Alþýðublaðið - 24.06.1988, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 24. júní 1988
FRETTASKYRING
Ómar Friðriksson
skrifar
Forsetakosningarnar 1988
Sigrún Þorsteinsdóttir
Vigdís Finnbogadóttir
IIM HVAD ER KOSIÐ?
Talsvert hefur veriö um aö
erlendir fréttamenn komi til
iandsins til að fylgjast með
forsetakosningunum. Þeir
reka þá upp stór augu þegar
þeir komast aö þvi aö hér
hefur lifið gengið sinn vana-
gang og fæstir með hugann
við kosningarnar enda litu
margir svo á að hér væri e.h.
sérislenskt grin á ferðinni.
Þegar aðeins vika var til
kosninganna fóru menn þó
að átta sig á að hér er blá-
köld alvaran á ferðinni. Það á
að fara að kjósa um forseta
lýðveldisins.
Skoöanakönnun fyrir
nokkrum vikum sýndi aó Sig-
rún Þorsteinsdóttir átti lítinn
sem engan stuðning og
margir spáöu því aö nú væri
Pétur Guðjónsson endanlega
að jarðsetja Flokk mannsins
með þessu „ósvífna" fram-
boðstilræði við forsetaem-
bættið. Stuðningsmenn Vig-
dísar munu hafa litð svo á að
hún þyrfti ekki að óttast það
að fá ekki „sovéska" kosn-
ingu þann 25. júní. Stefnan
var því sett á að fá sem flesta
til að mæta á kjörstað til að
sýna stuðning sinn við for-
setann og útiloka að annað
eins „kosningahneyksli" fái
að endurtaka sig. Þarna
gerðu hönnuðir kosninga-
baráttu Vigdísar alvarleg mis-
tök. Vigdís hefur forðast að
mæta mótframbjóðandanum
í fjölmiðlaeinvígi, hún hefur
neitað dagblöðum um kosn-
ingaviðtöl og í frambjóðenda-
kynningu hefur öll áhersla
verið lögð á að sýna hana í
Ijósi virðingar forsetaem-
bættisins og dregnir fram
fyrirmenn f þjóðmálalífi og
menningu til að lýsa yfir
stuðningi við hana. Á móti
hafa „safnaöarmeðlimir"
Flokks mannsins dregið fram
óþekkta borgara landsins til
að lýsa yfir stuðningi við Sig-
rúnu. Haglega hefur þeim
tekist að tengja framboð
hennarvið lífskjarabaráttuna
og baráttu gegn misvinsæl-
um aðgerðum stjórnvalda.
Kosningabaráttan hefur
einfaldlega fengið á sig þá
mynd að kosið sé á milli Vig-
dísar sem ber ímynd virðu-
legs embættis með stuðn-
ingi valdhafa og fyrirmanna,
og hins vegar einhverskonar
grasrótarhreyfingar.
Útkoman gæti orðið sú að
Sigrún fengi meiri stuðning
en skoðanakönnunin gaf til
kynna og ennfremur að fleiri
leiði kosninguna hjá sér sem
tilgangslítinn farsa í þjóðlífs-
sirkusnum. Þetta snýst auð-
vitað allt um spurninguna:
Um hvað er kosið í þessum
forsetakosningum? Eins og
sjá má af svörum fólksins á
götunni skiptir það yfirleitt
afar miklu hve Vigdís hefur
staðið sig vel sem forseti s.f.
átta ár. Stuðningurinn er því
bundinn við persónuna Vig-
dísi forsetaen ekki umbúðir
forsetastöðunnar eins og
ætla mætti af framboðskynn-
ingum. íslendingar hafa ekki
áhuga á þjóðhöfðingjastofn-
un sem er hafin hátt yfir lýð-
inn og með yfirbragð yfir-
stéttar.
X Vald forseta?
Flokkur mannsins minnir
stundum á leshóp í stjórnar-
skránni sem hefur allar
lausnir í ríkisrétti á taktein-
um og slær um sig með lýð-
ræðistali. Framboðstaktík
Péturs Guðjónssonar og co.
hefur gengið út á að tefla
Sigrúnu fram sem fulltrúa
þjóðarinnar gegn valdhöfum.
Þetta kalla þau aukið þátt-
tökulýðræði til verndar mann-
réttindum. Með þessu hefur
þeim tekist að hrinda af stað
nokkurri umræðu um valda-
stöðu forsetaembættisins og
örugglega veiðir Sigrún at-
kvæði út á þetta þó fæstir ís-
lendingar séu Ifklega svo
skyni skroppnir að halda að
með einum kosningum sé
hægt að skipta um stjórn-
kerfisform úr þingræöisfyrir-
komulagi yfir í forsetaræði.
Vigdísarmenn hafa lítið
viljað gefa út á valdsvið for-
setans því í raun er mjög
vandmeðfarið hvernig forseti
á að beita valdi sínu við
stjórnarmyndanir og engar
línur verða dregnar um það
hvenær forseti á að grípa til
neyðarréttaraðgerða gegn
þingræðisfulltrúum þjóðar-
innar.
X Forseta sem
sameiningartákn?
Stuðningsmenn Sigrúnar
hafa ekki teflt henni fram
sem sameiningartákni þjóð-
arinnar enda vonlaus kosn-
ingartaktík gagnvart Vigdísi
sem hefur náð góðum ár-
angri á því sviði og „leikið
hlutverkið" af prýði.
X Forseta sem
jafnréttistakmark ?
Sigur Vigdísar vakti heims-
athygli 1980 sem tákn um
framsókn kvenna og efalaust
munu einhverjir veita henni
atkvæði sitt af þeirri ástæðu
þrátt fyrir að kosningabarátt-
an snúist eöli máls skv. ekki
um kynjamisrétti. Hæpið er
að Flokkur mannsins hefði
teflt út í þessa baráttu í vor
ef Sigrúnar hefði ekki notið
við.
X Forseta sem tákn
íslands i alþjódasam-
félaginu?
Þaö er einsdæmi aö kona
sé lýðræðislega kjörinn for-
seti lýöveldis og hefur Vigdís
vakið mikla athygli hvar sem
hún hefur komið og borið
hróður íslands víða af mikilli
hæfni. Stuðningsmenn Sig-
rúnar hafa lítið hampaö henni
í þetta hlutverk.
X Forseta sem
sölumann?
Það er séreinkenni á for-
setaferli Vigdísar að opin-
berar heimsóknir hennar til
ríkja um víða veröld eru ná-
tengdar viðskiptatengslum
við þessar þjóðir. Sumir
markaðslega þenkjandi menn
líta svo á að forsetinn eigi
einmitt að hjálpa til við að
selja vörur úr landi. Einhverjir
veita henni eflaust stuðning
af þessari einu ástæðu.
Stuðningsmenn Sigrúnar
virðast leiða þetta hjá sér og
segja að það komi lýðræðis-
kosningu forseta ekkert vió
heldur sé hlutverk útflytj-
enda.
X Persónurnar Vigdísi
og Sigrúnu?
í litlu þjóðfélagi renna
persónur og leikendur í eitt.
Það er engin leið að gera sér
í hugarlund hvaða mynd kjós-
endur hafa af frambjóðend-
unum og hvernig þeir vilja að
þær falli inn I þá (mynd sem
menn gefa sér af forsetahlut-
verkinu. Vigdís hefur þó
mótað sinn stil og er sögð
vera hlýleg, einlæg og snjöll.
Sigrún segist vera fulltrúi
litla mannsins „og hefur ferð-
ast um landið og kynnst kjör-
um alþýðunnar". Hún ætlar
ekki að láta valdhafa komast
upp með mál sem hún er á
móti og láta þjóðina dæma í
þjóðaratkvæðagreiðslum.
Það fer svo eftir trúverðug-
leika Sigrúnar hvort hún
veiðir atkvæði út á þetta.
A Flokk mannsins?
Kosningaframboð Sigrúnar
er augljóslega komið undan
Flokki mannsins (þar sem
Pétur Guðjónsson er „mað-
urinn“ eins og einhver ágæt-
ur maður orðaði það). Stuðn-
ingsmenn Vigdísar hafa
greinilega hálfgerða imugust
á því að þurfa að fara út í bar-
áttu við stuðningsmenn
þessa sérkennilega flokks.
Tómlætið gagnvart framboði
Sigrúnar getur hafa vakið
upp samúð fólks með henni
og aflað henni einhverra
„mótmælaatkvæða" á þeim
forsendum að „Vigdís sigri
hvort sem er“.