Alþýðublaðið - 26.05.1988, Side 8
MMMBLiifill)
Fimmtudagur 26. maí 1988
Brynjólfur Bjarnason fyrrv.
menntamálaráðherra og foringi
íslenskra kommúnista var maður
miðstýringar og skipulags en
jafnframt einn skarpasti heim-
spekingur siðari ára hérlendis
og eftir hann liggja mörg áhrifa-
mikil heimspekirit.
Brynjólfur Bjarnason nírœður
STJÓRNMÁLA-
SKÖRUNGUR
AF ÞEGNSKAP
Einn af áhrifamestu stjórn-
málaskörungum aldarinnar,
Brynjólfur Bjarnason fyrrv.
menntamálaráöherra, er
níræður i dag. Á afmælisdag-
inn dvelur Brynjólfur í Kaup-
mannahöfn hjá dóttur sinni
og tengdasyni. Þrátt fyrir
háan aldur kveður enn að
Brynjólfi og er þá nærtækast
að minnast þess er út kom
fyrir síðustu jól heimspekirit-
ið Samræður um heimspeki
þar sem Brynjólfur ræðir við
þá Pál Skúlason og Halldór
Guðjónsson um heimspeki
sína. Brynjólfur var ekki að-
eins áberandi sem einn
helsti foringi kommúnista um
áratuga skeið heldur má
skipa honum á bekk með
áhrifamestu heimspekingum
íslenskum á öidinni.
í nýlegu Mannlífsviðtali
segir Brynjólfur aðspurður
um hvort hugsjónir sósíal-
ismans séu enn á dagskrá:
„Þæreru það. Kapítalisminn
er það mikið eyðingarafl, að
það er hætta á að hann tor-
tími öllu lífi með stríði eða
með mengun, og þótt flestir
búi við þokkaleg kjör, eru
kjör margra enn þá mjög
kröpþ. Það eru mjög víötækar
hreyfingar á móti mengun og
á móti kjarnorkuvopnum og
fleiru, en það vantar að
tengja þá baráttu við gagn-
rýni á það sem er i raun rótin
að allri tortímingarhættunni,
þ.e. kapítalismann. Þjóöfé-
lagsbylting er ekki í sjónmáli
en til þess að móta rétta
stefnu í baráttumálum dags-
ins verður aö hafa markmiö
sósialismanns að leiðar-
ljósi.“
Svo mælir þessi aldni
stjórnmálaleiðtogi sem tók
þátt í stjórnmálalífinu í um
það bil hálfa öld; sat fyrstur
Islendinga ásamt Hendrik
Ottóssyni á þingi Alþjóða-
sambands Kommúnista i
Moskvu árið 1920 og hitti þar
Lenín að máli, og við gjör-
breyttar aðstæður átti hann
virkan þátt i þeim umbrotum
innan Sósíalistaflokksins
sem leiddu til myndunar Al-
þýðubandalagsins á upþ-
reisnartimum 68-kynslóðar-
innar. Svo ólíkar voru stjórn-
málaaöstæðurnar á þeim tím-
um sem Brynjólfur Bjarnason
stóð í stjórnmála- og stétta-
baráttu.
Dœmdur fyrir guðlast
Brynjólfur fæddist á Hæli i
Gnúpverjahreppi. Foreldrar
hans voru hjónin Bjarni
Stefánsson og Guðný Guðna-
dóttir. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1918 og hélt þegar til há-
skólanáms í Kaupmanna-
höfn, las þar náttúrufræöi og
lauk fyrrihlutaþrófi en hélt
því næst til Berlínar árið 1923
og stundaði heimsþekinám í
eitt ár. Lagði hann þar mesta
áherslu á heimspeki Kants.
Er heim kom starfaði
Brynjólfur í nokkur ár sem
kennari við Kvennaskólann í
Reykjavik og Gagnfræðaskól-
ann í Reykjavík. A þeim árum
ritaði hann mikið í blöð og
var jafnframt ritstjóri um
nokkurra ára skeiö og varð þá
einn ritdómur er hann skrif-
aði til þess að hann var
dæmdur fyrir guðlast og lagt
bann við því að ráða hann til
kennarastarfa. Um það segir
Gfsli Ásmundsson í umfjöll-
un sinni um Brynjólf í safnrit-
inu Þeir settu svip á öldina
sem út kom fyrir nokkrum ár-
um: „Lítt mun þáverandi
kennslumálaráðherra hafa
órað fyrir því, að sá maður,
sem þannig var settur út af
sakarmentinu, ætti eftir að
verða menntamálaráðherra
landsins. Ekki þótti skóla-
stjóra Kvennaskólans, Ingi-
björgu H. Bjarnason, ummæl-
in saknæmari en svo, að hún
hafði dóminn að engu, enda
Kvennaskólinn einkaskóli."
Brynjólfur tók þegar frá
upphafi þátt í samfylkingu
kommúnista og stóð að
stofnun Spörtu árið 1926 sem
var félag kommúnista innan
Alþýðuflokksins. Þá var hann
einn af stofnendum Komm-
únistaflokksins árið 1930 og
var kosinn formaður hans. Þá
var hann formaður miðstjórn-
ar Sameiningarflokks Alþýðu-
Sósíalistaflokksins frá stofn-
un hans 1938 og var formað-
ur allt til 1949. Brynjólfur var
landskjörinn þingmaður á
árunum 1937-1942 og aftur
1946-1956 og var alþingismað-
ur Reykv. á árunum 1942-1946.
Alls stóð þingmennskuferill
hans því i tuttugu ár.
Brynjólfur varð einn af ráð-
herrum þeirrar sögufrægu og
margumdeildu Nýsköpunar-
stjórnar sem var við völd á
árunum 1944-1947 — sam-
steypustjórn sögulegra sátta
á milli sósíalista, Alþýðu-
flokksmanna og sjálfstæðis-
manna undir forystu Ólafs
Thors. Gegndi Brynjólfur þar
embætti menntamálaráð-
herra. Hvað merkast af störf-
um hans í því ráðuneyti er
venjulega talin vera fræðslu-
löggjöfin sem hann beitti sér
fyrir og hafði rikuleg áhrif á
skólastarf næstu þrjá áratug-
ina. Þá má nefna að hann sat
í skilnaðarnefndinni fyrir lýð-
veldistökuna árið 1944 og í
tryggingaráði sat Brynjólfur á
árunum 1944-1946 og frá
1952-1953 og 1956-1963.
Hann lét af þingmennsku
árið 1956 en var þó sístarf-
andi í stjórnmálum næstu ár-
in sem einn af helstu leiðtog-
um Sósialistaflokksins. Við
þau kaflaskil sem urðu er Al-
þýðubandalagið var gert að
formlegum stjórnmalaflokki
1968 hætti Brynjólfur öllum
afskiptum af pólitík eftir
stormasama baráttu.
Gagnrýninn á
Sovétkerfið
Þeir sem skrifað hafa um
Brynjólf Bjarnason hafa
margir haft þá skoðun að
Brynjólfur hafi ætíð litið á
stjórnmálaþátttöku sína sem
nokkurskonar þegnskyldu.
Hugur hans hafi alltaf fyrst
og siðast snúið að heimspek-
ipni. um þetta segir t.d. Gisli
Ásmundsson í fyrrnefndri
grein:
„Hann er að eðlisfari
ómannblendinn, sækist ekki
eftir vegtyllum og þaðan af
siður fjárhagslegum ávinn-
ingi fyrir sjálfan sig. Eigi að
síður lét hann skyldutilfinn-
inguna ráða og gerist stjórn-
málamaður af hinni óvenju-
legu ástæðu — þegnskap."
Þó Brynjólfur hafi eins og
aðrir kommúnistar verið hvað
harðast gagnrýndur fyrir
fylgispekt sína við Sovétveld-
ið er ekki álitið aö hann hafi
fylgt „leiðarljósinu frá Kreml“
út í ystu æsar. Hann átti eftir
að gagnrýna Sovétkerfið þeg-
ar ýmsar staðreyndir um al-
ræðisskipulagið komu fram á
eftirstríðsárunum.
Brynjólfur hefur þó alltaf
verið maður miðstýringar og
skipulags. Um ástandið ( Al-
þýðubandalaginu á síðasta
ári haföi hann þetta að segja
í fyrrnefndu Mannllfsviðtali:
„Það þarf að gerbreyta starfs-
háttunum til þess að flokkur-
inn geti staðið sig. Hreyfing-
unni er skipt upp í lítil kon-
ungsrlki, sem hvert fer sínu
fram. Verkalýðsforystan fer
sínu fram. Þingflokkurinn fer
sínu fram. Það er engin mið-
stýring, og menn eru stöðugt
að rífast innbyrðis, en það
finnst mér fyrir neðan allar
hellur."
Mikið af ritum og þýðing-
um liggja eftir Brynjólf bæði
á sviði stjórnmála og heim-
speki. Hvað þekktust eru
sennilega Vitund og verund
sem út kom árið 1961, Á
mörkum mannlegrar þekking-
ar útg. 1965, Lögmál og frelsi
sem út kom 1970 og svo
greinasafn og ræður frá árun-
um 1937-1952 sem safnað var
í tvö bindi undir heitinu Meö
storminn í fangið, árið 1973.
Alþýðublaðið sendir
Brynjólfi bestu kveöjur og
árnaðaróskir á niutíu ára
afmælinu.
HHHBBBBBHHmBHBHBBBHHI
n 1 2 3 r 4
5
6 □ 7
6 9
10 □ 11
□ 12
13 □ —J □
Krossgátan
Lárétt: 1 linna, 5 gráóa, 6 dráttur,
7 tón, 8 hrópuðu, 10 lengdarmál,
11 hækkun, 12 mjúkt, 13 skaða.
Lódrétt: 1 hvassvióri, 2 hvíli, 3
einnig, 4 vesölust, 5 brothætt, 7
guös, 9 eydd, 12 kusk.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 lokka, 5 hopa, 6 iði, 7 kg,
8 riðlar, 10 ðð, 11 óma, 12 snar, 13
ríkar.
Lóðrétt: 1 loðið, 2 opið, 3 KA, 4
angrar, 5 hirðir, 7 kamar, 9 lóna,
12 SK.
B8BUHI pggg
• Oengií
Gengisskráning 95 - 24. maí 1988
Kaup Sala
Bandaríkj adollar 43,350 43,470
Sterlingspund 81,071 81,295
Kanadadollar 34,913 35,010
Dönsk króna 6,6955 6,7140
Norsk króna 7,0140 7,0334
Sænsk króna 7,3388 7,3591
Finnskt mark 10,7769 10,8067
Franskur franki 7,5401 7,5610
Belgiskur franki 1,2234 1,2268
Svissn. franki 30,6144 30,6992
Holl. gyllini 22,7804 22,8435
Vesturþýskt mark 25,5068 25,5774
ítðlsk líra 0,03434 0,03444
Austurr. soh. 3,6281 3,6381
Portúg. escudo 0,3124 0,3133
Spanskur peseti 0,3858 0,3869
Japanskt yen 0,34881 0,34978
BBBBi
Ljósvakapunktar
•RUV
• StSÍ 2
23.30 Strákarnir. Mynd
um
20.35 Kastljós. Innlendur
sagnfræðiþáttur. Helgi H.
Jónsson minnist þess að 20
ár eru liðin frá því hægri-um-
ferð var tekin upp hér á landi.
22.00 Rannsókn Palme máls-
ins. Umræðuþáttur frá
sænska sjónvarpinu.
nokkra áhyggjufulla homma
sem koma saman í íbúð í
Manhattan til þess að fagna
afmæli eins þeirra.
• Rás 1
18.03 Torgið. Jón Gunnar
Grjetarsson leitar frétta
atvinnulífinu.
ur
Stjarnan
12.00 Hádegisútvarp. Bjarni
Dagur heldur áfram upptekn-
um hætti.
wBammmammmtmmmmmmmBmmmsgammmmmaBKBat