Alþýðublaðið - 11.06.1988, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 11. júní 1988
Erlendar
SMÁFRÉTTIR
1000 atriði
á dagskrá
Þaö veröur mikiö um dýrðir
á kvennaráðstefnunni í Osló.
Norsk blöð segja frá því aö
300 íslenskar konur hafi
aldrei komiö út fyrir lands-
steinana — fyrr en í Osló 30.
júl( til 7 ágúst. Færeyskar
konur taka skip á leigu, 1000
atriöi verða á dagskrá en ver-
iö er aö prenta dagskrána —
og í fyrsta sinni I heiminum
leikur synfónluhljómsveit,
sem er eingöngu skipuð
konum.
Of feitar
flugfreyjur
Flugfreyjur hjá Air
Zimbabwe eru um þessar
mundir aö Ijúka hálfs árs
megrunarkúr, svo að þær
munu ekki missa plássin.
Talsmenn flugfélagsins töldu
ófært aö feröast með of feit-
ar flugfreyjur og sögöu að
það gengi ekki lengur aö þær
rækjust á beggja vegna
göngustigsins milli sæta-
raöanna.
Á móti líknar-
drápi
Norrænir læknar sem
þinguðu í Danmörku í vikunni
aövara þingmenn viö llknar-
drápum eins og tíðkast t.d. I
Hollandi. Þaö stríðir gegn
siöfræöi lækna, en aftur á
móti eru þeir sammála því að
þaö sé sjúklingsins aö
ákveða hvort hann þiggur
hjálp.
Þriðjungur
„fór í veiði-
skap“
Þriðjungur kjósenda í
Frakklandi kaus ekki í kosn-
ingunum í Frakklandi á
sunnudaginn. Á morgun
ræðst þaö hvernig tekst aö
lokka þá sem ekki kusu á
kjörstað. Á frönsku kallast
þaö aö „fara í veiöiskap" ef
þú situr heima á kjördag.
íþróttamála-
ráðherrar
hittast
Fulltrúar Noröurlandaráös,
Norrænu ráðherranefndarinn-
ar og Iþróttamálaráðherrar
allra Norðurlanda hittast f
iþróttamiðstöðinni á Bosön,
rétt utan við Stokkhólm, 13,-
15. júní n.k.
Norræna samstarfsnefndin
(Fælleskommiteen), sem er
samstarfsnefnd Iþróttasam-
banda allra Norðurlanda, býð-
ur til ráðstefnu þar sem sam-
starf Norðurlanda að iþrótta-
málefnum verðurtil umræðu.
„Segið þeim
að halda kj...“
Boy George er að senda
frá sér plötu til styrktar sam-
tökum samkynja á Englandi.
Heiti plötunnar verður „Ekki
grein 28“ og vísar til baráttu
gegn nýjum lögum (landinu,
sem banna auglýsingar sem
hampa samkynhneigð. Boy
George segist hafa fengið
hugmynd að plötunni er hann
las fyrirsögn í breska blaðinu
The Sun: „Segið hommunum
að halda kjafti".
Boy George segir bresku lögin
koma öllum i koll, ekki bara sam-
kynhneigðum.
Engin svín,
takk!
ísraelska flugfélagið El Al
hefur hætt við að flytja 12
tonn af svínum á fæti frá
Bandaríkjunum til Evrópu.
Trúarbrögö gyðinga og músl-
ima banna svínakjötsát og
því treysti flugfélagið sér
ekki að hafa fólk og svln I
sömu vél
Tjón um 60
milljarðar kr.
á þessu ári
Norðmenn ætla að tjón af
völdum þörunga muni nema
um 60 milljörðum fsl. króna á
þessu ári. Af þeirri upphæð
eru verðmæti eldisfiskjar rff-
iega tuttugu
112 Reykjavík, sími
673150
-
/
BUNAÐARBANKIISLANDS
TRAUSTUR BANKI