Alþýðublaðið - 11.06.1988, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 11.06.1988, Blaðsíða 2
■2 LÍTILRÆÐI Flosi Ólafsson skrifar 888r ift'ij i'i Laugardagur 11. júní 1988 AF SENDIBRÉFI FRÁ SULTARTANGA Elsku vinur. Stundum held ég aö hann Grímur frændi þinn og kellingin hans séu léttgeggjuð. Ég meina þaö. Þetta er tjúllað fólk. Ég er búinn aö vera meö þeim í megrun hérna á Sultartanganum í þrjár vikur. Megrun segi ég. Guö minn almáttugur, þaö er þá megrunin. Ég hef á langri og merkilegri ævi horft uþþá fólk hætta einu og öðru: hætta aö reykja, hætta aö drekka, hætta aó naga á sér neglurnar, hætta aö ropa í heimahúsum og jafnvel hætta aö gera do-do aö heiman. Og núna uppá síðkastið reyna aö hætta aö éta sér til dómsáfellis. Oft hef ég fylgst meö sálarangist þeirra sem eru að reyna aö neita sér um það sem hugurinn girnist hvaö mest og fyllst hlut- tekningu af því aö sjálfur er ég breyskur og véikur fyrir freistingunum, háll á svellinu, einsog það er stundum kallaö. En ég segi þaö alveg einsog er aö Grímur frændi þinn og kellingin hans yfirganga allt sem ég hef áður séð, jafnvel þó ég reyni að líta í eigin barm. Ég er stófhneykslaður. Þaö er einsog þetta fólk sé úti aö aka um velferð sína og kjörþyngd. Ég segi þéreinsog er, Grímur og kellingin hans eru viljalaus fórnarlömb fitu- bölsins, karakterlaus og gersamlega óhæf til að takast á viö vanda sinn sem er þyngd miðað við hæö. Fara á megrunarkúr og í matarbindindi vikum saman, drekka soö og gulrótarsafa kvölds og morgna, en belgja sig svo út af kremsúkkulaði, lakkrískaramellum, skafís, heitum sviðum og rófustöppu, eöa saltketi og baunum milli mála og éta bingókúlur fyrir svefninn til aö róa taugarnar. Þau eru semsagt meö mér hérna fyrir austan fjall, „í rnegrun", Grímur og konan hans og eiga við sama vanda aö stríöa og ég, en virðast ekki geta sigrast á honum einsog flestir sem hér eru sömu erinda og þó sérstaklega ég. Einsog þú veist er ég haldinn svona einsog vissri aðkenningu aö sálsýki og hef lengi verið. Þetta lýsir sér í því aö mér finnst ég eigi að vera einhvernveginn ööruvísi í laginu helduren ég er. Ég hef víst sagt þér frá því áður og gerir ekkert til þó ég endurtaki þaö hér, að baö- vogin heima er sama sinnis, en á hana eru skráðartölursem sýna hvað ég áaö vera hár miðað viö þyngd. Ég á aö vera eitthvað dál ítið á þriðja meter á hæö, miðað við líkamsþyngdina, svo kannske er þaö engin sálsýki þó mér finnist ég ekki vera einsog ég á aö vera í laginu. Þettameö sköpulagiö ámérerfyrir löngu orðin einskonar þráhyggja og uppá síö- kastið hefur þaö ósjaldan flökraö aö mér — þegar ég hef stigiö á baðvogina — aö ef til vill ætti ég aö notfæra mér nýjustu tækni í læknavísindum og láta lengja mig austur í Rússlandi. Svo er náttúrlega hinn kosturinn fyrirhendi, aö nániðurlíkamsþunganum og athuga hvort maöur getur, aö einhverju marki, komiö til móts viö kröfur vogarinnar um hæö miðað við líkamsþyngd, þ.e.a.s. dregiö úr þyngdinni. Og þaö var sá kosturinn sem ég tók, þegar ég fyrir réttum mánuöi ákvað aö fara i svelti austurfyrir fjall til að freista þess aö verða einsog Clint Eastwood eða Jónas Haralz í laginu. I leiðinni var svo meiningin aö kippa ýmsum smá-fylgikvillum fituböls- ins í liðinn svona einsog gengur. Nú er ég búinn að vera í fjórar vikur á heilsuhælinu í Hveragerði, nánar tiltekiö á þeirri deild hælisins, sem nefnd hefurverið „Sultartangi“, og fæ ekki betur séö en á mig sé að koma svolítil mannsmynd, sem ekki er nema von, þar sem ég er búinn aö svelta heilu hungri allan tímann, eða réttara sagt: búa viö afar rýran kost. Og í raun og veru er þaö — elsku vinur — sáraeinfalt fyrir stuttan og sveran mann aö verða hár og grannur hérna í Hveragerði. Vera bara hér í fæöi. Konan hans Gríms frænda þíns sagði brandara hérna á Sultartanganum í fyrra- dag. Þaö var brandari um listahátíöina, sem hún kallar alltaf „listarhátíð“. Hún sagði: — Maöur veröur nú ekki listarlaus á miðri „listarhátíöinni“. Ég hélt hún mundi kafna úr hlátri. Fellingarnar iðuöu og hristust. Og í miöjum hlátursrokunum stakk hún uppí sig súkkulaðibita meö inn- byggðum lakkrísrörum. Eg meina þaö. Þetta verður svo ekki meira í dag, nema þaö ég orti vísu þegar listahátíðin var aö byrja. Hún er svona: Listin er mitt leiða böl af listinni ég svitna langvarandi list er kvöl af listinni ég fitna. Svo er það ekki meira, elsku vinur, nema það aö þegarég kem í bæinn verö ég orðinn höj og slank. Bon Giomo - við erum byrjuð að œfa ítölskuna, fyrir áœtlunarflugið til Mílanó.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.