Alþýðublaðið - 30.04.1988, Síða 8

Alþýðublaðið - 30.04.1988, Síða 8
8 Laugardagur 30. aprll 1988 1. MA 1. maí ávarp Alþjóðasam- bands frjálsra verkalýðs- félaga 1988 Um allan heim er litið á 1. . maí sem baráttudag fyrir al- þjóðlegri samstöðu verka- fólks. Þann dag lítum við stolt á baráttu frjálsrar verka- lýðshreyfingar fyrir félags- legu réttlæti, frelsi og lýð- ræði. Tákn þeirrar baráttu eru einkunnarorð Alþjóða- sambands frjálsra verkalýðs- félaga: Brauð - Friður - Frelsi Hundruð fulltrúa á 14. þingi Alþjóðasamþands frjálsra verkalýðsfélaga, sem haldið var í Melbourne í síð- astliðnum marsmánuði lögðu áherslu á að við verðum að treysta alþjóðlega samstöðu þannig að öllum sé Ijóst að hún sé ekki aðeins saman- safn slagorða heldur áþreif- anleg staðreynd í starfi verkalýðssamtakanna. Al- þjóðleg samstaða verður að vera annað og meira en dag- skrárliður á fundum samtak- anna. Að vera viðbúin breytingum Verkamenn og samtök þeirra um víða veröld standa frammi fyrir nýjum vanda: hröðum breytingum á eðli þjóðfélagsins og störfum, og vaxandi alþjóðahyggju í efna- hagslífinu. Um víða veröld ráðast ríkisstjórnir og vinnu- veitendur að samtökum verkafólks og þeim réttindum sem þau hafa náð fram með áralangri baráttu. Grafið er undan ráðningarskilyróum. Reglubundin heilsdags vinna er slfellt að víkja fyrir hluta- starfi, tímabundinni vinnu og annarri ótraustari vinnutil- högun. Aukið vald fjölþjóð- legra fyrirtækja ógnar lýð- ræðislegri ábyrgð á vinnu- markaði og félagslegri ábyrgð í heild. Alþjóðlegar fjármálastofnanir axla oft enga ábyrgð á félagslegum afleiðingum ákvarðana sinna. Einræðisstjórnir, hvaða stefnu sem þær fylgja, halda áfram að veitast að samtök- um verkafólks. Alþjóðleg frjáls verkalýðshreyfing, heildarsamtök verkafólks í einstökum löndum og alþjóð- leg samtök einstakra atvinnu- greina mega ekki láta nægja að bregðast við orðnum hlut. Við verðum að vera viðbúin breytingum og hafa áhrif á það hvernig breytingarnar verða þannig að þær verði til hagsbóta fyrir alla! Endurnýjandi afl í starfi okkar Við verðum að leitast við að ná til milljóna ófélags- bundinna verkamanna, og þá einkum landbúnaðarverka- manna í þróunarlöndunum, og þeirra milljóna sem neyð- ast til að vinna fyrir sér og sínum utan skipulagðs vinnu- markaðar. Við verðum að taka tillit til sérstakra þarfa úti- vinnandi kvenna, en konur eru sífellt að verða þýðingar- meiri á vinnumarkaðinum og i starfi verkalýðshreyfingar- innar. Við verðum að tryggja að við höfðum til unga fólks- ins sem er að koma inn á vinnumarkaðinn. Það hefur alltaf verið meginviðfangs- efni verkalýðshreyfingarinnar að tryggja almenna þátttöku í starfi verkalýðsfélaganna og það er brýnna nú en nokkru sinni. Almenn þátttaka i starfi verkalýðsfélaganna er nauðsyn því verkafólki sem þarf aðstöðu til þess að koma skoðunum sínum á framfæri og taka þátt í mót- un nýrrar framtíðar, þetri framtíðar. Alþjóðleg yfirsýn Verkalýðsfélögin standa nú frammi fyrir ógnvekjandi verkefni, en ekki óviðráðan- legu. Eitt mikilvægasta verk- efnið er að efla alþjóða- hyggju, að temja sér alþjóð- lega yfirsýn í öllu starfi verkalýðssamtakanna. í starfi verkalýðssamtakanna verður að þregðast við þeirri stað- reynd, að lönd heimsins eru hvert öðru háð efnahagslega og ákvarðanir á alþjóðavett- vangi ráða stöðugt meiru um þróun atvinnulífs og afkomu verkafólks. Við þessu verður að bregðast með sterkri al- þjóðlegri samstöðu! Þetta verður forgangsverk- efni Alþjóðasamþands frjálsra verkalýðsfélaga árið 1988 og á komandi árum. í til- efni alþjóðlegs baráttudags verkafólks hvetjum við alla félagsmenn okkar, félaga I alþjóðasamtökum einstakra atvinnugreina og hliðholl • samtök að leggja hönd á plóginn með okkur við þetta brýna verkefni. Lengi lifi alþjóðleg sam- staða verkafólks. 1. maí ávarp Fullrúaráðs verkalýðsfé- laganna í Reykjavík, Iðnnemasam- bands íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja Á 1. mai, baráttudegi launafólks, stöndum við frammi fyrirvaxandi misrétti í íslensku þjóðfélagi. Á sið- ustu vikum höfum við enn á ný fengið að heyra gamalt slagorð atvinnurekenda: hóf- legar kauphækkanir, bág staða fyrirtækjanna, verö- bólgudraugurinn á næsta leyti. Á sama tíma og samið er um litlar kauphækkanir berast fregnir af milljón króna launum forstjóranna. Launamisréttið í landinu er orðið að þjóðarböli, sem fyrr eða slðar leiðir til átaka og sundrungar með þjóöinni. Á sama tíma og sagt er vonlaust að hækka kaupið, er hægt að ráðast i ævintýraleg- ar fjárfestingar um allt þjóð- félagið. Á sama tíma og Reykvikingar sjá vart til him- ins fyrir skýjaborgum versl- anahalla, er ekki hægt að borga verslunarmönnum mannsæmandi laun. Á sama tíma og atvinnufyrirtæki í fiskiðnaði telja sig ekki geta greitt starfsmönnum viðun- andi kaup, er milljörðum só- að i óarðbæra fjárfestingu samanber uppbyggingu rækjuverksmiðja um land allt. Á sama tima og stjórnar- flokkarnir leita að týnda millj- arðinum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er framlag til launa uppeldisstéttanna skorið við nögl. Það er fjárfestingarbruöl, gjaldeyrissóun og vaxtaokur sem er höfuðorsök vandans í íslensku atvinnulífi í dag. Arðurinn af vinnu launafólks brennur upp í vanhugsuðum framkvæmdum og gæluverk- efnum atvinnurekenda og stjórnmálamanna. Þetta eru ástæður svimandi viðskipta- halla, sem er að leiða þjóðar- búið fram á hengiflug. Þetta er einnig ein ástæðan fyrir lágu kaupi og bágum kjörum margra launamanna. Þrátt fyrir hóflegar launahækkanir undanfarinna ára er veröbólg- an á fullri ferð. Nú er kdminn tími til að segja hingað og ekki lengra. Það er eðlilegK að fólk fyllist beiskju þegar það sér milljarðahallirnar rísa, sem einungis eiga sér hliðstæður í stórborgum, meðan ekki er hægt að borga fólki viðunandi laun. Enn gerum við kröfu um sömu laun fyrir sömu vinnu. Reynslan hefur sýnt að það er ekki nóg að taxtar séu þeir sömu. Konur búa enn við lak- ari kjör en karlar. Misréttið hefur fengið á sig nýjan blæ. Nú kemur launamisrétti kynj- anna fram í duldum greiðsl- um, óunninni yfirvinnu, bila- styrkjum, hlunnindum og starfsheitum sem breiða yfir raunverulegt launabil milli karla og kvenna. Þessa mis- munum kynjanna veröur að afmá á sama hátt og mis- munur taxtakaups milli karla og kvenna var jafnaður á sin- um tíma. Það fer ekki fram hjá nein- um, sem fylgist með verka- lýðsmálum, að sundrung og sérhyggja hefur aukist innan samtaka launafólks undanfar- in ár. Einstök félög og sam- bönd launamanna telja sig ekki lengur eiga samleið með heildarsamtökum og sundrung innan verkalýðs- hreyfingarinnar er stöðugur fjölmiðlamatur þegar að samningum dregur. Yfirborg- anir atvinnurekenda hafa alið á vantrausti á verkalýðsfélög- um og skaðað hreyfinguna i heild. Það er athyglisvert að þeir atvinnurekendur sem harðneita viðunandi hækkun- um I kjarasamningum eru fúsastir til að greiða yfirborg- anir. Þannig vilja þeir deila og drottna. Þetta er óþolandi ástand, sem verkalýðshreyf- ingin í heild verður að bregð- ast við af hörku. Á sama tíma og vegiö er að verkalýðshreyfingunni og sundurlyndi innan raða launamanna fer vaxandi, er umhugsunarvert að samtök atvinnurekenda eru öflugri og sameinaðri en nokkru sinni fyrr. Þar verður ekki vart sundrungar og einstök félög atvinnurekenda eru keyrð til miskunnarlausrar hlýðni. Atvinnurekendur hafa lært að samstaða er allt sem þarf til aðhalda óskertum völdum. Afl þeirra byggist á sterkri mið- stýringu og samtryggingu peningavaldsins. Við þessar aðstæður er Ijóst að aðeins með aukinni samstöðu getur verkafólk á íslandi tryggt sér sóknarstöðu gegn atvinnu- rekendum og peningavaldi þeirra. Margt bendir til þess að þrátt fyrir nýgerða samninga verði verkafólk að búa sig undir harða baráttu til vernd- ar kaupmættinum. Yfirlýsing- ar stjórnmálamanna og stjórnmálaflokka bendir til þess að áfram verði haldið á þeirri braut að ætla láglauna- fólki að taka á sig óráðsfu þjóðfélagsins. Það er fráleitt að kenna láglaunafólki um viðskiptahallann og verðbólg- una. Gengisfelling eöa aðrar efnahagsráðstafanir sem ekki verða bættar i kaupi ykju enn áójöfnuð í þjóðfélaginu, sem er þó ærinn fyrir og verður ekki þolað. Heildarsamtökin verða að vera viðbúin því, að beita afli sínu til varnar lífs- kjörum launafólks ef að þeim verðurvegið. Nú sem hingaö til verður baráttan háð í kraftí samtaka fólksins. Samtök launafólks er baráttutæki sem duga ef hinn almenni fé- lagi tekur þátt i starfi þeirra. Aðeins með samstilltu átaki, þar sem lýðræðisleg vinnu- brögð eru í öndvegi, mun verkalýðshreyfingin ná mark- miðum sínum um bætt kjör og betri framtíð. Um árabil hafa skattsvik verið þjóðarmein á íslandi. * Alþekktir hálaunamenn hafa komist hjá að greiða rétt- mætan skatt til þjóðfélags- ins. Með breytingum á skatta og tollalögum um áramót voru skattar hækkaðir á mat- vöru og lífsnauðsynjum heimilanna. Verkafólk krefst þess nú, að ríkisstjórnin ^tandi við sitt og hefji nú þegar umfangsmikla herferð gegn skattsvikum. Launa- menn hljóta að mótmæla matarskattinum harðlega. Ungt fólk stendur í dag frammi fyrir ýmsum erfiðum kostum í húsnæðismálum. Markaðsverð á leiguhúsnæði á Reykjavíkursvæðinu nemur um þessar munriir andvirði dagvinnulauna. Rikisvaldið hefur ekki staðió við sitt til að fjármagna húsnæðisker.f- ið. Meginhluti fjármagns Húsnæðisstofnunar kemur úr lífeyrissjóðum verkafólks, en hluta þessa fólks er synjað um lán vegna lágra launa, þetta er óviöunandi. Biðröðin eftir húsnæöislánum er orðin allt of löng. Hið félagslega ibúðakerfi annarekki eftir- spurn. Ljóst er að stjórnvöld verða að bjóða þegnum sín- um upp á fleiri aðgengilega kosti í húsnæðismálum. Samtök launafólks eiga að vera opin fyrir nýjum kostum s.s. kaupleiguíbúðum. Ijóst er að kaupleiguibúðir munu leysa hluta vandans, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á byggðum landsins, þar sem mikill skortur er á húsnæði. Kaupleiga þjónar best þeim sem verst eru settir. Til að svo megi verða er óhjákvæmilegt að veita meira fé til félagslegra íbúða- framkvæmda. Á síðustu árum hafa sjónir manna beinst í auknum mæli að starfsmenntun í atvinnulíf- inu. Stórátak hefurverið gert hjá nokkrum hópum ófag- lærðs verkafólks. En þetta er bara upphafið. Sóknin er haf- in og við verðum að gera miklu betur, ef við eigum að standa jafnfætis öðrum þjóð- um i verkmenntun. Hérverð- ur ríkisvaldið að koma til skjalanna og tryggja þegnum jafnrétti til að öðlast mennt- un og viðhalda henni í sam- ræmi við þarfir á hverjum tíma. í alþjóðamálum eru ýmsar blikur á lofti. Við fögnum þeim áföngum sem náðst hafa í samningum stórveld- anna um takmörkun kjarn- orkuvopna, við styðjum kjarn- orkulaus Norðurlönd. En púð- urtunnur heimsins leynast víða. Á hverjum einasta degi horfum við á martröð palestínsku þjóðarinnar á sjónvarpsskjánum. Þetta er þeim mun hörmulegra þar sem aðgerðirnar gegn Palestínumönnum eru framd- ar í nafni þjóðar, sem upplif- að hefur mestu grimmdarverk aldarinnar. í Suður-Afríku er hörmulegt ástand. Þar situr lítill minnihluti hvítra manna að öllum auði landsins og kúgar meirihluta ibúanna. Það sýnir mikið geðleysi ís- lenskra stjórnvalda, að þau skuli ekki fyrir löngu hafa stöðvað öll viðskipti við Suð- ur-Afríku, í stað þess eykst verslun við kúgarana. ísland er auðugt land. Kostir þess til lands og sjáv- ar eru miklir. Höfuðverkefni okkar er að eyða hinu skað- lega launamisrétti í landinu. Það verður ekki gert án lif- andi hreyfingar samtaka launafólks. Einungis með samstilltu átaki mun okkur takast að tryggja frelsi, jafn- rétti og bræðralag. Samtök kvenna á vinnumarkaði Eins og undanfarin ár munu Samtök kvenna á vinnumarkaði standa fyrir að- gerðum 1. maí. Lagt verður af stað frá Hlemmi og gengið í kjölfar göngu Fulltrúaráðsins sem leið liggur að Hallæris- plani þar sem haldinn verður útifundur. Á fundinum verða flutt ávörp. Meöal ræðumanna verður Salóme Kristinsdóttir félagi í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Á milli atriða fá óánægjuraddir að njóta sin. Samtök kvenna á vinnu- markaði minna á að ástandið á vinnumarkaðnum hefur ekki oft verið alvarlegra en nú. Láglaunakonur berjast harðri baráttu fyrir lifibrauði slnu. Snótarkonur i Vest- mannaeyjum hafa vikum saman unnið að þvi að ná fram sanngjörnum kröfum sinum án árangurs. Atvinnu- rekendur hafa sýnt mikla óbilgirni í viðræðum við fé- lög sem ekki hafa samþykkt orðalaust stefnu Vinnuveit- endasambandsins og ríkis- valdsins í launamálum. í dag eru verslunarmenn viðsvegar á landinu í verk- falli. Samtök kvenna á vinnu- markaði styðja þá heilshugar og hvetja fólk til þess að taka þátt í aðgerðum Samtaka kvenna á vinnumarkaði 1. maí og sýna samstöðu og bar- áttuhug í verki. Komið öll á Hallærisplanið að lokinni göngu 1. maí.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.