Alþýðublaðið - 26.05.1988, Page 4
4
Fimmtudagur 26. maí 1988
Listahátíð í Reykjavík:
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Listahátiö i Reykjavík verð-
ur nú haldin í 10. sinn með
núverandi sniði. Hin fyrsta
var árið 1970 og hefur hún
verið haidin annað hvert ár
síðan. Sú nýbreytni hefur nú
verið tekin upp varðandi pen-
ingahiið hátiðarinnar, að nú
hefur verið leitað til ýmissa
fyrirtækja og stofnana um
fjárstuðning (sponsorship).
Hér á eftir verður aðeins
tæpt á því helsta sem verður
á dagskrá, en eins og gefur
að skilja er ekki pláss til að
gera öllum jafn hátt undir
höfði og jafn góð skil.
Myndlist
Á myndlistarsviðinu vekur
sjálfsagt sýningin á verkum
Marc Chagalls mesta athygli.
Chagall fæddist í Vitebsk í
Rússlandi árið 1887, af gyð-
ingaættum. Hann stundaði
myndlistarnám I heimalandi
sínu og hélt síðan til Frakk-
lands þar sem hann settist
síðar að. Meðal listamanna
20. aldarinnar hafði Chagall
mikla sérstöðu og skapaði
hann ótrúlegar myndir sem
endurvekja hugmyndaflugið,
draum og minningar. Sterkt
sjálfsævisögulegt ívaf hefur
ætíð verið áberandi í list
hans, og endurspeglast þar
uppruni hans og virðing fyrir
hefðum og táknum gyðing-
dómsins. Heimur biblíunnar
og hringleikahúsins hefur
verið honum endalaus upp-
spretta hugmynda. Sýningin
á verkum Chagall verður í
Listasafni íslands.
Af öðrum sýningum má
nefna sýninguna „Maðurinn í
forgrunni", íslensk fígúratíf
list frá árinu 1965 til ársins
1985. Á þeirri sýningu sem
haldin verður á Kjarvalsstöð-
um, verður sýnt á hvaða hátt
maðurinn hefur birst I ís-
lensku málverki og högg-
myndum s.l. áratugi. „Söng-
fugl á ö_xl landsins" nefnist
sýning íslensks heimilisiön-
aðar. A henni verða sýndir
glermunir eftir Sigrúnu Ein-
arsdóttur og Sören Larsen,
leirlist eftir Jónlnu Guðna-
dóttur og Kolbrúnu Kjarval
og batikmunir eftir Katrlnu
Ágústsdóttur og Stefán Hall-
dórsson. Allir listamennirnir
verða með frumverk sérstak-
lega unnin fyrir listahátíð. í
Nýlistasafninu veröur sýning
á verkum Donalds Judd sem
er Bandarlkjamaður, Richards
Long frá Englandi og Krist-
jáns Guömundssonar.
Leiklist, dans og kvik-
myndir
Á s.l. ári efndi Listahátlð til
samkeppni um handrit að
stuttum kvikmyndum, og
hlutu þau Erlingur Gíslason,
Lárus Ýmir Óskarsson og
Steinunn Jóhannesdóttir
verðlaun. Myndirnar verða
frumsýndar I Regnboganum
11. júnl. Myndin eftir handriti
Erlings heitir „Símon Pétur
fullu nafni“ og gerist I
Reykjavlk í byrjun seinni
heimsstyrjaldar, og fjallar um
vináttu lítils drengs og fjár-
hættuspjlara. „Ferðalag
Frfðu" hpitir mynd Steinunn-
ar og lýslr ferðalagi gamallar
konu og óttanum við hið
ókunna og mynd Lárusar
Ýmis heitir „Kona ein“ og
fjallar um konu sem er að
koma heim til sín að nóttu
til, og trúlega oftar en einu
sinni.
Þjóðleikhúsið mun sýna
Marmara eftir Guðmund
Kamban í nýrri leikgerð
Helgu Bachmann sem einnig
er leikstjóri. Kamban lauk við
Guarneri strengjakvartettinn.
verkið árið 1918 og gerist það
i Bandaríkjunum snemma á
öldinni. Aðalpersóna verksins
er Robert Belford dómari í
New York, sem segir upp
stöðu sinni til að geta helgað
sig baráttunni fyrir þjóðfé-
lagslegum endurbótum. Verk-
ið var frumsýnt á íslandi hjá
L.R. 1950, en þá var 4. þætti
sleppt, en hann verður meö
nú, I fyrsta sinn á íslandi.
Þrjú brúðuleikhús verða
með sýningar, og verður Leik-
brúðuland með sýningu á
Mjallhvlti i leikstjórn Petr
Matásek, en hann hefur s.l.
15 ár starfaö með DRAK leik-
húsinu í Tékkóslóvaklu sem
er eitt hiö frægasta I Evrópu.
Jón E. Guðmundsson sýnir
brúöuleikgerð af Manni og
konu, og þekktur Austur-
Þjóðverji Peter Waschinsky
veröur með verk er nefnist
Ánamaðkar.
Mikill fengur er að banda-
rlska danshópnum Black
Ballet Jazz, sem er 17 manna
danshópur undir stjórn
Chester Whitmore. Hópurinn
ásamt söngkonunni Trinu
Parks sýna sögu dansins í
Amerlku I 200 ár, allt frá afr-
Iskum trommuritúölum til
breakdansins og dansa dags-
ins I dag. Varöveisla sögu
dansins er markmið hópsins
og I sýningum hópsinsn sést
berlega hversu mikil áhrif
menning svertingja hefur
haft á dansinn I Amerlku.
Þessi hópur hefur ferðast
vfða um heim og hlotiö ein-
róma lof fyrir sýningu slna.
Þá verður íslenski dans-
flokkurinn með sýningu á
verki Hllfar Svavarsdóttur, Af
mönnum, en eins og kunnugt
er vann hópurinn Pet-
rouschka verðlaunin fyrir
uppfærslu á ballettinum.
Tónlist
Um auðugan garð er að
grisja á tónlistarsviðinu og
víst að þar ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Fílharmónluhljómsveitin I
Poznan mun leika 4. júní I
Háskólabíói undirstjórn
Krysztof Penderecki og á
dagskrá verður Pólsk sálu-
messa eftir stjórnandann.
píanótónleika I Háskólabíói
18. júní, og leikur hann verk
eftir Schumann og Chopin.
Þessa einleikstónleika heldur
hann endurgjaldslaust.
Bandaríska koloratur-sópr-
an söngkonan Debra Vander-
linde mun syngja 19. júní
ásamt Sinfóníuhljómsveit ís-
lands í Háskólabíói og verða
þar verk eftir Mozart, Thomas
og Mendelssohn. Þessari
söngkonu er spáð miklum
frama á óperusviðinu. Stjórn-
andi þetta kvöld er íslending-
um að góðu kunnur, Gilbert
Levine, en hann var á s.l. ári
ráðinn aðalstjórnandi og list-
rænn framkvæmdastjóri Fll-
harmónluhljómsveitarinnar I
Kraká I Póllandi og er hann
fyrsti Vesturlandabúinn sem
ráðinn er til að stjórna einni
af helstu hljómsveitum aust-
an tjalds.
Flutningur á Kantötu
Gunnars Reynis Sveinssonar
fellur niður vegna veikinda
hans, en I hans stað hefur
fengist Empire Brass Quintet
frá Bandarlkjunum. Þeir hafa
áunnið sér alþjóðlega frægö
sem einn besti málmblárara-
kvintett I heimi. Þess má
geta að þeir héldu tónleika I
Reykjavfk árið 1985 og vöktu
mikla athygli og var sýndur
sjónvarpsþáttur um þá sama
ár.
Þá mun bandarlskur
strengjakvartett halda tón-
leika I íslensku óperunni 19.
júnl og verða leikin verk eftir
Mozart, Beethoven og Jana-
cek. Kvartett þessi heitir
Guarneri String Quartet. Hafa
þeir fengið fjölda verölauna
fyrir leik sinn og eru hljóð-
færaleikarar hans heiðurs-
doktorar við tvo bandaríska
háskóla. Auk kvartettsins
eiga þeir allir sinn einleikara-
feril og leika einnig með öðr-
um listamönnum.
Franski jazzfiðlusnillingur-
inn Stéphane Grappelli þarf
varla kynningar við. Hann
varð áttræður I janúar s.l. en
hann eyðir allt að nlu mánuð-
um á ári I tónleikaferðalög.
Frægðarferill hans hófst
snemma á fjórða áratugnum
með samstarfinu við gitar-
leikarann Django Reinhardt,
en saman lögðu þeir grunn-
inn að nýjum evrópskum stíl I
jazzinum. Hann kemur hing-
að ásamt Marc Fossit gítar-
leikara og Jack Sewing
bassaleikara.
Tvær erlendar popphljóm-
sveitir sækja okkur heim á
þessari Listahátíð. 16. júní
heldur The Christians hljóm-
leika I Laugardalshöll en hún
er ættuð frá Liverpool. Hún
kom fram á sjónarsviðið á
siðasta ári og vakti mikla at-
hygli með laginu „Forgotten
town“ og á eftir fylgdi breið-
sklfa samnefnd sveitinni,
sem notið hefur mikilla vin-
sælda I Bretlandi. Daginn
eftir heldur hljómsveitin The
Blow Monkeys hljómleika á
sama stað. Hún er einnig
bresk og var stofnuð fyrir fá-
einum árum. Þeir hafa gefið
út þrjár breiðsklfur sem notiö
hafa vinsælda. Þeir eru nú að
vinna að sinni fjórðu breið-
sklfu, og hafa gefið leyfi fyrir
að lög af henni verði leikin
hér I útvarpi á næstunni,
vegna komu þeirra á hátlðina.
Listahátlðaraukinn er ekki
af verri endanum, en það er
kanadfska Ijóðskáldiö,
söngvarinn, lagasmiðurinn
og rithöfundurinn Leonard
Cohen. Hann mun halda eina
tónleika I Laugardalshöll 24.
júnl. Hann hefur gefið út 10
hljómplötur, þá fyrstu áriö
1967, en sú nýjasta kom út
fyrir fáeinum mánuöum. Auk
þess hefur hann gefið út
nokkrar Ijóðabækur, þá fyrstu
rúmlega tvltugur, og tvær
skáldsögur. Hann túlkar
efann og sársaukann án þess
að barma sér eöa biðja um
vorkunn, og ástina sem tvi-
eggjað vopn. Hefur hann oft
verið kallaður þungur og
þunglyndislegur, en dýpt
væri kannski frekar rétta orð-
ið til að lýsa Ijóðum hans.
Eins og að framan greinir
er þetta ekki tæmandi lýsing
á dagskrá Listahátíðar, held-
ur aðeins stiklað á því helsta.
Miðað við viðbrögðin er
miðasalan opnaði, ætti fólk
ekki að bíða of lengi með að
tryggja sér miða á það sem
áhugaverðast er, en víst er að
af nógu er að taka.
Fjórir póskir einsöngvarar
munu syngja sálumessuna
ásamt Fílharmóníukórnum
frá Varsjá. Verkið er mjög
mikið I sniðum og gerir afar
miklar kröfur til einsögnvara,
kórs og hljómsveitar. Allt lit-
róf tónanna er notað án tillits
til hvort einstök fyrirbæri
voru I tísku fyrr eða siðar.
Skapast afar áhrifamikil og
fjölbreytileg heild. Daginn
eftir veröur hljómsveitin og
kórinn aftur með tónleika
ásamt þremur einsöngvurum
undirstjórn Wojciech Michn-
iewski og verður þá m.a. flutt
Choralis eftir Jón Nordal.
„Tengdasonur íslands" Vladi-
mir Ashkenazy verður með
Krzystof Penderecki.