Alþýðublaðið - 02.06.1988, Síða 6

Alþýðublaðið - 02.06.1988, Síða 6
6 Fimmtudagur 2. júní 1988 SMÁFRÉTTIR Ovenjulegt námskeið fyrir ungt fólk Fyrstu dagana í júní hefst kennaranámskeið þar sem fjallað verður um stærðfræði- nám. Ýmsar nýjar leiðir verða reyndar og boðin skemmtileg verkefni bæði úti og inni. Margvisleg hjálpargögn verða notuð svo sem vasareiknar og tölvuforrit. Dagana 13.-15. júní er ætl- unin að reyna viðfangsefnin með nemendum á aldrinum 7-12 ára og verður unnið í litl- um hópum. Um er að ræða timann frá 13.00 til 16.00 dag hvern. Ekki skiptir máli hvað nemendur hafa lært áður. Unnt er að taka 40 ung- menni á námskeiðið og það er þátttakendum að kostnað- arlausu. Þeir sem hafa áhuga á þessu óvenjulega nám- skeiði eru beðnir að hafa samband við Kennaraháskóla Islands, endurmenntunar- deild, sími 688700 ekki síðar en fimmtudaginn 2. júní n.k. Nánari upplýsingar veitir stjórnandi námskeiðsins, Anna Kristjánsdóttir í sama síma. Áskorun fisk- vinnsludeildar VMSÍ Fundur í stjórn fiskvinnslu- deildar Verkamannasam- bands íslands haldinn mánu- daginn 30. maí 1988 fordæm- ir ósvifna árás rlkisstjórnar- innar á samningsrétt verka- lýðsfélaganna og þá kjara- skerðingu sem henni fylgir. Stjórnin mótmælir harð- lega lagaboði um kjaraskerð- ingu og afnám samningsrétt- ar, og skorar á rlkisstjórnina að afturkalla lagasetninguna svo verkafólk endurheimti frjálsan samningsrétt. Stjórn deildarinnar skorar á fisk- vinnslufólk um land allt að Á namskeiðinu i Kennaraháskól- anum verður unnið í litlum hóp- um. Notuð verða margvísleg hjálpargögn. búa sig undir að fylgja þess- ari áskorun eftir af fullri ein- urð ef þurfa þykir. Yfirlýsing stuðnings- manna Sigrúnar Þorsteins- dóttur Stuöningsmenn Sigrúnar Þorsteinsdóttur forsetafram- bjóðanda hafa sent frá sér yfirlýsingu. í henni segir m.a.: „Sú ákvörðun frú Vigdísar, að vilja ekki tjá sig um þetta mikilvæga mál á opinberum vettvangi ermikil vanvirðing við þjóðina. Sérstaklega vegna þess að samkvæmt stjórnarskránni á forseta- embættið að vera virkur milli- liður milli stjórnvalda og fólksins í landinu. En þetta ákvæði hefur aldrei verið virt. Einnig sýnir þetta yfirlæti gagnvart fólkinu f landinu í Ijósi þess að nú nýverið var samningsréttur tekinn af launþegum landsins sem er gróft brot á mannréttindum og almenningur fékk ekki að tjá sig um þetta mannrétt- indabrot. Til þess að kjósendur hafi möguleika á því að taka mál- enfalega afstöðu í þessum kosningum þurfa þeir að kynnast vel sjónarmiðum beggja frambjóðenda. Kosn- ingarnar snúast um þau dýr- mætu lýðréttindi sem stjórn- arskráin hefur að geyma og hvernig á að beita þeim. Kosningabaráttan ætti að varpa skýru Ijósi á þetta atriði og hverjir eiga að fara meö völdin í þessu landi. Þjóðin hefur haft tækifæri til þess að fylgjast með störf- um frú Vigdísar Finnboga- dóttur sem forseta en hefur haft takmarkaða möguleika á því að kynnast hugmyndum hennar um það hvernig lýð- ræðið gæti þróast.“ GRÓSKAí Gangskör’ Meðlimir Gallerí Gangskör opna sýningu á verkum sínum laugardaginn 4. júní n.k. Sýningin stendur til 19. júní og er opin á þriðjudög- um til föstudags frá kl. 12.00- 18.00 og á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14.00- 18.00. Sýningin ber heitið Gróska. Skógræktar- dagurinn í Hafnarfirði Skógardagur Skógræktar- félags Hafnarfjarðar og Garðabæjar er á laugardag- inn kemur, 4. júni og hefst kl. 14.00 Þeir sem taka vilja þátt í skógardeginum aka, ganga eða hjóla svo sem leið liggur eftir Kaldárselsvegi að Gróðr- arstöð félagsins við Hval- eyrarvatn. Þar fer fram kynn- ing á Gróðrarstöðinni og á eftir gefst fólki kostur á að planta út trjám. Starfsemi Skógræktar- félagsins hefur verið öflug og er vaxandi. Milt veöurfar tvö undanfarin sumur hefur aukið gróðursældina og áhuga fólks fyrir trjárækt og garðagróðri. Stjórn Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Garðabæjar : skorar á allt áhugafólk um skógrækt að mæta vel og stundvíslega á skógardaginn. Nýr kjara- samningur KRON og VR KRON, Kaupfélag Reykja- víkurog nágrennis hefur undirritað með venjulegum fyrirvara, nýjan kjarasamning við VR, Verslunarmannafélag Reykjavíkur. Þessi nýi kjarasamningur er sambærilegur þeim samn- ingum sem gerðir voru við verslunarfólk utan Reykja- víkur. í samningnum felast meiri kjarabætur en í gild- andi samningum verslunar- fólks í Reykjavík við VSÍ, Vinnuveitendasamband ís- lands og VMS, Vinnumála- samband samvinnufélaga. Á launaskrá hjá KRON eru um 400 manns, þannig að um stóran hóp launþega er að ræöa sem fær laun sam- kvæmt þessum nýju kjara- samningum. „Maðurinn í forgrunni” að Kjarvalsstöðum Á Listahátíð 1988 verður brugðið Ijósi á manninn í ís- lenskri myndlist og litið á hvernig íslenskir myndlistar- menn hafa málað og mótað, túlkað og tjáð myndefnið „Maðurinn" í mismunandi formgerðum og stíl. Sýningin sem haldin verður að Kjar- valsstöðum fjallar um hvern- ig fígúran birtist í verkum is- lenskra listamanna — málara og myndhöggvara — síðast- liðna tvo áratugi. Ákveðið var að reyna að halda sýningunni að mestu innan tímamarka tveggja ára- tuga (1965-1985); þetta hefur þó reynst nokkrum vand- kvæðum bundið og við úr- vinnslu hefur verið hliðrað til og tekin með bæði eldri og yngri verk, í þeirri trú að þau auki styrk sýningarinnar og gefi henni heillegri mynd. — Hér má einnig nefna, að þessi sýning telst liöur í sögulegum yfirlitssýningum ávegum Menningarmála- nefndar Reykjavíkurborgar, og er á vissan hátt hugsuð sem framhald af abstraktsýn- ingunni sem haldin var að Kjarvalsstöðum i byrjun árs 1987. Þegar byrjað var að velja myndir á sýninguna kom fljótt í Ijós að í raun er lista- sagan oftast lagskipt. Á þeim tíma, sem fram koma afger- andi breytingar í íslenskri myndlist og fígúran öðlast meira rými um miðjan 7. ára- tuginn, voru einmitt nokkrir af eldri listamönnum þjóðar- innar, svo sem þeir Jóhannes Kjarval, Gunnlaugur Schev- ing og Jóhann Briem, á há- tindi ferils síns sem fígúra- tífir listmálarar. Það varð því samdóma álit sýningarnefnd- arinnar að nauðsynlegt væri að hafa á sýningunni nokkur verk eftir þessa listamenn til að sýna ákveðið samhengi í fígúratífri myndlist á íslandi. En jafnframt voru valin til sýningar verk eftir helstu listamenn, sem haft hafa manninn að megin myndefni sínu á þessu tímabili, og með fáeinum verkum reynt að sýna þróunina í list þeirra. Alls eru hér rúmlega 130 verk eftir 47 listamenn, og eiga listamenn og fjölmargir eig- endur einstakra listaverka þakkir skildar fyrir að lána verk sín á sýninguna. Sýningin verður opnuð sunnudaginn 5. júní kl. 14, og stendur til 10. júlí. Þakkarávarp Innilegar þakkir til hinna fjölmörgu víðsvegar á landinu sem heiðruðu mig með blómum, gjöfum og heillaskeytum og heimsóttu mig á sjötugs afmœli mínu þann 27. maís.l. Eg er djúpt snortinn af vináttu ykkar og hlýhug. Með brœðralags kveðju jafnaðarstefnunnar til ykkar allra. Jóhann G. Möller Siglufirði FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU: Lausar stöður við framhaldsskóla Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki er laus til umsóknar kennarastaða í þýsku og einnig kennara- staða í stærðfræði og eðlisfræði. Við Fjölbrautaskólann við Ármúla er laus 1/2 kennarastaða í vélritun. Umsóknirásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 20. júní næstkomandi. Menntamálaráðuneytið. REYKJMIIKURBORG Jauéa* Sfádur ARKITEKT Laus er til umsóknar staða arkitekts við borgar- skipulag Reykjavíkur. Upplýsingar hjá forstöðumanni eða Bjarna Reynars- syni, símar: 26102 og 27355. Utankjörfundar- atkvæðagreiðsla Vegna forsetakosninganna 1988 hefst í Ármúlaskóla Ármúla 10, laugardaginn 4. júní en ekki mánudaginn 6. júní 1988. Opið er frá kl. 10-12 og 14-18 og 20-22 virka daga, á sunnudögum og 17. júní frá kl. 14-18. Borgarfógetaembættið í Reykjavik. Rautt þríhymt merki á lyfjaumbúðum táknar að notkun Ijfsins dregur úr hæfni manna í umfcrðinni ./

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.