Alþýðublaðið - 10.06.1988, Page 5

Alþýðublaðið - 10.06.1988, Page 5
Föstudagur 10. júní 1988 VIÐTALIÐ 5 Valur Arnþórsson stjórnarformaður Sambandsins: MIKIÐ VIÐFANGSEFNI AÐ BREYTA ÍIWYND SÍS Tap á rekstri kaupfélag- anna á síðasta ári var um 358 milljónir króna. Tap á rekstri Sambandsins var um 200 milljónir. Annaö eins rekstr- artap hefur ekki þekkst í sögu Sambandsins, þótt oft hafi harðnað í dalnum. Á aðalfundi félagsins sem hófst í gær hafa menn því rætt um þennan gífurlega vanda, sem aö mestu er sagður vegna óhagstæðra reksturskilyrða, sérstaklega gifurlegs fjármagnskostnað- ar. Á fundinum var einnig búist við heitum umræðum um þá félagslegu kreppu sem samvinnuhreyfingin er sögð í, innri óróleika og hat- rammar deilur sem staðið hafa í kjölfar brottreksturs yfirmanna lceland Seafood Corporation. í gær höfðu menn hins vegar sniðgengið flest þau viðkvæmu mál og fulltrúarnir voru sem einn kór í þvi að lýsa áhyggjum sínum vegna rekstrarvandans. Þá stóðu menn saman að því að breyta fyrirkomulagi sam- vinnuverslunarinnar með því að gera verslunardeildina að sérdeild með þátttöku kaup- félaganna, í líkingu við sjáv- arafurðadeild sem vinnur með Sambandsfrystihúsun- um. í ræðu sinni á aðalfundi Sambandsins sagði Valur Arnþórsson stjórnarformaður að menn yrðu að fjalla um hvernig ætti að samræma rekstursleg og félagsleg sjón- armið í rekstrinum. Alþýðu- biaðið ræddi við Val og spurði hann fyrst hvað hann ætti við með þessu: „Það er Ijóst að þegar reksturinn gengur illa þá er erfiðara að sinna ýmsum samhjálparsjónarmiðum." — Þarf aðalfundurinn þá ekki að ræða þau mál til hlítar svo framkvæmdastjórn viti hvert hún stefnir þetta rekstrarár? „Höfuðviðfangsefnið núna verður náttúrlega að rétta af rekstur Sambandsins og kaupfélaganna. Þar þarf margt aö koma til, m.a. víð- tæk skipulagsbreyting, sem verið er að hrinda í fram- kvæmd í Sambandinu, átak í þvi að fá bætt ytri reksturs- skilyrði. Þar á ég við rekst- ursskilyrði grunnatvinnuveg- anna, þar með talið fjár- magnskostnaðinn og beita sér í vaxandi mæli fyrir því að tekin verði upp sú byggð- arstefna sem að jafni skilyrði byggðar I landinu. Þannig að fólkið i dreifbýlinu hafi sér grundvöll og kaupfélögin hafi sér rektursgrundvöll. Jafnframt er mikiö við- fangsefni að bæta imynd Sambandsins [ augum fólks. Það hefur greinilega komið fram hér að ímynd þess, sér- staklega á höfuöborgarsvæð- inu, er ekki eins góð sem skyldi. Það hefur m.a. komið fram hér að fólk utan af landi upplifir (mynd kaupfélaganna öðruvísi. Hún virðist vera betri, en ímynd Sambandsins virðist hafa beðið hnekki. Það er því mikið verk að endurvinna traust fólks á Valur Arnþórsson: Þaö er Ijóst að þegar reksturinn gengur illa þá er erfiðara að sinna ýmsum samhjálparsjónarmiðum... Það er enginn vafi á því, aö þaö þarf ný átök bæði félagsleg og rekstursleg. Sambandinu og það verður ekki gert nema með heiðar- legum og opinskáum vinnu- brögðum þar sem menn þurfa að leggja sig fram um að upplýsa fólk sem best um hvað hreyfingin er aö fást við og hennar stefnu." — Finnst þér umræða á fundinum hafa verið nægi- lega opinská? „Hún hefur veriö opinská. Menn hafa ekki verið að ræða í smáatriðum einstök ágreiningsefni sem hafa orðið, heldur rætt opið um stöðu rekstursins og hreyf- ingarinnar. Þá hafa menn rætt um ímynd Sambandsins, sérstaklega á höfuðborgar- svæðinu. Það er enginn vafi að það þarf ný átök, bæði reksturs- leg og félagsleg." — Er hægt fyrir kaupfe- lögin að vinna sig út úr þeim mikla fjármagnskostnaði, sem nam tæpum 1.9 milljörð- um á síðasta ári? „Það er ekkert einfalt mál. Þau skilyrði sem yfirvöld skapa atvinnuvegunum verða að taka tillit til allra kostnað- arþátta. Og öllum má vera Ijóst að hann verður að lækka. Það gengur ekki að raunvextir skuli vera yfir 10% I mikilvægum þáttum, og jafnvel upp I 18% eins og er á gráa markaðnum. Stjórn- völd og þjóðin hlýtur að horfa upp á hrun atvinnulífs- ins ef svo á að vera.“ — Menn gera öðruvísi kröfur til fyrirtækja i dag, en áður var. Stendur þetta form samvinnurekstursins jafn vel fyrir sínu og áður? „Það er rætt m.a. hér hvort það þurfi breytingar á þessu formi, þ.e.a.s. á skipulagi samvinnuhreyfingarinnar. Það er jafnvel rætt líka hvort þurfi aukið eigið fjármagn, frá fé- lagsmönnum, inn í samvinnu- fyrirtækin. Það eru hugmynd- ir uppi um að slíka farvegi þurfi að opna.“ — Er það eingöngu fram- kvæmdaratriði, eða þarf sam- þykki aðalfundar og kaup- félaganna? „Ef á að gera þetta i gruna- vallaratriðum, þá þarf breyt- ingar á samvinnulögunum. Menn hafa ekki endilega verið að tala um það hér. Þetta er málefni hvers og eins kaupfélags, t.d. I hversu miklu mæli það vill t.d. beita hlutafélagsforminu. Það er að sama skapi málefni Sam- bandsins hversu mikið það vill beita hlutafélagsforminu. Ef ætti að gera grundvallar- breytingar þannig að það myndi nálgast það sem er I Bretlandi, þar sem kaupfélög- in eru I eins konar hlutafé- lagsformi, þá þarf væntan- lega breytingar á löggjög." — Sérðu þetta fyrir þér til langs tíma litið? „Nei. Það þarf að kryfja þetta mál til mergjar. Eg veit ekki hversu langan tíma það tekur. — Finnst þér að þessi fundur hreinsi loftið og auð- veldi forstjóra og fram- kvæmdastjórn næstu skref? „Ég vil vona það, að fund- urinn marki heppilega braut fyrir viðfangsefnin framund- an til viðbótar við þær ákvarðanir sem þegar hafa verið teknar um skipulags- breytingar og hagræðingu. En hvort hann útiloki það að menn hafi áfram deildar meiningar um hina ýmsu þætti, efast ég um. Það verða alltaf deildar meiningar um ýmis mál.“ I GÍRÓSEÐLA MÁ FÁ í BÖNKUM FYRIR ÞÁ SEM VIUA STYRKJA GOTT MÁLEFNI I

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.