Alþýðublaðið - 30.04.1988, Síða 5

Alþýðublaðið - 30.04.1988, Síða 5
Laugardagur 30. apríl 1988 5 Sigurður Óskarsson, formaður Alþýðusambands Suðurlands. Sigurður: „Enginn óvitlaus maður setur sig niður úti á landi, ef hann getur rekið fyrir- tœkið á ódýrari hátt suður í Reykjavík. Það er hollt að íhuga hvernig farið er með íslenskan iðnað og gefa gaurn að því ofurvaldi sem innflytjendur hafa á sama tíma og útflutningsvörur okkar mœta margar skipu- lögðunt hindrunum í innflutningi til sam- keppnislanda okkar. Við á landsbyggðinni þurfum að fá orku á sama verði og gi/dir á Reykjavíkursvœðinu og símagjöld sem eru ekki dýrari en þar og ýmsa opinbera þjónustu þarf að endurskoða. “ Bjöm Grétar Sveinsson, formaöur verkalýðsfélagsins Jökuls á Höfn. Björn Grétar: „Það er fyrir mestu að það sé nóg atvinna, og fólk vinnur mikið til þess að hafa þœr tekjur sem eru nauðsynlegar í þjóð- félaginu svo að menn hafi í sig og á. Við leit- um allra leiða til að hœkka laun og árangur birtist alls ekki allur í heildarsamningum. Með sérkjarasamningum kemur til dœmis í Ijós hvernig samkeppni um vinnuafl er svæðis- bundið. Það hlýtur að koma að því að fyrirtœkin fari niður fyrir núllið, ef verð á mörkuðum lœkka og kostnaður heldur áfram að hœkka. “ Þóra: „Það er ömur- legt til þess að hugsa að hægt sé að komast að því það sé vel að menn grípi í taumana og það „beri vott um mikla ábyrgðartilfinningu “ eins og Mogginn skrif- aði leiðara um, þegar 50 manns var sagt upp vinnu í Granda. Menn hafa sagt að það sé ámóta gagnlegt að lögbinda lágmarks- laun eins og að skipa hverri konu að eignast 2 börn, þar af eitt stúlku- barn til að tryggja endurnýjun í okkar þjóðfélagi. “ Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðusambands Norðurlands. samninga sem þaö er ekki allt of ánægt meö, er verið að segja fólki upp.“ — Hvað um sundrungina i verkalýöshreyfingunni, sem Sigrún minnist á? Björn Grétar: „Frá því í haust hafa menn ekki verið samstiga I launakröfum, það náðist ekki samstaða um 40- 45 þúsund króna lágmarks- kröfu, og niðurstaðan er eftir því." Þóra: „Það er hárrétt hjá Sigrúnu, að við höfum sundrað okkur, og það geng- ur ekki upp. Við verðum að byrja að ná samstöðu innan okkar raða, því aó við eigum að fylkja okkur undir einu merki." „Banabiti fyrirtækjanna" — Mér finnst þú óttast atvinnuleysi, Þóra. Þóra: „Ég er logandi hrædd við það ástand sem er hjá atvinnuvegunum, og það er ástæða þess hversu at- vinnurekendur hafa verið harðir á móti okkur. Hér eru nokkuð sterk fyrir- tæki sem borga jafn mikið í vexti og verðbætur á dag og I laun, og haldi þetta áfram er það banabiti fyrirtækjanna.“ I halarófu Sigríður Dúna: „Þegar ekki tekst i samningum að tryggja lágmarksrétt sérhvers vinn- andi manns og konu að geta framfleytt sér af dagvinnu, á Alþingi að ganga fram fyrir skjöldu og tryggja þann rétt. Þá verður löggjafarsamkoma þjóðarinnar að lögbinda lág- markslaun. Það er I raun hlálegt að á sama tíma og verslunarmenn eru að setja fram kröfu um 42 þúsund króna lágmarkslaun, þarf einstaklingur 50 þúsund til að framfleyta sér.“ — Settuð þið fram kröfur i Akureyrarsamningunum, Þóra, um lágmarkslaun á skattleysismörkum? Þóra: „Við settum fram 42 þúsund króna kröfuna, en svo langt náðum við ekki. Ef fólk lítur raunsætt á kjara- málin út frá hugmyndinni um lögbindingu lágmarkslauna, þá sést að launamunur hefur aldrei verið meiri en núna. Skoðum afleiðingar des- embersamningsins sem er aðeins rúmlega árs gamall. Það hækkuðu allir í kjölfar þess að lægstu laun voru hækkuð. Þeir hærra launuðu hækkuðu enn meira, og lág- launa fólkið er verr sett en áður. Það sama myndi verða uppi á teningnum núna, ef við lögbindum lágmarkslaun, vegna þess að vió ráðum ekkert við þá sem hafa meira olnbogarými í þjóðfélaginu. Auk þess er það svo í kjara- samningum að hækki einn meir en annar, eru aðrir bundnir í halarófu og hækka með. Ef verslunarmenn hækka núna til dæmis munu allir aðrir koma á eftir.“ Getum ekki leikið okkur í tilrauna- starfsemi — Er útfærsla lágmarks- launa ekki erfið? Getum við haft sömu reglur yfir allt landið og miðin? Björn Grétar: „Ég sé ekki nokkurn skapaðan hlut sem mælir á móti því að hafa sömu reglu um lágmarks- laun. Þetta er spurning um hugarfarsbreytingu og spurn- ing um tilfærslu á fjármagni í landinu. 1983 var fært til frá launþegum til atvinnurek- enda. Þetta er bara spurning um pólitískan vilja og almenn- ingsálitið. Menn þurfa að komast úr frjálshyggjudraum- um, sem eiga ekkert við í okkar þjóðfélagi. Við erum veiðimannaþjóðfélag og get- um ekki leikið okkur í til- raunastarfsemi á peninga- mörkuðum og viðar.“ Siguröur: „Ég vil nú meina að það megi ekki á milli sjá hvorir hafi verið óbilgjarnari við okkur, einstaklingarnir eða þeir sem hafa farið undir merkjum samvinnuhreyfing- arinnar. Það sem virðist blasa við er að offjárfestingarnar hafa verið svo miklar að ekkert hafi verið afgangs til að deila út til launaliðanna. Atvinnu- rekendureru mjög þjappaðir saman að hækka ekki launin, og þar gengur ekki hnífurinn á milli. Ef menn ætla að semja um eitthvað sem nálg- ast kröfugerð okkar, virðist vera beitt ofríki ofan frá til að koma í veg fyrir það. Við erum að fást við and- stæðing sem er betur skipu- lagöur i viðræðum, og við skulum bara viðurkenna þaö að við erum sjálfum okkur sundurlynd — og þó að við höfum hangið saman norður á Akureyri, voarþað ekki of sterk bönd sem héldu mönn- um þar.“ Eiga konur að semja sér? Gudrún: „Menn hafa velt því fyrir sér hverjir eigi sam- an, og það hefur komið til tals að konur semji saman. Þær eru gjarnan skildar eftir eins og var í samningunum við fiskvinnslufólkið. Það er geysilega stór spurning hvort konureigi að semja sér, og hún er í um- ræðunni." Björn Grétar: „I fiskvinnsl- unni hér á Höfn eru konur ekki i meirihluta. Við skulum ekki gleyma því og kannski er þetta sú grein í landinu þar sem launamunur kynja er minnstur. Ég er vantrúaður á að meira næðist fram, þó að konur berðust sér. Ég sé ekki að árangur i kvennafélögum sé betri í dag. Við höfum samið best fyrir þá staði þar sem konur eru sér, á dag- heimilum og elliheimilum.“ Sigriður Dúna: „Það eru góöar fréttir ef bestu samn- ingarnir eru gerðir í sérkjara- samningum við konur, og rennir frekar stoðum undir að konureigi samleið I kjarabar- áttu.“ Þóra: „Kvennafélögin eru algjör tímaskekkja í verka- lýðshreyfingunni í dag. Fólk á að standa hlið við hlið i kjarabaráttunni. Og við eigum stöðugt að skipta okkur af kjaramálum ekki bara rétt fyrir samninga- lotu. Það eru ekki bara krónu- tölurnar i launum sem við erum að tala um í kjarabarátt- unni.“ Sigriður Dúna: „Kaupmátt- ur krónunnar skiptir vitaskuld öllu máli, og til að tryggja hann þarf til að koma póli- tískur vilji. Alþingi á ekki að koma beint inn ( kjarasamn- inga en það á aö tryggja að kaupmáttur haldist.“ Sama hvaðan gott kemur Sigrún: „Við megum ekki gleyma þvi að sérstök félög kvenna hafa unniö að ýmsum góðum málum, sem hafa

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.