Alþýðublaðið - 24.06.1988, Page 1
Höfn í
Hornafirði
DRÆM HUM-
ARVERTÍÐ
Humarvertíö á Höfn i
Hornafirði hefur gengið mjög
ilia það sem af er. Aðeins
hefur fengist um 40% af því
sem afiast hafði á sama tíma
í fyrra. Að sögn Egils Jónas-
sonar verkstjóra hjá Kaupfé-
lagi Austur-Skaftfellinga á
Höfn hafa bátarnir fengið
rúm 59 tonn á móti 141 i
fyrra.
Egill sagði aðspurðurað
bræla hefði hamlað veiðum
og því ekki vitað hvort miðin
væru að bregðast. Alls
stunda 15 bátar veiðar frá
Höfn, þar af einn sem frystir
um borð. Bátarnir leggja allir
upp hjá Kaupfélagi Austur-
Skaftfellinga.
Samkvæmt leyfi sjávar-
útvegsráðuneytisins lýkur
humarvertíðinni þann 15.
ágúst, en fyrstu bátar fóru til
veiða um hvítasunnuna.
Um 70-80 manns hafa
atvinnu við humarvinnsluna á
Höfn á meðan vertíðin stend-
ur yfir. Aflabresturinn hefur
þýtt mun minni tekjur en
undanfarin ár.
Egill sagði að Hornfirðing-
ar vonuðust til að úr rættist,
en allt útlit er fyrir aö vertíðin
verði mun lakari en í fyrra.
RÁÐHÚSBYGGING
FEST Á FILMU
Borgaryfirvöld og Isfilm í samvinnu um gerð heimildarmyndar. Tökur þegar hafnar.
Kvikmyndafyrirtækið ísfilm
hefur undanfarið kvikmyndað
framkvæmdir við byggingu
ráðhúss í Reykjavík. Hug-
myndin kom upphaflega frá
ísfilm-mönnum, sem leituðu
til Davíðs Oddsonar borgar-
stjóra. Davíð mun hafa tekið
vel í erindið og fól hann borg-
arverkfræöingi að leita eftir
samningum við ísfilm. Kvik-
myndatökur voru þá hafnar
og hafa haldið áfram eftir því
sem framkvæmdum hefur
miðað á lóðinni. Kostnaður
hefur jafnóðum verið greidd-
ur úr borgarsjóöi.
„Þetta er samstarf með
miklum ágætum." sagði Hall-
varður E. Þórsson, markaðs-
stjóri hjá ísfilm, þegar Al-
þýðublaðið bar þetta undir
hann i gær.
Þegar tekin var ákvörðun
um að flytja húsið Tjarnar-
götu 11 af lóðinni sem ráð-
húsi er ætlað, ákvað ísfilm
að festa atburðinn á filmu. I
framhaldi af því var Davíð
Oddssyni sent bréf þar sem
hugmyndin var reifuð um að
safna saman efni um bygg-
ingu ráðhússins, til þess að
eiga og varðveita fyrir kom-
andi kynslóðir.
Hallvarður sagði að Davið
Oddsson hefði tekið vel í
þetta og svaraði bréflega að
hann fæli borgarverkfræðingi
málið. í framhaldi af því sendi
borgarverkfræðingur ísfilm
bréf þar sem óskað var eftir
samningum um verkið.
Síðan þá hefur ísfilm kvik-
myndað framkvæmdir á ráð-
húslóðinni eftir því sem
þeim hefur miðað og
hafa reikningar jatnooum
verið greiddir úr borgarsjóði.
Aðspurður sagði Hallvarð-
ur að ekki væru um háar upp-
hæðir að ræða. „Þetta eru
mjög eðlileg viðskipti," sagði
hann.
Rikisráösfundur var haldinn á Bessastöðum í gærmorgun, hinn siðasti á ööru kjörtimabili Vigdísar Finnbogadóttur forseta. Rikisráðsfundur hafði
ekki veriö haldinn frá þvi þingi lauk i vor, m.a. vegna fjarveru ráðherra.
|Lj Jj
* * I Vítf IrM
Forsetakosningarnar
ERLENDIR FRÉTTAMENN FYLGJAST MEÐ
Talsvert er um að erlendir fréttamenn sýni forsetakosningunum áhuga. Að sögn Kornelíusar Sigmunds-
sonar, forsetaritara, hefur talsvert verið um að erlendir fréttamenn leiti til forsetaskrifstofunnar annað
hvort til að fá viðtöl við forsetann eða til þess að fylgjast með undirbúningi kosninganna.
Hér eru nú staddir fréttamenn frá norskum og þýskum útvarpsstöðvum og blaðamenn frá Frakklandi.
Stuðningsmenn Vigdísar segja að minna beri þó á erlendum fréttamönnum nú miðað við kosningarnar
árið 1980. Að sögn Kornelíusar er ekki vitað um neitt tilvik þess að erlendar fréttastofur sendi
fréttamenn til íslands í þeim tilgangi einum að fylgjast með forsetakosningunum heldur eru þeir
yfirleitt í almennri fréttaöflun og sýna þá Kvennalistanum ekki síðri áhuga. Sjá viðtöl og umfjöllun
um forsetakosningarnar í opnu.