
hvort þú endar á Grænlandi
eða í Kína,“ segir í einu
viðtalanna í blaðinu við unga
konu sem alin er upþ hjá
alkóhólista og lenti loks í því
að sjá barnið sitt verða sjúkt
af alkóhólisma.
Meðal annars efnis í blað-
inu má nefna ítarlega umfjöll-
un Óttars Guðmundssonar
um fjölskyldu alkóhólistans,
grein Ingólfs Margeirssonar
um Riddara gráa svæðisins,
(Af sulli og falinni sídrykkju)
Viðtöl við Kristínu Waage og
Sigurð G. Tómasson og
greinar Magnúsar Emilssonar
og Pjeturs Þ. Maack.
Ritstjóri SÁÁ-blaðsins er
Óttar Guðmundsson læknir
við Sjúkrastöðina Vog og
Styrktarfélag Vogs sér um út-
gáfuna.
Gæludýra-
sýning
Þann 16. og 17. aþríl næst-
komandi, verður haldin stór-
glæsileg gæludýrasýning í
Reiðhöllinni í Víðidal.
Þarna verða sýndar flestar
tegundir gæludýra hér á
landi og vörur til gæludýra-
halds. Ymsar uppákomur
verða á sýningunni. T.d. verða
Scháferhundar með glæsi-
legt sýningaratriði sem þeir
hafa verið þjálfaðir ( síðan (
nóvember. Þarnaverður
einnig fegurðarsamkeppni
katta og munu sýningargestir
velja fallegasta köttinn á sýn-
ingunni. í verðlaun er glæsi-
leg stytta sem kallast Morris
verðlaunin.
Á sýningunni verða einnig:
Ótal tegundir fugla í ýmsum
gerðum fuglabúra. Fiskabúra-
göng, þar sem fjölbreytt sýn-
ing verður á skrautfiskum,
auk fjórtánhundruð lítra
fiskabúrs. Ýmsar tegundir
nagdýra ss. kanínur, naggrís-
ir, mýs svo og hamstrar sem
sýndir veröa í hinni stór-
glæsilegu „Hamstrahöll".
Opið verður frá 10-22 báða
dagana. Kaffisala.
Verndari sýningarinnar er
Davíð Oddsson Borgarstjóri.
Fuglaverndun-
arfélagið
boðar fund
Næsti fræðslufundur
Fuglaverndunarfélags ís-
lands verður haldinn í
Norræna húsinu miðvikudag-
inn 20. apríl kl. 20.30.
Hrefna Sigurjónsdóttir líf-
fræðingur talar um atferli
fugla.
Ályktun
áfengisvarna-
nefnda á
Austurlandi
Aðalfundur félags áfengis-
varnanefnda á Austurlandi
haldinn í Verkalýðshúsinu á
Fáskrúðsfiröi, laugardaginn
2. apríl 1988:
Skorar á alþingismenn að
fresta afgreiðslu á fyrirliggj-
andi bjórfrumvarpi þartil
Heilbrigðisáætlun hefurverið
rædd og afgreidd á Alþingi.
Samþykkt bjórfrumvarps-
ins kann að verða afdrifarik
fyrir þjóöina og þvi mikilvægt
að fjalla um það í tengslum
við heilbrigðismál og áætlan-
ir um bætta heilbrigði lands
manna.
Mikil þátttaka
í sveitaglímu
íslands
Sveitaglíma Islands verður
haldin í iþróttahúsi Kennara-
háskólans n.k. laugardag, 16.
apríl kl. 13.30.
Undanfarin ár hefur þátt-
taka verið heldur fámenn og
hefur verið keppt í flokki
fullorðinna og unglingaflokki.
I fyrra féll niður keppni í
fullorðinsflokki þar sem að-
eins ein sveit mætti til leiks,
og aðeins fór fram keppni í
unglingaflokki en þarsigruðu
Skarphéðinsmenn Þingey-
inga annað árið í röð.
Nú er hins vegar ráðgert
að keppa i fjórum flokkum og
eru alls ellefu sveitir skráðar
til leiks. Hver sveit er skipuö
fimm glímumönnum sem
hver glímir við alla i sveit
andstæðinganna.
Ráðstefna um
tónlistarskóla
Félag tónlistarskólakenn-
ara mun gangast fyrir ráð-
stefnu í Reykjavík dagana 16.
og 17. apríl n.k. og verður
hún haldin í Æfinga- og
tilraunaskóla Kennaraháskóla
íslands við Háteigsveg.
Tilgangur ráðstefnunnar er:
1. Að fá þá fjölmörgu kenn-
ara sem kenna við hinar
ýmsu deildir tónIistarskól-
anna til að bera saman
hugmyndir sínar og
reynslu í þeim tilgangi að
styrkja starf skólanna og
bæta gæði kennslunnar.
2. Að skilgreina hvaða
menntun tónlistarskóla-
kennarar þurfa að hafa ef
stefnt verður að lögvernd-
un starfsheitisins.
3. Að gera tillögur um hvern-
ig best verði staðið að
* menntun tónlistarskóla-
kennara;
* endurmenntun starfandi
tónlistarskólakennara;
* símenntun starfandi tón-
listarskólakennara.
Á dagskrá ráðstefnunnar
eru ýmsir athyglisverðir fyrir-
lestrar, umræðurog hópstarf,
auk þess sem nemendur úr
tónlistarskólum munu flytja
ýmis konar tónlist.
Við undirbúning ráðstefn-
unnar hefur það verið haft að
leiðarljósi að efni hennar
höfði til allra tónlistarkennara
og þar skapist grundvölur
gagnlegra skoðanaskipta og
umræðna um skipan tónlist-
aruppeldis hérlendis i fram-
tíðinni. Ráðstefnan er öllum
opin.
FORVAL
Póst- og símamálastofnunin mun á sumri komanda
láta leggja Ijósleiöarastreng frá Akureyri til Sauðár-
króks alls u.þ.b. 115 km. Niðurlagning strengsins
hefst utan þéttbýlismarka Akureyrar og Sauðár-
króks.
Þeir sem kynnu aö hafa áhuga á aó (gera tilboð í
lögnina) vinna verkið sendi stofnuninni upplýsingar
um vélakost og einingaverð þeirrafyrir26. apríl 1988.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Tækni-
deildar, Landsímahúsinu við Austurvöll 19. apríl
1988.
Póst- og símamálastofnunin
KRATAKOMPAN
Opinn fundur
um umhverfismál
í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði laugardaginn 16. apríl kl.
14.00.
Frummælendur:
Garðyrkjustjóri Hafnarfjaróar, formaður heilbrigðis-
ráðs Hafnarfjarðar, formaður Náttúruverndarnefnd-
ar Hafnarfjarðar og fulltrúi Skógræktarfélags Hafn-
arfjarðar og Garðabæjar.
Alþýðuflokksfélögin í Hafnarfirði.
SUJ í líkamsrœkt
Hittumst í sturtunni
í Engihjalla!
Ungkratar eru þeirrar skoðunar að
heilbrigð sál þrífist best í hraustum
Ifkama. Þess vegna hefur verið
ákveðið að hittast reglulega i
Æfingamiðstöðinni í Engihjalla,
klukkan 12 á laugardögum. (í sama
húsi og Kaupgarður).
Bjarni P. Magnússon, borgarfull-
trúi, verður sérstakur heiðursgarpur
á fyrstu æfingunni á laugardaginn
kemur.
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og
Bessastaðahrepps
Aðalfundur og bæjarmálaráðsfundur verður haldinn
að Goðatúni 2, Garðabæ mánudaginn 18. apríl kl.
20.30.
Stjórnin