Alþýðublaðið - 02.06.1988, Side 1
STOFNAÐ
Fimmtudagur 2. júní 1988 1919
101. tbl. 69. árg.
Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins:
„ERIIM LÖGHLÝÐNIR EF
VID NJÓTUM RÉTTLÆTIS' ‘
Óskar ráðleggur yfirnefnd að láta sjómenn vita um fiskverð fyrir hátíðisdag þeirra á
sunnudaginn.
Óskar Vigfússon formaöur
Sjómannasambandsins segir
aö sér komi spánskt fyrir
sjónir, aö yfirnefnd verðlags-
ráðs skuli enn ekki hafa tekið
ákvörðun um fiskverð. „Það
getur vel verið að menn séu
eitthvað bangnir við dag sjó-
manna, sem er á sunnudag-
inn. Ég myndi raðleggja þeim
aö láta sjómenn vita sem
fyrst hvar þeir standa, en
ekki bíða með það fram yfir
þennan hátiðisdag þeirra,“
sagöi Óskar við Alþýðublaðið
í gær, en vildi ekki skýra nán-
ar hvað fælist i þessum orð-
um. „Við erum löghlýðnir
menn,“ sagði hann „það er
að segja ef við njótum rétt-
lætis.“
Fundi sem vera átti í yfir-
nefnd í gær var frestað til
dagsins í dag. Ekki virðist
sem nefndarmenn séu komn-
ir niður á neina fastheldna
tillögu. Óskar sagöist ekki
vita hvað vefðist fyrir nefnd-
inni, því hann teldi að fyrir
hendi væru öll gögn sem á
þarf að halda við slika
ákvörðunartöku.
„Þeir voru fljótir að taka
afstöðu til mála við síðustu
fiskverðsákvörðun," sagði
Óskar. „Þegar fiskverð tók
engri hækkun, þá þurfti ekki
nema þrjá fundi. Nú funda
menn dag eftir dag, án þess
að nokkuð út úr því komi.“
Sjómannasambandið telur,
að ef vel eigi að vera þurfi
17% hækkun, svo sjómenn
standi jafnfætis öðrum mið-
að við launaþróunina á und-
anförnum misserum. En ríkis-
stjórnin hefur markað þeim
eins og öðrum fastan bás
með bráðabirgðalögum. „Það
er það minnsta að við njótum
þá í fiskverði þess sama rétt-
lætis og aðrir,“ sagði Óskar.
AöiIdarfélög sjómanna-
sambandsins voru öll búin að
gefa sambandinu heimild til
að boða verkfall frá og með
miðjun júní, en eftir setningu
bráðabirgðalaganna verður
ekki af þvi frekar en öðrum
vinnustöðvunum. Því hafa
engir samningafundir verið
haldnir.
Óskar vildi engu svara þeg-
ar blaðið spurði hann hvort
gripið yrði til skipulegra
aðgerða af hálfu sjómanna.
Nefnd sem sjávarútvegsráðherra skipaði leggur til að sjóðurinn
verði lagður niður en engar tillögur liggja fyrir um hvernig inneign-
irnar skiptast til fyrirtækja í sjávarútveginum. Ríkisstjórnarfrum-
varp vœntanlega lagt fram í haust.
Nefnd sem sjávarútvegs-
ráðherra skipaöi i janúar s.l.
til að endurskoða lög og regl-
ur um Verðjöfnunarsjóð fisk-
iðnaöarins leggur til að sjóð-
urinn verði lagður niður og
komið verði á fót sérstökum
sveiflujöfnunarsjóöum innan
einstakra fyrirtækja. Talið er
líklegt að ríkisstjórnin taki
endanlega afstöðu til þess
að leggja sjóðinn niður í
sumar og frumvarp um þaö
veröi lagt fyrir Alþingi í
haust.
í skýrslu nefndarinnar er
ekki að finna tillögur um
hvernig þeim innistæðum
sem i sjóðnum eru skuli ráð-
stafað til einstakra greina
sjávarútvegsins en I dag er
áætlað að eignastaða sjóós-
ins miðaða við núverandi
gengi rúmlega 1600 milljónir
króna. Búist er við talsverðri
togstreitu milli hagsmuna-
aðila um hverfiig innistæðun-
um skuli skipt en nefndin
leggur til að sjóðsstjórn verði
falið að ákveða greiðslur úr
honum í formi verðbóta á
afurðir þannig að hann tæm-
ist átilgreindu tímabili, t.d.
24 mánuðum og verði höfð
hliðsjón af rekstrarstöðu fyr-
irtækja ( hverri framleiðslu-
grein.
Flestir fulltrúar þeirra sam-
taka sem aðild eiga að sjóðn-
um hallast að því að leggja
beri Verðjöfnunarsjóðinnn
niður. Friðrik Pálsson for-
stjóri S.H. segir í samtali við
Alþýðublaðið að þar sem
sjóðurinn hafi í nokkur
misseri verið sem gengis-
jöfnunarsjóður i stað þess að
vera eiginlegur verðjöfnunar-
sjóður, hafi flestir sem að
sjóðnum standa misst algjör-
lega trú á að hann væri nokk-
urs virði. „Ég tel eðlilegt að
reynt verði að tryggja að þeir
sem lagt hafa þessa peninga
til hliðar fái þá til sín. Hvern-
ig það verður nákvæmlega
reiknað er þó ekki hægt að
ræða í blöðurn," sagði Friðrik
80 ára afmœli Hafnarfjarðar:
HAFNFIRÐINGAR FENGU
HELLISGERÐI AD GJÖF
Á 80 ára kaupstaðarafmæli
Hafnarfjarðar í gær afhenti
Málfundafélagið Magni bæj-
arfélaginu Hellisgerði að
gjöf. Ellerf Borgar Þorvalds-
son formaður Magna afhenti
Jónu Ósk Guðjónsdóttur
forseta bæjarstjórnar afsalið
fyrir Hellisgerði, við hátíð-
lega athöfn i garðinum.
„66 ára yfirráðum Magna
yfir Hellisgerði er nú lokið,
en skráð er mikil saga
merkra manna sem lögðu
alla sína krafta í að skapa
þennan unaðsreit í Hafnar-
firði,“ sagði Ellert Borgar um
leið og hann afhenti gjöfina.
Upphaflegi tilgangur þeirra
Magnafélaga var að skapa
garð sem yrði til skemmtun-
ar, stuðla að aukinni ræktun i
bænum, jafnframt þvi að
varðveita hið sérkennilega
landslag í Hafnarfirði. „Þetta
hefur allt tekist og nú er það
okkar að halda starfinu áfram
sem veriö hefur,“ sagði Jóna
Ósk I þakkarræðu sinni.
aðspurður um greiðslu inn-
eigria in einstakra greina
sjávarútvegsins. (Sjá frétta-
skýringu á baksíðu).
Þessir ungu piltarvoru aö helluleggja viö Hellisgerði rétt áður en hátíð-
arhöld hófust i garðinum í gær. A-mynd Róbert.
Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins:
BUIST VIÐ TOGSTREITU
UM INNISTÆÐURNAR